Innlent

Frjáls og opinn hugbúnaður fær sömu tækifæri hjá ríkinu

MYND/Pjetur

Ríkisstjórnin samþykkti í gær stefnu um að gaf frjálsum og opnum hugbúnaði sömu tækifæri og séreignarhugbúnaði þegar tekin væri ákvörðun um kaup á nýjum búnaði fyrir ríkið. Ávallt skuli leitað hagstæðustu innkaupa.

Það var verkefnisstjórn um rafræna stjórnssýslu sem vann að stefnunni fyrir forsætisráðuneytið og segir í tilkynningu frá ráðuneytinu að haft hafi verið samráð við hagsmunaaðila þegar stefnan var unnin.

Frjáls og opinn hugbúnaður er hugbúnaður þar höfundar hans hafa valið að gera hann opinberan og aðgengilegan fyrir alla. Séreignarhugbúnaður er aftur á móti háður takmörkunum varðandi notkun, dreifingu og breytingar auk þess sem hann byggist á forritunarkóða sem ekki er opinber.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×