Skorað á ríkisstjórn að taka ESB á dagskrá 6. mars 2008 12:40 Jón Steindór Valdimarsson.
Í ályktun sem samþykkt var á Iðnþingi í dag skora Samtök iðnaðarins á ríkistjórnina að taka aðild Íslands að Evrópusambandinu á dagskrá. Samtökin vilja fela nýstofnaðri Evrópunefnd það hlutverk að móta samningsmarkmið, fara í saumana á samningaferlinu, færa rök fyrir þeim sjónarmiðum sem Íslendingar þurfa að halda á lofti vegna sérstöðu landsins og hefjast þegar handa við að finna lausnir sem hægt sé að una við. „Samtök iðnaðarins skora á ríkisstjórnina að taka aðild Íslands að ESB á dagskrá og fela hinni nýju Evrópunefnd sinni það hlutverk að móta samningsmarkmið, fara í saumana á samningaferlinu, færa rök fyrir þeim sjónarmiðum sem við þurfum að halda á lofti vegna sérstöðu okkar og hefjast þegar handa við að finna lausnir sem við getum unað við. Því betur undirbúin sem við göngum til þessa verks þeim mun betur mun okkur farnast," segir í niðurlagi ályktunarinnar. „Öll iðnfyrirtæki þarfnast sama grundvallar til að vaxa, dafna og skila eigendum sínum og samfélaginu arði," segir einnig í ályktuninni. „Stöðugleiki verður að ríkja í efnahagslífinu, vöxtur að vera jafn og öruggur og starfsskilyrði, sem eru í valdi stjórnvalda, eins hagfelld og kostur er. Undanfarin ár hafa íslenskur iðnaður og atvinnulíf tekið stakkaskiptum. Vöxtur hefur verið mikill og alþjóðavæðing atvinnulífsins verið hröð." Þá er bent á að þó að vel hafi gengið sé langt í frá að tekist hafi að tryggja stöðugleika. „Ekki þarf að fjölyrða um sveiflur í gengi krónunnar, óbærilega háa vexti, verðbólgu og viðskiptahalla. Verkefnið er síður en svo auðvelt og engar skyndilausnir tiltækar. Þess vegna er nauðsynlegt að marka stefnu til langs tíma og fækka áhættuþáttum. Búa þarf efnahagsstjórninni trúverðuga umgjörð og skapa henni nauðsynlegt aðhald. Reynslan sýnir að núverandi kerfi dugar okkur ekki og er á ýmsan hátt til trafala." „Samtök iðnaðarins hafa um árabil beitt sér fyrir faglegri og málefnalegri umræðu um Evrópumálin. Í ályktun Iðnþings fyrir ári var lögð áhersla á að Íslendingar kæmust að niðurstöðu varðandi afstöðu til Evrópusambandsins á þessu kjörtímabili. Staða efnahagsmála hefur leitt til þess að innganga í Evrópusambandið og upptaka evru eru til meiri og alvarlegri umræðu í íslensku atvinnulífi en áður hefur verið. Flestir eru nú sammála um að einhliða upptaka evru komi ekki til greina og því sé ekki um aðra kosti að ræða en að ganga í Evrópusambandið eða halda óbreyttu fyrirkomulagi."
Mest lesið Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Kílómetragjaldið hækkar Innlent „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Innlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Innlent Fleiri fréttir Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í Miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Menntavísindasvið greinir PISA-niðurstöður PISA: „Þetta er ákveðinn sorgardagur“ Hafi sest upp í bílinn fyrir mistök Svona var bein útsending Vísis frá setningu Alþingis „Við skulum bara spyrja að leikslokum“ Þingmálaskrá vetrarins: Sanngirnisbætur, sveitarstjórnarlög og samfélagsmiðlabann Viðbrögð við sláandi PISA-könnun Ísland sé með rauða spjaldið í námsárangri barna „Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín“ Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu Bein útsending: Niðurstöður PISA-könnunar kynntar „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Grænlensk skipsflauta vakti borgarbúa af værum blundi Kynntu þingmálaskrá vetrarins Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sjá meira
Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu