Innlent

Þrjúhundruð tóku þátt í flugslysaæfingu í Eyjum

Hátt á þriðja hundrað manns tók þátt í viðamikilli flugslysaæfingu í Vestmannaeyjum í dag. Fulltrúar allra hópa sem koma að aðgerðum eftir stórslys tóku þátt í æfingunni.

Undirbúningur æfingarinnar var í höndum heimamanna í lögreglu, slökkviliði, bjögunarsveitum heilbrigðisstéttum, flugvallarstarfsmanna og svo framvegis, en fulltrúar slökkviliða höfuðborgarsvæðisins og Akureyrar, Landspítala, almannavarnardeildar Ríkislögreglustjóra, Flugstoða, Slysavarnafélagsins, Neyðarlínunnar og Landhelgisgæslunnar ásamt fleirum komu einnig að æfingunni.

Æfingin er hluti reglubundinna æfinga sem Flugmálastjórn og seinna Flugstoðir standa fyrir og eru viðamestu hópslysaæfingar sem haldnar eru í landinu, en markmið æfinganna er að leiða saman viðbragðsaðila sem bregðast við flugslysi og um leið að tryggja fræðslu á sviði hópslysaviðbúnaðar.

Leitast er við að skapa sem raunverulegastar aðstæður þannig að allir þeir sem koma að hópslysum komist sem næst raunveruleikanum á æfingunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×