Fleiri fréttir

Tjónið á Norðurbrú eftir mótmælin nemur tugum milljóna

Talið er að tjónið og eyðileggingin vegna mótmælanna á Norðurbrú í Kaupmannahöfn um helgina nemi tugum milljónum króna og eru íbúar og verslunareigendur á Norðurbrú orðnir langþreyttir á ástandinu. Sextíu og fjögur ungmenni voru handtekin aðfaranótt sunnudags og þrjú þeirra sitja í fangelsi.

Vilja selja nýja Grímseyjarferju og láta smíða nýja

Jón Bjarnason og Árni Þór Sigurðsson, fulltrúar Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í fjárlaganefnd og samgöngunefnd Alþingis, hafa farið fram á að samgönguráðherra skipi nú þegar óháða nefnd með aðild heimamanna í Grímsey til að fara yfir þá kosti sem eru nú í stöðunni varðandi nýja Grímseyjarferju.

Ahmadinejad „sannar" að ekki verði ráðist inn í Íran

Mahmoud Ahmadinejad forseti Írans segist þess fullviss að Bandaríkin muni ekki ráðast inn í landið þrátt fyrir sögusagnir um að slík aðgerð sé yfirvofandi. Hann vísar í hæfileika sína sem verkfræðings og staðfasta trú á orð guðs máli sínu til stuðnings.

Ákærður fyrir sértaklega hættulega árás með ölkönnu

Ríkissaksóknari ákærði í morgun mann fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás með því að hafa aðfararnótt 17. desember í fyrra veist að öðrum manni á veitingahúsinu Hverfisbarnum í Reykjavík og slegið hann hnefahöggum í andlit og með ölkönnu í höfuðið.

Fáránlega frábærir

Elsa María Jakobsdóttir sjónvarpskona mætir alltaf með rafmagnskjuða í partí. „Ég sá kjuðana fyrst á www.iwantoneofthose.com þar sem eru margir frábærir og fáránlegir hlutir sem eru mispraktískir. Einar Baldvin vinur minn pantaði þá og gaf mér í jólagjöf,“ segir Elsa María, umsjónarmaður í nýjum menningarþætti Sjónvarpsins sem heitir 07-08, bíó og leikhús.

Það er þetta með hann séra Jón

Mikil heræfing var haldin á Íslandi í síðasta mánuði. Meðal annars voru sendar hingað þrjár orrustuþotur....gott ef þær voru ekki fjórar. Í dag hófst heræfing NATO í Noregi. Norska blaðið Aftenposten upplýsir að yfir eitthundrað herflugvélar verði á lofti yfir Noregi dag og nótt til fimmtánda september.

Orkuveitan verði gerð að hlutafélagi

Meirihluti stjórnar Orkuveitur Reykjavíkur hefur samþykkt að beina því til eigenda fyrirtækisins að rekstrarformi þess verði breytt í hlutafélag. Tillagan var samþykkt af meirihluta en fulltrúar minnihluta gagnrýna gjörninginn og segja undirbúningin að breytingunni allt of lítinn. Svandís Svavarsdóttir lagði fram frestunartillögu en henni var hafnað. Dagur B. Eggertsson segir tillöguna hálfkaraða.

Hlutum venjulegra tryggingataka komið til skila

Kröfulýsingarfrestur vegna krafna á hendur Samvinnutryggingum gt. rennur út í dag en til stendur að leggja félagið niður og stofna hlutafélagið Gift og sjálfseignarsjóð. Formaður skilanefndar Samvinnutrygginga segir að venjulegir tryggingatakar þurfi ekki að hafa áhyggjur af hlut sínum í félaginu, honum verði komið til skila.

Nýr ráðuneytisstjóri í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið

Davíð Á. Gunnarsson, ráðuneytisstjóri í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu hefur verið ráðinn til starfa í utanríkisráðuneytinu. Við starfi ráðuneytisstjóra tekur Berglind Ásgeirsdóttir sem áður gegndi stöðu sviðsstjóra viðskiptasviðs í utanríkisráðuneytinu.

Frístundakort gefin út á Skagaströnd

Hreppsnefnd Höfðahrepps, nú sveitarfélagsins Skagastrandar, ákvað á fundi sínum 27. ágúst að gefa út frístundakort fyrir alla einstaklinga í sveitarfélaginu á grunnskólaaldri.

Á skilið að deyja fyrir að eyðileggja orðstír Tælands

Tælenskur maður hefur verið dæmdur til dauða fyrir að myrða tvær rússneskar konur sem sátu á Pattaya ströndinni og fylgdust með sólarupprásinni. Morðin voru framin í febrúar síðastliðnum. Ekki hefur verið gefin ástæða fyrir ódæðinu, ef hún var þá einhver. Ofursti í Tælensku lögreglunni sagði að morðinginn ætti dauðadóminn skilið fyrir að hafa eyðilagt orðstír landsins.

Bjartur leitar að nýjum Dan Brown

Bókaútgáfan Bjartur stendur fyrir óvenjulegri bókmenntasamkeppni þessa dagana. Tilefnið er ritteppa Dans Browns, höfundar Da Vinci lykilsins, söluhæstu bókar allra tíma. Bókin kom út árið 2003 og síðan þá - undanfarin fjögur ár - hefur Brown reynt að klára næstu skáldsögu sína, sem hefur vinnuheitið Salomons lykilinn.

Sjálfsvíg í Páfagarði

Tuttugu og fimm ára gamall lögreglumaður í Páfagarði lést í dag af skotsárum og er talið að hann hafi framið sjálfsvíg. Lögreglusveit Páfagarðs er talin til úrvalssveita og meðlimir hennar vandlega valdir og þjálfaðir. Ekki síst er fylgst með andlegri heilsu þeirra eftir mikið ofbeldisverk sem var framið í Páfagarði árið 1998.

Rætt við skipaverkfræðing vegna Grímseyjarferju

Málefni Grímseyjarferju verða til umfjöllunar á fundi fjárlaganefndar Alþingis sem hefst nú klukkan tíu. Á fundinn hafa verið boðaðir fulltrúar Ríkiskaupa og samgönguráðuneytisins auk Einars Hermannssonar skipaverkfræðings.

Yfirtökur hafnar í Zimbabwe

Ríkisstjórn Zimbabwes hefur yfirtekið 49 prósenta hlut bandaríska matvælarisans Heinz í stærsta matarolíuframleiðanda landsins. Fyrir þennan hlut voru greiddar 6,8 milljónir dollara. Þetta er fyrsta stóra yfirtakan í Zimbabwe eftir að Robert Mugabe lýsti því yfir að heimamenn myndu fá meiri stjórn á erlendum fyrirtækjum sem starfa í landinu.

LHG í sjúkraflugi til Flateyjar

Þyrla Landhelgisgæslunnar var send til Flateyjar í dag en þar hafði maður handleggsbrotnað. Engar aðstæður eru í eyjunni til að gera að broti sem þessu og því ákveðið að senda þyrluna eftir manninum. Var komið með manninn á slysadeildina í Reykjavík skömmu eftir klukkan tvö í dag.

Setja þarf reglur um ferðalög á hálendinu

Ómar Ragnarsson telur að æskilegt sé að setja reglur um ferðalög manna um hálendið til að tryggja öryggi þeirra. Setja þurfi upp kerfi sem geri einfalt að sjá hvar ferðamenn séu staddir í óbyggðum.

Óhefðbundin hetja

Ungur glæpamaður sem notar snilligáfu sína til að ræna og drepa er fremur óhefðbundin hetja í unglingabókum. Írski rithöfundurinn Eoins Colfers skrifar bækurnar um Artemis Fowl í þeim tilgangi að fá drengi til að lesa.

Snorri sigraði Hannes Hlífar á Íslandsmótinu

FIDE-meistarinn Snorri G. Bergsson sigraði stórmeistarann Hannes Hlífar Stefánsson í 6. umferð Íslandsmótsins í skák, sem tefld var í dag. Snorri, sem hafði svart, kom með nýjung í 16. leik og vann sigur í 29. leikjum á glæsilegan hátt.

60 prósent gætu losnað undan framtalsskyldu

Árið 2009 gefst almenningi kostur á því að sleppa við að fylla út hefðbundið skattframtal, en senda í staðinn nauðsynlegar upplýsingar til ríkisskattstjóra í gegnum heimabanka. Ríkisskattstjóri segir að þannig geti embættið talið fram fyrir allt að sextíu prósent landsmanna.

Þjóðarmorð eru að eiga sér stað í Darfur

Þjóðarmorð eru að eiga sér stað í héraðinu Darfur í Súdan og umheimurinn bregst allt of hægt við. Þetta segir ljósmyndari sem farið hefur reglulega um svæðið síðustu tvo áratugi. Hann segir íbúa flýja undan hersveitum sem brenni ofan af þeim húsin og drepi þá sem ekki nái að flýja.

Ætla að leggja niður kjarnorkuver sín

Norður-Kóreustjórn ætlar að leggja niður kjarnorkuver sín fyrir árslok. Á sama tíma berast fréttir af því að Bandaríkjamenn séu að undirbúa árás á Íran.

Police aldrei betri að mati Magna og félaga

Hljómsveitin Police er betri enn nokkru sinni fyrr. Þetta er samhljóma álit íslenskra tónlistarmanna sem sáu endurkomu sveitarinnar á tónleikum í Danmörku í gærkvöldi.

Aftur boðað til mótmæla á Norðurbrú í kvöld

Ungmenni í Kaupmannahöfn ætla að halda mótmælaaðgerðum áfram í kvöld til að knýja á um nýtt Ungdómshús. Í gærkvöldi voru rúmlega 60 manns handteknir í óeirðum á Norðurbrú. Umfang átakanna kom dönsku lögreglunni í opna skjöldu.

Fjögur vélhjól í óhappi á Reykjanesbraut

Skömmu eftir klukkan fimm í dag skullu fjögur vélhjól saman í umferðaróhappi á Reykjanesbraut með þeim afleiðingum að tvennt slasaðist. Að sögn lögreglunnar virðist ekki um árekstur að ræða heldur að ökumönnum hjólanna hafi fipast þegar bifreið sem kom úr gagnstæðri átt reyndi framúrakstur á ólöglegan hátt.

Öryggishliðið á Saga-class verður áfram ef flugfélögin greiða fyrir það

Höskuldur Ásgeirsson framkvæmdastjóri FLE á Keflavíkurflugvelli segir að öryggishliðið á Saga-class muni verða áfram ef flugfélögin séu tilbúin að greiða fyrir það. Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segir á heimasíðu sinni að tilraunin með hliðið muni hafa leitt í ljós, að það sé ónauðsynlegt.

Bush forseti ætlar að eyða ellinni í Dallas

George Bush bandaríkjaforseti hefur hingað til ekki viljað ræða mikið um hvað hann ætli að taka sér fyrir hendur þegar hann lætur af embætti á næsta ári. Nú hefur hann sagt rithöfundinum Robert Draper að hann hyggist eyða ellinni í Dallas í Texas. Og ef honum leiðist mun hann hoppa upp í bílinn og keyra á nálægan búgarð sinn.

Dönsk, norsk og sænsk lögreglukona á Ljósanótt

Meðal þeirra sem sinntu lögreglustörfum á Ljósnótt í Reykjanesbæ voru þrjár ungar lögreglukonur frá Norðurlöndunum, ein dönsk, ein norsk og ein sænsk. Þær munu vera nemendur í lögregluskólum viðkomandi landa. Koma þeirra hingað er liður í norrænu samstarfi lögregluembætta á Norðurlöndunum.

Hákarl veldur skelfingu í Queens

Tveggja metra langur hákarl olli töluverðri skelfingu á vinsælli baðströnd við hverfið Queens í New York um helgina. Strandverðir ráku alla baðgesti upp á land um leið og bakuggi hákarlsins sást skera vatnið rétt fyrir utan fjöruborðið í gærdag.

Bréf Landsvirkjunnar er ekki ítrekun heldur beiðni um nýja rannsókn

Ingólfur Jóhannsson formaður SUNN, Samtaka um náttúruvernd á Norðurlandi, segir að bréf það sem Landsvirkjun sendi iðnaðarráðuneytinu í vor um Gjástykki sé ekki ítrekun heldur beiðni um nýja rannsókn. Þetta sé augljóst ef rýnt er í gögn málsins, sem samtökin fengu frá iðnaðarráðuneytinu fyrr í sunmar.

Báðu þjóð sína afsökunar

Nítján suður-kóreskir gíslar, sem voru í haldi Talibana í Afganistan í sex vikur, báðu þjóð sína afsökunar í dag á öllum vandræðunum sem þeir orsökuðu.

Úrbætur á háum FIT-kostnaði neytenda í bígerð

Gísli Tryggvason talsmaður neytenda segir að hann hafi nú lokið viðræðum við Guðjón Rúnarsson framkvæmdastjóra Samtaka banka og verðbréfafyrirtækja og fulltrúa fimm banka um FIT-kostnað neytenda. Gísli segir að nánar verði greint frá efni viðræðnanna á heimsíðu hans í vikunni en að úrbætur á háum FIT-kostnaði neytenda séu í bígerð.

Danir vilja sjálfstæði Grænlands

Þrír af hverjum fjórum Dönum vilja að Grænlendingar fái fullt sjálfstæði. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem birt var á vef danska blaðsins Politiken. Sextíu og þrjú prósent segjast vilja að Grænlendingar ráði sjálfir yfir málmi olíu og örðum auðlindum sem finnast á grænlenskum hafsbotni.

Átök á Norðurbrú vegna Ungdómshússins

Sextíu og þrír voru handteknir í óeirðum á Norðurbrú í Kaupmannahöfn í nótt. Þúsund ungmenni söfnuðust saman til að minnast þess að hálft ár var í gær liðið frá því að Ungdómshúsið var rifið.

Ölvaðir ökumenn í Borgarfirði

Ökumaður var tekinn undir áhrifum áfengis, seinnipartinn í gær, sunnan við Borgarnes. Maðurinn sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglu og var honum veitt eftirför skamma stund. Skapaði það verulega hættu að sögn lögreglu.

Metþátttaka er í kvartmílukeppninni í dag

Metþátttaka er í kvartmílukeppni Kvartmíluklúbbsins sem hefst kl. eitt í dag á keppnisbrautinni í Kapelluhrauni við hliðina á Straumsvík. Jón Gunnar Kristinsson, varaformaður klúbbsins segir að 60 bílar séu skráðir til leiks en undanfarin ár hafa þetta verið á milli 20 og 30 bílar.

FÍB telur engar forsendur fyrir hækkunum olíufélaganna

Runólfur Ólafsson framkvæmdastjóri FÍB segir að samtökin telji engar forsendur og rök til staðar fyrir nýjustu hækkunum olíufélaganna á bensíni og olíu. Runólfur segir að miðað við þróun á verði olíu á heimsmarkaði og gengi krónunnar sé ekki hægt að álykta annað en að olíufélögin séu að hækka álagingu sína.

Ljósanótt gekk ljómandi vel

Ljósanótt í Reykjanesbæ hefur gengið afar vel að sögn lögreglunnar einungis minniháttar mál komu upp, aðallega vegna ölvunar, en fangageymslur voru fullar af þeim sökum.

Öryggismat sagt gert eftir forskrift forseta

Athafnamaðurinn Þorsteinn Jónsson telur ríkislögreglustjóra kunna að hafa „búið til sjónarmið“ um öryggi gesta forseta Íslands á Laufásvegi eftir forskrift forsetaembættisins til að stöðva framkvæmdir sem falli embættinu ekki í geð.

Ofbeldi á heimilum mjög sjaldan kært

Um 200 kærur vegna heimilisofbeldis og annars ófriðar hafa komið fram á höfuðborgarsvæðinu á þessu ári. 800 sinnum á árinu hafa slík brot verið tilkynnt. Sextán prósent kvenna sem komu í Kvennaathvarfið í fyrra kærðu ofbeldið.

Sjá næstu 50 fréttir