Fleiri fréttir

Illa staðið að stúkubyggingu

Borgarstjóri og fulltrúar Sjálfstæðisflokks í borgarráði Reykjavíkur bókuðu á fundi borgarráðs í dag að sá farvegur sem bygging stúkunnar á Laugardalsvelli var sett í hafi ekki verið fullnægjandi eða árangursríkur. Bygging stúkunnar fór mörg hundruð milljónir króna fram úr áætlun og hefur Knattspyrnusamband Íslands krafið borgina um 400 milljóna viðbótargreiðslu vegna þessa. Skýrsla innri endurskoðunar borgarinnar um málið var lögð fram í borgarráði í dag og samþykktu fulltrúar meirihlutans eftirfarandi:

Rætt um Afganistan og Kosovo á fundi NATO

Stækkun Atlantshafsbandalagsins til austurs, aðgerðir alþjóðasamfélagsins í Afganistan og staðan í Kosovo var meðal þess sem utanríkisráðherrar Atlantshafsbandalagsins ræddu á fundi í Brussel í dag.

Helsti vopnasali heims handtekinn í Taílandi

Rússneskur maður sem talið er að sé helsti ólöglegi vopnasali heims hefur verið handtekinn í Taílandi. Viktor Bout sem kallaður hefur verið „Kaupmaður dauðans“ var gómaður á lúxushóteli í Bangkok. Taílenska lögreglan var með handtökuheimild frá Bandaríkjunum þar sem hann er sakaður um að útvega vopn til kólumbískra uppreisnarmanna.

Breiðavík rædd í borgarráði

Breiðavíkurskýrslan svokallaða var tekin til ítarlegrar umfjöllunar á fundi borgarráðs í dag. Málið var rætt að beiðni Samfylkingarinnar en fjölmargir reykvískir drengir voru sendir á Breiðavík samkvæmt ákvörðun barnaverndar Reykjavíkur á sínum tíma þótt heimilið hafi verið rekið af ríkinu.

Lögregla leitar tölvuræningja

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar karls sem reyndi að stela fartölvum úr verslun í Borgartúni um kaffileytið í gær.

Íslendingar tilbúnir fyrir aðild að ESB

Helgi Magnússon, formaður Samtaka iðnaðarins, sagði í ræðu sinni á Iðnþingi í dag að ekki væri eftir neinu að bíða. Íslendingar séu tilbúnir sækja um aðild að Evrópusambandinu.

Kýldi tönn úr manni fyrir að káfa á kærustunni

Karlmaður var í dag dæmdur í 5 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að slá tönn úr öðrum manni á skemmtistaðnum Thorvaldzenbar í Reykjavík. Maðurinn hélt því fram að fórnarlambið hefði káfað á kynfærum kærustu sinnar. Fórnarlambið sagðist hafa ruglast á kærustum.

Heimgreiðslur afturhvarf til löngu liðins tíma

Ungir jafnaðarmenn í Reykjavík segja að ákvörðun meirihlutans í borgarstjórn um heimgreiðslur til foreldra, sem ekki koma börnum sínum á leikskóla, sé afturhvarf til löngu liðins tíma.

Segir Júlíus fara vísvitandi með rangt mál

Júlíus Vífill Ingvarsson fer vísvitandi með rangt mál í gagnrýni sinni á skýrslu stýrihóps í REI-málinu að sögn Sigrúnar Elsu Smáradóttur, borgarfulltrúa Samfylkinginnar. Hún vísar á bug ásökunum um vanhæfni.

Bankaræningi fékk bakþanka

Maðurinn sem handtekinn var í Firðinum í Hafnarfirði skömmu fyrir hádegi vegna tilraunar til bankaráns í útibúi Kaupþings í verslunarmiðstöðinni er einn af góðkunningjum lögreglunnar.

Skorað á ríkisstjórn að taka ESB á dagskrá

Í ályktun sem samþykkt var á Iðnþingi í dag skora Samtök iðnaðarins á ríkistjórnina að taka aðild Íslands að Evrópusambandinu á dagskrá. Samtökin vilja fela nýstofnaðri Evrópunefnd það hlutverk að móta samningsmarkmið, fara í saumana á samningaferlinu, færa rök fyrir þeim sjónarmiðum sem Íslendingar þurfa að halda á lofti vegna sérstöðu landsins og hefjast þegar handa við að finna lausnir sem hægt sé að una við.

Mótmæltu hvalveiðum Japana

Hvalaverndunarsinnar létu óánægju sína með hvalveiðar Japana í ljós í morgun þegar þeir klifruðu upp á japanska sendiráðsins í Lundúnum. Þar hengdu þeir borða með slagorðum gegn veiðunum. Hvalveiðar Japana verða eitt helsta umræðuefnið á sérstökum aukafundi Alþjóða hvalveiðiráðsins sem hófst í Lundúnum í morgun og stendur fram á laugardag.

Rúmur helmingur vill taka upp evru

Meirihluti landsmanna, eða tæp 56 prósent, telja að taka eigi upp evru sem gjaldmiðil hér á landi samkvæmt könnun sem Capacent Gallup gerði fyrir Samtök iðnaðarins í lok febrúar.

Fimleikastúlkan fór í vel heppnaða aðgerð

„Aðgerðin gekk mjög vel og beinið mun gróa,“ segir Auður Þorsteinsdóttir framkvæmdarstjóri Gerplu í Kópavogi. Tólf ára stúlka slasaðist alvarlega þegar hún hlaut opið beinbrot á fimleikaæfingu félagsins í gærkvöldi.

Sprengja sprakk á Times Square

Sprengja sprakk á Times Square í New York nú fyrir skömmu. Sprengjan var lítil samkvæmt heimildum lögreglu og varð nálægt nýliðaskráningaskrifstofu hersins. Sjónvarpsstöðvar á svæðinu segja að enginn hafi slasast og ekki hafi orðið skemmdir á byggingum í sprengjunni.

Morgnmaturinn heldur unglingum grönnum

Ný rannsókn sem framkvæmd var í Bandaríkjunum sýnir að unglingar sem borða morgunmat að staðaldri eru 2,3 kílóum léttari að meðaltali en jafnaldrar þeirra sem sleppa morgunmatnum.

Vonast til að opna landamærastöðvar á Kýpur

Demetris Christofias nýr forseti á Kýpur segist vonast til að hitta leiðtoga tyrkneska hluta Kýpur seinna í mánuðinum til að endurvekja friðarviðræður. Christofias hefur þegar sagt að hann hafi óskað eftir að Sameinuðu þjóðirnar skipuleggi fund með Mehmet Ali Talat. Leiðtogarnir tveir hafa sagst vera bjartsýnir á að þeir gætu náð árangri í átt að sameiningu eyjarinnar.

Skoða myndir úr eftirlitsmyndavél í tölvubúð

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur ekki haft hendur í hári manns sem ruddist inn í tölvuverslunina Tölutek í Borgartúni í gærdag og reyndi að hafa á brott með sér tvær tölvur.

Ný ríkisstjórn tekur við völdum í Kenía

Í dag tekur ný ríkisstjórn Kenía við völdum í Naíróbí. Nú er vika síðan tímamótasamkomulag náðist milli Mwai Kibaki forseta og Raila Odinga stjórnarandstöðuleiðtoga. Vonast er til að samkomulagið bindi enda á óöldina sem riðið hefur yfir landið í kjölfar umdeildra forsetakosninga í lok desember.

Grásleppuvertíðin fer illa af stað

Grásleppuvertíðin við Reykjanes fer óvenju illa af stað. Aðeins einn bátur lagði netin við upphaf vertíðar, sem var um mánaðamótin, en fékk lítið sem ekkert.

Töluvert af fíkniefnum fannst við húsleit

Um það bil 60 grömm af maríjúana, amfetamíni, hassi og LSD fundust við húsleit sem gerð var í Hafnarfirði og Garðabæ í fyrradag. Einnig fannst nokkuð af kannabisfræjum og búnaði til ræktunar.

Fundu 35 kannabisræktunarstöðvar í Noregi

Fíkniefnalögregla og tollayfirvöld í fleiri löndum rannsaka nú fund á 35 kannabisræktunarstöðvum í Noregi. Stöðvarnar fundust á svæði sem er um 200 kílómetra norður af Osló.

Fengu fót í netið

Danskir fiskimenn sem voru við veiðar við Stórabelti í gær fengu fót í netið sitt. Fóturinn er af karlmannni en á hann var klæddur skór af gerðinni Ecco í stærðinni 42.

Húsleitir í Hafnarfirði og Reykjanesbæ

Fíkniefni fundust í tveimur húsleitum í Hafnarfirði og Reykjanesbæ í gær en talið er að um sé að ræða marijúana, amfetamín, hass og LSD. Samanlagt magn þess nemur um 60 grömmum en einnig var lagt hald á nokkuð af kannabisfræjum og búnað til ræktunar. Karl á þrítugsaldri var handtekinn í þessum aðgerðum en að þeim stóðu lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og lögreglan á Suðurnesjum. Húsleitirnar voru framkvæmdar að undangengnum dómsúrskurði.

GT verktakar borga

GT verktakar hafa greitt alls 4,2 milljónir inn á launakröfur er deilt var um í október síðastliðnum. Þá hafði AFL Starfsgreinafélag afskipti af málum 13 starfsmanna fyrirtækisins.

Hætta við breytingar á kortaskilmálum

Kaupþing hefur ákveðið að hætta við umdeildar breytingar á kortaskilmálum bankans. Fjölmargar kvartanir bárust persónunefnd eftir að Stöð tvö hóf að fjalla um málið í síðustu viku.

Ferð ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneytisins til Írans umdeild

Ferð ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneytisins til Írans um síðustu helgi kemur nefndarmönnum í utanríkismálanefnd Alþingis á óvart. Heimildarmenn innan stjórnarráðsins hafa áhyggjur af neikvæðum áhrifum heimsóknarinnar á framboð Íslands til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna.

Sigurbjörn kominn fram

Maðurinn sem leitað var að fyrr í dag, Sigurbjörn Marinóson, er komin fram heill á húfi.

Rafmagn aftur komið á

Rafmagn er aftur komið á í Þverholti, Stakholti, Hátúni og Miðtúni en Háspennubilun varð rétt fyrir klukkan 19:00 sem orsakaði rafmangsleysi þar.

1.9% ökumanna óku yfir hámarkshraða

Brot 75 ökumanna voru mynduð í Hvalfjarðargöngum frá mánudegi til miðvikudags eða á liðlega 47 klukkustundum. Vöktuð voru 3.878 ökutæki og því ók lítill hluti ökumanna, eða 1,9%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 84 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Sex óku á 90 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 100.

Háspennubilun í Reykjavík

Háspennubilun varð klukkan 18:52 sem orsakar rafmagnsleysi í Þverholti, Stakholti, Hátúni og Miðtúni ásamt Laugavegi 162 og húsum þar í kring.

Sjá næstu 50 fréttir