Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Morðalda í Mexíkó Morð og mannrán eru um þessar mundir tíðari í Mexíkó en nokkru sinni fyrr og hyggjast stjórnvöld þar í landi grípa til stórhertra aðgerða gegn eiturlyfjahringjum og skipulagðri glæpastarfsemi. 12.1.2009 07:17
Aflaverðmæti í fyrra meira en nokkru sinni Aflaverðmæti íslenska fiskiskipaflotans var meira í fyrra en nokkru sinni fyrr og fór aflaverðmæti um það bil 20 skipa yfir einn milljarð króna. 12.1.2009 07:15
Harma hvernig staðið var að breytingum á St. Jósefs Félag sérfræðinga í meltingarsjúkdómum harmar hvernig var staðið að þeim breytingum, sem stjórnvöld kynntu nýverið á rekstri St. Jósefsspítala í Hafnarfirði. 12.1.2009 07:13
Vel á öðru hundraðinu í hálku Lögreglan á Selfossi stöðvaði í gærkvöldi tvo ökumenn vegna hraðaksturs á Biskupstungnabraut. Annar mældist á 116 kílómetra hraða en hinn á 130, þrátt fyrir að hálka væri á veginum. 12.1.2009 07:11
Ölvaður ökumaður reyndist á stolnum bíl Ölvaði ökumaðurinn, sem lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði eftir nokkra eftirför í gærmorgun, reyndist hafa tekið bílinn ófrjálsri hendi. Það kom fram við yfirheyrslur yfir honum í gærkvöldi. 12.1.2009 07:07
Saka oddvitann um að stela bókhaldinu Þegar Sigurbjörn Hjaltason, oddviti Kjósarhrepps, mætti til vinnu eftir jól mætti honum stórskemmd hurðin á hreppsskrifstofunni. Brotist hafði verið inn og tölvum með gögnum hreppsins stolið. Þau eru ófundin. 12.1.2009 06:00
Pandan Gu Gu söm við sig Pandan Gu Gu í dýragarðinum í Peking er allt annað en gestrisin í garð óboðinna gesta. Á því fékk maður að kenna á miðvikudag þegar hann klifraði yfir eins og hálfs metra háa girðingu til að ná í leikfang sem fimm ára sonur hans hafði misst ofan í búr pöndunnar. 12.1.2009 06:00
Tillögufrestur rennur út í dag Frestur til að skila inn tillögum vegna hönnunar sýningarskála Íslands á heimssýningunni í Kína, EXPO 2010, rennur út í dag. Fimm fyrirspurnir um verkefnið bárust Ríkiskaupum áður en frestur til fyrirspurna rann út. Leigður verður 500 fermetra skáli fyrir Ísland á svæði með hinum Norðurlöndunum. Eftir að kreppan hófst var ákveðið að framlag ríkisins verði um það bil aðeins þriðjungur af því sem var áætlað. Ríkið muni þannig verja um 150 milljónum í sýninguna og fá þess utan framlög frá fyrirtækjum. - gar 12.1.2009 05:30
Atvinnurekendur svíkja út bæturnar Fyrirtæki og einstaklingar misnota atvinnuleysisbætur vegna hlutastarfs í auknum mæli og nýta þær sem launagreiðslur, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. 12.1.2009 05:00
Hærri greiðslur frá áramótum Greiðslur til stuðningsfjölskyldna sem annast sólarhringsvistun fatlaðra barna í skamman tíma hækkuðu um 12,5 prósent um áramótin. 12.1.2009 05:00
Segja tölur um gjaldþrot ýktar Ekki er raunhæft að ætla að 3.500 fyrirtæki verði gjaldþrota á árinu, eins og tölur sem Credit Info á Íslandi hefur tekið saman gefa til kynna. Þetta segir Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra. Hann segir að hér sé skuldastaða fyrirtækjanna tekin miðað við gengi krónunnar eins og það sé í dag. Það sé ekki raunhæft viðmið, enda vitað að gengið eigi eftir að styrkjast. 12.1.2009 04:45
Frjálslyndir funduðu í framsóknarvígi Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, og þingflokksformaðurinn Jón Magnússon funduðu með ríflega sjötíu Íslendingum á Klörubar á Kanaríeyjum á laugardag. Barinn hefur hingað til verið þekktur sem mikið vígi framsóknarmanna og þeir reglulega haldið þar fundi. 12.1.2009 04:00
Ríkisfyrirtæki bíða úrskurðar kjararáðs Stjórnir fyrirtækja í eigu ríkisins fara yfir tilmæli ríkisstjórnarinnar um að lækka laun helstu stjórnenda á næstunni. Talið er að niðurstaða kjararáðs varðandi launalækkun æðstu embættismanna og stórra hópa í þjónustu ríkisins geti lagt línuna fyrir ríkisfyrirtæki og er því beðið eftir niðurstöðu kjararáðs. Undirbúningur kjararáðs hefst á næstunni og má búast við að niðurstaða liggi fyrir síðar í janúar. 12.1.2009 04:00
Mikil aðsókn á landsfund Allflest félög í Sjálfstæðisflokknum hafa gengið frá skráningu landsfundarfulltrúa sinna samkvæmt upplýsingum sem fengust á skrifstofu flokksins. Mikill áhugi á fundinum er talinn stafa af stöðu efnahagsmála á Íslandi auk þess sem ákvarðanir um stefnu flokksins í Evrópumálum liggja fyrir fundinum. 12.1.2009 03:45
Svo sannarlega ekkert lamb að leika sér við „Lambið er mjög sprækt og ljónstyggt svo að það er mjög erfitt að nálgast það,“ segir Hlynur Sigurðarson, formaður björgunarsveitarinnar Kyndils í Mosfellsbæ, sem ásamt þremur öðrum björgunarsveitarmönnum og sex bændum gerði árangurslausa tilraun til að ná lambi af syllu í Úlfarsfelli í gær. 12.1.2009 03:45
Verka fisk við Malavívatn Þróunarsamvinnustofnun Íslands hefur sett upp fiskverkunaraðstöðu í þorpinu Madzedze við Malavívatn. Aðstaðan gæti hugsanlega orðið fyrirmynd fleiri slíkra umhverfis Malavívatn. „Framtíðin verður að dæma um hvort vel hafi til tekist og hvort þetta verði fiskimannafjölskyldum til framdráttar með aukinni fæðuöflun,“ er haft eftir Stefáni Kristmannssyni, verkefnastjóra fiskimála hjá ÞSSÍ í Malaví, í tilkynningu. 12.1.2009 03:30
Náttúrulegu skilyrðin góð Síðasta ár var metár í innvigtun mjólkur en rúmum 126 milljónum lítra af mjólk var skilað til samlaga innan Samtaka afurðastöðva á árinu. 12.1.2009 03:30
Segir umræðuna í sjálfheldu Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra útilokar ekki lengur að látið verði á það reyna hvaða árangur gæti náðst í aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Hann telur það nauðsynlegt í ljósi þess endurmats sem nú fer fram í Evrópumálum í kjölfar bankahrunsins. Hann segir hins vegar ljóst að samningsmarkmið slíkra viðræðna yrðu út frá hagsmunum Íslands og gengu lengra en hjá öðrum þjóðum. 12.1.2009 03:15
Endurskoðun fer á fullt Formenn og samninganefnd Alþýðusambandsins, ASÍ, hefur átt fund með forystu opinberra starfsmanna í því skyni að taka upp samningaviðræður um að framlengja kjarasamninga sem losna um miðjan febrúar. Upp úr viðræðum við ríkið slitnaði fyrir jól. 12.1.2009 03:00
Sjósundkona er maður ársins Birna Jóhanna Ólafsdóttir, sundkona og lyfjafræðingur, hefur verið kjörin íþróttamaður ársins 2008 á Álftanesi. 12.1.2009 03:00
Arðgreiðslur í stað tekna skattavandamál „Í ljósi breytinga í þjóðfélaginu þarf að taka skattalöggjöfina til gagngerrar endurskoðunar,“ segir Birkir Jón Jónsson, fulltrúi Framsóknarflokks í efnahags- og skattanefnd. „Þá þarf að gæta meira jafnræðis milli þeirra sem reka einkahlutafélög og fá tekjur í gegnum arðgreiðslur og almennra launamanna.“ Hann segir fulla ástæðu til að endurskoða skattkerfið, þannig að það verði einfalt, en tekið sé tillit til aðstæðna fjölskyldna. 12.1.2009 03:00
Endurskoða ætti fyrirkomulag við ráðningar dómara Fulltrúar allra flokka í allsherjarnefnd Alþingis telja ástæðu til að endurskoða fyrirkomulag við skipanir dómara, bæði við héraðsdóma og Hæstarétt. Þeir vilja hins vegar ganga mislangt í þeim efnum. 12.1.2009 03:00
Íslenskur eldisfiskur til Evrópu HB Grandi hefur flutt út 50 tonn af eldisþorski til Evrópu. Fiskurinn kemur úr tilraunaeldi fyrirtækisins í Berufirði og hefur verið tvö ár í sjó. Um hágæðahráefni er að ræða segir Eggert Benedikt Guðmundsson, forstjóri fyrirtækisins. 12.1.2009 02:45
Tónleikum verður fækkað „Við ætlum ekki að grípa til uppsagna nema í allra, allra ýtrustu þörf og vonum að til þess þurfi ekki að koma," segir Þröstur Ólafsson, framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands. 12.1.2009 02:45
Nóg af fiski en erfitt að veiða „Það er nóg af henni hérna en það er bara málið að koma henni í pokann og halda henni þar,“ sagði Gylfi Viðar Guðmundsson, skipstjóri á Hugin VE, í gær þar sem hann var við tilraunaveiðar á norrænni gulldeplu. 12.1.2009 02:30
Bush heldur upp á afmælið með fallhlífarstökki George H.W. Bush eldri, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, ætlar að halda upp á 85 ára afmælið sitt með því að stökkva í fallhlíf. Sonur hans, George W. Bush yngri og núverandi Bandaríkjaforseti segir hann klikkaðan. 11.1.2009 20:57
Betra að fá lánað en staðgreiða Neytendur sem staðgreiða vörur geta verið í lakari réttarstöðu en þeir sem borga með raðgreiðslum fari fyrirtækið í þrot, segir talsmaður neytenda. Dæmi eru um að fólk sitji uppi með gallaðar og jafnvel ónýtar vörur sem það fær ekki bætt vegna þess að fyrirtækið sem seldi því vöruna hefur skipt um kennitölu. 11.1.2009 19:05
Ríkisskattstjóri rannsakar fleiri greiðslukort Þrjátíu erlend greiðslukort hafa bæst við í rannsókn Ríkisskattstjóra á notkun kortanna hér á landi eftir að tímabil rannsóknarinnar var lengt. Alls eru því 60 erlend greiðslukort til skoðunar. Íslenskir eigendur kortanna notuðu erlendu kortin hér á landi og gátu þannig komist hjá því að greiða skatt af tekjum sínum. 11.1.2009 18:39
Uppstokkun á ríkisstjórninni væntanleg Uppstokkun á ríkisstjórninni er talin í bígerð. Í þingliði stjórnarinnar er rætt um að flokkarnir víxli á utanríkis- og fjármálaráðuneyti, og jafnvel fleiri ráðuneytum, og að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fari í menntamálin frekar en fjármálin. 11.1.2009 18:34
Þúsundir gætu látist úr kulda og flensu í Bretlandi Kuldi og flensa gætu fellt þúsundir manna í Bretlandi í vetur að mati mannúðarsamtaka þar í landi. Mikill kuldi, skæð flensa og efnahagskreppan koma illa við eldri borgara og þá sem veikari eru fyrir. 11.1.2009 16:13
Obama boðar breytingar á utanríkisstefnu Barack Obama, verðandi Bandaríkjaforseti, boðaði breytingar á utanríkisstefnu Bandaríkjanna í viðtali í dag. Hann sagðist vilja beinar viðræður á skilyrða við Írana um kjarnorkuáætlun þeirra. Hann segist ætla að standa við loforð sitt um að loka Guantanamo-fangabúðunum. 11.1.2009 19:34
Harðir bardagar á Gaza í dag Ísrelskir hermenn börðust í návígi við herskáa Palestínumenn í úthverfum Gaza-borgar í dag. Bardagarnir munu þeir hörðustu frá upphafi landhernaðar Ísraela á Gaza fyrir rúmri viku. 11.1.2009 19:15
Læknir ætlar í mál við ríkið vegna uppsagnar Stjórn sjúkrahússins á Akureyri beitir starfsfólk sitt ofbeldi, segir forstöðumaður dagdeildar á geðsviði sjúkrahússins. Hann ætlar í skaðabótamál við ríkið, vegna meintrar ólöglegrar uppsagnar. 11.1.2009 18:53
Sænskt sjúkrahús jafnað við jörðu á Gaza Ísraelsher jafnaði í dag við jörðu sjúkrahús sem sænska kirkjan rekur á Gazaströndinni. Sjúkrahúsið varð fyrst fyrir flugskeyti úr þyrlu hersins og skömmu síðar rigndi skotum frá skriðdrekum yfir húsið. Engann sakaði, en sjúkrahúsið er gjörónýtt. 11.1.2009 17:59
Ellilífeyrisþegi kveikti í þingmanni Reiður ellilífeyrisþegi réðst á singapúrskan þingmann í dag og kveikti í honum, vegna óánægju með að hafa ekki fengið nýársgjöf. 11.1.2009 15:15
Sameining til að verja heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra hvetur menn til að skoða reynsluna af sameiningu heilbrigðisstofnana á Austurlandi og Suðurlandi. Hörð mótmæli berast nú gegn sameiningum annarsstaðar á landsbyggðinni. Hann viðurkennir að margir stjórnendur muni missa vinnuna. 11.1.2009 12:09
Bretar vilja úr ESB Nærri tveir þriðjuhlutar breskra kjósenda vilja skera á tenglsin við Evrópusambandið að hluta eða alfarið. 11.1.2009 12:01
Eltingarleikur við ölvaðan ökumann Lögregla á Suðurnesjum handtók í morgun mjög ölvaðan ökumann eftir eftirför um götur Reykjanesbæjar. Maðurinn sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglu og ók utan í lögreglubifreiðina við eftirförina. 11.1.2009 11:42
Telur kosningar líklegar fyrir lok kjörtímabils Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra telur líklegt að kosið verði áður en kjörtímabilinu lýkur árið 2011. Þetta sagði hún í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. 11.1.2009 11:29
Ferja sökk í aftakaveðri Ferja með 250 farþega og 17 manna áhofn innanborðs sökk í aftakaveðri í austurhluta Indonesíu í nótt. Samgönguráðherra landsins sagði að 150 hefði verið náð úr flakinu, en tiltók ekki hvort fólkið var lífs eða liðið. Talsmaður ráðuneytisins sagði fyrr í dag að vitað væri að átján manns hefðu lifað slysið af. Fellibylur geysar nú á svæðinu og er ölduhæð mikil. 11.1.2009 11:15
Opnað fyrir gasið Eftirlitsmenn frá Evrópusambandinu eru á leið til gasdælustöðva í Úkraínu til að hafa eftirlit með rússagasi sem flæðir um leiðslur þar til viðskiptavina í Mið- og Suður-Evrópu. Rússar skrúfuðu fyrir gas til Úkraínumanna í desember vegna deilna um verð. Þeir sökuðu síðan Úkraínumenn um að stela úr leiðslum gasi sem átti að fara annað og skrúfuðu fyrir það líka. Nú verður opna fyrir það streymi eftir að ráðamenn í Kænugarði samþykktu í gær að hleypa eftirlitsmönnum inn í landið. Þannig fá krókloppnir Evrópubúar aftur gas til húshitunar en það getur þó tekið allt upp í þrjá sólahringa að fá fram fullt flæði. Gasdeila Rússa og Úkraínumann er enn óleyst. 11.1.2009 10:23
Segja mannslífum stefnt í hættu Starfsmannafélag Heilbrigðisstofnunarinnar á Blönduósi mótmælir harðlega öllum hugmyndum um stórfellda sameiningu heilbrigðisstofnana, sem kynntar voru á fundi 7. janúar. Í tilkynningu frá félaginu segir að engin haldbær gögn hafi verið lögð fram sem sýni að um raunsparnað sé að ræða og engin fagleg rök hafi komið fram fyrir sameiningunni. Þjónusta við íbúana muni skerðast verulega og mannslífum sé stefnt í hættu. 11.1.2009 10:12
Bretaprins biðst afsökunar Harry Bretaprins hefur beðist afsökunar á orðbragði sínu á upptöku sem breska blaðið News of the World birtir í dag. Upptakan er frá 2006 og tekin af félaga prinsins þar sem þeir og fleiri liðsforingjaefni í breska hernum biðu eftir flugi til æfingabúða á Kýpur. Í samtali notar Harry niðrandi orð um Pakistana og Araba. Hann talar um "Paki" þegar hann vísar til kunningja síns frá Pakistan en það orð þykir afar niðrandi. Harry kallar einnig annan félaga sinn handklæðahaus eða "raghed" sem þykir bera vott um fordóma í garð Araba og vísa til höfuðklúta þeirra. Prinsinn hefur sent frá sér opinbera afsökunarbeiðni og segist harma orðavalið. Ummælin hafi hins vegar ekki átta að vera meiðandi. 11.1.2009 09:45
Drykkjulæti og sprengingar í Reykjavík í nótt Nóttin var erilsöm hjá lögreglunni í Reykjavík. Flest voru útköllin vegna hávaða frá samkvæmum í heimahúsum eða sprengingum, en skotgleði landans virðist lítið hafa dvínað þó langt sé liðið á janúar. 11.1.2009 09:43
Aðeins eðlilegar gengisvarnir Forsvarsmenn Existu hafna því að félagið hafi veikt íslensku krónuna með því að taka stöðu gegn henni, eins og fulltrúar Landssambands íslenskra útvegsmanna hafa haldið fram. 11.1.2009 00:01