Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Konan sem brenndist á Dalbraut er látin Konan, sem brenndist alvarlega þegar eldur kom upp í húsakynnum aldraðra við Dalbraut 27 í Reykjavík síðdegis í gær, er látin. 28.4.2008 07:17
Ekki nægur stuðningur við Tempelhof í Berlín Útlit er fyrir að hinum sögufræga Tempelhof-flugvelli í Berlín í Þýskalandi verði lokað ef marka má fyrstu tölur úr kosningu um framtíð hans í dag. 27.4.2008 22:27
Þurftu tvisvar að kalla út auka mannskap í dag Jón Viðar Matthíasson slökkviliðsstjóri á höfuðborgarsvæðinu segir að tvisvar hafi þurft að kalla út auka mannskap í dag. Töluvert var að gera hjá Slökkviliðinu við að slökkva sinuelda auk þess sem stórt útkall kom vegna elds í þjónustuíbuð fyrir aldraða við Dalbraut 27. 27.4.2008 18:36
Myndi ekki þiggja borgarstjórastólinn Árni Sigfússon bæjarstjóri í Reykjanesbæ var gestur Sigmundar Ernis Rúnarssonar í Mannamáli nú í kvöld. Árni ræddi um uppbygginguna á Reykjanesi, ófarir Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og hugsanlegan borgarstjórastól. 27.4.2008 20:31
Sakar oddvita A-lista um ósannindi Grímur Atlason fráfarandi bæjarstjóri í Bolungarvík hefur sent frá sér yfirlýsingu í kjölfar yfirlýsingar A-listans sem birtist á Vísi fyrr í dag. Þar sakar Grímur Önnu Guðrúnu Edvardsdóttur oddvita A-listans um ósannindi sem hann segir ekki koma sér á óvart. 27.4.2008 19:01
Fámennt í mótmælagöngu Sturlu Sturla Jónsson talsmaður vörubílstjóra hefur skipt um gír í mótmælum sínum og gekk í dag með mótmælaspjald frá Húsi verslunarinnar að Alþingi. 27.4.2008 18:52
Búið að slökkva eldinn á Dalbraut Nokkuð greiðlega gekk að slökkva eld sem kom upp í íbúð aldraðra við Dalbraut í Reykjavík. Slökkviliðið fékk tilkynningu um eldinn klukkan 17:15 og korteri síðar var búið að ganga úr skugga um að enginn eldur væri í húsinu. 27.4.2008 17:51
Alvarlegur trúnaðarbrestur orsökin í Bolungarvík Alvarlegur trúnaðarbrestur er ein af ástæðum þess að uppúr slitnaði í meirihlutasamstarfi A-lista og K-lista í Bolungarvík. Fulltrúar A-lista hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem farið er yfir langan aðdraganda slitanna. Þar segir einnig að mikilvægt sé að þeir fulltrúar sem kosnir eða ráðnir eru til trúnaðarstarfa í opinberri stjórnsýslu gæti hófs í orðavali á opinberum vettvangi. 27.4.2008 17:15
Annar sinubruni – nú í Garðabæ Sinubruni kviknaði við Sjávargrund í Garðabæ fyrir stundu. Ekki er vitað hversu mikill bruninn er en slökkviliðið er að koma á staðinn. Þetta er annar sinubruni dagsins. 27.4.2008 17:00
Græða 180 milljarða á því að frídögum fækkar um einn Sænska ríkið og sænsk fyrirtækið græða um 15 milljarðar sænskra króna, jafnvirði um 180 milljarða íslenskra, á því að 1. maí og uppstingingardag ber upp á sama dag í ár. Frá þessu er greint á fréttavef sænska ríkisútvarpsins. 27.4.2008 17:00
Slösuðust eftir að hraðlest ók á kindahóp Tuttugu og þrír slösuðust, þar af fjórir alvarlega, þegar þýsk hraðlest fór út af sporinu eftir að hafa ekið á kindahóp í dag. 27.4.2008 16:18
Búið að slökkva sinubrunann við Hvaleyrarvatn Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu er búið að slökkva sinubruna sem kom upp við Hvaleyrarvatn í dag. Töluvert svæði brann og náði eldurinn meðal annars að festa sig í trjám og gróðri sem var á svæðinu. 27.4.2008 15:55
Sat uppi í sófa þegar kveikt var í jeppanum Um miðnætti í gærkvöldi var kveikt í glænýjum ellefu milljóna króna Volkswagen Toureg jeppa við Naustabryggju í Grafarvogi. Benjamín Þór Þorgrímsson eigandi bílsins segist hafa verið uppi í sófa þegar hann heyrði lætin. Bíllinn var keyrður 30 þúsund kílómetra. 27.4.2008 15:43
Mótmæla komu Grants og Haims til Malasíu Yfir tuttugu samtök múslíma í Malasíu hyggjast efna til mótmæla í sumar þegar enska knattspyrnuliðið Chelsea heimsækir landið á æfingaferð fyrir næstkomandi leiktíð. 27.4.2008 15:30
Bush reytti af sér brandarana á kvöldverði blaðamanna George Bush Bandaríkjaforseti reytti af sér brandara á árlegum hátíðarkvöldverði blaðmanna í Hvíta húsinu á kostnað hugsanlegra eftirmanna sinna 27.4.2008 15:00
Lokaði dóttur sína niður í kjallara í 24 ár Austurrísk kona segir föður sinn hafa haldið sér fanginni í kjallara á heimili sínu í 24 ár. Hún hefur alið honum sjö börn að sögn lögreglunnar. 27.4.2008 14:35
Tamíltígrar gerðu loftárásir á herinn á Srí Lanka Engan sakaði þegar skæruliðar Tamíltígra gerðu loftárás á herstöð í Welioya-héraði á norðausturhluta Srí Lanka í dag. 27.4.2008 14:30
Reyndi að kveikja í sér til að hindra ferð ÓL-kyndils Til átaka kom milli stuðningsmanna og andstæðinga Kínastjórnar þegar hlaupið var með Ólympíukyndilinn um Seoul í Suður-Kóreu í dag. 27.4.2008 14:14
Mikill sinubruni við Hvaleyrarvatn Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu er nú að berjast við mikinn sinubruna við Hvaleyrarvatn í Hafnarfirði. Eldurinn er töluverður og eru um 10 slökkviliðsmenn á staðnum. 27.4.2008 14:11
Kínverjar styðja framboð Íslands til Öryggisráðsins Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra var gestur í Silfri Egils Helgasonar fyrir stundu. Fór hún um víðan völl og ræddi meðal annars um evrópusambandsaðild, öryggisráðið og íslensku krónuna. Ingibjörg sagði Kínverja styðja framboð Íslands til Öryggisráðsins. 27.4.2008 14:01
Borgarstjóri ekki starfi sínu vaxinn Í kvöldfréttum í gær sagði borgarstjóri að fyrirætlanir Tjarnarkvartettsins um að efla mannréttindaskrifstofu borgarinnar hafi verið tilraun til að þenja út stjórnkerfið. Hann sagði jafnframt að starfsemi skrifstofunnar hafi verið óljós og illa skilgreind. Verkefni skrifstofunnar séu ekki jafn brýn og að tryggja velferð og góða þjónustu við borgarbúa. 27.4.2008 13:17
Ætlar að ganga í bæinn og mótmæla Sturla Jónsson talsmaður vörubílstjóra undanfarinna vikna ætlar að mótmæla háu bensínverði, hvíldartíma og fleiru í dag. Sturla hefur verið öflugur í mótmælunum og hefur hingað til mótmælt á vörubílnum sínum. Nú hefur honum verið lagt og ætlar Sturla að labba í bæinn. 27.4.2008 12:43
Stuðningsmaður Camerons í kynlífshneyksli Hinn 64 ára gamli Irvine Lord Laidlaw er einn af helstu styrktaraðilum breska Íhaldsflokksins. Hann hefur nú viðurkennt kynlífsfíkn og flýgur vændiskonum reglulega til Monte Carlo án vitundar eiginkonu sinnar. Laidlaw viðurkenndi þetta eftir afhjúpun breska blaðsins News of the World. 27.4.2008 10:59
Aftur ráðist á öryggisvörð í Austurstræti Ráðist var á öryggisvörð í verslun 10-11 í Austurstræti klukkan hálf sex í morgun. Öryggisvörðurinn sem var á sinni síðustu vakt hafði afskipti af tveimur ölvuðum karlmönnum á þrítugsaldri sem voru með skrílslæti inni í versluninni þegar annar þeirra kýldi hann í andlitið og braut í honum tönn. 27.4.2008 10:23
Hvannadalshnjúkur í beinni útsendingu Um áramótin síðustu var hafinn undirbúningur að ferð starfsmanna á Hvannadalshnjúk og var stefnt að því að gangan yrði farin helgina 25-26 apríl. Einn fremsti fjallamaður landsins, Haraldur Örn Ólafsson, var af þessu tilefni fenginn til liðs við hópinn bæði í undirbúningnum og í gönguna sjálfa. 27.4.2008 10:19
Ástþór ætlar ekki í forsetaframboð Ástþór Magnússon fyrrum forsetaframbjóðandi birtir mikla auglýsingu í Fréttablaðinu í morgun. Þar fer hann yfir árangur af starfi fyrrum forsetaframboða sinna og ræðir síðan um komandi forsetakosningar í sumar. Ástþór ætlar ekki að taka þátt. 27.4.2008 09:59
Glæsijeppi gjörónýtur í Grafarvogi Eldur kom upp í VW Toureg glæsijeppa sem stóð við Naustabryggju í Grafarvogi laust fyrir miðnætti í gær. Bíllinn er gjörónýtur og var dreginn burtu af vettvangi. 27.4.2008 09:29
Rotaður í Reykjanesbæ Tvær líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglu í nótt. Báðar áttu sér stað í miðbæ Reykjanesbæjar. Í öðru tilfellinu var maður sleginn niður utan við skemmtistað þannig að hann lá rotaður á eftir. 27.4.2008 09:25
Karzai ómeiddur eftir tilræði Talíbanar reyndu í morgun að ráða Hamid Karzai, forseta Afganistans, af dögum. Forsetinn var viðstaddur fjölmenn hátíðarhöld í höfuðborginni Kabúl þar sem þess var minnst að 16 ár eru frá falli kommúnista stjórnar landsins. Ekki er vitað til þess að Íslendingar hafi særst en 13 íslenskir friðargæsluliðar starfa í Kabúl. 27.4.2008 09:06
Brenndist í andliti í slysi í sorpeyðingarstöð Starfsmaður í sorpeyðingarstöðinni Kölku í Reykjanesbæ brenndist í andliti um miðjan dag í dag þegar hann var að draga járn úr ofni 27.4.2008 00:09
Ágúst: ,,Ég sá rautt" Ágúst Fylkisson, sem réðst á lögregluþjón við Kirkjusand á fimmtudag, segist hafa misst stjórn á skapi sínu vegna þess að hann fékk ekki afhenta kylfu sem lögregla tók af honum á staðnum. Þetta kemur fram á heimasíðunni Samtaka.net þar sem Ágúst biðst afsökunar á framferði sínu. 26.4.2008 23:38
Sómalskir sjóræningjar sleppa föngum sínum Sómalskir sjóræningjar sem haldið hafa baskneskum túnfisksveiðimönnum í gíslingu í rúma viku hafa sleppt föngum sínum. Túnfiskbáturinn Playa de Bakio er nú á leið á alþjóðlegt hafsvæði eftir því sem ráðherra í spænsku ríkisstjórninni segir. Ráðherran segir að samið hafi verið um lausn mannana en vildi ekki tjá sig um hvort lausnargjald hafi verið greitt fyrir þá. 26.4.2008 19:38
Árni Johnsen: Persónulegt skítkast Árni Johnsen alþingismaður segist hafa lítið um væntanlega kæru aðstoðarvegamálastjóra á sig að segja. Gunnar Gunnarsson, aðstoðarvegamálastjóri, tilkynnti í dag að hann ætlaði að kæra Árna til lögreglu fyrir ummæli sem hann lét falla í grein í Morgunblaðinu í dag. 26.4.2008 16:58
Erill hjá slökkviliðinu í dag Töluvert hefur verið fyrir slökkviliðsmenn í borginni að gera í dag. Þrisvar þurftu þeir að sinna útköllum vegna sinubruna. Vel gekk að eiga við þá og tjón varð lítið sem ekkert. Slökkvilið var einnig kallað til vegna manns sem hafði farið upp á þak og neitaði að koma niður. Slökkviliðsmenn þurftu því ásamst lögreglu að ná honum niður á jörðina og gekk það áfallalaust fyrir sig. 26.4.2008 19:47
Vorhreinsun í Reykjavík Nú er kominn tími til að setja upp hanskana og munda skóflurnar, að minnsta kosti hjá Reykvíkingum, því það er komið að árvissri vorhreinsunarviku í Reykjavík. 26.4.2008 19:20
Þrjúhundruð tóku þátt í flugslysaæfingu í Eyjum Hátt á þriðja hundrað manns tók þátt í viðamikilli flugslysaæfingu í Vestmannaeyjum í dag. Fulltrúar allra hópa sem koma að aðgerðum eftir stórslys tóku þátt í æfingunni. 26.4.2008 19:11
Rúmlega hundrað hætta á Landspítala eftir fimm daga Landspítalinn háskólasjúkrahús getur ekki starfað eftir neyðaráætlun í langan tíma segir sviðsstjóri hjúkrunar á spítalanum, en yfir hundrað hjúkrunarfræðingar og geislafræðingar ganga út af spítalanum eftir fimm daga hafi ekki samist í deilunni. 26.4.2008 19:00
Matti Vanhanen í opinbera heimsókn Matti Vanhanen, forsætisráðherra Finnlands, kemur í opinbera heimsókn til Íslands á mánudag. Þetta kemur fram á finnskri fréttasíðu. Vanhanen verður hér á landi í tvo daga og mun hann hitta Geir Haarde, forsætisráðherra og forsvarsmenn íslenskra fyrirtækja með starfsemi í Finnlandi. 26.4.2008 18:13
Harðlínumenn styrkja stöðu sína í Íran Harðlínumenn í Íran þykja hafa styrkt stöðu sína enn frekar í kjölfar annarar umferðar í þingkosningum þar í landi. Kosið var um þingsæti þar sem enginn náði 25 prósentum eða meira. Eftir kosningarnar ráða harðlínuöflin í landinu 69 prósent þingsæta, umbótamenn eru með 16 prósent og óháðir 14 prósent. 26.4.2008 16:50
Skorað á samgönguráðherra Félag Vinstri Grænna í Stykkishólmi skorar á Samgönguráðherra að ganga nú þegar til samninga við Sæferðir vegna ferða Breiðafjarðarferjunnar Baldurs yfir Breiðafjörð milli Stykkishólms og Brjánslækjar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. 26.4.2008 16:14
Aðstoðarvegamálastjóri ætlar að kæra Árna Johnsen Gunnar Gunnarsson, aðstoðarvegamálastjóri, ætlar að kæra Árna Johnsen alþingismann til lögreglu fyrir ummæli sem Árni viðhefur í Morgunblaðinu í dag. Gunnar segir vegið að sér sem opinberum starfsmanni og lögfræðingi. Í greininni lætur Árni að því liggja að Gunnar hafi verið skipaður í nefnd um samgöngur til Vestmannaeyja með það að markmiði að fá fram vilja fyrrverandi samgönguráðherra Sturlu Böðvarssonar í málinu. 26.4.2008 14:38
Hvolpur smitar þrjá af hundaæði Þrír Bretar eru nú í meðferð við hundaæði eftir að sýktur hvolpur glefsaði í þá. Hvolpurinn var í sóttkví en hann hafði nýverið verið fluttur inn til Bretlands frá Sri Lanka. Bretland er talið laust við þennan skæða kvilla og því er málið litið alvarlegum augum. Óttast var að fjórir aðrir hundar í stöðinni væru einnig sýktir og hafa öll dýrin verið svæfð. 26.4.2008 14:26
„Ég hélt að ég væri að missa sjónina“ Brennuvargur, einn eða fleiri, var á ferð í Árbænum í nótt þar sem kveikt var í blaðabunkum fyrir utan tvo stigaganga í Hraunbænum. Þetta er enginn fíflagangur, heldur glæpamennska, segir kona sem býr í öðrum stigaganginum. 26.4.2008 14:14
Hákarl banar manni í Kalíforníu Strandlengjunni hefur verið lokað á nokkura kílómetra svæði í Kalíforníu í kjölfar þess að hákarl banaði 66 ára gömlum manni. Hákarla árásir eru mjög sjaldgæfar á þessu svæði en hákarlinn réðst á manninnn þegar hann var að synda í sjónum norður af borginni San Diego. 26.4.2008 13:38
Skáld í sundi Nú á þriðja degi sumars í blíðskaparveðri er tilvalið að fara í Seltjarnarneslaug og hlýða á þjóðþekkt skáld lesa upp úr bókmenntaverkum sínum í lauginni í allan dag. Bókmenntadagskráin sem nefnist Lesið í lauginni er í tilefni af alþjóðlegri viku bókarinnar og er haldin á vegum Seltjarnarnessbæjar, Forlagsins og World Class. 26.4.2008 13:14