Aðstoðarvegamálastjóri ætlar að kæra Árna Johnsen 26. apríl 2008 14:38
Gunnar Gunnarsson, aðstoðarvegamálastjóri, ætlar að kæra Árna Johnsen alþingismann til lögreglu fyrir ummæli sem Árni viðhefur í Morgunblaðinu í dag. Gunnar segir vegið að sér sem opinberum starfsmanni og lögfræðingi. Í greininni lætur Árni að því liggja að Gunnar hafi verið skipaður í nefnd um samgöngur til Vestmannaeyja með það að markmiði að fá fram vilja fyrrverandi samgönguráðherra Sturlu Böðvarssonar í málinu. Árni segir Sturlu hafa viljað höfn í Bakkafjöru hvað sem liði öðrum hugmyndum og rökum fyrir þeim. „Ef nefndarmenn í úttektarnefndinni komu með tillögur um að skoða ýmsa þætti betur, þá var það slegið út að (svo)borðinu með orðum aðstoðarvegamálastjóra, lögfræðingnum í nefndinni. Hann stjórnaði sem sagt gangi mála og þess vegna varð vinna nefndarinnar varðandi jarðgangamöguleika eða nýs Herjólfs til Þorlákshafnar fúsk eitt." Þá segir Árni furðu sæta að Gunnar, sem er lögfræðingur, skuli hafa verið skipaður í nefndina, „enda stílbrot. Hann reyndist þægur," segir Árni. Undir þessu vill Gunnar Gunnarsson ekki sitja og ætlar því að kæra þingmanninn. Yfirlýsing hans fer hér á eftir: „Ég ætti í sjálfu sér að láta skrif Árna Johnsen um mig í Morgunblaðinu í dag, 26. apríl, mér í léttu rúmi liggja. Það er hins vegar ekki víst að allir aðrir geri það. Í grein þessari er vegið að mér sem opinberum starfsmanni og lögfræðingi. Því hef ég ákveðið að kæra Árna Johnsen til lögreglu fyrir brot á 234. og 235. gr. almennra hegningarlaga, sbr. 242. gr. sömu laga. Þar kemur fram, að hafi ærumeiðandi móðgun eða aðdróttun verið beint að manni sem er opinber starfsmaður og móðgunin eða aðdróttunin varðar að einhverju leyti starf hans, þá skal slíkt brot sæta opinberri ákæru eftir kröfu hans. Það er ekki óvenjulegt, að opinberir starfsmenn þurfi að sitja undir rógi og dylgjum, en það er fátítt, að slíkt komi frá alþingismönnum. Það er Sjálfstæðisflokknum og íslensku þjóðinni til skammar, að þessi maður skuli geta skrifað undir greinar í fjölmiðlum sem alþingismaður." Undir yfirlýsinguna ritar Gunnar Gunnarsson, aðstoðarvegamálastjóri.
Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Erlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Innlent Fleiri fréttir Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Sjá meira