Telja bráðabirgðaflugstöð skynsamlegasta kostinn 12. mars 2008 14:43 Kristján Möller.
Það er óþolandi að flug fái ekki að þróast á Reykjavíkurflugvellli eins og það ætti að gera, sagði Kristján L. Möller samgönguráðherra á Alþingi dag. Hann upplýsti jafnframt að hann hefði fundað með framkvæmdastjóra Flugfélags Íslands og borgarstjóra um málefni flugvallarins og skynsamlegasta leiðin væri að byggja bráðabirgðaflugstöð á vellinum. Valgerður Sverrisdóttir, varaformaður Framsóknarflokksins, gerði flugvallarmálin að umtalsefni í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi í dag. Sagði hún vandræðaástand ríkjandi varðandi flugvöllinn og hann drabbaðist niður meðan ekkert væri gert í hans málum. Benti hún á að Iceland Express hefði verið synjað um lóð á vellinum sem þýddi að samkeppni gæti ekki hafist í innanlandsflugi. Spurði hún ráðherra hvaða lausn hann sæi fyrir sér í þessum málum. Kristján L. Möller sagði rétt að hálfgert vandræðaástand ríkti varðandi uppbyggingu á vellinum. Þannig hefði það verið í nokkur ár. Til stæði að byggja samgöngumiðstöð á flugvallarsvæðinu en ekki lægi fyrir hvenær sú uppbygging færi af stað. Sagðist hann hafa rætt við Dag B. Eggertsson, þáverandi borgarstjóra, um málið í haust og það hefði verið sett í skipulagslegan farveg. Nú væri beðið eftir skipulagsyfirvöldum í borginni. Kristján sagði húsakost í tengslum við flugrekstur á vellinum í pattstöðu en menn vissu engu að síður að flugvöllurinn yrði í Vatnsmýri í mörg ár til viðbótar. Það væri óþolandi að flugið fengi ekki að þróast eins og það ætti að gera.Valgerður sagði að sér sýndist sem sú niðurstaða yrði helst uppi til skemmri tíma að byggja bráðabirgðaflugstöð enda væru núverandi húsakynni ekki boðleg. Spurði hún ráðherra hvort hann væri ekki tilbúinn að leggja fé í bráðabirgðahúsnæði á vellinum.Ráðherra svaraði því til að ekki vantaði fjármuni til framkvæmdarinnar heldur leyfi frá Reykjavíkurborg til að hefjast handa við flugstöð. Hann hefði átt fund með forstjóra Flugfélags Íslands og borgarstjóra á mánudag þar sem staðan hefði verið ræddd. Menn hefðu rætt að skynsamlegasta leiðin væri að byggja hús sem gæti þjónað sem flugstöð en sem nota mætti í annað ef flugvöllurinn færi. Sagði hann unnið að krafti að málinu í sínu ráðuneyti.
Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Býr sig undir það versta en vonar það besta Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Fleiri fréttir „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Sjá meira