Tekur verkamann hálfa öld að afla mánaðar launatekna Kaupþingsforstjóra 31. ágúst 2007 19:01
Laun bankastjóra Kaupþings, Glitnis og Landsbankans hafa hækkað um allt að sextánhundruð prósent á fjórum árum á sama tíma og meðallaun hafa hækkað um liðlega tuttugu og eitt prósent. Það tekur verkamann hartnær fimmtíu ár að vinna sér inn mánaðarlaun forstjóra Kaupþings. Launatekjur bankastjóranna þriggja hafa hækkað verulega umfram það sem býðst á venjulegum launamarkaði jafnvel þótt lægstu laun hafi hækkað talsvert umfram launavísitölu. Launatekjur Hreiðars Más Sigurðssonar bankastjóra Kaupþings Bank hafa hækkað mikið á tímabilinu frá 2003 til 2006 samkvæmt tekjublaði Frjálsrar verslunar. Launatekjur hans voru tæpar þrjár komma sjö milljónir árið 2003 en voru komnar í tæpar 65 milljónir árið 2006. Tekið skal fram að hér er átt við mánaðarlaun eins og þau eru birt í tekjublaði Frjálsrar verslunar. Fram hefur komið í máli Jóns G. Haukssonar, ritstjóra Frjálsrar verslunar, við Stöð 2 að Hreiðar Már Sigurðsson hefði haft yfir 1 milljarð í fjármagnstekjur á síðasta ári umfram þessa fjárhæð. Launatekjur Bjarna Ármanssonar, fyrrverandi bankastjóra Glitnis, hafa hækkað augljóslega frá 2003 og en þær voru rúmar fimmtán milljónir króna í fyrra á mánuði. Launatekjur Halldórs J. Kristjánssonar bankastjóra hjá Landsbankanum voru rúmar níu milljónir króna á mánuði í fyrra. Á tímabilinu frá 2003 til 2006 hafa launatekjur Hreiðars Más Sigurðssonar sextánfaldast. Launatekjur Bjarna Ármannssonar, fyrrverandi bankastjóra Glitnis, hafa tæplega áttfaldast. Og launatekjur Halldórs J. Kristjánssonar hjá Landsbankanum hafa tæplega sexfaldast Staðan er sambærileg hjá þessum mönnum öll árin að því leyti að þeir hafa starfað sem forstjórar hjá bönkunum allan tímann. Bankarnir sem þeir starfa fyrir hafa þó vissulega vaxið og aukið umsvif sín gríðarlega. Framangreindar fjárhæðir eru skattskyldar launatekjur bankastjóranna öll árin. Þetta eru tekjur vegna fastra launa, bónusa, kaupréttarákvæða á hlutabréfum, bílafríðinda og annarra fríðinda. Í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, t.d. tekjur af vöxtum, arði og sölu hlutabréfa. Árið 2003 þurfti 36 verkamenn til að afla þeirra launa sem samsvöruðu heilarlaunatekjum Hreiðars Más Sigurðssonar á mánuði. Í fyrra þurfti sex hundruð verkamenn til að ná sömu fjárhæð en Kaupþingsbankastjórinn var þá með 64.872.000 í tekjur á mánuði.
Mest lesið Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Innlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Innlent Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fleiri fréttir Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sjá meira