Erlent

New Orleans búar fagna Mardi Gras

Íbúar í New Orleans fagna í dag hinni árlegu Mardi Gras hátíð sem fer fram á götum borgarinnar.

Mikil spenna vegna forsetaforkosninga í Bandaríkjunum virðist ekki hafa mikil áhrif á hátíðargesti sem tóku forskot á sæluna um síðustu helgi með litríkum skrúðgöngum og lostafullum danssporum.

Óttast var að aðsókn á Mardi Gras myndi minnka mjög í kjölfar fellibylsins Katarinu sem reið yfir New Orleans í ágúst 2005. Slíkar áhyggjur virðast þó hafa verið ástæðulausar og búist er við góðri þátttöku í ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×