Samkeppniseftirlitið setur Forlaginu skilyrði 5. febrúar 2008 18:22 Jóhann Páll Valdimarsson, útgáfustjóri JPV, sem er hluti af Forlaginu.
Samkeppniseftirlitið setur skilyrði fyrir samruna JPV útgáfu og Vegamóta í Forlagið, stærsta bókaforlag landsins. Skilyrðin eru á þriðja tug. „Síðastliðið haust var Samkeppniseftirlitinu tilkynnt um samruna JPV útgáfu ehf. og Vegamóta ehf.," segir í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu. „JPV er bókaútgáfa og Vegamót voru í eigu Máls og menningar bókmenntafélags, sjálfseignarstofnunar sem hefur haft bókaútgáfu með höndum frá árinu 1937. Mál og menning var á síðustu árum minnihlutaeigandi í Eddu útgáfu." Í tilkynningunni segir að í aðdraganda samrunans höfðu Vegamót keypt bókaútgáfuhluta Eddu útgáfu. „Fólst því í samrunanum að bókaútgáfa Eddu útgáfu sameinaðist JPV útgáfu. Að mati Samkeppniseftirlitsins var hér um að ræða samruna í skilningi samkeppnislaga og taldi stofnunin að samruninn gæti verið skaðlegur samkeppni ef ekki yrði gripið til íhlutunar vegna hans. " Til að eyða þeim samkeppnislegu vandamálum sem Samkeppniseftirlitið taldi að samruninn hefði í för með sér lögðu samrunaaðilar fram tillögur að skilyrðum sem honum yrðu sett. „Viðræður Samkeppniseftirlitsins og samrunaaðila hafa leitt til þess að Forlagið hefur gengist undir sátt um tuttugu og eitt tölusett skilyrði. Þannig mun Forlagið selja frá sér tiltekin útgáfuréttindi, þ.e. réttindi til að gefa út tilteknar bækur og ritsöfn, ásamt birgðum af þessum bókum og ritsöfnum, í því skyni að draga úr markaðsstyrk Forlagsins gagnvart keppinautum í bókaútgáfu." Þá segir að Forlagið hafi jafnframt undirgengist ýmis önnur skilyrði sem ætlað er að efla samkeppni og vinna gegn skaðlegum áhrifum samrunans. „Meðal annars er Forlaginu gert að semja aðeins um útgáfurétt á einum bókartitli hverju sinni við rithöfunda. Þá er Forlaginu óheimilt að veita endurseljendum afslátt frá heildsöluverði bóka sinna nema Forlagið geti með óyggjandi hætti sýnt fram á kostnaðarlegt hagræði af viðskiptum við viðkomandi endurseljanda sem sé í samræmi við afsláttinn. Forlaginu er ekki heimilt að mismuna endurseljendum bóka í hvers kyns kynningarstarfi, auglýsingaherferðum, eða með efni sem snýr að uppstillingu og auglýsingu bóka í verslunum endurseljenda nema slík mismunun byggist á almennum viðskiptalegum sjónarmiðum. Þá má nefna að Forlagið mun hér eftir aðeins ákveða forlagsverð (heildsöluverð) þeirra bóka sem fyrirtækið gefur út og selur til endurseljenda bóka. Forlaginu verður óheimilt að hafa nokkur afskipti af söluverði endurseljenda eða birta með nokkru móti söluverð endurseljenda á bókum sem Forlagið gefur út." „Þau skilyrði sem samrunanum hafa verið sett eru að mati Samkeppniseftirlitsins nægjanleg til þess að eyða þeim samkeppnislegu vandamálum sem ella hefðu skapast með samrunanum," segir að lokum í tilkynningunni.
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Fleiri fréttir Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Sjá meira