Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Rottuplága herjar á fjölskyldur í Helsingör Fjórar fjölskyldur sem áttu heima í fjölbýlishúsi Í Helsingör í Danmörku hafa enn ekki getað flutt aftur heim til sín eftir að rottuplága kom upp í húsinu í lok síðasta sumars. 6.2.2008 07:49
Gúrúinn Maharishi Makesh er látinn Einn þekktasti gúrú heims Indverjinn Maharishi Makesh er látinn 91 ára að aldri. 6.2.2008 06:55
Clinton og McCain eru sigurvegarar forkosninganna í nótt Bandarískir fjölmiðlar segja nú að John McCain og Hillary Clinton hafi unnið forkosningarnar í Kaliforníu, fjölmennasta ríki Bandaríkjanna, þótt enn eigi eftir að telja þar töluverðan hluta atkvæða. 6.2.2008 06:13
Obama vann í Georgíu Barack Obama sigraði í forkosningum í Georgíu hjá Demókrötum samkvæmt útgönguspám að því er CNN greinir frá. Mjótt er á munum hjá Repúblikönum og of snemmt að segja til um úrslitin þar. 6.2.2008 00:03
Milljónir Bandaríkjamanna ganga til kosninga í 24 ríkjum Búist er við góðri kjörsókn víðast hvar verið í forkosningunum sem nú standa yfir í Bandaríkjunum. Íbúar 24 ríkja hópast nú á kjörstaði til þess að taka þátt í að velja forsetabrambjóðanda fyrir demókrata og repúblikana. Í kosningunum fá frambjóðendur úthlutað kjörmönnum sem á endanum munu síðan velja frambjóðenda. Um 42 prósent kjörmanna verða valdir í dag og er talið líklegt að niðurstöðurnar skeri úr um hver hljóti tilnefninguna hjá repúblikönum. Margt bendir til þess að úrslitin í nótt verði á þá leið að John McCain nái að sigra Mitt Romney og hljóta þar með tilnefningu síns flokks. 5.2.2008 22:41
Drengur slasaðist á skíðasvæði Ísafjarðarbæjar Drengur slasaðist á skíðasvæði Ísfirðinga í kvöld þegar hann lenti á snjótroðara. Drengurinn fékk skurð á höfuðið og heilahristing. Hann var fluttur með sjúkraflugi til Reykjavíkur og verður þar til eftirlits. 5.2.2008 21:28
Huckabee vann í Vestur Virginíu Fyrstu úrslit í forkosningunum í Bandaríkjunum sem fara fram í dag í 24 fylkjum eru kunn. Samkvæmt útgönguspám var það predikarinn fyrrverandi Mike Huckabee sem sigraði í Vestur Virginíu. 5.2.2008 19:47
Lögreglan í átaki: Klippir númer og lætur menn blása Að sögn lögreglu er töluvert um ótryggð og óskoðuð ökutæki á höfuðborgarsvæðinu en eigendur og umráðamenn þeirra eru hvattir til að gera þar bragarbót á. 5.2.2008 21:45
Níutíu óku of hratt á Eiðisgranda 90 ökumenn sem óku of hratt á Eiðisgranda eftir hádegi í dag eiga von á sektum því brot þeirra voru myndum með löggæslumyndavél. 5.2.2008 21:08
Umferðaróhapp á Bæjarhálsi Umferðaróhapp varð á Bæjarhálsi til móts við hús Orkuveitunnar um hálf níu í kvöld. Bíll valt á hliðinna en engin slys urðu á fólki. Að sögn lögreglu er enn óljóst með hvaða hætti óhappið bar að. 5.2.2008 21:01
Stjórnvöld þvælist ekki fyrir álveri í Helguvík Norðurál stefnir að því að hefja framkvæmdir við nýtt álver í Helguvík innan fimm mánaða. Samtök atvinnulífsins hafa í viðræðum um aðkomu ríkisvaldsins að lausn kjarasamninga lágt áherslu á að ekki verði lagður steinn í götu þessa verkefnis. 5.2.2008 19:07
Bræður áfrýja og dómari kærir Bræður á Akureyri hafa áfrýjað sektarómi héraðsdóms í netbankamáli Glitnis. Dómari við Héraðsdóm Norðurlands eystra vill fjórar milljónir í bætur vegna ummæla sem féllu í fréttum Stöðvar 2 eftir dómsuppsögu. 5.2.2008 18:38
Tvöfalt fleiri kynferðisbrotamál voru kærð í Eyjafirði í fyrra en árið áður Tvöfalt fleiri kynferðisbrotamál voru kærð til barnaverndaryfirvalda í Eyjafirði á síðasta ári en árið 2006. Sálfræðingur segir aukna árvekni eiga þátt í þessu. 5.2.2008 18:33
Samkeppniseftirlitið setur Forlaginu skilyrði Samkeppniseftirlitið setur skilyrði fyrir samruna JPV útgáfu og Vegamóta í Forlagið, stærsta bókaforlag landsins. Skilyrðin eru á þriðja tug. 5.2.2008 18:22
Kristín Linda nýr forstjóri Umhverfisstofnunar Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra hefur ákveðið að skipa Kristínu Lindu Árnadóttur sem forstjóra Umhverfisstofnunar til næstu fimm ára. Í tilkynningu frá ráðuneytinu kemur fram að Kristín hefur starfað sem lögfræðingur hjá Umhverfisstofnun frá 1. september 2007 og gegnir nú starfi sviðsstjóra lögfræði- og stjórnsýslusviðs stofnunarinnar. Hún hefur einnig verið staðgengill forstjóra. 5.2.2008 17:24
Síbrotamaður áfram í gæsluvarðhaldi vegna þjófnaðarbrota Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjaness vegna síbrotamanns sem grunaður er um stórfelld auðgunarbrot. 5.2.2008 17:06
Móðir fórnarlambs hvetur til varúðar gagnvart netinu Alvarleg kynferðisbrot Anthony Lee Bellere gegn þremur stúlkum á aldrinum 12- 16 ára sem framin voru á árunum 2005 til 2006 eiga það öll sameiginlegt að hafa byrjað á netinu 5.2.2008 16:50
Staðfesti farbann vegna árása á lögreglumenn Hæstiréttur hefur staðfest farbannsúrskurð yfir tveimur Litháanna sem eru grunaðir um að hafa ráðist á lögreglumenn við skyldustörf í miðbæ Reykjavíkur þann 111. janúar. Samkvæmt úrskurðinum verða þeir í farbanni til 15. febrúar. 5.2.2008 16:44
Leitað að stúlku frá Selfossi Lögreglan á Selfossi lýsir eftir Rakel Ómarsdóttur, fæddri 1986, til heimilis að Kálfhólum 3 á Selfossi. 5.2.2008 16:27
Ný ofurhraðlest kynnt í Frakklandi Franski tæknirisinn Alstom kynnti í dag nýja hraðlest sem getur ferðast á allt að 360 kílómetra hraða á klukkustund og á því að verða ein sú hraðskreiðasta í heimi. 5.2.2008 16:19
Landhelgisgæslan bjargaði svöngum hrossum ofan af fjallstindi „Þetta gekk svo vel að ég átti ekki til orð, þessir menn eru þvílíkir snillingar," segir Viðar Pálsson bóndi í Fljótshlíðinni um frækilegt björgunarafrek Landhelgisgæslunnar í vikunni. 5.2.2008 16:01
24 stundir skjótast upp fyrir Moggann í lestri Dagblaðið 24 stundir er komið upp fyrir systurblað sitt, Morgunblaðið, í meðallestri samkvæmt nýrri könnum Capacent Gallup. 5.2.2008 15:43
Leita að flutningaskipi á Rauðahafi Björgunarmenn frá Egyptalandi leita nú að flutningaskipi sem saknað hefur verið í nokkra daga. 5.2.2008 15:28
Samstarf fasteignasala breytir ekki miklu fyrir Remax Þórarinn Arnar Sævarsson, einn eigenda Remax á Íslandi, segist ekki sjá hverju það muni breyta fyrir sitt fyrirtæki þó nokkrar af stærstu fasteignasölum Íslands hefji nánari samstarf. 5.2.2008 15:15
Eigendur Ingvars Helgasonar máttu kaupa B&L Samkeppniseftirlitið hefur lagt blessun sína yfir kaup Eignarhaldsfélags Sævarhöfða á Bifreiðum og landbúnaðarvélum í haust. 5.2.2008 15:11
Óeirðir í Mósambík vegna hækkandi strætisvagnagjalda Til óeirða kom í morgun í ýmsum borgum Mósambík, meðal annars í höfuðborginni Maputo, þegar þúsundir mótmæltu verðhækkun á fargjöldum strætisvagna á götum úti. 5.2.2008 14:51
Fá bætur frá Ryanair vegna auglýsingar Írska lággjaldaflugfélagið Ryanair var í dag dæmt til að greiða Nicolas Sarkozy og eiginkonu hans, Cörlu Bruni, fyrir að birta mynd af parinu í auglýsingu án leyfis. 5.2.2008 14:35
New Orleans búar fagna Mardi Gras Íbúar í New Orleans fagna í dag hinni árlegu Mardi Gras hátíð sem fer fram á götum borgarinnar. 5.2.2008 14:22
Frumvarp um orkumál á leið úr þingflokki á næstu dögum Þingmenn stjórnarandstöðunnar kröfðust þess í dag að frumvarp Össurar Skarphéðinssonar um orkumál yrði lagt fram á þingi hið fyrsta. Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins segir von á frumvarpinu á næstu dögum. 5.2.2008 13:46
Leggja ofurkapp á að koma rafveitum í gang í Kína Stjórnvöld í Kína leggja nú ofurkapp á að koma rafveitu í gang á ný. 5.2.2008 13:00
Tarantúlan fóðruð á músum Lögreglumönnum í Reykjanesbæ brá nokkuð þegar þeir gerðu leit í húsi þar í bæ. Þeim mætti gríðarstór tarantúla sem húsráðandi hélt sem gæludýr. 5.2.2008 12:45
Dæmdur fyrir að senda dónamyndir Karlmaður var dæmdur í 40 daga skilorðsbundið fangelsi í héraðsdómi Norðurlands eystra í morgun. Viðurkenndi maðurinn að hafa sent bæði kyrrmyndir og hreyfimyndir af sjálfum sér nöktum og við kynferðislega athafnir. 5.2.2008 12:39
Saltkjöt víða á borðum landsmanna Það er víða saltkjöt og baunir á borðum í dag. Það er til dæmis í Hlíðaskóla nú í hádeginu þar sem sum barnanna voru að smakka þennan herramannsmat í fyrsta skipti. 5.2.2008 12:30
Vel fært á Fagradal eftir vandræði í gær Veður hefur lægt á Fagradal milli Egilsstaða og Reyðarfjarðar og þar er vel fært. 5.2.2008 12:17
Kosið í nærri helmingi ríkja Bandaríkjamenn í nærri helmingi fylkja Bandaríkjanna ganga að kjörborðinu í dag til að velja frambjóðendur stóru flokkanna tveggja. 5.2.2008 12:05
Segir umhverfisráðherra í mótsögn við sjálfa sig Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra vill að Ísland fái undanþágu frá mengunarkvótum vegna flugstarfsemi en berst á sama tíma gegn því að Ísland fái slíka undanþágu vegna stóriðju. 5.2.2008 12:02
Níddist á þremur stúlkum 41 árs gamall Reykvíkingur, Anthony Lee Bellere, var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir alvarleg kynferðisbrot gegn þremur stúlkum á aldrinum 12 til 16 ára. Brotin áttu sér stað á heimili Anthony á árunum 2005 til 2006. 5.2.2008 11:53
Jólasöfnun skilar 31 milljón fyrir þurfandi í Afríku Jólasöfnun Hjálparstarfs kirkjunnar 2007 hefur þegar skilað rúmri 31 milljón króna, þar af komu tæpar tíu milljónir í gegnum gjafabréf þar sem meðal annars var hægt að gefa fólki í fátækum ríkjum Afríku búfénað. 5.2.2008 11:44
Undirbúa raðtilnefningu víkingaminja á skrá UNESCO Hafinn er undirbúningur að raðtilnefningu menningarminja frá tímum víkinga á heimsminjakrá UNESCO. 5.2.2008 11:34
Vilja svör um íbúðir fyrir aldraða og stúdenta Nýr minnihluti í borginni hyggst á borgarstjórnarfundi í dag kalla eftir svörum hjá meirihlutanum vegna tillagna um íbúðir fyrir aldraða og stúdenta sem fyrri meirihluti hafði gengið frá. 5.2.2008 11:17
Glitnisræningi var einnig á ferðinni í Select-ráni á fimmtudag Einn mannanna sem handtekinn var í gær í tengslum við rán í útibúi Glitnis í Lækjargötu hefur viðurkennt að hafa verið þar að verki. 5.2.2008 10:59
Tveggja ára barni hent af þriðju hæð brennandi húss Tveggja ára barn lifði það af þegar foreldrar þess hentu því niður af þriðju hæð fjölbýlishúss í Ludwigshafen í Þýskalandi þar sem eldur kom upp í gær. 5.2.2008 10:42
Sakaður um að flytja fé af reikningum fjárvana flugfélags Rúnar Árnason forstjóri flugfélagsins City Star Airlines í Arberdeen er sagður hafa skipað starfsfólki sínu að flytja fé af reikningum félagsins til Íslands skömmu áður en það lagði upp laupana. 5.2.2008 10:27
Ók 40 sinnum í gegnum Hvalfjarðargöngin án þess að borga Lögreglustjórinn á Akranesi hefur ákært mann fyrir að aka alls 40 sinnum í gegnum Hvalfjarðargöng án þess að greiða gangagjald. 5.2.2008 10:14
Rússar segja kosningaeftirlit ÖSE mega koma 20. febrúar Rússar buðust í dag til þess að draga úr takmörkunum sem settar höfðu verið á starf kosningaeftirlitsmanna á vegum Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu vegna forsetakosninga sem verða 2. mars. 5.2.2008 09:49