Arðgreiðslur í stað tekna skattavandamál 12. janúar 2009 03:00 Birkir Jón Jónsson „
Í ljósi breytinga í þjóðfélaginu þarf að taka skattalöggjöfina til gagngerrar endurskoðunar,“ segir Birkir Jón Jónsson, fulltrúi Framsóknarflokks í efnahags- og skattanefnd. „Þá þarf að gæta meira jafnræðis milli þeirra sem reka einkahlutafélög og fá tekjur í gegnum arðgreiðslur og almennra launamanna.“ Hann segir fulla ástæðu til að endurskoða skattkerfið, þannig að það verði einfalt, en tekið sé tillit til aðstæðna fjölskyldna. Í Fréttablaðinu fyrir skömmu birtist grein eftir Svein Jónsson, fyrrum löggiltan endurskoðanda, þar sem hann lýsir efasemdum sínum á skattalagabreytingum sem gerðar voru 2001, þegar tekjuskattur á hlutafélög og einkahlutafélög var lækkaður í 18 prósent. Þessi skattur var svo lækkaður í 15 prósent í vor. Sveinn segir í grein sinni að hann fái ekki séð „hvernig náðst getur samstaða og samhugur með þjóðinni ef ekki verður tekið á því misrétti,“ sem hann telur upp í greininni. Annars vegar að tekjuháir einstaklingar geti lækkað skatta sína með því að greiða sér arð í stað launa. Hins vegar að sveitarfélög verði af útsvarstekjum. Gunnar Svavarsson, sem situr fyrir Samfylkingu í efnahags- og skattanefnd, segir rétt að skoða skattalöggjöfina „í því ljósi að tekjuskattur einstaklinga var að hækka en tekjuskattur hlutafélaga var að lækka“. Sérstaklega telur hann að þurfi að endurskoða tekjuskiptingu ríkis og sveitarfélaga og telur að vaxandi skilningur sé fyrir því á Alþingi. Bjarni Benediktsson, fulltrúi Sjálfstæðisflokks í efnahags- og skattanefnd, og Katrín Jakobsdóttir, fulltrúi Vinstri grænna, eru sammála um að við núverandi aðstæður sé ekki rétt að hækka skatt á fyrirtæki. „Vandinn snýst um þá sem koma sér undan að greiða það sem með réttu ætti að falla undir tekjuskatt,“ segir Bjarni. „Við höfum mælt fyrir því að tekinn yrði upp hátekjuskattur, hækkun á fjármagnstekjuskatti og að þeir sem hafa fjármagnstekjur greiði sér laun og þar af leiðandi tekjuskatt og útsvar,“ segir Katrín. Hvað varðar breytingar á skattkerfinu segir hún að ástæða sé til að skoða réttlátari dreifingu á skattbyrðinni. Gunnar Svavarsson Bjarni Benediktsson Katrín Jakobsdóttir Ríkisstjórnin kynnir fjárlagafrumvarpið 2009 Frá og með 1. janúar hækkuðu tekjuskattar um eitt prósentustig.Fréttablaðið/GVA
Mest lesið Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Innlent Kveiktu bál á bílastæði Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Erlent Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Innlent Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Erlent Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Erlent Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Innlent Fleiri fréttir Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið Sjá meira