Erlent

Fundu 250 kíló af kókaíni í gámi í Sydney

Hluti efnisins sem fannst í Ástralíu.
Hluti efnisins sem fannst í Ástralíu. MYND/AP

Fíkniefnalögreglan og tollverðir í Ástralíu hafa lagt hald á kókaín að andvirði rúmlega fimm milljarða króna.

Þrír hafa verið handteknir í tengslum við rannsókn málsins en um er að ræða fjórða stærsta fíkniefnamálið í sögu landsins. Kókaínið kom til Sydney í byrjun mánaðarins. Voru 250 kíló af kókaíni falin í gámi fylltum af húsgögnum. Gripu yfirvöld inn í sendinguna er hún var á leið í vöruhús í borginni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×