Tveir Litháanna sýknaðir af árás á lögreglu 12. mars 2008 13:17
Tveir af Litháunum þremur sem ákærðir voru fyrir að ráðast á lögreglumenn við skyldustörf í miðborg Reykjavíkur í janúar hafa verið sýknaðir af ákæru í Héraðsdómi Reykjavíkur þar sem ekki þótti komin fram lögfull sönnun fyrir aðild þeirra að árásinni. Þriðji maðurinn var hins vegar dæmdur í 60 daga fangelsi fyrir að slegið tvo lögreglumenn í andlitið. Atvikið átti sér stað fyrir framan veitingastaðinn Monte Carlo á Laugaveginum en þar voru fjórir óeinkennisklæddir lögreglumenn við fíkniefnaeftirlit. Þar höfðu þeir afskipti af tveimur körlum og einnig konu þegar mennirnir þrír komu aðvífandi í tveimur bílum og túlkaði einn árásarmannanna það svo að verið væri að ráðast á konuna. Ráðist var á lögreglumennina og voru tveir þeirra fluttir á sjúkrahús vegna áverka, þar af annar með heilahristing. Fimm menn voru upphaflega handteknir í tengslum við málið en tveir þeirra voru ekki ákærðir. Í ákæru var einum gefið að sök að hafa slegið tvo lögregluþjóna í andlitið og var hann sakfelldur fyrir það út frá framburði lögreglumanna. Þremenningarnir voru svo í sameiningu ákærðir fyrir að ráðist á þriðja lögregluþjóninn og slegið hann ítrekað í höfuðið og sparkað í hausinn á honumþannig að hann hlaut meðal annars heilahristing. Neituðu þeir sakargiftum og voru þeir sýknaðir þar sem hvorki lögreglumaðurinn né önnur vitni á vettvangi gátu borið um það hverjir það voru sem réðust á lögreglumanninn. Ákærðu hefðu verið á vettvangi en þar hefðu einnig verið tveir félagar þeirra sem ekki voru ákærðir. Því taldi dómurinn ekki komna fram lögfulla sönnun fyrir sekt þeirra varðandi hina heiftarlegu árás.
Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Býr sig undir það versta en vonar það besta Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Fleiri fréttir „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Sjá meira