Innlent

Fimm í gæsluvarðhaldi vegna Hraunbæjarmálsins

Þrír karlar voru í dag úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 27. október að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þeir eru allir grunaðir um að hafa ráðist á tvo lögreglumenn sem voru við skyldustörf í Hraunbæ í Árbæ aðfaranótt sunnudags en árásin var með öllu tilefnislaus.

Samtals sitja því fimm karlar í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar málsins en hinir tveir voru í gær úrskurðaðir í gæsluvarðhald sem nær einnig til 27. október.

Í fréttatilkynningu frá lögreglunni segir að alls hafi tólf menn verið handteknir í þágu rannsóknar málsins. Tveir þeirra hafi verið handteknir í dag og bíði yfirheyrslu. Fimm séu lausir úr haldi lögreglu en einn þeirra hafi setið um tíma í gæsluvarðhaldi.

Lögreglan hefur jafnframt rætt við fjölda vitna og segir að rannsókn málsins miði vel.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×