Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Íslenskt fyrirtæki stjórnar orkusparnaði í Evrópu Íslendingar eru þekktari fyrir að sóa en spara. Þrátt fyrir það stjórnar íslenskt fyrirtæki orkusparnaði víða í Evrópu frá húsakynnum sínum í Mosfellsbæ. Fyrirtækið DomesticSoft í Mosfellsbæ sérhæfir sig í orkusparnaði og sér meðal annars um götulýsingu og orkunotkun á nokkrum stöðum í Evrópu. 1.9.2007 18:57
Geir telur fráleitt að Sturla segi af sér Forsætisráðherra telur fráleitt að Sturla Böðvarsson segi af sér sem forseti Alþingis vegna Grímseyjarferjumálsins. Hann segir eftirliti með framkvæmdinni hafa verið ábótavant en sérhæfð stofnun ætti að sjá um skiparekstur ríkisins. 1.9.2007 18:52
Næringarskortur vaxandi vandamál í Darfur Næringarskortur er vaxandi vandamál í héraðinu Darfur í Súdan á sama tíma og erfitt hefur reynst fyrir hjálparstarfsmenn að aðstoða þá sem hvað verst hafa orðið úti. 1.9.2007 18:52
Landsvirkjun segir öll leyfi vegna Gjástykkis löngu komin Landsvirkjun hefur sent frá sér tilkynningu þar sem segir að fyrirtækið harmi að Landvernd og Samtök um náttúruvernd á Norðurlandi skuli hafa beðið um opinbera rannsókn á rannnsóknarleyfisveitingu á Gjástykkissvæðinu. Öll leyfi, og umsagnir, vegna þessa hafi fyrir löngu verið komin fram. 1.9.2007 17:50
Fellibylurinn Felix í uppsiglingu á Karabíska hafinu Gefin hefur verið út aðvörun vegna hitabeltisstormsins Felix sem er í uppsiglingu á Karabíska hafinu. Er þetta sjötti stormurinn sem hlotið hefur nafn á fellibyljatímabilinu í ár. Að sögn Fellibylsmiðstöðvarinnar í Bandaríkjunum er Felix nú staddur um 130 km vestnorðvestur af Granada og færist í vesturátt á um 30 km hraða á klukkustund. 1.9.2007 16:46
Brunnurinn við Brunnstíg vígður í morgun Árni Sigfússon bæjarstjóri vígði í morgun endurgerð brunnsins við Brunnstíg við upphaf sögugöngu um Reykjanesbæ. Á brunnin er nú komin á ný dæla sem Árni notaði til þess að dæla vatni ofan í þyrsta göngufara en Árni gat þess í ræðu sinni við þetta tækifæri að skortur á neysluvatni hafi lengi verið mikill vandi á Suðurnesjum. 1.9.2007 14:45
SGS kynnir róttækar breytingar á veikinda- og slysakerfi Á fundi Starfsgreinasambandsins þann 11. september munu verða kynnt róttæk uppstokkun á núvernadi kerfi starfsendurhæfingar, þar sem hlutverk og aðkoma aðila vinnumarkaðarins mun skipta sköpum, m.a. í samskiptum við stjórn- og heilbrigðisyfirvöld. Verður nýju kerfi Veikinda- slysa- og örorkuréttinda komið á laggirnar. 1.9.2007 14:23
Gjaldtökur bankanna eru komnar framúr öllu hófi Jóhannes Gunnarsson formaður Neytendasamtakanna fagnar þeirri ákvörðun viðskiptaráðherra að mynda nefnd um gjaldtökur bankanna af viðskiptavinum sínum. "Þessar gjaldtökur eru komnar framúr öllu hófi að okkar mati og því tímabært að reyna að koma böndum á þær," segir Jóhannes. 1.9.2007 14:00
Borgarstjóra gefinn skjöldur af Íslending Borgarstjóri Vilhjálmur Vilhjálmsson sótti Reykjanesbæ heim í gær til þess að afhjúpa verk eftir Ásmund Sveinsson sem er gjöf frá Reykjavíkurborg og er nú við Reykjavíkurtorg. Í leiðinni heimsótti hann skipið Íslending og fékk þar sköld af skipinu að gjöf. 1.9.2007 13:45
Geir telur fráleitt að Sturla segi af sér vegna Grímseyjarferjumálsins Geir H. Haarde forsætisráðherra sagði í hádegisviðtalinu á Stöð 2 að hann teldi fráleitt að Sturla Böðvarsson fyrrum samgönguráðherra segði af sér sem forseti alþingis vegna Grímseyjarferjumálsins. Geir sagði að Sturla hefði treyst Vegagerðinni og ekki gefið nein fyrirmæli sem leiddu til þeirrar stöðu sem er á málinu nú. 1.9.2007 13:23
Um 10 þúsund aðkomumenn á Ljósanótt Ljósanótt í Reykjanesbæ hefur farið friðsamlega fram að sögn lögreglu, fyrir utan nokkur ölvunartilfelli og minniháttar líkamsárás. Hótel í bænum eru yfirfull og svæði fyrir hjólhýsi og húsbíla hefur verið sjöfaldað. Búist er við að mannfjöldinn verði yfir 40 þúsund í kvöld en tæplega 10 þúsund manns hafa komið í bæinn vegna hátíðarinnar. 1.9.2007 12:07
Talibanar segjast hafa fengið yfir milljarð kr. fyrir gíslana Háttsettur meðlimur Talibana segir í samtali við Reuters í dag að þeir hafi fengið 20 milljónir dollara, eða um 1,2 milljarða kr. fyrir suðurkóreansku gíslana sem þeir létu lausa í vikunni. Jafnframt fylgir með í fréttinni að þetta fé ætli Talibanar að nota til vopnakaupa. Talsmaður forsetaembættis Suður-Kóreu segir þetta vera rangt og að ekkert fé hafi verið borgað fyrir gíslana. 1.9.2007 12:04
Hvað kostar heilbrigðisþjónusta eftir einkavæðingu? Vinstri grænir vilja að rannsakað verði hvaða afleiðingar markaðsvæðing heilbrigðisþjónustu hefur haft á þjónustuna sjálfa og kostnaðinn. Þetta var samþykkt á flokksráðsfundi á Flúðum í gær. Hingað til hafa afleiðingar þessara breytinga ekki verið skoðaðar hér á landi. 1.9.2007 11:59
VG vill afdráttarlaust að Orkuveitan sé almenningseign Á flokksráðfundi VG sem nú stendur yfir var samþykkt ályktun sem kveður á um að VG vill afdráttarlaust að Orkuveita Reykjavíkur sé áfram í almenningseign. "Það er afdráttarlaus afstaða Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs að samfélagsþjónustan, þar með talin Orkuveita Reykjavíkur, eigi að vera í eigu almennings. Af því verður ekki gefinn afsláttur undir nokkrum kringumstæðum." segir m.a. í ályktunni. 1.9.2007 11:48
Ekki hægt að misnota áframtengingu úr læstum síma Síminn hefur sent frá sér tilkynningu vegna fréttar Sjónvarpsins þess efnis að hringt hefði verði í 118 úr síma sem var með læsingu á símtöl í farsíma til þess að fá áframtengingu við farsímanúmer. Segir m.a. í henni að ekki sé hægt að misnota þjónustu 118 á þennan hátt. 1.9.2007 11:37
Íþróttahöllin við Vallakór tekið í notkun í dag Nýja íþróttahöllin við Vallakór í Vatnsendahverfi verður tekið í notkun við hátíðlega athöfn kl. 14 í dag með ávarpi Gunnars Birgissonar bæjarstjóra. Jafnfram verður greint frá úrslitum í samkeppni um nafn á höllina. 1.9.2007 10:14
Góður vöxtur á trjágróðri Góður vöxtur hefur verið á trjágróðri í sumar um allt land þrátt fyrir ótta manna um að þurrkar gætu haft alvarleg áhrif á vöxtinn. Í einstaka tilfellum hefur þurrkur þó hægt á vexti, sérstaklega þar sem jarðvegur er gljúpur og þurrsækinn. Þetta kemur fram á fréttavefnum Skessuhorni. 1.9.2007 10:01
Dýrar eignir renna út í Danmörku Dýrustu íbúðarvillurnar í Danmörku selja sig næstum sjálfar. Fréttavefur Jyllands Posten greinir frá því að íbúðarhús sem seld eru á nærri þrjú hundruð milljónir íslenskra króna í Danmörku renni út á meðan mun hægar gangi að selja helmingi ódýrari eignir. 1.9.2007 09:58
Veðmálavefir geta auglýst í sjónvarpi í Bretlandi Lögum sem lúta að veðmöngurum og spilavítum í Bretlandi hefur verið breytt en frá og með deginum í dag geta slíkir aðilar auglýst bæði í sjónvarpi og útvarpi. Það sama á við um vefsíður sem bjóða upp á veðmál en þær má nú í fyrsta skipti hýsa í Bretlandi. 1.9.2007 09:53
Chavez gerist sáttasemjari Hugo Chavez forseti Venesúela hefur ákveðið að taka að sér hlutverk sáttasemjara milli kólumbískra uppreisnarmanna og stjórnvalda þar í landi. Samið verður um lausn gísla sem uppreisnarmenn hafa undir höndum. Chavez tilkynnti áformin eftir samræður við Alvaro Uribe, forseta Kólumbíu. 1.9.2007 09:53
Tanni kóngur dró 300 tonna járnbrautarlest Malasíumaður sem ber viðurnefnið Tanni kóngur náði að draga sjö vagna járnbrautarlest í vikunni með stálvír sem hann beit saman í munni sínum. Þetta mun vera mesta þyngd sem maður hefur dregið með tönnunum einum saman. 1.9.2007 09:39
Hannes efstur á Íslandsmeistaramótinu í skák Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson hélt áfram sigurgöngu sinni á Íslandsmeistaramótinu í skák en hann vann Davíð Kjartansson í fjórðu umferð, sem fram fór í gærkvöldi og hefur 3,5 vinning, vinningi meira en næstu menn. Í 2.-3. sæti koma Þröstur Þórhallsson og Stefán Kristjánsson. 1.9.2007 09:24
Ljósanóttin friðsæl það sem af er helginni Ljósanóttin í Reykjanesbæ hefur farið fram á friðsælan hátt það sem af er helginni. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar gisti aðeins einn maður fangageymslur hennar í nótt vegna ölvunnar og einn var tekinn vegna ölvunaraksturs. 1.9.2007 09:11
Ríkisskattstjóri boðar róttækar breytingar á skattframtali Stefnt er að því að sem flestir einstaklingar sleppi við að skila skattframtali og skattyfirvöld telji fram fyrir þá. Ríkisskattstjóri hyggst skera upp herör gegn því að fólk og fyrirtæki skili ekki skattframtali sínu. 1.9.2007 09:00
Nýr búðaklasi mun rísa á Laugavegi Arkitektar munu fyrir lok þessa mánaðar skila hugmyndum að hönnun nýbyggingar við Laugaveg 17 til 21 og reitnum þar fyrir aftan að Smiðjustíg. 1.9.2007 09:00
Þjóðverjanna ákaft saknað Ættingjar Þjóðverjanna tveggja sem týndust á Svínafellsjökli vilja koma á framfæri þakklæti sínu til leitarfólks. Annar þeirra hefði orðið 25 ára í dag. 1.9.2007 08:30
Sögulegar sættir á íslenskum bókamarkaði „Já, þú mátt alveg kalla það sögulegar sættir. Ég myndi kannski ekki hafa orðið „sögulegt“ um þetta en þetta er merkilegt og vonandi farsælt skref,“ segir Halldór Guðmundsson, væntanlegur stjórnarformaður Forlagsins, nýrrar bókaútgáfu. 1.9.2007 08:15
Stefnt í lífshættu af sambýlismönnum Þrjár konur sem leitað hafa aðstoðar Áfallamiðstöðvar eru taldar í stöðugri lífshættu vegna ofbeldis sambýlismanns. Fjórðungur kvenna hefur orðið fyrir ofbeldi. Gerandi ofbeldis gagnvart konum er oftast einhver nákominn þeim. 1.9.2007 08:00
Lífsglöð, örlát og besta móðir í heimi Bretar og fjölmargir aðdáendur Díönu prinsessu víða um heim minntust þess í gær að tíu ár voru liðin frá andláti hennar í umferðarslysi í París. Konungsfjölskyldan í Bretlandi minntist hennar með minningarathöfn í Kensingtonhöll í London. 1.9.2007 07:45