Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Björn Bjarna skrifar bók um Evrópumálin Björn Bjarnason dómsmálaráðherra hefur skrifað bók um tengsl Íslands og Evrópusambandsins. Björn greindi frá þessu á heimasíðu sinni í gær og sagðist með þessu vilja efla umræður um Evrópumálin. Bókin, sem nefnist Hvað er Íslandi fyrir bestu? kom úr prentun í gær. Hún fer sölu og kynningu í bókaverslunum eftir helgi, en það er útgáfufélagið Ugla sem gefur bókina út. 10.1.2009 14:53
Versnandi veður á Norðurlandi Veður fer versnandi á Norðurlandi frá Skagafirði austur að Melrakkasléttu. Í tilkynningu frá Vegagerðinni er spáð vaxandi ofanhríð og skafrenningi og afar takmörkuðu skyggni og erfiðum akstursskilyrðum. Dregur úr ofanhríð og vindi undir kvöldið. 10.1.2009 13:19
Sjóræningjar fengu þrjár milljónir dollara Sómalskir sjóræningjar hafa í gær og í morgun skilað tveimur skipum sem þeir rændu í nóvember. Annað þeirra er sádí arabísk risaolíuskip. Fyrir það fengust þrjár milljónir bandaríkjadala í lausnargjald. Fimm sjóræningjanna drukknuðu skömmu eftir að þeir höfðu skilað skipinu. 10.1.2009 12:20
Lágt olíuverð hindrar nýja orkugjafa Lægra olíuverð minnkar verulega hvatann til að finna nýja orkugjafa og erfiðar efnahagsaðstæður seinka tilkomu nýrra orkugjafa um einhver ár. Þetta kemur fram í nýrri eldsneytisspá sem Orkuspárnefnd hefur gefið út til næstu áratuga. 10.1.2009 12:18
Sérfræðingar vonlitlir um vopnahlé á Gaza Þrátt fyrir að Hamas-samtökin og Ísraelar hafi sent fulltrúa til Egyptalands til viðræðna um vopnahlé á Gaza dvína vonir um að nokkuð verði af samkomulagi um slíkt. Sprengjum rigndi yfir Gaza í nótt fimmtánda daginn í röð og flugskeytum var áfram skotið á Ísrael. 10.1.2009 12:12
Fjöldi mótmælafunda í dag Niðurskurði í heilbrigðiskerfinu verður víða mótmælt í dag. Borgarafundur verður í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði klukkan 14, en þar vonast menn til að heilbrigðisráðherra verði meðal gesta. Klukkan 15 verður mótmælaganga á Akureyri, frá Samkomuhúsinu að Ráðhústorginu. Þar er hreppaflutningum á gamla fólkinu mótmælt, sem og lokun geðdeilda, uppsögnum ljósmæðra og skerðingu á þjónustu fjórðungssjúkrahússins. 10.1.2009 12:08
Skíðasvæðin í Hlíðarfjalli og Oddsskarði opin Vont veður veldur því að mörg skíðasvæði verða lokuð í dag þrátt fyrir að ekki vanti snjóinn. Veðrið er bærilegra hjá öðrum, og verða skíðasvæðin í Hlíðarfjalli og Oddsskarði opin í dag. 10.1.2009 11:34
Hálka um land allt Færð er slæm um mest allt land og hálka í öllum landshlutum. Hálka er á Reykjanesbraut. Á Suðurlandi er hálka og hálkublettir. Snjóþekja er á Sandskeiði, Hellisheiði og í Þrengslum. Á Vesturlandi er snjóþekja, hálka og hálkublettir. Hálkublettir eru á Holtavörðuheiði. 10.1.2009 10:59
Rólegheitanótt um land allt Nóttin var með rólegasta móti um allt land. Þrír voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu. Þá barst Lögreglu fremur óvanaleg tilkynning um að skipstjóri væri ölvaður og beið eftir að hann kæmi í land við Reykjavíkurhöfn. Lögreglan á Selfossi tók einn fyrir fíkniefnaakstur. Þá varð ein bílvelta á Skeiðarvegi seint í gærkvöldi. Tvennt var í bílnum og sluppu ómeidd. 10.1.2009 10:15
Obama til í að tala við Hamas Barack Obama, verðandi Bandaríkjaforseti, mun að líkindum láta af þeirri stefnu George Bush fráfarandi forseta að einangara Hamas-samtökin og neita viðræðum við þau um átökin fyrir botni Miðjarðarhafs. Breska blaðið Guardian hefur þetta eftir heimildarmönnum úr ráðgjafahóp Obama. 10.1.2009 10:05
Bara fuglinn fljúgandi kemst á sjúkrahúsið Bæjarstjórn Vesturbyggðar bendir á að á milli sunnan- og norðanverðra Vestfjarða kemst enginn nema fuglinn fljúgandi í allt að 8 mánuði á ári vegna erfiðra samgangna og mótmælir harðlega fyrirhugaðri sameiningu Heilbrigðisstofnunarinnar á Patreksfirði við Heilbrigðisstofnunina á Ísafirði. 10.1.2009 09:59
Sjóræningjar skila skipi Sómalskir sjóræningjar skiluðu í morgun írönsku flutningaskipi, The Delight, sem rænt var undan strönd Jemen í nóvember. Verið var að flytja þrjátíu og sex þúsund tonn að hveiti með skipinu frá Íran til Þýskalands þegar því var rænt. Tuttugu og fimm manna áhöfn var um borð. Ekki er vitað hvort lausnargjald var borgað fyrir skipið og þá hve há upphæð. Sjórnæningjar skiluðu í gær sádí arabíska risaolíuskipinu Sirius Star sem einnig var rænt í nóvember. Þrjár milljónir bandaríkjadala voru greiddar í lausnargjald fyrir það. Fimm sjóræningjar drukknuðu þegar bát þeira hvolfdi nærri Sirius Star en þeir höfðu þá skömmu áður farið úr olíuskipinu yfir í eigin bát. Ekki er vitað hvort þeir voru með lausnargjaldið á sér. 10.1.2009 09:56
Viðræður um vopnahlé í Egyptalandi Samningamenn Hamas og Ísraelsstjórnar eru komnir til Egyptalands til að ræða mögulegt vopnahlé á Gaza. Loftárásir og bardagar héldu þó áfram í nótt. 10.1.2009 09:52
Bjarni tekur við embætti Björns Björn Bjarnason lætur af embætti dóms- og kirkjumálaráðherra að loknum landsfundi Sjálfstæðisflokksins um næstu mánaðamót. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er ákveðið að Bjarni Benediktsson alþingismaður taki við embættinu. 10.1.2009 07:00
Sérstakur saksóknari rannsaki gengisfallið Forsvarsmenn útgerðarinnar spyrja hvort bankarnir og eigendur þeirra hafi svindlað og krefjast rannsóknar. Útgerðinni voru seldir gengissamningar sem gerðu ráð fyrir sterkri krónu. Bankarnir og eigendurnir veðjuðu á veikingu. 10.1.2009 06:00
Slökkviliðið kallað að Áslandsskóla Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað að Áslandsskóla í Hafnarfirði laust fyrir klukkan tíu í kvöld. Þar hafi brunaboði farið í gang. Talið er að flugeldi hafi verið skotið inn í skólann og reykurinn sem hlaust af hafi kveikt á brunavarnarkerfinu. Ekki var um neinn eld að ræða. 9.1.2009 22:06
Tæknifræði í fyrsta sinn á vegum HÍ Kennsla hefst í lok mánaðarins í tæknifræði við Háskóla Íslands í fyrsta sinn og er námið samstarfsverkefni HÍ og Keilis, miðstöðvar vísinda, fræða og atvinnulífs. Nemendur verða skráðir við HÍ og munu útskrifast þaðan, en námið fer fram hjá Keili á gamla varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli. 9.1.2009 21:48
Formenn stjórnarflokkanna segja litlar líkur á kosningum Forsætisráðherra segir ólíklegt að boðað verði til alþingiskosninga á þessu ári. Ágreiningur stjórnarflokkanna um hvort boða eigi til sérstakrar þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildaviðræður að Evrópusambandinu kallar ekki á stjórnarslit að mati formanna stjórnarflokkanna. 9.1.2009 19:31
Átta virkjanir gæti þurft fyrir Helguvík Ráðamenn Orkuveitu Reykjavíkur og Hitaveitu Suðurnesja eru sammála um að fyrirtækin muni ekki getað útvegað alla þá orku sem álver í Helguvík þarf innan sjö ára, þrátt fyrir að þau réðust í byggingu sex virkjana. Tvöhundruð megavött hið minnsta vantar upp á, sem samsvarar því að virkja þyrfti til viðbótar bæði við Bitru og Urriðafoss til að ná endum saman. 9.1.2009 19:07
Flokkarnir fá hálfan milljarð króna Styrkir til stjórnmálaflokkanna voru ekkert skornir niður í meðförum Alþingis. Flokkarnir fá rúmlega hálfan milljarð króna í styrki frá ríkinu á þessu ári, samkvæmt nýsamþykktum fjárlögum. 9.1.2009 19:04
Varaformaður fjárlaganefndar vill heilbrigðisstofnanir til sveitarfélaga Kristján Þór Júlíusson, varaformaður fjárlaganefndar Alþingis, styður heilshugar þá hugmynd að færa nærþjónustu alfarið til sveitarfélaganna. 9.1.2009 18:25
Stálu skóm og leikfangaböngsum Tveir karlmenn voru dæmdir í sekt fyrir að stela tveimur skópörum og leikfangaböngsum í verslun Nóatúns á Selfossi. Annar maðurinn þarf að greiða 80.000 króna sekt en hinn 15.000 krónur. 9.1.2009 16:53
Sektaður fyrir að tálma lögreglumenn við störf Karlmaður var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í 30.000 króna sekt fyrir það sem kallað er að tálma lögreglumenn við störf. Maðurinn var handtekinn eftir að hann lét ófriðlega þegar lögregla stöðvaði ökumann sem grunaður var um að aka undir áhrifum áfengis. 9.1.2009 16:41
Rauðum vökva skvett á utanríkisráðuneytið Tíu manna hópur mótmælenda safnaðist saman við utanríkisráðuneytið síðdegis. Hluti hópsins var með klúta fyrir andlitinu. Fólkið skvetti röðum vökva í anddyri ráðuneytisins sem er búið er að þrífa að sögn Urðar Gunnarsdóttur, upplýsingafulltrúa utanríkisráðuneytisins. 9.1.2009 16:30
Hægt að gegnumlýsa 40 feta gám á innan við mínútu Í dag fór fram formleg afhending á gámagegnumlýsingabifreið sem Tollstjórinn hefur keypt í þeim tilgangi að efla aðgerðir gegn fíkniefnasmygli og auka öryggi vöruflutninga. Það var Árni Mathiesen fjármálaráðherra sem veitti bifreiðinni móttöku úr hendi fulltrúa fulltrúa kínverska fyrirtækisins Nuctech, en fyrirtækið átti hagstæðasta boð í útboði vegna kaupanna. 9.1.2009 16:27
2312 skráðar skammbyssur í umferð á Íslandi Um áramótin voru skráð 52.123 skotvopn í landskrá skotvopna. Þar af eru 2312 skammbyssur. Vika er síðan að lögregla handtók 16 ára gamlan pilt sem gekk um Smáíbúðahverfið vopnaður skammbyssu. Henni hafði hann stolið úr ólæstri hirslu föður síns sem er fyrrverandi lögreglumaður. Drengurinn hleypti af byssunni við leikskólann Jöfra. 9.1.2009 16:02
Fundu ekki nægilega mikið af loðnu til að leyfa veiðar Í nótt lauk mælingu á loðnustofninum þar sem þrjú veiðiskip voru notuð til mælinga. Ekki fannst nægilegt magn af loðnu til að hægt væri að leyfa veiðar á henni að svo stöddu. 9.1.2009 14:57
Þorgerður og Geir skipta á starfsmönnum Líkt og Vísir greindi frá fyrir stundu var boðað til fundar í menntamálaráðneytinu með skömmum fyrirvara nú í morgun. Þar voru breytingar á ráðuneytinu kynntar sem m.a. lúta að því að Guðmundur Árnason ráðuneytisstjóri færir sig um set yfir í forsætisráðuneytið. Þar hefur hann verið ráðinn sem verkefnastjóri. Þetta staðfesti Kristján Kristjánsson upplýsingafulltrúi ráðuneytisins í samtali við Vísi. 9.1.2009 14:47
Lögfræðiálitið: Erfitt að fá ákvörðun breskra stjórnvalda hnekkt Breska lögmannsstofan Lovells LLP hefur veitt ríkisstjórn Íslands ráðgjöf varðandi hugsanlega málsókn á hendur breska ríkinu, í þeim tilgangi að hnekkja kyrrsetningu fjármuna sem tengjast Landsbankanum sem breska ríkið greip til 8. október 2008. Sú kyrrsetning varðar m.a. fjármuni tengda Landsbankanum í eigu eða vörslu íslenskra stjórnvalda. 9.1.2009 14:39
Rannsóknarnefndin tekin til starfa Rannsóknarnefnd Alþingis sem ætlað er að rannsaka aðdraganda og orsakir falls íslensku bankanna og tengda atburði hefur tekið til starfa. Á blaðamannafundi í Þjóðmenningarhúsinu sem nefndin hélt í dag kom fram að nefndin hefur þegar fundað með fulltrúum í fjármálalífinu á borð við skilanefndir bankanna, forsvarsmenn Kauphallar, Fjármálaeftirlitsins og Seðlabanka. 9.1.2009 14:33
Fundað í menntamálaráðuneytinu Starfsmannafundi í menntamálaráðuneytinu er nýlokið. Boðað var til fundarins með skömmum fyrirvara. Starfsfólk ráðuneytisins vildi ekki tjá sig um málið en sagði að von væri á tilkynningu innan skamms. 9.1.2009 14:27
Sirius Star úr höndum sjóræningja Sómalskir sjóræningjar létu í dag frá sér Sádí arabískt risaolíuskip, Sirius Star, sem þeir hertóku úti fyrir strönd Sómalíu um miðjan nóvember. Í gær voru greiddar þrjár milljónir bandaríkjadala í lausnargjald fyrir skipið. 9.1.2009 14:02
Innköllun á pólskri kæfu - obwieszczenie Verslunin Mini Market hefur innkallað pólska kjúklingakæfu með tómötum, Wielkopolski poultry pate with tomatoes með best fyrir dagsetningu 25.11.2010. Varan inniheldur afurðir úr írsku svínakjöti sem staðfest hefur verið að er mengað af díoxíni. 9.1.2009 13:37
Björn ekki ráðherra út kjörtímabilið Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, verður ekki ráðherra út kjörtímabilið. Björn sagði í aðdraganda prófkjörs sjálfstæðismanna fyrir þingkosningarnar 2007 að yfirstandandi kjörtímabil yrði líklega hans síðasta. Framtíð Björns sem ráðherra hefur verið óljós en nú hefur hann tekið af öll tvímæli hvað hana varðar. 9.1.2009 13:22
Íbúum fjölgar en afbrotum fækkar Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur gefið út skýrslu um afbrot á höfuðborgarsvæðinu árið 2007 þar sem meðal annars kemur fram að skráðum afbrotum á svæðinu hefur fækkað á sama tíma og íbúum hefur fjölgað. Stefán Eiríksson lögreglustjóri segir að ofbeldisbrotum hafi hinsvegar fjölgað nokkuð sem sé áhyggjuefni. Flest ofbeldisbrota eru framin í tengslum við skemmtanalíf í miðborg Reykjavíkur um helgar. 9.1.2009 13:16
Voðaskot í Rússlandi: Beðið eftir viðbrögðum Ekki er búið að taka skýrslu af 17 ára íslenskri stúlku sem varð tvítugum pilti að bana í borginni Astrakahn í Rússlandi í október. Guðrún Sesselja Arnardóttir, lögfræðingur stúlkunnar, segir að beðið sé eftir viðbrögðum rússneskra yfirvalda sem hefur verið gert ljóst að stúlkan sé reiðbúin að svara spurningum varðandi málið. 9.1.2009 12:31
Evrópuráðsþingið ætlar að skoða aðgerðir Breta Í dag samþykkti framkvæmdastjórn Evrópuráðsþingsins beiðni Íslands um að sú aðgerð breskra stjórnvalda að beita hryðjuverkalögum til að frysta eigur Landsbankans í Bretlandi 8. október síðastliðinn yrði tekin til meðferðar bæði í laga- og mannréttindanefnd og efnahagsnefnd Evrópuráðsþingsins. Steingrímur J. Sigfússon á sæti í framkvæmdastjórninni og sótti fundinn sem fór fram í Barcelona. 9.1.2009 12:27
Gasflæðið komist í lag um helgina Evrópusambandið telur að hægt verði að tryggja eðlilegt gasflæði frá Rússlandi til Vestur-Evrópu um helgina. Rússar og ESB sömdu í gær um eftirlit með gasflutningum með leiðslum um Úkraínu til að tryggja að gasi væri ekki stolið. 9.1.2009 12:09
Þrjátíu féllu í einni árás á Gaza Vitni hafa greint fulltrúum Sameinuðu þjóðanna á Gaza-svæðinu frá því að Ísraelar hafi fellt þrjátíu Palestínumenn í einni árás á hús í Gaza-borg fyrr í vikunni. Þessi sömu vitni segja að ísraelskir hermenn hafi flutt um hundrað Palestínumenn í húsið skömmu áður. 9.1.2009 12:06
Vill að Árni segi af sér Árni Mathiesen, fjármálaráðherra, hefur ítrekað gerst sekur um umdeild vinnubrögð auk þess sem margir hafa efast um getu hans og þekkingu til að stýra efnahagslífi landsins í skjóli menntunar í dýralækningum, að mati Þórðar Heiðars Þórarinssonar aðstoðarritstjóra Deiglunnar. Hann segir að réttast væri að Geir H. Haarde, forsætisráðherra, krefðist afsagnar Árna en þar sem ekki virðist ætla að leiða til þess þurfi Árni að taka af skarið sjálfur og segja af sér. 9.1.2009 11:42
Guðlaugur sýnir hugrekki ,,Nú hefur ungur ráðherra, Guðlaugur Þór, látið vinna greiningu og stefnu um breytta verkskiptingu í íslenska heilbrigðiskerfinu. Til þess þarf hugrekki í ljósi afdrifa fyrri til rauna," segir Margrét Björnsdóttir en hún situr í nefnd heilbrigðisráðherra um framtíðarhlutverk og skipulag Landspítlans. Margrét er náin samstarfskona Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, formanns Samfylkingarinnar. 9.1.2009 10:17
Breytingar í heilbrigðiskerfinu: Ánægja í Ólafsvík Breytingar í heilbrigðiskerfinu sem kynntar voru af Guðlaugi Þór Þórðarsyni í fyrradag hafa vakið mikið umtal og nokkuð hörð viðbrögð hjá starfsfólki í heilbrigðisgeiranum. Þó eru ekki allir á móti hugmyndunum því á heimasíðu heilbrigðisráðuneytisins er greint frá mikilli ánægju í Ólafsvík með þær breytingar sem snúa að Vesturlandi. 9.1.2009 10:12
Borgarafundur á Sauðárkróki: Heilbrigðisráðherra mótmælt Borgarafundur verður haldinn á sal Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki klukkan fjögur í dag. Á fréttamiðlinum Feyki er greint frá þessu en aðstandendur fundarins er hópur fólks sem vill mótmæla „þeim vinnubrögðum og áformum heilbrigðisráðherra að Heilbrigðisstofnunin á Sauðárkróki renni undir stjórn Heilbrigðisstofnunar Norðurlands sem stýrt verði frá Akureyri,“ eins og segir í fréttinni. 9.1.2009 09:51
Samfylkingarfólk gagnrýnir Guðlaug Stjórn Samfylkingarfélagsins í Hafnarfirði mótmælir harðlega tillögum Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, heilbrigðisráðherra, um niðurlagningu St. Jósefsspítala og flutning á starfsemi hans, sem stjórnin segir að hafi verið lagðar fram án samráðs við hluteigandi starfsfólk og bæjaryfirvöld. Breytingin falli vel að hugmyndum ráðherrans um einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu. 9.1.2009 09:23
Hreppaflutningum mótmælt á Akureyri Á morgun laugardag verður farið í mótmælagöngu frá Samkomuhúsinu á Akureyri niður að Ráðhústorginu. ,,Við mótmælum hreppaflutningum á eldri kynslóðinni, lokun geðdeilda, uppsögnum ljósmæðra og skerðingu á þjónustu á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri," segir í tilkynningu áhugahóps. 9.1.2009 09:22