Fleiri fréttir

Ísskápur sprakk í Vesturbænum

Innréttingar losnuðu af veggjum, hurðir fuku og sprungur mynduðust í vegg þegar 6 ára gamall Bloomberg ísskápur sprakk með látum í Vesturbænum í nótt.

Eldur í fjölbýlishúsi í Árbæ

Litlu mátti muna í Árbænum um klukkan fimm í morgun þegar kveikt var í dagblaðabunkum við útidyr í Hraunbæ 4 og 6. Eldurinn náði ekki að breiða sig út á númer 4 en í Hraunbæ 6 læsti hann sig í útidyrahurðina og náði inn í stigagang.

100 ára óvissu eytt

Norskar rannsóknir á beinum tveggja kvenna sem fundust í víkingaskipi fyrir meira en 100 árum hafa afsannað lífsseigar kenningar um að konunum hafi verið fórnað til þess að fylgja drottningu sinni í dauðann.

Einn handtekinn í tengslum við morð á sænskri stúlku

Franska lögreglan handtók í dag karlmann á fimmtugsaldri í tengslum við morðið á hinni 19 ára gömlu sænsku stúlku, Súsönnu Zetterberg. Lík hennar fannst í skógi í útjaðri Parísar um síðustu helgi.

Tyrkir sprengja í Norður-Írak

Tyrkneskar herflugvélar vörpuðu sprengjum á valin skotmörk í norðurhluta Írak um klukkan hálf fimm í dag.

Vistvænn lífsstíll Reykvíkinga kannaður

Borgarráð fól í dag umhverfis- og samgönguráði að láta framkvæma könnun á viðhorfi borgarbúa til umhverfismála. „Við viljum kanna hvað Reykvíkingar vilja gera næst í umhverfismálum og hvað hver og einn vill leggja að mörkum,“ segir Gísli Marteinn

Ólafur: Aðkoma borgarbúa er svo sannarlega tryggð

Ólafur F. Magnússon borgarstjóri lagði fram bókun á fundi borgarráðs í dag en þar var samþykkt að ganga frá sölunni á Fríkirkjuvegi 11 til félags í eigu Björgólfs Thor Björgólfssonar.

Vill fjölga 30 km svæðum í borginni

Borgarráð samþykkti á fundi sínum í dag þá tillögu borgarstjóra að fela umhverfis- og samgönguráði að gera tillögur um fjölgun 30 kílómetra svæða í íbúðarhverfum.

Samið við nokkur Persaflóaríki um fríverslunarsamning

Íslendingar hafa ásamt öðrum EFTA-ríkjum náð samkomulagi við samstarfsráð Persaflóaríkja um fríverslunarsamning. Innan samstarfsráðs Persaflóaríkja eru Barein, Katar, Kúveit, Óman, Sádi-Arabía og Sameinuðu arabísku furstadæmin

Lögreglan stuggaði við unglingum á Miklubraut

Unglingarnir sem mótmæltu háu bíómiðaverði í dag gripu til þess að stöðva umferð á gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar. Nokkuð lið lögreglu kom á staðinn og stuggaði við unglingunum sem flest létu sér segjast og hurfu á braut. Að sögn vaktstjóra lögreglunnar eru þó enn nokkrir krakkar á vappi um svæðið.

Lýst eftir klappara

Þegar Ágúst Fylkisson réðst á lögregluþjón við Kirkjusand í gær mátti heyra karlmann öskra; "Já, já." og klappa ákaflega.

Hætt við mikla uppbyggingu að Keilugranda 1

Hugmyndum um mikla uppbygginu á lóðinni við Keilugranda 1 var hafnað á fundi borgarráðs í dag og var skipulagsstjóra falið að vinna með umsækjendum að nýjum hugmyndum í stað þeirra sem hafnað var

Ágúst biðst afsökunar: „Gerðist í hita leiksins“

Ágúst Fylkisson, maðurinn sem réðst á lögregluþjón við Kirkjusand í gær, biðst afsökunar á hátterni sínu. Í samtali við Vísi segist hann sjá eftir atvikinu en bendir á að aðdragandinn að því að upp úr sauð hafi verið lengri en fram hafi komið í fréttum. Hann ætlar að senda frá sér tilkynningu um atvikið á morgun.

Öldungur í Kópavogi kærður fyrir kynferðislega misnotkun

75 ára gamall karlmaður úr Kópavogi hefur verið kærður til lögreglunnar fyrir að misnota stúlku kynferðislega á átta ára tímabili, frá því því að hún var tólf ára til tvítugs. Björgvin Björgvinsson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, staðfesti við Vísi að málið væri til rannsóknar.

Kínverjar vilja funda með Dalai Lama

Fulltrúar kínverskra stjórnvalda munu á næstu dögum funda með fulltrúa Dalais Lama, andlegs leiðtoga Tíbeta, í kjölfar átaka í héraðinu í síðasta mánuði. Frá þessu greindi ríkissjónvarp Kína í dag.

Rafbyssur gætu komið í veg fyrir átök

„Lögreglan hefur engan áhuga á því að standa í slagsmálum við fólk sem er að mótmæla," segir Steinar Adolfsson, framkvæmdastjóri Landsambands lögreglumanna.

Disneyland rís í Bagdad

Þrátt fyrir að það sé engan veginn kominn á friður í Bagdad, höfuðborg Íraks, hyggst fyrirtækið C3 reisa þar Disneyland-skemmtigarð á næstunni.

Mótmælaaldan breiðist út

Mótmæli vörubílstjóra undanfarið hafa ekki farið fram hjá nokkrum manni. Nokkrir ungir menn fylgdu fordæmi þeirra á Kringlumýrarbrautinni í dag þar sem þeir söfnuðust saman og mótmæltu verðinu á bíómiðanum sem þeim finnst allt of hátt.

Leit hætt að blöðrupresti

Yfirvöld í Brasilíu hafa hætt leit að prestinum sem reyndi að setja met í flugi með helíumfylltum blöðrum.

Fundu 50 grömm af kókaíni við húsleit í miðborginni

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði í fyrrinótt hald á allnokkurt magn af fíkniefnum í húsleit í miðborg Reykjavíkur. Talið er að um sé að ræða tæplega 50 grömm af kókaíni og lítilræði af marijúana.

Fráleitt að afsala sér forræði yfir Hallargarðinum

Fulltrúi Vinstri grænna í borgarráði telur fráleitt að undirrita samning þar sem Reykjavíkurborg afsalar sér í raun forræði yfir Hallargarðinum öllum og afhendir þar að auki einkaaðilum lóð sem börn og ungmenni hafa nýtt sér til leikja um áratugi.

McCain reynir að verja Barack Obama

Repúblikanaflokkurinn í Norður-Karólínu hefur neitað að verða við beiðni Johns MCain um að draga til baka auglýsingu þar sem ráðist er á Barack Obama.

Sektaður fyrir hnefahögg í Austurstræti

Karlmaður á þrítugsaldri hefur í Héraðsdómi Reykjavíkur verið dæmdur til að greiða 70 þúsund króna sekt fyrir að hafa ráðist á annan mann og kýlt hann í andlitið þannig að hann féll í götuna og hlaut stóran opinn skurð á vör og í munnholi.

Lára Ómarsdóttir hefur sagt upp störfum

Lára Ómarsdóttir hefur ákveðið að láta af störfum hjá fréttastofu Stöðvar 2. Ástæðan eru ummæli í netútsendingu, sem henni var ekki kunnugt um, vegna mótmæla á Suðurlandsvegi á miðvikudaginn var.

Flugslysaæfing í Vestmannaeyjum

Flugslysaæfing fer fram á Vestmannaeyjaflugvelli dagana 24. – 27. apríl næstkomandi. „Æfð verða viðbrögð við slysi þegar 40 farþega flugvél hlekkist á við lendingu á Vestmannaeyjaflugvelli með þeim afleiðingum að eldar kvikna og fjöldi manns þarfnast tafarlausar aðhlynningar,“ segir í tlkynningu frá Flugstoðum.

Sektað fyrir brot á uppboðsmarkaði fyrir fiskafurðir

Samkeppniseftirlitið hefur sektað Fiskmarkað Íslands um um tíu milljónir króna fyrir að hafa misnotað markaðsráðandi stöðu sína með því að tvinna saman kaup og slægingu á fiski og þannig raskað samkeppni á uppboðsmarkaði fyrir fiskafurðir.

Samskip sýknað og lögmaður sektaður

Hæstiréttur snéri á miðvikudag úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur í Dísarfellsmálinu svokallaða við. Kona krafðist skaðabóta á hendur Samskipum en eiginmaður hennar lést þegar Dísarfell, skip félagsins, sökk árið 1997. Héraðsdómur dæmdi Samskip til að greiða konunni tæpar tvær milljónir króna í miskabætur en Hæstiréttur sýknaði Samskip af þeirri kröfu á miðvikudag. Þá var lögmaður konunnar dæmdur til að greiða hundrað þúsund krónur í sekt vegna ummæla sem hann lét falla í héraðsdómsstefnu.

Ísraelar flöttu út sýrlenskan kjarnaofn

Sýrlendingar hafa sakað Bandaríkjamenn um að hafa átt þátt í loftárás sem ísraelskar flugvélar gerðu á kjarnaofn í austurhluta landsins. Bandaríkjamenn segja að Norður-Kórea hafi aðstoðað Sýrlendinga við að smíða hann.

Mýrarhúsaskólamáli verður áfrýjað

Máli stúlkunnar í Mýrarhúsaskóla, sem renndi hurð á höfuð kennara síns, verður áfrýjað. Þetta segir Guðmundur Pétursson, lögmaður móður stúlkunnar.

Eyddu hátt í 600 milljónum í vörur og þjónustu

Danska konungsfjölskyldan eyddi 38,8 milljónum danskra króna, jafnvirði um 580 milljóna íslenskra, í hvers kyns vörur og þjónustu á síðasta ári. Þetta kemur fram í Ekstra Bladet sem lagst hefur yfir ársskýrslu danska konungsembættsins

Vilja að lýðræðisleg niðurstaða kosninga verði virt

Alþjóðaþingmannasambandið hvetur stjórnvöld í Simbabve til þess að taka á móti svæðisbundnum þingmannasamtökum og kosningaeftirlitsmönnum ef til þess kemur að endurtaka þurfi forsetakosningar þar í landi.

Sjá næstu 50 fréttir