Fleiri fréttir

Vilja að innanríkisráðherrann taki pokann sinn vegna fjöldamorða

Stjórnarandstaðan á finnska þinginu krefst þess nú að innanríkisráðherrann Anne Holmlund segi af sér og taki þannig ábyrgð á frammistöðu lögreglunnar í tengslum fjöldamorðin í Kauhajoki. Þar létust átta konur og tveir menn í skotárás 22 ára nemanda við iðnskóla í bænum.

Mörg börn hafa orðið fyrir barðinu á netperrum

Stúlkur - allt að ellefu ára gamlar - hafa orðið fyrir barðinu á mönnum sem fá þær til kynferðisathafna á netinu í gegnum spjallrásir. Meiri þögn ríkir í kringum netnotkun drengja og koma því færri mál þeim tengdum til rannsóknar lögreglu.

Lögreglumenn á Suðurnesjum ósáttir með duttlunga Björns

Félagsmenn í Lögreglufélagi Suðurnesja eru ósáttir við ákvörðun Björns Bjarnasonar, dómsmálaráðherra, um að auglýsa stöðu sitjandi lögreglustjóra á Suðurnesja lausa til umsóknar án nokkurs tilefnis. Þetta kemur fram í ályktun sam samþykkt var á félagsfundi Lögreglufélagsins fyrr í dag.

Skiptar skoðanir um byssueign í kjölfar fjöldamorðsins

Skiptar skoðanir eru meðal Finna um hvort herða eigi byssulöggjöf í landinu eftir fjöldamorð í skóla í vesturhluta landsins í gær. Engar breytingar voru gerðar á lögunum eftir sams konar árás í fyrra og enn geta allt niður í fimmtán ára börn eignast byssur án mikilla vandkvæða.

Unnusti Hrafnhildar í haldi

Afbrýðissemi er talin orsök þess að dómenískur karlmaður myrti Hrafnhildi Lilju Georgsdóttur á hótelhebergi hennar í Dóminíska lýðveldinu aðfaranótt sunnudags.

Truflanir á netsambandi til útlanda

Truflanir eru nú á netsambandi við útlönd vegna rofs á ljósleiðara á milli Hveragerðis og Selfoss að sögn Hrannars Péturssonar, upplýsingafulltrúa Vodafone.

Löggæslumál á Suðurnesjum munu gjalda fyrir klaufaskap Björns

Bjarni Harðarson, þingmaður Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi, segir uppsögn Jóhanns Benediktssonar, lögreglustjóra á Suðurnesjum, og þriggja annarra lykilstarfsmanna hjá embættinu mjög slæmar og segist mjög ósáttur við hvernig dómsmálaráðherra hafi farið fram í málinu.

Fjórir lykilstarfsmenn lögreglunnar á Suðurnesjum hætta

Jóhann R. Benediktsson, lögreglu- og tollstjórinn á Suðurnesjum, hefur í dag óskað eftir því við dómsmálaráðuneytið að fá að hætta störfum þann 1. október næstkomandi. Jóhann tilkynnti samstarfsfólki sínu þetta á starfsmannafundi í safnaðarheimili Keflavíkurkirkju í dag.

Hver var Matti Juhani Saari?

Til að sjá var hann ósköp venjulegur ungur maður. En undir niðri var eitthvað skelfilegt að gerast hjá Matta Juhani Saari.

Raðbílaþjófur dæmdur

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag karlmann í tveggja mánaða fangelsi fyrir fíkniefnabrot, umferðarlagabrot og nytjastuld.

10 lögreglumenn rannsaka morðið á Hrafnhildi

Tíu lögreglumenn í Dóminíska lýðveldinu rannsaka nú morðið á Hrafnhildi Lilju Georgsdóttur sem fannst látin á hótelherbergi sínu skömmu eftir hádegi á mánudaginn.

Ákærð fyrir að bíta í eyrað á kynsystur sinni

Tuttugu og fjögurra ára gömul kona hefur verið ákærð fyrir líkamsárás, með því að hafa ráðist á 29 ára gamla konu aðfaranótt sunnudagsins 29. júlí 2007 við veitingahúsið Sólon í Reykjavík.

Hitaveitureikningurinn hækkar

Viðskiptavinir Orkuveitunnar geta átt von á því að reikningur vegna heitavatnsins hækki um 300 krónur að meðaltali um næstu mánaðamót.

Múslimar í fjöldagröf

Meinafræðingar segjast hafa fundið jarðneskar leifar 362 múslima sem voru myrtir í Srebrenica fjöldamorðunum í Bosníu árið 1995.

Kviknaði í út frá rafmagnsleiðslu

Rannsókn lögreglunnar á Vestfjörðum á eldsupptökum í einbýlishúsi í Hnífsdal er lokið og er niðurstaðan að kviknað hafi í út frá rafmagnsleiðslu í timburmillivegg.

Minningarkerti við iðnskólann í Kauhajoki strax á fimmtudag

Komið hefur í ljós að einhver kveikti á minningarkerti við iðnskólann í Kauhajoki í Finnlandi á fimmtudag og leiddi það meðal annars til þess að lögregla kallaði Matti Saari, sem myrti tíu manns í gær, til yfirheyrslu. Frá þessu greinir Huvudstadbladet og hefur eftir lögreglustjóranum.

Engin ragnarök við brotthvarf Jóhanns

„Það er vissulega áhyggjuefni ef það eru miklar breytingar i stjórnkerfi lögreglunnar og það gæti haft áhrif á gæði þjónustunnar," segir Árni Sigfússon bæjarstjóri í Reykjanesbæ. Jóhanni R. Benediktssyni lögreglustjóra á Suðurnesjum hefur verið tilkynnt að embætti hans verði senn auglýst laust til umsóknar, án þess að hann hafi óskað eftir því.

Íbúð á Hnífsdal skemmdist töluvert í eldsvoða

Íbúðarhúsnæði skemmdist töluvert í eldsvoða í Hnífsdal í morgun. Fjölskylda býr í húsinu en enginn var heima þegar eldurinn kom upp. Um einn og hálfan tíma tók að slökkva eldinn. Eldsupptök eru ókunn.

Fagnar reglugerð um lágmarksframfærslu

Þeir verst settu í hópi aldraðra og öryrkja eru í fyrsta skipti í þrettán ár komnir með hærri tekjur en þeir sem lægst hafa launin á almennum vinnumarkaði, eftir að félagsmálaráðherra undirritaði reglugerð sem hækkaði tekjur þessara hópa umtalsvert.

Segja lokun MS áfall fyrir Blönduós

Stjórn Mjólkursamsölunnar hefur ákveðið að loka mjókurbúinu á Blönduósi frá og með næstu áramótum, en þar hafa tíu manns unnið. Bæjarstjórnarmenn segja að þetta sé áfall fyrir bæinn og komi eins og þruma úr heiðskíru lofti.

Starfsfólk Laugarnesskóla ekki á nálum

„Það er langt um liðið síðan við höfum fundið nálar á skólalóðinni,“ segir Sigríður Heiða Bragadóttir, skólastjóri Laugarnesskóla, sem lætur fréttir af skálmöld og sprautunálum í Laugardalnum ekki raska ró sinni.

Peningastefnan hafi ekki beðið skipbrot

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, starfandi forsætisráðherra, segir að gild rök hafi verið færð fyrir því að breyta þurfi peningamálastefnunni, en hún hafi hins vegar ekki beðið skipbrot eins og margir haldi fram.

Virðingarverð hugmynd hjá Helga

Hugmynd Helga Hjörvar um að selja Kárahnjúkavirkjun og fleiri virkjanir í eigu hins opinbera er virðingaverð að mati Friðriks Sophussonar, forstjóra Landsvirkjunar.

Sprautunálar í Laugardal - þrjú sjónarhorn einnar manneskju

Vísir náði tali af Jórunni Ósk Frímannsdóttur, formanni Knattspyrnufélagsins Þróttar, borgarfulltrúa og hjúkrunarfræðingi, vegna sprautunála og ónæðis í Laugardalnum sem fjallað var um á síðunni á föstudaginn. Hlekkur að þeirri frétt er hengdur neðan við þessa.

Útilokað að taka upp evru án ESB aðildar

„Við fengum skýr svör frá Almunia," segir Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar. Evrópunefnd ríkisstjórnarinnar fundaði í morgun með Joaquin Almunia, framkvæmdastjóra efnahags- og

Sleginn yfir fregnum af veikindum Ingibjargar

Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar, segist sleginn yfir fregnum af veikindum Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, formanns Samfylkingarinnar og utanríkisráðherra.

Morðtilraun vegna Da Vinci lykilsins

Tuttugu og fimm ára maður sem reyndi að myrða prest með hnífi í kirkju í Róm, sagði lögreglunni að hann hefði talið sig vera andKristur

Talið líklegt að Sigríður Björk sæki um á Suðurnesjum

Sigríður Björk Guðjónsdóttir aðstoðarríkislögreglustjóri vill hvorki játa því né neita að hún muni sækja um embætti Lögreglustjórans á Suðurnesjum en starfið var auglýst laust til umsóknar. „Það hefur engin ákvörðun verið tekin um slíkt,"

World Class sver af sér Benjamín

Benjamin Þ. Þorgrímsson, sem fjallað var um í Kompási á mánudagskvöld, starfar ekki lengur hjá World Class. Þetta kemur fram í tilkynningu sem World Class sendi frá sér fyrir stundu.

Sjá næstu 50 fréttir