Fleiri fréttir

Móðir fórnarlambsins: Hrottalegar aðfarir lögreglu

Móðir piltsins sem lögreglumaður tók kverkataki í verslun 10-11 í gær segir aðfarir lögreglumannsins hrottalegar en fjölskyldan hefur ekki tekið ákvörðun um hvort atvikið verði kært. Lögreglumaðurinn mun ekki sinna lögreglustörfum á meðan málið er í rannsókn.

Magnús geðlæknir: Segist ekki á leiðinni í meðferð

Magnús Skúlason yfirgeðlæknir á Sogni segist ekki vera á leiðinni í meðferð eins og kom fram í fréttum Rúv í hádeginu. Í Fréttablaðinu í morgun er sagt frá því að landlæknisembættið sé með til rannsóknar mál þar sem Magnúsi er gert að sök að hafa ávísað ávanabindandi fíknilyfjum á menn án þeirrar vitundar. Magnús vill lítið tjá sig um málið en segist vera að meta stöðuna og gera viðeigandi ráðstafanir.

Dæmdur fyrir að slá mann með gangstéttarhellubroti

Héraðsdómur Austurlands hefur dæmt karlmann í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa slegið annan mann í höfuðið með broti úr gagnstéttarhellu þannig að hann hlaut sár á höfði. Þá var hann einnig sakfelldur fyrir að hafa sparkað í bakið á manninum.

Eldur slökktur í Laxfossi við Sundabakka

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kvatt niður á Sundabakka laust eftir klukkan þrjú í dag vegna tilkynningu um eld í skipinu Laxfossi sem er í eigu Eimskips.

10-11 lögreglumaður sendur í frí

Lögreglumaðurinn sem sést taka pilt hálstaki í verslun 10-11 í Grímsbæ á myndbandi á Netinu mun ekki sinna störfum á vegum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á meðan mál hans er í rannsókn.

Ökuþórar segjast hafa gætt fyllsta öryggis

Myndband sem birtist á Vísi í gær og sýnir þegar bíl er velt í iðnaðarhverfi í Grafarvoginum hefur vakið athygli. Mennirnir sem hlut áttu að máli eru ósáttir við umfjöllun fjölmiðla í málinu og höfðu samband við Vísi til að koma sínum sjónarmiðum á framfæri. Þeir segja enga hættu hafa verið á ferðum enda hafi ökumaðurinn verið vel búinn og götunni lokað á meðan á akstrinum stóð.

10-11 strákur ætlar líklega að kæra lögregluna

„Við töluðum um það í gær og ætli það endi ekki með því að hann kæri,“ segir vinur piltsins sem staddur var ásamt nokkrum öðrum í verslun 10-11 í Grímsbæ í gærkvöldi þegar lögreglumaður tók 17 ára unglingspilt kverkataki.

Á gjörgæslu eftir fjórhjólaslys

Ung stúlka liggur nú á gjörgæsludeild Landspítalans með alvarlega höfuðáverka eftir að hún slasaðist ásamt móður sinni þegar þær voru á fjórhjóli í Reynishverfi vestan við Vík fyrr í dag.

Mæðgur slösuðust á fjórhjóli

Þyrla Landhelgisgæslunnnar, TF-LÍF, lenti fyrir stundu í Reykjavík með mægður sem slasast höfðu á fjór- eða sexhjóli í Reynishverfi vestan við Vík í Mýrdal eftir hádegið.

Frakkar vilja hækka styrki til sjávarútvegs

Frakkar ætla að leggja til að reglum Evrópusambandsins um ríkisstyrki verði breytt til þess að hægt verði að hjálpa fiskimönnum að standa af sér hækkanir á eldsneyti.

Impregilo í rusli - handtökur í Napólí

Dómari í Napólí á Ítalíu hefur fyrirskipað að 25 menn skuli hnepptir í stofufangelsi vegna meintra svika í tengslum við sorphirðu í suðurhluta landsins.

Forstjóri Strætó skilar greinargerð um málefni trúnaðarmanns

„Við erum í því ferli núna að skila greinargerð um málið til okkar yfirmanna. Það er síðan mögulegt að gefin verði út yfirlýsing til fjölmiðla í kjölfarið en það er þeirra ákvörðun," segir Reynir Jónsson forstjóri Strætó bs. Talsverð læti hafa verið í kringum uppsögn trúnaðarmanns félagsins sem hefur sakað forstjórann um einelti.

Þingfundi frestað frestað fram á kvöld

Þingfundi, sem hófst klukkan tíu í morgun, lauk nú laust fyrir klukkan tvö eftir að fjallað hafði verið um tólf mál. Þingfundur er fyrirhugaður í kvöld en það eru almennar stjórnmálaumræður eða eldhúsdagur.

Fífldirfska eða heimska

Það er spurning um hvort þetta er fífldjarfasti gæsaungi í Massachusetts, eða sá heimskasti. Eða kannski veit hann bara að grimmdarlegi sléttuúlfurinn fyrir framan hann er bara úr plasti.

Skipulagsstofnun svarar fyrir sig

Skipulagsstofnun hefur svarað gagnrýni á hendur stofnuninni sem sett hefur verið fram í kjölfarið á áliti hennar á Bitruvirkjun. Samorka hefur meðal annars haldið því fram að Skipulagsstofnun hafi farið út fyrir valdsvið sitt í málinu.

Lögreglan skoðar atvik í 10/11

Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, segir að embættið sé að skoða atvik sem varð í 10/11 verslun í gær þegar lögreglumaður réðst að pilti og tók hann kverkataki.

Unglingar verið til vandræða upp á síðkastið

Egill Pálsson, verslunarstjóri í 10-11 í Grímsbæ segir unglinga hafa verið með ólæti og vesen í búðinni um nokkurn tíma. Á myndbandasíðunni youtube.com er myndskeið sem sýnir lögreglumann taka ungling í búðinni kverkataki en atvikið átti sér stað í gærkvöldi. Egill segist ekki vita hvort um sé að ræða sömu unglinga og verið hafa til vandræða undanfarið.

Vörubílamótmæli í Lundúnum

Búist er við að um eitt þúsund vöruflutningabílar muni teppa umferð í Lundúnum nú síðdegis til að mótmæla hækkandi olíuverði. Á sama tíma hvetur Frakklandsforseti til þess að Evrópusambandið lækki virðisaukaskatt á bensíni.

Settur forstjóri Útlendingastofnunar í ár

Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra hefur sett Hauk Guðmundsson, skrifstofustjóra í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, í embætti forstjóra Útlendingastofnunar meðan á fæðingarorlofi Hildar Dungal, skipaðs forstjóra, stendur.

Suu Kyi áfram í stofufangelsi

Aung San Suu Kyi, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Búrma, verður í stofufangelsi í að minnsta kosti hálft ár í viðbót.

Náðaður heldur seint

Ástralinn Colin Campbell hefur verið náðaður vegna nauðgunar og morðs á tólf ára gamalli telpu.

Mun ekki setja fram skaðabótakröfu

Kjartan Ólafsson, fyrrverandi þingmaður og ritstjóri Þjóðviljans, á ekki von á því að hann setji fram skaðabótakröfu vegna símahlerana á heimili sínu.

Skotfæri fundust í Öskjuhlíð

Töluvert magn skotfæra úr seinni heimsstyrjöldinni fannst nýverið í Öskjuhlíð. Í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni segir að maður á göngu hafi rekist á skotin við göngustíg. Hann tilkynnti fundinn til lögreglu sem aftur kallaði til sprengjusérfræðinga Landhelgisgæslunnar.

Geðlæknir notaði nöfn fanga til að svíkja út lyf

Landlæknisembættið hefur til rannsóknar mál læknis sem hefur látið ávísa ávanabindandi fíknilyfjum á menn án þeirra vitundar. Lyfin voru sótt af manni sem starfaði við áfengisráðgjöf fanga en ekki er vitað hvað um þau varð eftir að þau komust í hans hendur. Viðkomandi læknir hefur verið settur frá störfum. "Við lítum málið sérlega alvarlegum augum," segir Sigurður Guðmundsson landlæknir.

Lántaka er herkostnaður stóriðju og skattalækkana

Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri - grænna, sagði 500 milljarða króna lán sem lagt er til að ríkissjóður megi taka herkostnað stóriðju, skattalækkana og útrásarævintýra síðustu ára. Hann benti jafnframt á að Vinstri - græn hefðu ítrekað kallað eftir aðgerðum í efnahagsmálum.

Gaf Ehud Olmert mikið fé

Bandarískur kaupsýslumaður sagði fyrir rétti í Ísrael í dag að hann hefði gefið hundruð þúsunda dollara í kosningasjóð Ehuds Olmerts, forsætisráðherra Ísraels.

Sjá næstu 50 fréttir