Innlent

Vorhreinsun í Reykjavík

Nú er kominn tími til að setja upp hanskana og munda skóflurnar, að minnsta kosti hjá Reykvíkingum, því það er komið að árvissri vorhreinsunarviku í Reykjavík.

Starfsmenn borgarinnar munu næstu vikuna, eða fram á næsta laugardag, leggja garðeigendum lið með því að fjarlægja garðaúrgang sem settur hefur verið út fyrir lóðamörk.

Ólafur F. Magnússon borgarstjóri fékk að fljóta með hreinsunarstarfsmönnum í dag og sveiflaði nokkrum ruslapokum upp á pallbíl áður en borgarstjórinn hvarf aftur til sinna skyldustarfa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×