Innlent

Ljósanótt gekk ljómandi vel

Ljósanótt í Reykjanesbæ hefur gengið afar vel að sögn lögreglunnar einungis minniháttar mál komu upp, aðallega vegna ölvunar, en fangageymslur voru fullar af þeim sökum.

Sex minniháttar fíkniefnamál komu upp, en engar alvarlegar líkamsárásir. Miklar umferðartafir urðu á Reykjanesbrautinni í um tvo klukkutíma eftir að formlegri dagskrá lauk í gærkvöldi. Lögregla telur að framkvæmdir sem enn eiga sér stað á tveimur stöðum á brautinni hafi hægt á umferð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×