Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Beint frá minningarathöfn um Díönu prinsessu Bein útsending verður á Vísi klukkan 11 frá minningarathöfn um Díönu prinsessu af Wales en í dag eru tíu ár síðan hún lést í bílslysi í París. Minningarathöfnin þar sem synir Díönu, þeir Harry og Vilhjálmur verða viðstaddir ásamt Karli Bretaprins fer fram í Guards Chapel í Lunúnum. 31.8.2007 10:09
Útgjöld til menntamála hafa aukist um 70% á níu árum Á milli áranna 1998 og 2007 hafa árleg útgjöld til menntamála aukist um 15 milljarða króna og er þá tekið tillit til verðlagsbreytinga. Það jafngildir tæplega 70% aukningu. Til samanburðar hafa útgjöld til heilbrigðismála á sama tímabili aukist um 57%. 31.8.2007 09:14
Dagur B. fær Björn til að brosa Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, segir á heimasíðu sinni að sér finnist broslegt að sjá Dag B. Eggertsson, borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, telja hlutafélagsáform Orkuveitunnar til stórtíðinda. Björn minnir á að samfylkingarfólk í borgarstjórn hafi á sínum tíma barist fyrir því að gera fyrirtækið að hlutafélagi. 30.8.2007 23:26
Ellefu látnir að minnsta kosti í lestarslysi í Ríó Að minnsta kosti ellefu létu lífið og 63 slösuðust þegar yfirfull lest skall á aðra í úthverfi brasilísku borgarinnar Rio de Janeiro í dag. Yfir hundrað björgunarmenn voru á staðnum og óttast slökkviliðsmenn að fleiri hafi látist. 30.8.2007 22:47
Tekist á um bæjarskrifstofur í Reykjanesbæ Minnihluti bæjarstjórnar í Reykjanesbæ gagnrýnir harðlega þá ákvörðun meirihlutans að fela Fasteign hf. að vinna að tillögum að nýjum bæjarskrifstofum. Á heimasíðu Víkurfrétta er sagt frá því að minnihluti hafi lagt fram bókun vegna málsins. Sjálfstæðismenn segja um miskilning að ræða. 30.8.2007 21:24
Vildi láta lögguna hræða strákinn Lögregla var kölluð að heimili í borginni í gær vegna ófriðar sem orsakaðist af því unglingnum á heimilinu var meinað fara í tölvuna. Að sögn lögreglu hefur tilfellum af þessu taginu fjölgað. Móðir unglingsins bað lögregluna um að „hræða“ soninn, en við því var ekki orðið enda ekki í verkahring embættisins að sögn lögreglu. 30.8.2007 20:43
Tveir fluttir á slysadeild eftir fjögurra bíla árekstur Fjórir bílar lentu í harðri aftanákeyrslu á Höfðabakkabrú klukkan sex í dag. Tveir voru fluttir með sjúkrabíl á slysadeild og sá þriðji fór þangað af sjálfsdáðum. Tvo bíla þurfti að flytja á brott með dráttarbíl. Þá urðu tvö önnur óhöpp á höfuðborgarsvæðinu um svipað leyti. 30.8.2007 19:58
Skipverji sem var í haldi sjóræningja íhugaði sjálfsmorð Einn skipverjanna fimm sem eru nýkomnir til Danmerkur aftur, eftir að hafa verið á valdi sjóræningja í þrjá mánuði, segist oft hafa íhugað að fremja sjálfsmorð þennan tíma. Útgerðin hefur lítið viljað koma til móts við skipverjana en hefur boðist til að endurnýja farsíma þeirra. 30.8.2007 19:39
Undirverðlagning og ólögmætt verðsamráð helst til athugunar Fimmtungur allra mála Samkeppniseftirlitsins síðasta árið varða matvörumarkaðinn. Undirverðlagning og ólögmætt verðsamráð eru helst til athugunar. 30.8.2007 19:36
80 ára gamlar skipulagshugmyndir til skoðunar Akureyrarbær er að skoða 80 ára hugmyndir Guðjóns Samúelssonar um breyttan miðbæ Bæjarstjóri vísar því á bug að ákvarðanafælni sé vandamál í skipulagsmálum. 30.8.2007 19:34
Öflugt eftirlit ÍTR með íþrótta-tómstundafélögum Öflugt eftirlit er með þeim níutíu íþrótta-og tómstundafélögum sem eiga aðild að frístundakortakerfi Reykjavíkurborgar af ótta við að þau hækki þátttökugjöldin með tilkomu kortanna. Á morgun geta rúmlega tuttugu þúsund börn byrjað að nota frístundakortin. 30.8.2007 19:32
Segir lyfjarisa standa í vegi fyrir Pharmartica Talsmaður lyfjafyrirtækisins Pharmartica á Grenivík segir að stóru lyfjarisarnir á Íslandi standi í vegi fyrir því að fyrirtækið fái að dafna. Erfitt sé að fá inni í apótekum með nýja vöru. 30.8.2007 19:31
Skógareldarnir í Grikklandi í rénun Svo virðist sem skógareldarnir í Grikklandi séu í rénun. Yfirvöld eru þó viðbúin því að eldurinn kunni að glæðast á ný á svæðum þar glatt hefur logað síðustu daga. Að minnsta kosti sextíu og fjórir hafa látist í skógareldunum. 30.8.2007 18:58
Blóðugar deilur mafíugengja Deilur ítalskra mafíugengja eru taldar ástæða þess að sex Ítalar voru myrtir í Þýskalandi fyrr í mánuðinum. Lögreglan á Ítalíu handtók í dag á fjórða tuga manna í tengslum við morðin. 30.8.2007 18:50
Þrjú umferðaróhöpp á höfuðborgarsvæðinu á svipuðum tíma Þrjú umferðaróhöpp urðu á höfuðborgarsvæðinu á svipuðum tíma nú fyrir skömmu síðan. Tvær litlar rútur skullu saman í Lönguhlíð, Fjórir bílar rákust saman á Höfðabakkabrú og á Strandgötu í Hafnarfirði varð árekstur og er sjúkralið á leið á staðinn. 30.8.2007 18:49
Íslenska IKEA dýrara en það sænska Handahófsúrtak fréttastofu úr nýjum vörulista IKEA sýnir að verðið á Íslandi er allt að sjötíu prósentum hærra en hjá IKEA í Svíþjóð. Í aðeins einu tilviki af sjö var lægra verð á Íslandi. Framkvæmdastjóri IKEA segir fjölmargt skýra verðmuninn. 30.8.2007 18:45
Viðbrögðin of hæg Fórnarlömb fjöldamorðanna við Virginía Tech-háskólann í Bandaríkjunum hefðu hugsanlega orðið mun færri ef yfirvöld hefðu brugðist skjótar við, samkvæmt nýrri rannsókn. 30.8.2007 18:34
Orkuveita Reykjavíkur verði hlutafélag Orkuveitu Reykjavíkur verður breytt í hlutafélag, nái tillögur meirihlutans í borgarstjórn fram að ganga. Afgreiðslu málsins var frestað á stjórnarfundi orkuveitunnar í dag að ósk minnihlutans, en aðalmenn hans gátu ekki setið fundinn. 30.8.2007 18:30
Hættuleg eiturefni fundust í höfuðstöðvum SÞ Nokkur glös með eiturefnum hafa fundist í höfuðstöðvum Sameinuðu Þjóðanna í New York. Á meðal efna sem fundust var taugagasið phosgene en talið er að efnin hafi verið flutt frá Írak þegar fulltrúar SÞ framkvæmdu eiturefnaleit í landinu fyrir áratug síðan. 30.8.2007 17:57
Ný meðferð fyrir MS-sjúklinga Vísindamenn hafa lagt til að ný meðferð verði notuð gegn heila og mænusigg-sjúkdómnum (MS) sem felur í sér notkun á hormóninu estrógen. Meðferðin felst í því að estrógen-hormónið er notað til að bægja frá eða jafnvel snúa við einkennum sjúkdómsins án þess að til komi þær algengu hliðarverkanir sem hormónameðferðum fylgja. 30.8.2007 17:49
Nýr 50 milljarða eignasjóður borgarinnar Stefnt er að stofnun nýs Eignarsjóðs Reykjavíkurborgar til að fara með allar fasteignir borgarinnar. Þá verður búið til nýtt umhverfis- og samgöngusvið sem tryggja á að umhverfismál verði í fyrirrúmi við hönnun samgöngumannvirkja í borginni. 30.8.2007 17:30
Sjálfstæðismenn á Seltjarnarnesi lýsa yfir stuðningi við Jónmund Bæjarfulltrúar og aðrir forystumenn Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnarnesi lýsa fullum stuðningi sínum við bæjarstjórann, Jónmund Guðmarsson oddvita flokksins í bænum. Þeir segja DV hafa gert aðför að bæjarstjóranum og er hún hörmuð. DV hefur flutt fréttir af því að bæjarstjórnin íhugi að segja Jónmundi upp. 30.8.2007 17:24
Rússar ólu á stríðsótta til þess að selja vopn Rússar gerðu hvað þeir gátu til þess að ala á stríðsótta í Ísrael og Sýrlandi í sumar, til þess að auka vopnasölu sína til Sýrlands, að sögn diplomatisku öryggisþjónustunnar í Ísrael. Snemma í sumar kom upp sá orðrómur að Sýrlendingar hyggðust endurheimta Golan hæðirnar með stríði á hendur Ísrael. Jafnframt var sagt frá liðssafnaði beggja ríkjanna við landamærin. 30.8.2007 17:09
Reykjavík verði grænasta borg veraldar Flutningur samgöngumála til umhverfissviðs borgarinnar er liður í áætlunum borgaryfirvalda að gera Reykjavík að grænustu borg veraldar. Þetta segir Gísli Marteinn Baldursson, formaður umhverfisráðs. 30.8.2007 15:59
Faldi nýfætt barn sitt í þvottakörfu Sextán ára stúlka er í haldi lögreglu eftir að lík nýfædds barns hennar fannst í þvottavél á heimili hennar í borginni Frankfurt an der Oder í austurhluta Þýskalands í gær. 30.8.2007 15:56
Gamla NATO-stöðin í Hvalfirði verður seld hæstbjóðenda Ákveðið hefur verið að gamla NATO-stöðin í Hvalfirði verði seld hæstbjóðenda. Sveitarstjórnarmenn úr Hvalfjarðarsveit áttu fund með fulltrúum fjármálaráðuneytisins um málið fyrr í dag. Um er að ræða 100 hektara lands, stóra bryggju í góðu ásigkomulagi og fjóra risavaxna niðurgrafna olíutanka. 30.8.2007 15:38
Valur dómari leggur fram kæru á hendur markverðinum Valur Steingrímsson, dómari í utandeildinni, hefur lagt fram kæru á hendur manninum sem réðst fólskulega að honum eftir leik Gym80 og Vatnaliljanna á Varmárvelli síðastliðið þriðjudagskvöld. Markvörður Gym80 réðst að honum eftir leikinn með þeim afleiðingum að Valur féll og við það brotnuðu þrjú rifbein. 30.8.2007 15:33
Ákærður fyrir að slá gervitennur úr manni Ákæra á hendur karlmanni á sextugsaldri vegna líkamsárásar á veitingastað í miðborginni í fyrrahaust var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Manninum er gefið að sök að hafa slegið annan mann í andlitið með þeim afleiðingum að gervitennur í efri góm hans brotnuðu og mar hlaust í andliti. 30.8.2007 15:01
Íbúar norðurlanda 0,4 prósent af jarðarbúum Norðulandabúar eru orðnir rúmar 25 milljónir. Samkvæmt tölum frá norrænu hagstofunum búa rúmlega 9 milljón manns í Svíþjóð, í Danmörku og Finnlandi rúmlega 5 milljónir og tæplega 5 milljónir í Noregi. Rúmlega 300 þúsund manns búa á Íslandi, á Grænlandi búa rúmlega 50.000 manns og tæplega 50.000 í Færeyjum. Á Álandseyjum búa 27.000 manns. 30.8.2007 14:54
Fresta tillögu um hlutafélagavæðingu vegna orða minnihlutans Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur samþykkti það á fundi sínum fyrir stundu að beina því til eigenda fyrirtækisins, Reykjavíkurborgar, Akranesbæjar og Borgarbyggðar, að hlutafélagavæða fyrirtækið. Það er nú sameignarfélag. Samþykkt var að fresta því að afgreiða tillöguna en samþykkt að senda hana fjölmiðlum þar sem fjarstaddir aðalmenn í stjórn, sem þó höfðu boðað varamenn sína, hefðu kosið að gera hana tortryggilega eins og segir í tilkynningu frá fyrirtækinu. 30.8.2007 14:46
Kanada fordæmir samninga við Talibana Utanríkisráðherra Kanada hefur gagnrýnt stjórnvöld í Suður-Kóreu harðlega fyrir að semja við Talibana í Afganistan um lausn gísla sem þeir tóku. Talibanar tóku 23 gísla frá Suður-Kóreu. Tveir þeirra voru myrtir en hinir hafa nú allir verið látnir lausir, eftir miklar samningaviðræður. 30.8.2007 14:45
Meistaradeildin: Drátturinn í beinni á Vísi.is Dregið verður í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í dag klukkan 16:00 í Monte Carlo á Suðurströnd Frakklands. Vísir.is sýndi frá drættinum í beinni ústendingu. Fjögur ensk lið eru í pottinum og eru þau öll í fyrsta styrkleikaflokk. Rosenborg er eina liðið frá Norðurlöndunum. 30.8.2007 14:37
Beljur með nafnskírteini Bændur í Vestur-Bengal á Indlandi hafa verið skyldaðir til þess að fara með beljur sínar í myndatökur, til þess að útvega þeim nafnskírteini. Þetta er liður í því að koma í veg fyrir stórfellt smygl á þeim til Bangladesh. Meirihluti Indverja eru hindúar og samkvæmt þeirra trú eru þessir jórtrandi ferfætlingar heilagar kýr. Það er bannað að flytja þær úr landi. 30.8.2007 14:13
Gréta Gunnarsdóttir sviðsstjóri öryggissviðs hjá utanríkisráðuneytinu Gréta Gunnarsdóttir hefur verið ráðin sviðsstjóri alþjóða- og öryggissviðs utanríkisráðuneytisins og kemur hún til starfa í byrjun október. Fram kemur í tilkynningu frá ráðuneytinu að hún taki við starfinu af Bergdísi Ellertsdóttur sem tók í sumar við starfi aðstoðarframkvæmdastjóra EFTA í Brussel. 30.8.2007 14:04
Ekki stendur til að einkavæða Orkuveituna Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri ítrekar það ekki sé ætlunin að einkavæða Orkuveitu Reykjavíkur en tillaga um hlutafélagavæðingu fyrirtækisins er til umræðu á stjórnarfundi Orkuveitunnar sem nú stendur yfir. 30.8.2007 13:36
Rekstur ríkisins 10 milljörðum kr. hagstæðari en í fyrra Samkvæmt greiðsluuppgjöri ríkissjóðs er rekstur sjóðsins 10 milljörðum kr. hagstæðari en í fyrra. Á fyrstu sjö mánuðum ársins jókst handbært fé frá rekstri um 46,5 milljarða kr. innan ársins á móti 36,5 milljörðum á sama tíma í fyrra. 30.8.2007 13:14
Leggja niður framkvæmdasvið og stofna eignasjóð Til stendur að leggja niður framkvæmdasvið borgarinnar og koma á fót umhverfis- og samgöngusviðið sem lið í breytingum á stjórnkerfi borgarinnar. Það var borgarstjórinn í Reykjavík sem kynnti breytingarnar í hádeginu. 30.8.2007 13:02
Bretar fagna ákvörðun sjávarútvegsráðherra um hvalveiðar Breski umhverfisráðherrann, Phil Woolas, hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann fagnar ákvörðun Einars K. Guðfinnssonar sjávarútvegsráðherra um að gefa ekki út frekari kvóta til hvalveiða. "Við fögnum þessari hugrökku og gáfulegu ákvörðun og vonum að þetta verði til að hvalveiðum verði hætt í framtíðinni," segir Woolas. 30.8.2007 12:40
Fundu bátskuml í Aðaldal Bátskuml fundust í Aðaldal í Þingeyjarsýslu í gær. Kumlin eru 4 kílómetra frá sjó og þykja einhver merkustu kuml sem fundist hafa, að sögn Unnsteins Ingasonar, formanns Hins þingeyska fornleifafélags. 30.8.2007 12:31
Segja hlutafélagavæðingu OR undanfara einkavæðingar Til stendur að taka fyrir tillögu á stjórnarfundi Orkuveitu Reykjavíkur nú eftir hádegið um að hlutafélagavæða fyrirtækið. Oddvitar minnihlutans í borginni segja um upptakt að einkavæðingarferli OR að ræða en stjórnarformaður Orkuveitunnar segir að félagið verði áfram í eigu sveitarfélaganna. 30.8.2007 12:19
Grikkir sækja bætur vegna eldanna Þúsundir Grikkja streymdu í banka í landinu í gær til að sækja bætur frá ríkisstjórninni vegna eldanna sem hafa geysað þar í landi undanfarna daga. Allir Grikkir geta fengið bætur, sýni þeir skilríki og skrifi undir yfirlýsingu um að þeir hafi orðið fyrir tjóni vegna eldanna. 30.8.2007 11:58
Sparisjóður Mýrasýslu og Ólafsfjarðar máttu sameinast Samkeppniseftirlitið hefur lagt blessun sína yfir kaup Sparisjóðs Mýrasýslu á Sparisjóði Ólafsfjarðar fyrr á árinu. Eftir því sem segir í úrskurði Samkeppniseftirlitsins mat eftirlitið það svo að kaupin fælu í sér samruna í skilningi samkeppnislaga og því beindist skoðun eftirlitsins að því hvort samruninn hindraði virka samkeppni. 30.8.2007 11:37
Heimsótti Breiðavík 45 árum eftir dvöl sína Gísli Már Helgason er eitt af hinu svokölluðu Breiðavíkurbörnum. Hann dvaldi þar við illan kost frá 1960 til 1962 og hafði ekki komið þangað í 45 ár þegar hann ákvað að sækja staðinn heim um verslunarmannahelgina. Það gerði hann eftir hvatningu frá sálfræðingi. Gísli Már er illa farinn á sálinni eftir dvölina á Breiðavík en hann segir ferðasögu sína hér á Vísi. 30.8.2007 11:30
Bókasafni í Suður-Afríku gefnar Íslendingasögur Dr. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir sendiherra Íslands í Suður-Afríku afhenti nýlega bókasafni Háskóla Suður-Afríku Íslendingasögurnar að gjöf. Um er að ræða nýja enska útgáfu af sögunum. Það var dr. Judy Hennings háskólabókavörður sem tók á móti gjöfinni. 30.8.2007 11:18
Ný íþrótta- og tónleikahöll tekin í notkun Ný íþrótta- og tónleikahöll við Vallakór í Vatnsendahverfi, sem meðal annars mun hýsa Knattspyrnuakademíu Íslands, verður tekin í notkun við hátíðlega athöfn á laugardaginn kemur. 30.8.2007 11:11