Uppstokkun á ríkisstjórninni væntanleg 11. janúar 2009 18:34
Uppstokkun á ríkisstjórninni er talin í bígerð. Í þingliði stjórnarinnar er rætt um að flokkarnir víxli á utanríkis- og fjármálaráðuneyti, og jafnvel fleiri ráðuneytum, og að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fari í menntamálin frekar en fjármálin. Hávær krafa er um breytingar, ekki aðeins úr samfélaginu heldur einnig innan stjórnarflokkanna beggja, og talið líklegt að formenn stjórnarflokkanna bregðist við innan fárra vikna með uppstokkun á ríkisstjórninni, að því gefnu að stjórnarsamstarfið haldi og að ekki verði boðað til kosninga innan skamms. Tveir baksamningar, sem talið er að hafi verið gerðir við myndun ríkisstjórnarinnar, þrýsta einnig á breytingar; um að embætti Forseta Alþingis færðist yfir til Samfylkingarinnar á miðju kjörtímabili, og vilyrði sem Geir H. Haarde er talinn hafa gefið Bjarna Benediktssyni um ráðherradóm. Heimildir fréttastofu herma að formenn stjórnarflokkanna hafi fyrir jól stefnt að uppstokkun um áramótin en af einhverjum ástæðum fallið frá því. Sú skýring heyrist að fólk í kringum að Björgvin G. Sigurðsson og Þórunni Sveinbjarnardóttur hafi brugðist svo hart við fregnum um að þeim yrði skipt út að formaðurinn, Ingibjörg Sólrún, hafi kosið að bíða um sinn. Þau tvö eru engu að síður enn talin líkleg til að víkja. Innan Sjálfstæðisflokksins er talið líklegt að Árni M. Mathiesen hætti auk Björns Bjarnasonar, með þeim rökum að þeir tveir hafi setið lengst, fyrir utan forsætisráðherrann. Í staðinn þykir líklegast, auk Bjarna Benediktssonar, að Kristján Þór Júlíusson komi inn, sem leiðtogi eina kjördæmisins sem er án ráðherra hjá sjálfstæðismönnum. Hjá Samfylkingunni eru nú taldar líkur að Jóhanna Sigurðardóttir stigi til hliðar og hætti með reisn áður en lagt verður í óvinsælan niðurskurð. Úr þingmannahópnum er Gunnar Svavarsson, formaður fjárlaganefndar, nú talinn líklegastur til að koma inn, en þar næst Steinunn Valdís Óskarsdóttir og Lúðvík Bergvinsson. Víxlun á fjármála- og utanríkisráðuneyti milli flokkanna er einnig til umræðu, og fleiri möguleikar nefndir, eins og dómsmála- og viðskiptaráðuneyti, menntamála og samgönguráðneyti eða menntamála- og viðskiptaráðuneyti, og þá í samhengi við það að veigameira ráðuneyti færðist til Samfylkingarinnar gegn því að embætti Forseta Alþingis yrði áfram hjá Sjálfstæðisflokknum. Veikindi Ingibjargar Sólrúnar eru talin valda því að hún kjósi fremur ráðherraembætti sem kalli á færri ferðalög og horfi þá fremur til menntamálaráðuneytis en fjármálaráðuneytis.
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Heiða greinir frá morðhótunum Innlent Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Mikil spenna í veðurkortunum Innlent Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Innlent Fleiri fréttir Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Afbókuðu hantaveiruskipið í maí en enn væntanlegt í ágúst Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Hafi ekki hætt þrátt fyrir ítrekuð högg frá konunni Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu Sjá meira