Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Larry Craig ætlar að segja af sér Bandaríski öldungardeildarþingmaðurinn Larry Craig mun segja af sér á morgun í kjölfar þess að upp komst um handtöku hans fyrr í sumar. CNN greinir frá þessu og segir að Craig muni hverfa úr embætti 30. september næstkomandi. 31.8.2007 23:37
Fjölmenni á Ljósanótt Mikið fjölmenni kom saman á Ljósanótt í Reykjanesbæ í kvöld. Að sögn lögreglu hefur allt gengið að óskum. Fólk sem Vísir talaði við í kvöld segir að líklega hafi hátt í sex þúsund manns komið saman í miðbænum þegar mest var. 31.8.2007 23:23
Vilja láta reka heilu innflytjendafjölskyldurnar úr landi Stærsti stjórnmálaflokkur Sviss hefur boðað mjög umdeilda lagasetningu sem gerir yfirvöldum kleift að senda heilu innflytjendafjölskyldurnar úr landi gerist einn fjölskyldumeðlimurinn brotlegur við lög. 31.8.2007 23:05
Lögreglukona slasaðist í átökum í Hafnarfirði Lögreglukona slasaðist í átökum við ölvaðan mann við verslunarmiðstöðina Fjörðinn í Hafnarfirði um klukkan sex í dag. Konan fór á slysadeild þar sem gert var að sárum hennar. Að sögn lögreglu kemur í ljós á morgun hve alvarleg meiðslin eru en óttast er að sprunga hafi myndast í kjálka. 31.8.2007 21:41
Endurskoðun vatnalaga stóð alltaf til Össur Skarphéðinsson segist ekki kippa sér upp við gagnrýni Sigurðar Kára Kristjánssonar þingmanns á endurskoðun vatnalaga sem nú er í gangi í iðnaðarráðuneytinu. Össur bendir á að alltaf hafi staðið til að skipa nefnd sem endurskoða átti lögin. Nefndin hafi aldrei verið skipuð og því færi vinnan nú fram. 31.8.2007 21:05
Bíll festist í Skillandsá Björgunarsveitin Ingunn á Laugarvatni var kölluð út um klukkan 17:30 í dag vegna bifreiðar sem föst var í Skillandsá við bæinn Miðdal í Bláskógabyggð. Tveir menn voru í bílnum og þegar björgunarsveitin kom á staðinn voru þeir orðnir blautir þar sem flætt hafði inn í bílinn. 31.8.2007 20:50
Loftsteinn gæti lent á jörðinni árið 2036 Loftsteinn gæti lent á jörðinni innan tíðar, eða árið 2036, gangi spár sumra vísindamanna eftir. Verið er að vinna að áætlunum til þess að koma í veg fyrir að steinninn, Apophis, skelli á jörðinni og eru há verðlaun í boði fyrir bestu hugmyndina. 31.8.2007 20:13
Börn í einkaskólum fá ekki niðurgreiddan strætókostnað Skólastjóri Tjarnarskóla segir að skynsamlegra hefði verið að öll grunnskólabörn fengju frítt í strætó en ekki einungis framhalds-og háskólanemar. Hún segir börn í einkaskólum ekki fá niðurgreiddan strætókostnað. 31.8.2007 19:36
Kvikmynd um leiðtogafundinn í Höfða í undirbúningi Framleiðendur í Hollywood eru að undirbúa kvikmynd um leiðtogafundinn í Höfða. Hugmyndir eru um að Warren Beatty leiki Ronald Reagan og Anthony Hopkins leiki Mikael Gorbatsjov. Fulltrúar Clints Eastwoods og breska leikstjórans Ridleys Scott hafa fundað með fulltrúum Reykjavíkurborgar um málið. 31.8.2007 19:20
Allt að milljarður króna í íþróttamannvirki á Selfossi Sveitarfélagið Árborg ætlar að verja allt að milljarði króna í endurnýjun og uppbyggingu íþróttamannavirkja á Selfossi á næstu árum. Framundan er undirbúningur fyrir landsmót árið 2012. 31.8.2007 19:09
Hafa afsalað sér hlutverki sínu Samfylkingin hefur afsalað sér því hlutverki að vera höfuðandstæðingur Sjálfstæðisflokksins í íslenskum stjórnmálum, segir formaður Vinstri grænna. Hann skaut föstum skotum á Samfylkinguna á flokksráðsfundi Vinstri grænna í dag en sagði Sjálfstæðisflokkinn þó áfram höfuðandstæðinginn. 31.8.2007 19:05
Tekur verkamann hálfa öld að afla mánaðar launatekna Kaupþingsforstjóra Laun bankastjóra Kaupþings, Glitnis og Landsbankans hafa hækkað um allt að sextánhundruð prósent á fjórum árum á sama tíma og meðallaun hafa hækkað um liðlega tuttugu og eitt prósent. Það tekur verkamann hartnær fimmtíu ár að vinna sér inn mánaðarlaun forstjóra Kaupþings. 31.8.2007 19:01
Hermaður svarar til saka fyrir fjöldamorð í Írak Bandarískur hermaður svarar nú til saka fyrir morð á sautján óbreyttum íröskum borgurum, sem voru skotnir til bana á eða við heimili sín í Írak fyrir tveimur árum. Á meðan deila bandarískir stjórnmálamenn um veru Bandaríkjahers í Írak. 31.8.2007 18:59
Sprengjutilræði við Kabúlflugvöll - Íslendingar ómeiddir Þrettán Íslendingar sluppu ómeiddir þegar árás var gerð á Kabúl flugvöll í morgun með þeim afleiðingum að tveir hermenn létust og fjöldi særðist. 31.8.2007 18:55
Óljóst hvað ríkisstjórnin stendur fyrir Ríkisstjórnin hefur setið við völd í hundrað daga. Stjórnmálafræðingur segir stjórnina hafa farið vel á stað, en formaður Vinstri-grænna segir óljóst hvað ríkisstjórnin standi fyrir. 31.8.2007 18:54
Enn eitt unglingamorðið í Lundúnum 17 ára drengur var stunginn til bana í Lundúnum í gær. Þetta er enn eitt morðið í höfuðborginni þar sem unglingar koma við sögu en lögregla hefur handtekið tvo 16 ára drengi vegna málsins. Ekki er talið að morðið tengist unglingagengjunum í borginni. 31.8.2007 18:29
Bótakröfur á hendur bullu um 100 milljónir króna Danska knattspyrnusambandið hefur ákveðið að höfða skaðabótamál á hendur fótboltabullunni sem hljóp inn á völlinn í leik Svía og Dana í júní síðastliðnum og réðst á dómara leiksins. Bótakrafan hljóðar upp á um 20 milljónir íslenskra króna og bætist við um 80 milljóna króna kröfu rekstraraðila Parken sem sett var fram fyrr í vikunni. 31.8.2007 16:43
Fimm bíla árekstur við Grensásveg og tafir af þeim sökum Lögregla varar vegfarendur við töfum á gatnamótum Miklubrautar og Grensásvegar en þar varð fimm bíla árekstur fyrr í dag. Eftir því sem segir í tilkynningu frá lögrglunni slasaðist enginn í árekstrinum. 31.8.2007 16:22
Guðmundur og frú í mál við DV Guðmundur Jónsson, fyrrverandi forstöðumaður Byrgisins, Helga Haraldsdóttir, kona hans, og Jón Arnarr Einarsson, fyrrverandi aðstoðarforstöðumaður Byrgisins, hafa ákveðið að höfða meiðyrðamál á hendur DV vegna umfjöllunar um þau í blaðinu í dag. 31.8.2007 16:11
Segir umsókn um rannsóknarleyfi í Gjástykki nærri þriggja ára gamla Umsókn Landsvirkjunar vegna rannsóknarleyfis í Gjástykki í grennd við Mýtvatn var fyrst lögð fram í október 2004 og fyrirtækið hafði áður ýtt á eftir málinu, segir upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar. Hann segir að með ítrekunarbréfi Landsvirkjunar til iðnaðarráðuneytisins skömmu fyrir kosningar í vor hafi fyrirtækið aðeins verið að fylgja eftir hagsmunum sínum gagnvart stjórnsýslunni. 31.8.2007 15:47
Davíð dómaradólgur er margdæmdur Davíð Smári Helenarson, sem braut þrjú rifbein í knattspyrnudómara fyrr í vikunni eftir að hafa verið sýnt rauða spjaldið í leik í utandeildinni, er með dóma á bakinu fyrir líkamárásir og fyrir að hafa veist að lögreglumönnum og hótað þeim lífláti. 31.8.2007 15:41
Játuðu innbrot í einbýlishús í Garðabæ Fjórir karlmenn á tvítugsaldri hafa játað hafa brotist inn á heimili við Bæjargil í Garðabæ og hreiðrað þar um sig á meðan húsráðendur voru í útlöndum. Eftir því sem segir í tilkynningu frá lögreglunni þekkti einni aðilanna til íbúanna í húsinu og vissi því að þeir voru á leið til útlanda. 31.8.2007 15:28
Foreldrar Madeleine í mál við portúgalska fjölmiðla Foreldrar Madeleine McCann ætla að höfða meiðyrða mál gegn portúgölsku blaði sem hélt því fram að þau hafi myrt dóttur sína. Samskipti Gerrys og Kate McCann við fjölmiðla hafa versnað stöðugt undanfarnar vikur. Margir portúgalskir fjölmiðlar vilja gera þau ábyrg fyrir hvarfi dótturinnar. Annaðhvort vegna vanrækslu eða vegna þess að þau hafi hreinlega sjálf orðið henni að bana. 31.8.2007 15:22
Kannski var þetta skrifað í stjörnurnar segir Jóhann Páll "Kannski var þetta skrifað í stjörnunar," segir Jóhann Páll Valdimarsson um tilurð Forlagsins sem nú hefur verið stofnað. Jóhann Páll verður útgefandi og hann segir það ánægjulegt fyrir sig að hans gamla útgáfa, Forlagið, er nú gengin í endurnýjun lífdaga..."að ýmsu viðbættu." 31.8.2007 15:21
OR selur Landsneti flutningsvirki sín Landsnet hefur undirritað samning við Orkuveitu Reykjavíkur um kaup á flutningsvirkjum í eigu Orkuveitunnar. Kaupverðið er 1,3 milljarðar en það er greitt með 900 milljónum króna í reiðufé en 400 milljónum í hlutafé sem jafngildir um átta prósenta hlut í Landsneti. 31.8.2007 15:05
Bókaútgáfurisi orðinn til með sameiningu JPV og Eddu Undirrituð hefur verið viljayfirlýsing um að bókadeild Eddu útgáfu, sem Mál og menning er að kaupa og JPV útgáfa verði sameinuð í einu útgáfufyrirtæki. Mun félagið hljóta nafnið Forlagið. Árni Einarsson forstjóri Eddu segir að þetta hafi borið mjög brátt að, raunar innan síðasta sólarhrings. "Við stefnum að sterkri alhliða bókaútgáfu," segir Árni. 31.8.2007 14:52
Forstjóri OR sendir starfsfólki bréf um að hafa ekki áhyggjur Guðmundur Þóroddsson forstjóri Orkuveitunnar hefur sent öllu starfsfólki sínu bréf þar sem það er beðið að hafa ekki neinar áhyggjur af áformum um hlutafélagsvæðingu fyrirtækisins. „Hugsanleg breyting á félagsformi Orkuveitunnar hefur engin áhrif á réttindi, skyldur eða kjör þín sem starfsmanns fyrirtækisins,“ segir Guðmundur m.a. í bréfinu. 31.8.2007 14:27
Ég er svo ánægður að vera hérna uppá konunni minni Stjórnmálamenn og stjórnarerindrekar þurfa að tjá sig í mörgum löndum. Það eru auðvitað töluð misjöfn tungumál í þessum löndum og það kemur fyrir að boðskapurinn brenglast í þýðingunni. Richard Woolcott sem stýrði ástralska utanríkisráðuneytinu í mörg ár rifjar upp skemmtilegar þýðingarvillur í endurminningum sem hann hefur skrifað um þetta tímabil. 31.8.2007 14:26
Ríkisstjórnarflokkar hafi aðeins ákveðið að mynda ríkisstjórn Ríkisstjórnin hefur gert fremur lítið, segir Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri - grænna, en um 100 dagar eru frá því að ríkisstjórnin komst til valda. Steingrímur segir samstarf Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar byggt á óljósum sáttmála og að ríkisstjórnarflokkarnir hafi raun ekki tekið neinar ákvarðanir aðrar en að mynda ríkisstjórnina. 31.8.2007 14:24
Fyrrverandi bæjarstjóri Fjarðabyggðar til Fjarðaáls Guðmundur Bjarnason, fyrrverandi bæjarstjóri Fjarðabyggðar, hefur verið ráðinn verkefnisstjóri í stjórnunar- og stefnumótunarteymi Alcoa Fjarðaáls í Reyðarfirði. 31.8.2007 13:47
Tveggja ára stúlka og systir hennar í mikilli hættu í Leifsstöð Tveggja ára stúlka og tæplega tvítug systir hennar voru í mikilli hættu í Leifstöð í snemma í gærmorgun. Sú tveggja ára náði að klifra upp á færibandið við innritunarborðið og fór með því ásamt öðrum farangri í átt að öryggiseftirlitinu. Systir hennar henti sér á eftir henni en vegna mannlegra mistaka stúlkunnar sem var að innrita þær í flug var neyðarhappur ekki notaður til að stöðva færibandið. 31.8.2007 13:39
Norskur hvalfangari sökk við bryggju Þrjátíu metra norskur hvalbátur sökk við bryggju i Svolvær í Lofoten síðastliðna nótt. Enginn var um borð. Lögreglan útilokar ekki að unnið hafi verið skemmdarverk. Tilkynning barst um það um hálf þrjú í nótt að Willassen Senior væri að sökkva. Björgunarlið var sent á vettvang. 31.8.2007 13:25
Mikill áhugi fyrir Tíma nornarinnar í Frakklandi Mikil áhugi virðist vera fyrir glæpasögu Árna Þórarinssonar, Tími nornarinnar, í Frakklandi. Eftir því sem segir í tilkynningu frá JPV útgáfu kemur bókin út í næstu viku í landinu og nema biðpantanir nú þegar fleiri eintökum en útgefandinn, Métailie, hafði prentað. Því hefur þegar verið ákveðið að endurprenta bókina. 31.8.2007 13:10
Óvilhallir matsmenn kallaðir til í olíumálinu Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði í morgun að kallaðir skyldu til óvilhallir matsmenn í máli stóru olíufélaganna á hendur Samkeppniseftirlitinu. 31.8.2007 12:54
Gíslar fara heim á leið í dag Talibanar í Afganistan hafa nú leyst síðustu suður-kóresku gíslana sína úr haldi og búist er við að gíslarnir fljúgi heim í dag. 31.8.2007 12:47
Bæjarstjóraskipti í Mosfellsbæ í dag Haraldur Sverrisson tekur við starfi bæjarstjóra Mosfellsbæjar í stað Ragnheiðar Ríkharðsdóttur sem sest nú á þing í október. Hún hefur gegnt starfi bæjarstjóra fyrir Sjálfstæðisflokkinn í rúmlega fimm ár. 31.8.2007 12:30
Bretar minnast Díönu prinsessu Tíu ár eru í dag liðin frá því Díöna prinsessa af Wales lést í bílslysi í París, og verða minningarathafnir haldnar um hana víðsvegar um Bretland í dag. 31.8.2007 12:26
Þúsundir vopna bíða eyðingar á Suðurnesjum Tilraunir Íslendinga til að smygla ólöglegum vopnum til landsins hafa aukist stórlega. Flóran í vopnum hefur auk þess aukist mikið. Nokkur þúsund vopn eru nú í geymslu hjá Tollgæslunni á Suðurnesjum sem bíða eyðingar. 31.8.2007 12:09
Grunuð um aðild að meintum kynferðisbrotum Guðmundar Helga Haraldsdóttir, eiginkona Guðmundar Jónssonar, fyrrverandi forstöðumanns Byrgisins, er grunuð um að hafa tekið þátt í meintum kynferðisbrotum eiginmanns síns gagnvart konum sem dvöldu á meðferðarheimilinu og hefur verið yfirheyrð af lögreglu í tengslum við málið. 31.8.2007 12:00
Ekki lengur Landspítali - háskólasjúkrahús Landspítali - háskólasjúkrahús mun ekki áfram bera það nafn heldur aðeins heita Landspítali um leið og ný heilbrigðislög taka gildi ámorgun. Fram kemur í tilkynningu frá stjórnarnefnd spítalans að með lögunum felist margar breytingar á skipulagi og stjórnun heilbrigðisþjónustu á Íslandi. 31.8.2007 11:59
Gunnar segir bústaðsbrunann mikið áfall Gunnar Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, staðfesti í samtali við Vísi að sumarbústaðurinn sem brann til grunna í Grímsnesi í morgun hafi verið í hans eigu. Gunnar segir þetta mikið áfall fyrir fjölskylduna enda um griðastað hennar að ræða. Hann segir mikið af persónulegum munum hafa verið í bústaðnum. Gunnar var mjög daufur í dálkinn og sagði lögreglu kanna eldupptök. 31.8.2007 11:55
Vona að hundkvikindið drepist fljótlega Fyrrverandi þjónustustúlka hjá hóteldrottningunni Leonu Helmsley er ákaflega glöð yfir að hún skuli nú hafa safnast til feðra sinna. Hún segir að nú verði Leona að svara til saka hjá Guði. Og þjónustustúlkan vonar að hundkvikindið Trouble drepist líka sem allra fyrst. Trouble erfði mörghundruð milljónir króna eftir húsmóður sína. 31.8.2007 11:39
Sjálfsagt að rannsókn fari fram á rannsóknarleyfi Jón Sigurðsson, fyrrverandi iðnaðarráðherra, segir alveg sjálfsagt að rannsókn fari fram á því hvernig leyfi til jarðhitarannsókna í Gjástykki í grennd við Mývatn var veitt. Hann segir allar umsagnir í málinu hafa legið fyrir og málið hefði getað verið afgreitt fyrr. 31.8.2007 11:37
Bremsulausir Færeyingar Flugvél frá færeyska flugfélaginu Atlantic Airways fór út af brautinni í flugtaki frá Færeyjum í morgun. Engan sakaði. Vélin var á leið frá Þórshöfn til Lundúna. Flugmennirnir hættu við flugtak þegar þeir uppgötvuðu að hemlabúnaður virkaði ekki sem skyldi. Hemlabilanir virðast vera viðvarandi vandamál hjá þessu flugfélagi. 31.8.2007 11:21
Ríkasti maður Noregs bak við lás og slá Kjell Inge Rökke, ríkasti maður Noregs dvelur nú í fangelsi og verður þar næstu 30 dagana. Rökke hlaut fangelsisdóminn fyrir að hafa mútað skipaeftirlitsmanni í tengslum við lúxussnekkju sína og útgáfu á haffærnisskírteini árið 2001. 31.8.2007 10:58