Fleiri fréttir

Vinna að aðgerðum í félagslega húsnæðiskerfinu

Velferðarráð Reykjavíkur samþykkti í dag að skipa stýrihóp sem ætlað er að fara yfir reglur Reykjavíkurborgar um félagslegt leiguhúsnæði og sérstakar húsaleigubætur og skoða úrræði og möguleika er varða húsnæðismál.

Sigríður Björk líklega sett lögreglustjóri

Dómsmálaráðherra mun líklegast setja Sigríði Björk Guðjónsdóttur aðstoðarríkislögreglustjóra tímabundið í starf lögreglustjórans á Suðurnesjum við brotthvarf Jóhanns R. Benediktssonar, samkvæmt heimildum Vísis.

Pakistanar skutu á NATO þyrlur

Pakistanskir landamæraverðir skutu í dag á NATO þyrlur í Afganistan sem þeim hefur líklega þótt koma of nærri landamærunum.

Kínverjar ætla í geimgöngu

Geimfar sem Kínverjar skutu á loft í dag er komið á braut um jörðu að sögn kínversku ríkisfréttastofunnar.

Tek ekki þátt í að brjóta niður starf sem byggt hefur verið upp

„Ég vil ekki taka þátt í því að brjóta niður það starf sem byggt hefur verið upp á síðustu árum," segir Ásgeir J. Ásgeirsson, starfsmannastjóri lögreglustjóraembættisins á Suðurnesjum, um þá ákvörðun sína að hætta störfum hjá embættinu.

Bann við bandarískum teiknimyndum vofir yfir Rússum

Rússar ætla að banna teiknimyndaþættina Simpsons, South Park og Family Guy. Telja þingmenn þættina hafa óæskileg áhrif á æsku landsins og stendur nú til að svipta viðkomandi sjónvarpsstöð útsendingartíðninni

Ólafur segir Breta þurfa að taka sig saman í andlitinu

„Ef Bretar vilja vera tæknilegur leiðtogi og í fremstu röð í baráttunni gegn hnattrænni hlýnun, þurfa þeir að taka sig saman í andlitinu, í allri hreinskilni,“ sagði Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands í viðtali við Sky sjónvarpsstöðina bresku á dögunum.

Nafnið á meintum morðingja Hrafnhildar

Maðurinn sem grunaður er um morðið á Hrafnhildi Lilju Georgsdóttir heitir Frederick Franklin Genao . Hann er í haldi lögreglunnar í Puerto Plata og er verið að yfirheyra hann um málið.

Ekki þarf að breyta stjórnarskránni vegna þjóðaratkvæðagreiðslu

Birkir Jón Jónsson, þingmaður Framsóknarflokksins, segir að ekki þurfi að breyta stjórnarskránni í tengslum við þjóðaratkvæðagreiðslu um það hvort hefja eigi aðildarviðræður við Evrópusambandið. Nóg sé að leggja fram þingsályktunartillögu á Alþingi um slíka kosningu og það hyggst hann gera þegar þing kemur saman í byrjun október.

Samkynhneigður raðmorðingi fékk áttfaldan lífstíðardóm

Dómstóll í Louisiana hefur dæmt samkynhneigðan raðmorðingja í áttfalt lífstíðarfangelsi fyrir að nauðga og myrða átta menn á 10 ára tímabili. Hinn 44 ára gamli Ronald Dominique lokkaði fórnarlömbin á heimili sitt með loforðum um greiðslu fyrir kynlíf.

Segja lengingu flugbrautar á Akureyri sóun

Húsvíkingar segja að lenging flugbrautar á Akureyri sé sóun, nær væri að byggja upp Húsavíkurflugvöll þar sem flugaðstæður séu miklu betri. Samgönguráðherra segir þessar hugmyndir óraunhæfar.

Bush býður McCain og Obama til fundar

Bush Bandaríkjaforseti segir efnhagskerfi Bandaríkjanna í hættu ef frumvarp um björgunaraðgerðir vegna fjármálafyrirtækja verði ekki samþykkt. Hann hefur boðið John McCain og Barack Obama, forsetaefnum repúblikana og demókrata, til fundar í Hvíta húsinu í dag til að ræða efnahagsþrengingarnar í Bandaríkjunum.

Geta sparað 20 milljarða á gæðastjórnun í mannvirkjagerð

Ríki, sveitarfélög og verktakar gætu sparað allt að 20 milljarða króna á ári með bættri gæðastjórnun í mannvirkjagerð samkvæmt nýlegri rannsókn. Þar kemur einnig fram að Íslendingar standa hinum Norðurlandaþjóðunum langt að baki í gæðamálum.

Stefnir í harkaleg átök á vinnumarkaði

Það stefnir í harkaleg átök á vinnumarkaði að mati formanns Rafiðnaðarsambandsins. Yfirvofandi hækkanir á þjónustugjöldum opinberra fyrirtækja gefi enda ekkert annað til kynna en að laun muni hækka um álíka prósentutölu.

Lentu í Glasgow vegna titrings í hreyfli

Flugvél á vegum Icelandair með 174 innanborðs á leið til Amsterdam í Hollandi neyddist til að lenda í Glasgow í Skotlandi fyrir rúmri klukkustund.

Töluvert um stöðvunarbrot í miðborginni

Töluvert er um stöðvunarbrot í miðborginni og þar eiga ekki síst í hlut ökumenn flutningabíla sem stundum virða ekki umferðarlög en í þeim segir meðal annars að lagning eða stöðvun ökutækis á gangstétt sé óheimil.

Vill að Björn segi af sér

Grétar Mar Jónsson, þingmaður Frjálslynda flokksin í Suðurkjördæmi, krefst þess að Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segi af sér eftir að þar sem hann hafi bolað lögreglustjóranum á Suðurnesjum úr embætti.

„Lögreglan hefur umkringt mig“

Finnski morðinginn Matti Juhani Saari hringdi í vin sinn eftir að hafa myrt níu skólasystkini sín og einn kennara, að sögn finnskra og sænskra fjölmiðla.

Ingibjörg kvartaði yfir Rússaflugi við Lavrov

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra gerði alvarlegar athugasemdir við flug rússneskra herflugvéla í kringum Ísland á fundi sínum með Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York í gær.

Hugur lækna til kjaradeilu skýrist á morgun

Læknafélag Íslands hefur látið kanna hug félagsmanna sinna til kjardeilu lækna við hið opinbera. Rafræn fyrirspurn var send til félagsmanna og verða niðurstöður könnunarinnar kynntar á aðalfundi Læknafélagsins sem fer fram á morgun.

Nýjasta varðskip Dana til sýnis

Danska varðskipið Knud Rasmussen verður opið almenningi á laugardag milli kl. 13 og 16 þar sem það liggur við bryggju á Miðbakka.

Alltaf vont að missa gott fólk að ósekju

Steinunn Valdís Óskarsdóttir, varaformaður þingflokks Samfylkingarinnar, segir óheppilegt í hvað farveg málefni lögreglunnar á Suðurnesjum eru komin. Eins og kunnugt er óskaði Jóhann Benediktsson lögreglustjóri eftir því að fá að láta af störfum um næstu mánaðamót og það hafa þrír aðrir lykilstarfsmenn einnig gert.

Aldrei fleiri grunnskólanemar sem læra ensku

Ríflega 33 þúsund grunnskólanemar lögðu stund á ensku síðastliðinn vetur og hafði þeim fjölgað um rúm ellefu prósent frá árinu á undan. Þetta kemur fram í nýjum tölum Hagstofunnar sem gefnar eru út í tilefni af degi tungumála í Evrópu sem er á morgun.

Samið um 19 gísla

Egyptar eiga nú í samningaviðræðum við glæpamenn sem rændu nítján manns þar í landi í síðustu viku og fluttu yfir landamærin til Súdans.

Gæsir herja á kornakra í Borgarfirði

Gæsir herja nú á kornakra í Borgarfirði og valda þar miklu tjóni. Vegna þrálátra rigninga er ekki hægt að þreskja kornið og nota gæsirnar sér það óspart og éta upp af heilu ökrunum.

Ósammála Stefáni um að færa fjarskiptamiðstöðina

Formenn svæðisdeilda Landssambands lögreglumanna utan höfuðborgarsvæðisins hafna þeim hugmyndum Stefáns Eiríkssonar, lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu, að fjarskiptamiðstöð ríkislögreglustjóra verði færð til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Fyrrverandi FL Group-starfsmaður flýgur frítt á Saga Class

Albert Jónsson, fyrrverandi forstöðumaður hjá FL Group, flýgur enn ókeypis á Saga Class í boði Icelandair jafnvel þótt tæp tvö ár séu frá því að hann hætti að vinna hjá félaginu. Frá því var gengið þegar FL Group seldi Icelandair núverandi eigendum í október 2006.

Danir hækka útsvar

Útsvar í Danmörku mun hækka um sem nemur rúmum 2,4 milljörðum króna á næsta ári.

Fá bætur fyrir spilakassatekjutap

Rauði kross Noregs og björgunarsveitir landsins fá samanlagt sem nemur rúmlega fimm og hálfum milljarði króna í bætur á þessu ári og næsta fyrir tekjur sem þessir aðilar verða af þegar gömlu spilakassarnir sem hafa verið tekjulind þeirra um árabil hverfa af sjónarsviðinu.

Fjárbeiðni konungsfjölskyldunnar hafnað

Breska ríkisstjórnin hefur hafnað beiðni konungsfjölskyldunnar um milljóna punda aukafjárveitingu til að standa straum af rekstri fasteigna fjölskyldunnar.

Telja hótanir Norður-Kóreu blekkingar

Greiningaraðilar í Bandaríkjunum telja að Norður-Kóreumenn séu að seilast eftir aukinni orku- og efnahagsaðstoð frá Vesturlöndum með því að rjúfa innsigli á kjarnorkuverinu í Yongbyon og búa sig undir að endurræsa þar kjarnaofn.

Fjórði saksóknarinn í Guantanamo hættir

Í fjórða skiptið hefur saksóknari í máli Bandaríkjastjórnar á hendur meintum hryðjuverkamönnum sem haldið er í Guantanamo-fangelsinu á Kúbu óskað eftir lausn frá störfum.

Obama neitar að fresta kappræðum

Forsetaframbjóðandinn Barack Obama þvertekur fyrir að kappræðum þeirra John McCain í Mississippi-háskóla annað kvöld verði frestað.

Árekstur á Þorlákshafnarvegi

Tveir bílar lentu í hörðum árekstri á Þorlákshafnarvegi í gærkvöldi og slasaðist ökumaður annars bílsins.

Hættir ekki út af Brown

Ruth Kelly sem tilkynnti í morgun að hún hyggst láta af embætti fjármálaráðherra í ríkisstjórn Bretlands gerir það ekki vegna samskiptaörðugleika eða ósættis við Gordon Brown, forsætisráðherra og formann Verkamannaflokksins.

Sjá næstu 50 fréttir