Fleiri fréttir

Kærður fyrir að stela yfir 30 líkkistum af Fóstbróður sínum

Eyþór Eðvarðsson, fyrrverandi útfararstjóri, hefur kært Rúnar Geirmundsson, formann Félags útfararstjóra, fyrir stuld á yfir þrjátíu líkkistum. Kisturnar hurfu úr geymslu og fundust síðan hjá Rúnari. Verðmæti kistanna er um fjórar milljónir. Rúnar segist hafa keypt þær af öðrum manni sem sagðist eiga þær og hefur einnig kært Eyþór til lögreglu.

Óskar fór alltaf með lyfin til Magnúsar

Óskar Arnórsson áfengisráðgjafi sem sótti lyf fyrir Magnús Skúlason, yfirgeðlækni á Sogni, segir ekkert launungarmál hvað hann hafi gert við lyfin. Þeim hafi hann skilað til Magnúsar enda hafi hann einungis verið að sendast fyrir hann.

Engir litlir grænir kallar - ennþá

Geimfarið Fönix heldur áfram að senda myndir frá Mars til jarðar. Heldur virðist plánetan eyðileg. Vísindamenn eru þó spenntir fyrir flekkjum sem sjá má á jörðinni.

Rúmlega 900 látnir í umferðinni á 40 árum

916 manns hafa látist í umferðarslysum á síðustu 40 árum, eða frá því að hægri umferð var tekin upp, samkvæmt upplýsingum Umferðarráðs. Það stendur nú fyrir umferðaröryggisviku. Bent er á að það jafngildi því að allir íbúar Bolungarvíkur eða Blönduóss hefðu látist. Þessi fjöldi dugir einnig til að fylla fjórar Boeing 757 þotur.

S-Afríka setur upp flóttamannabúðir

Stjórnvöld í Suður-Afríku hafa ákveðið að setja upp flóttamannabúðir fyrir tugþúsundir innflytjenda sem hafa orðið fyrir hrottalegum árásum innfæddra undanfarna daga.

Söguleg sátt um skjaldborg um orkulindir

Söguleg sátt hefur náðst um að slá skjaldborg um orkulindir þjóðarinnar, sagði formaður iðnaðarnefndar á Alþingi í morgun þegar ljóst var að þingheimur myndi allur styðja meginefni frumvarps iðnaðarráðherra um að tryggja að mikilverðustu vatns- og jarðhitaréttindi verði í eigu ríkis og sveitarfélaga.

Barak vill að Olmert víki vegna spillingarásakana

Ehud Barak, varnarmálaráðherra Ísraels og formaður Verkamannaflokksins, fór í dag fram á það að nafni hans Ehud Olmert forsætisráðherra segði af sér sem forsætisráðherra vegna rannsóknar á meintri spillingu hans.

Fundu 25 grömm af kókaíni við húsleit

Lögreglan fann í gærkvöld það sem talið er vera 25 grömm af kókaíni við húsleit í fjölbýlishúsi í Reykjavík. Karl á fertugsaldri var handtekinn vegna rannsóknar málsins en hann hefur áður komið við sögu hjá lögreglu vegna fíkniefnamála.

Brixtofte útilokaður frá dönskum stjórnmálum

Kjörgengisnefnd í Danmörku hefur komist að því að Peter Brixtofte, fyrrverandi bæjarstjóri í Farum í útjaðri Kaupmannahafnar, geti ekki tekið þátt í dönskum stjórnmálum framar.

Fann 2.500 ára gamlan gullbikar undir rúminu

John Webber sjötugur Englendingur fann nýlega 2.500 ára gamlan gullbikar sem verið hafði undir rúmi hans í ein 60 ár. Bikarinn fékk Webber að gjöf frá afa sínum sem var brotajárnsali.

Skópörum raðað umhverfis Dómkirkjuna

Í tilefni þess að 40 ár eru liðin frá því að skipt var yfir í hægri umferð er nú haldin sérstök umferðaröryggisvika á vegum Umferðarráðs. Klukkan eitt í dag munu nemendur Listaháskóla Íslands hefjast handa við að raða upp hundruðum skópara fyrir framan og til hliðar við Dómkirkjuna sem ætlað er að tákna þá sem látist hafa hér á landi í umferðarslysum á þessum tíma. Einar Magnús Einarsson, upplýsingafulltrúi hvetur almenning til að koma niður á Austurvöll í góða veðrinu í dag og taka þátt í samverustundinnni.

Langur þingfundur fram undan

Þingfundur hófst í dag klukkan tíu og bíður ærið verk þingmanna þar sem 57 mál eru á dagskrá.

Ungliðar í VG óánægðir með þingflokkinn

Ung vinstri græn lýsa yfir óánægju með framgöngu þingmanna Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs þegar frumvörp um heildarlög grunnskóla annars vegar og leikskóla hins vegar voru afgreidd í annarri umræðu á Alþingi á mánudag.

Meira af sandsíli við Vestmannaeyjar

Sjómenn í Vestmannaeyjum segja að nú sé mun meira sandsíli í fiskinum en í fyrra og bíða Eyjamenn nú í ofvæni eftir því að lundinn staðfesti það með því að fara að verpa á rétum tíma.

Minnismerki um ofsótta homma afhjúpað

Berlínarbúar afhjúpuðu í gær minnismerki um þúsundir samkynhneigðra manna sem sættu ofsóknum á valdatímum Nasista á árunum 1933-1945. Minnismerkið er fjögurra metra hátt og á því sjást tveir karlmenn kyssast.

Ók ofurölvi á Akureyri

Lögreglan á Akureyri tók ofurölvi konu úr umferð í nótt. Vegfarandi hafði samband við lögregluna og tilkynnti um hættulegt ökulag konunnar. Eftir stutta leit sá lögreglan til hennar og náði að stöðva hana áður en hún færði sér eða öðrum að voða.-

Stefna stjórnvöldum vegna mistaka á fæðingadeild

Spænskir tvíburar sem voru aðskildir við fæðingu fyrir 35 árum hyggjast stefna yfirvöldum. Konurnar tvær, sem höfðu alist upp hjá sitthvorri fjölskyldunni, hittust fyrir tilviljun árið 2001. Þær fæddust á spítala á Kanaríeyjum og voru aðskildar þegar önnur þeirra var tekin í misgripum fyrir aðra alls óskylda stelpu.

Vilja óskerta starfsemi Íbúðalánasjóðs

Stéttarfélag Þingeyinga varar við hugmyndum um að skerða starfssemi Íbúðalánasjóðs og segir að tilgangur sjóðsins sé að stuðla að því að landsmenn geti búið við öryggi og jafnrétti í húsnæðism,álum. Hann gegni lykilhlutverki í uppbyggingu íbúðarhúsnæðis á landsbyggðinni, ekki síst núna, þegar kreppi að hjá bönkunum.

Mannréttindi víða brotin í heiminum

Þjóðarleiðtogar eru ekki í stakk búnir til þess að takast á við mannréttindabrot víðsvegar um heiminn. Þetta segir í nýrri skýrslu Amnesty International.

Deilt um Bratz dúkkurnar

Hart er deilt um höfundarréttinn á svokölluðum Bratz dúkkum fyrir bandarískum dómstólum þessa dagana. Lögmaður Mattel, stærsta leikfangaframleiðanda í heimi, segir að fyrirtækið eigi réttinn á að framleiða dúkkurnar.

Dönsk hjón festust á hálendinu

Björgunarsveitarmenn frá Blönduósi komu dönskum hjónum til hjálpar, eftir að þau höfðu fest bíl sinn í aurbleytu á hálendinu. Þau voru á leið frá Kjalvegi í Mælifellsdal í Skagafirði. Björgunarmenn náðu jeppa hjónanna upp úr festunni og fylgdu þeim til byggða. Vegurinn er lokaður en merkingum mun vera ábótavant.

Sviðsbúnaður Þjóðhátíðar skemmdist í eldi

Sviðsbúnaður þjóðhátíðar Vestmannaeyja skemmdist töluvert í eldi í morgun, en búnaðurinn er geymdur í porti við áhaldahús bæjarins við Heiðaveg. Vegfarandi tilkynnti lögreglu um mikinn reyk frá portinu og var slökkviliðið kallað út.

Íslendingur stunginn í Kaupmannahöfn

Átök í söluturni við Vesturbrú í Kaupmannahöfn í nótt enduðu með því að 25 ára gamall Íslendingur sem þar var staddur var stunginn sjö sinnum með hníf.

Ljósleiðari rofinn við Þórshöfn

Ljósleiðari Mílu er rofinn við Þórshöfn og gætu áhrif bilunarinnar orðið víðtæk á tal- og gagnasamband á Austurlandi, segir í tilkynningu frá Mílu.

Belgurinn flaug upp á undan

Michel Fournier, 64 ára gamall fallhlífarstökkvari, þurfti í gær að hætta við að reyna að slá met með því að stökkva niður til jarðar úr meiri hæð en áður hefur verið gert.

Sjö lögreglumenn myrtir í Mexíkó

Dópsmyglarar í Mexíkó myrtu í dag sjö lögreglumenn sem voru við rannsókn á smyglhring sem grunaður er um að flytja mikið magn fíkniefna frá Mexíkó til Bandaríkjanna.

Íslendingar komast í gegnum erfiðleikana

Geir H. Haarde forsætisráðherra sagði við eldhúsdagsumræður á Alþingi í dag að Íslendingar hefðu áður staðið frammi fyrir áföllum og komist í gegnum þau og það myndi þjóðin einnig gera núna. Hann ætti von á að erfiðleikarnir myndu víkja fyrir betri tíð.

Guðni sakar Geir um blekkingar

Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, sagði í eldhúsdagsumræðum á Alþingi nú undir kvöld að ríkisstjórnin væri sundruð í mörgum málum og byggi við minnkandi tiltrú landsmanna. Hann vitnaði í sr. Bjarna Jónsson, fyrrverandi dómkirkjuprest. „Oft var þörf, en nú er nauðsyn að biðja fyrir ríkisstjórninni,“ sagði Guðni.

Efnahagsvandi fyrirsjáanlegur

Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri grænna, flutti fyrstu ræðu á eldhúsdagsumræðum sem hófust rétt fyrir klukkan átta.

Sjá næstu 50 fréttir