Fleiri fréttir

Langþráð ný bryggja Grundfirðinga

Ný bryggja í Grundarfjarðarhöfn sem ber nafnið Miðgarður var vígð nú í vikunni og var vígsluathöfnin hin hátíðlegasta, að sögn Jónasar Guðmundssonar, kynningarfulltrúa bæjarins.

Afnám verðtryggingar gæti skaðað lífeyrissjóðina

Verðtryggingin er ein af stærstu ástæðum fyrir viðsnúningi í fjárhag íslenskra lífeyrissjóða, segir Ólafur Ísleifsson, lektor. Hann segir að í ljósi nýliðinna atburða sé það umhugsunarefni hvort að sjóðirnir þurfi ekki að einbeita sér í auknum mæli að fjárfestingum erlendis.

Vilja kanna lagalegar forsendur á frystingu eigna

Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs samþykkti í morgun að leggja til að viðskiptanefnd Alþingis kanni þegar í stað lagalegar forsendur þess að hægt verði að kyrrsetja tímabundið allar eignir innlendra fjármálafyrirtækja sem komist hafa í þrot, eigenda þeirra og tengdra aðila hér á landi og setja bann við hvers kyns ráðstöfun, sölu, veðsetningu.

Fjölmargar sendinefndir á Íslandi

Norsk sendinefnd ræðir mögulegar björgunaraðgerðir fyrir íslenskt fjármálalíf með helstu ráðamönnum í dag. Enn ræða Íslendingar og Bretar um lausn Icesave mála.

Félagsmálaráðherra vill lækka laun nýrra bankastjóra

Jóhanna Sigurðardóttir segist vera þeirrar skoðunar að of langt hafi verið gengið við ákvörðun um kjör nýrra bankastjóra. Ekki síst þegar kjararýrnun er framundan. Hún segist hafa viljað sjá að þar hefði verið farið varlegar af stað en raun ber vitni nú þegar þörf sé á að gæta hófs.

Herragarðurinn semur við birgja og lækkar verð út árið

„Við höfum notað síðustu tvær vikur í þessa vinnu og viljum skila því til fólksins í landinu,“ segir Hákon Hákonarson framkvæmdarstjóri fyrirtækisins Föt og Skór sem rekur fjórar verslanir í Kringlunni og Smáralind. Hagstæðir samningar hafa náðst við birgja verslanna sem gerir það að verkum að allar vörur í búðunum lækka um 20% út árið.

30 þúsund mótmæla hryðjuverkalögum

Hátt í 30 þúsund manns hafa nú ritað nafn sitt undir yfirlýsingu á vefsíðunni indefence.is, þar sem framkomu breskra stjórnvalda gegn íslendingum er mótmælt.

Sakar RÚV um að kynda undir sleggjudómum og ofstæki

Tryggvi Gíslason, fyrrverandi skólameistari Menntaskólans á Akureyri, sakar Ríkisútvarpið um að kynda undir sleggjudómum og ofstæki í tengslum við umfjöllun Kastljóss í gær og Silfur Egils fyrir tíu dögum.

Hraðakstur á Sæbraut

Brot 434 ökumanna voru mynduð á Sæbraut frá þriðjudegi til miðvikudags eða á rúmlega 18 klukkustundum. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið í suðurátt, þ.e. yfir gatnamót Sæbrautar og Langholtsvegar.

Höfum í raun ekkert val um annað en að sækja um ESB-aðild

Grétar Þorsteinsson, forseti ASí, sagði við setningu ársfundar ASÍ í morgun að Íslendingar yrðu að gera það upp við sig nú hvort þeir vildu sækja um aðilda að Evrópusambandinu. Hann væri þeirrar skoðunar að þar væri hagsmunum best borgið og að Íslendingar hefðu í raun ekki val um annað en að sækja þar um.

Reynt að skaða samningaferlið við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn

Upplýsingum sem birtust í Financial Times um samningaviðræður íslenskra stjórnvalda við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn var lekið í blaðið til að skaða samningaferlið. Þetta sagði Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra Í bítinu á Bylgjunni í morgun.

Glitnir viðurkennir mistök gagnvart Norðmönnum

Árni Tómasson formaður skilanefndar Glitnis segir að allt bendi til þess að kerfisleg mistök hafi átt sér stað gagnvart Útflutningsbankastofnun ríkis og fjármálafyrirtækja, Eksportfinans, í Noregi. Stofnunin hefur kært Glitni fyrir að stinga undan sjö milljörðum íslenskra króna eftir að lán til þriggja aðila hafði verið greitt til baka og runnið í sjóði bankans, en ekki til upphaflega lánadrottins.

Fundað með Bretum og Norðmönnum

Viðræður samninganefnda Íslands og Bretlands vegna Icesave-reikninga Landsbankans í Bretlandi héldu áfram í morgun klukkan níu. Ekki liggur fyrir hvernig samningaviðræður ganga eða hvort gengið verði til samninga í dag. Nefndirnar funduðu nánast í allan gærdag en fyrir íslensku samninganefndinni fer Ásmundur Stefánsson ríkissáttasemjari.

Auðgað úran flutt í örugga geymslu

Bandaríkjamenn og Rússar hafa farið 15 ferðir með auðgað úran úr kjarnorkuverum víðs vegar um Evrópu í örugga geymslu í Síberíu á síðustu þremur árum.

Dr. Páli Þórðarsyni veitt verðlaun í Ástralíu

Doktor Páll Þórðarson, dósent og efnafræðingur við New South Wales háskólann í Sydney í Ástralíu, hlaut í morgun hvatningarverðlaun fyrir unga vísindamenn, við hátíðlega athöfn í fylkisþinghúsinu, að viðstöddum fylkisstjóranum og ráðherra.

Snjókoma á Akureyri í alla nótt

Snjó hefur kyngt niður á Akureyri í alla nótt og er þar nú að minnsta kosti 20 sentimetra djúpur jafnfallinn snjór. Veður hefur verið kyrrt þannig að ekki hefur skafið.

ASÍ leggur til umsókn um ESB-aðild

Forysta Alþýðusambandsins mun leggja fram tillögu um að Ísland sæki um aðild að Evrópusambandinu, á ársfundi sambandsins, sem hefst á Hilton hóteli í Reykjavík klukkan tíu.

Ók á ljósastaur við Reykjanesbraut

Farþegi í bíl slasaðist þegar bíllinn lenti á ljósastaur á Reykjanesbraut, skammt frá Grindavíkurafleggjaranum seint í gærkvöldi.

Bilið milli ríkra og fátækra eykst innan OECD

Bilið milli ríkra og fátækra innan OECD-ríkjanna hefur aukist á síðustu tveimur áratugum og þá hefur þeim sem lifa undir fátækramörkum einnig fjölgað. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu OECD sem kynnt var í gær.

Fimm í gæsluvarðhaldi vegna Hraunbæjarmálsins

Þrír karlar voru í dag úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 27. október að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þeir eru allir grunaðir um að hafa ráðist á tvo lögreglumenn sem voru við skyldustörf í Hraunbæ í Árbæ aðfaranótt sunnudags en árásin var með öllu tilefnislaus.

Olíuverð fellur enn

Heimsmarkaðsverð á olíu fellur enn og hefur ekki verið lægra í 16 mánuði. Ástæðan er rakin til vísbendinga um að slakinn í efnahagslífinu muni draga úr spurn eftir olíu.

Víða hálka á landinu

Það er éljagangur á Reykjanesbraut og Suðurnesjum og víða komið slabb á veg. Þá er snjókoma og hálka á Hellisheiði og í Þrengslum. Eins er hálka, hálkublettir eða krapi nokkuð víða á Suðurlandi, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni.

Teiknaði hátt í 11 þúsund myndir fyrir Morgunblaðið

Skopteiknarinn Sigmund Johannsson sem hefur verið spéspegill þjóðarinnar í hartnær 45 ár er hættur að teikna fyrir Morgunblaðið. Á þeim tíma sem hann starfaði fyrir Morgunblaðið teiknaði hann 10.630 myndir fyrir blaðið.

Forsætisráðherra mun ekki reka seðlabankastjórana

Geir Haarde segir ekki rétt að persónugera þann vanda sem kominn er upp í efnahagslífi þjóðarinnar í persónum seðlabankastjóranna þriggja og segist ekki ætla að reka þá úr starfi. Þetta kom fram viðtali við Geir í Kastljósinu í kvöld.

Ólafur F. íhugar málsókn gegn Daily Mail

Ólafur F. Magnússon, fyrrverandi borgarstjóri, íhugar að höfða mál gegn breska dagblaðinu Daily Mail vegna nýlegrar umfjöllunar um hann. Blaðið birti 12. október umfjöllun um veru Ólafs á 101 Hóteli föstudagskvöldið 10. október og meint tengsl hans við Jón Ásgeir Jóhannesson.

Víkingaskip sem lystisnekkja

Víkingaskip í stíl við lystisnekkju, - það fyrsta sinnar tegundar í heiminum, - með nútímaþægindum og tækjabúnaði, hefur verið smíðað í Stykkishólmi og er nú í reynslusiglingum.

Fossinn fær nafnið Hverfandi

Örnefnanefnd hefur ákveðið að aflmesti foss Evrópu, yfirfallsfossinn við Kárahnjúka, skuli heita Hverfandi. Nafnið vísar til þess að fossinn kemur og fer.

Síld fyrir tólf milljarða við Stykkishólm

Síldarævintýrið á Breiðafirði gæti á næstu vikum skilað tólf milljarða króna útflutningsverðmæti í þjóðarbúið. Stjórnvöld eru hvött til þess að auka síldarkvótann.

Hanna Birna: Ummæli Ólafs ekki svara verð

,,Ég hef ítrekað sagt að ástæðan fyrir meirihlutaskiptunum í ágúst voru málefnalegar og snérust hvorki um minn hag né Ólafs F. Magnússonar heldur hagsmuni borgarbúa," segir Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri.

Tveir Albanar á Íslandi grunaðir um að hafa verið í Frelsisher Kósóvó

Tveir Kósóvó-Albanar sem lögregla grunar að hafi verið í Frelsisher Kósóvó sóttust eftir hæli hér á landi. Þriðji Albaninn var einnig til rannsóknar vegna tengsla við þá. Hæstiréttur staðfesti í dag gæsluvarðhald yfir tveimur mannanna en það átti að renna út í dag.

Sjá næstu 50 fréttir