Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Alcan biður um framlengingu Bæjarstjórinn í Hafnarfirði segir að bærinn muni ekki beita sér fyrir annarri kosningu um stækkun álversins í Straumsvík á kjörtímabilinu, en bendir á að íbúarnir geti knúið fram slíka atkvæðagreiðslu. Talsmenn Landsvirkjunar segja að Alcan verði að leggja fram eitthvað nýtt og raunhæft ef framlengja eigi viljayfirlýsingu um orkusölu til stækkaðs álvers Alcans. 20.6.2007 18:45
Atlantis á leið heim Geimskutlan Atlantis er á heimleið eftir viðburðaríka tíu daga dvöl við Alþjóðageimstöðina. Tilgangur ferðarinnar var að halda áfram uppbyggingu á Alþjóðageimstöðinni. Meðal helstu verkefna var að koma nýjum sólarrafhlöðum í gagnið. Stefnt er að því að stöðin, sem er í 350 kílómetra fjarlægð frá Jörðu, verði tilbúin fyrir árslok 2010. 20.6.2007 18:19
Íslandpóstur í átak Íslandspóstur hefur ráðist í átak til að vekja almenning, húsbyggjendur og verktaka til umhugsunar um byggingareglugerð er varðar póstlúgur og póstkassasamstæður. Á undanförnum árum hefur orðið töluverður misbrestur á að farið sé að settum reglum þegar kemur að staðsetningu bréfalúga og póstkassa. 20.6.2007 18:03
Rannsóknum á óþekktum taugasjúkdómi miðar áfram Ungum Ný-Sjálenskum vísindamanni hefur tekist að rækta erfðabreytta kind sem er ónæm fyrir Huntingtonssjúkdómnum. Í útskriftarverkefni sínu komast hin 25 ára gamla Jessie Jacobsen að því hvernig hægt er að flytja erfðaefni sem veldur sjúkdómnum yfir í kind. 20.6.2007 16:50
Mótmæla Urriðafossvirkjun Ferðamálafélag Flóamanna hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem skorað er á sveitarstjórn Flóahrepps að standa við fyrri ákvörðun um að leggja fram aðalskipulag Villingaholtshrepps án þess að í því sé gert ráð fyrir Urriðafossvirkjun. 20.6.2007 16:41
Bush vill að Blair gerist erindreki George Bush, forseti Bandaríkjanna, hefur talað við Tony Blair um að Blair gerist erindreki í Mið-Austurlöndunum þegar hann lætur af embætti sem forsætisráðherra Bretlands þann 27. júní næstkomandi. Talsmaður forsetans segir að Bush og Conloeezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hefðu borið erindið undir Blair í eigin persónu. 20.6.2007 16:31
Aftöku frestað í Íran Maður og kona í Íran hafa verið dæmd til þess að vera grýtt til dauða fyrir hjúskaparbrot, en dómsvaldið þar í landi hefur gefið út skipun um að bíða skuli með aftökuna. Ástæðan er gagnrýni vestrænna landa á þessari framkvæmd aflífana. 20.6.2007 15:55
Esa reynir þolgæði manna Evrópska geimferðastofnunin Esa undirbýr tilraun þar sem reynt verður á þolgæði fólks gagnvart hvort öðru. Vonast er til að niðurstöður tilraunarinnar komi að gagni þegar og ef lagt verður í mannaða ferð til Mars, en geimfara slíkrar ferðar bíður löng, tilbreytingarlaus og náin samvera. 20.6.2007 15:47
Einar Bárðarson opnar umboðsskrifstofu í London Einar Bárðarson hefur opnað umboðsskrifstofu í London ásamt öðrum fjárfestum. Umboðsskrifstofan heitir Mother Management. Tónvís, fjárfestingarsjóður FL Group á 50% hlut í Mother Management. 20.6.2007 15:31
Bauð skjaldböku upp í bílinn Ökumaður sem leið átti um Skutulsfjarðarbraut á Ísafirði varð furðu lostinn þegar hann ók fram úr lítilli skjaldböku sem leið átti um veginn á tólfta tímanum í dag. Skjaldbakan var á hægri ferð norður veginn þar sem er 60 kílómetra hámarkshraði. 20.6.2007 15:16
Útblástur eykst stöðugt frá Kína Þó svo að stjórn Kína hafi nýlega heitið því að taka virkan þátt í baráttunni gegn lofslagsbreytingum eykst útblástur gróðurhúsalofttegunda frá landinu stöðugt. 20.6.2007 14:57
Undrast yfirlýsingu oddvita meirihluta bæjarstjórnar Miðbæjarfélagið á Selfossi undrast yfirlýsingu oddvita meirihluta bæjarstjórnar Árborgar í fjölmiðlum að þeir ætli ekki að mæta til opins fundar um skipulagsmál miðbæjarins á Selfossi. 20.6.2007 14:51
Breskur hermaður í fangelsi fyrir að stinga frænda sinn Breskur hermaður, Gareth Thomas, hefur verið dæmdur í sex ára fangelsi fyrir að stinga frænda sinn í hjartað. Dómstóll í Exeter dæmdi hann sekan um manndráp en sýknaði hann af ákæru um morð. 20.6.2007 14:43
Foreldrar Alan Johnston standa fyrir stuðningsvökum Foreldrar blaðamannsins Alan Johnston standa fyrir stuðningsvöku fyrir son sinn í Skotlandi. Þau hafa sleppt 100 blöðrum í loftið - einni fyrir hvern dag sem Johnston hefur verið í haldi samtaka sem kalla sig „Her Íslams“ á Gaza svæðinu. 20.6.2007 13:58
Hauskúpa fornpöndu fundin Fyrsta hauskúpan af forfeðrum risapöndunnar fannst á dögunum í kalksteinshelli í Suður-Kína. Bandarísku og kínversku vísindamennirnir sem fundu kúpuna telja hana vera um tveggja milljón ára gamla. 20.6.2007 13:57
Skorað á íslensk stjórnvöld á alþjóðadegi flóttamanna Alþjóðadagur flóttamanna er í dag og af því tilefni skorar Mannréttindaskrifstofa Íslands á íslensk stjórnvöld að gerast aðili að samningum Sameinuðu þjóðanna um fólk án ríkisfangs. Flest Vestur-Evrópulönd hafa átt aðild að samningunum um áratuga skeið. 20.6.2007 13:41
Íslendingur rændur í Kaupmannahöfn Íslenskum karlmanni, Guðjóni Inga Eiríkssyni kennara, var ógnað af vopnuðum ræningja í anddyri á Ansgar hótelinu í Colbjoernsensgade í Kaupmannahöfn í gær. Guðjón var staddur í anddyri hótelsins ásamt afgreiðslumanni þegar grímuklæddur maður kom inn. 20.6.2007 13:40
Vilhjálmur landaði fjögurra punda laxi Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri krækti í fyrsta laxinn í Elliðaánum þetta sumarið laust fyrir klukkan eitt í dag, skömmu áður en hann hætti veiðum í ánni. Vilhjálmur opnaði Elliðaárnar snemma í morgun og fékk einn urriða klukkan átta. 20.6.2007 13:30
Skógarbirnir í útrýmingarhættu Skógarbirnir eru í mikilli útrýmingarhættu í Evrópsku Ölpunum. Aðeins er vitað af 38 skógarbjörnum á fjallasvæðunum samkvæmt skráningu umhverfissinna. Ekki er vitað um neinn skógarbjörn í Þýskalandi. 20.6.2007 13:23
Ingibjörg Sólrún í opinberri heimsókn í Noregi Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, og eiginmaður hennar, Hjörleifur Sveinbjörnsson, hófu í dag tveggja daga opinbera heimsókn til Noregs í boði Jonas Gahr Støre, utanríkisráðherra Noregs. Heimsóknin hefst með áheyrn hjá Haraldi Noregskonungi í höll konungs í Osló. 20.6.2007 13:23
Fjármálaráðherra Suður-Karólínufylkis ákærður fyrir fíkniefnamisferli Fjármálaráðherra Suður-Karólínufylkis, Thomas Ravenels, var ákærður í gær fyrir fíkniefnamisferli. Ravanel var einnig formaður hóps sem stendur að forsetaframboði Rudy Guiliani í Suður-Karólínufylki. 20.6.2007 13:14
Dómur mildaður yfir fyrrverandi ráðherra í Víetnam Áfrýjunardómstóll í Víetnam hefur mildað refsingu yfir fyrrverandi aðstoðarviðskiptaráðherra landsins, Mai Van Du. Van Du var upprunalega dæmdur til 14 ára fangelsisvistar fyrir að þiggja mútur. Áfrýjunardómstóllinn stytti þann dóm niður í 12 ár. 20.6.2007 13:05
Mikið um eiturlyfjaakstur í Skagafirði Lögreglan á Sauðárkróki hafði í nógu að snúast vegna fíkniefna- og umferðarlagabrota um og eftir helgi. Fimm mál hafa komið upp síðan á föstudag þar sem fólk hefur verið tekið fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna á ýmsum farartækjum. 20.6.2007 12:54
Reyndi að skjóta bíl undan nauðungarsölu Lögreglan á Sauðrákróki handtók á föstudaginn mann vegna vörubíls sem hann hafði skotið undan nauðungarsölu. 20.6.2007 12:40
Faðir Madeleine rændur Gerry McCann, faðir Madeleine McCann sem rænt var í Portúgal í maí, var rændur í London. Hann fór til London til að funda um áframhaldandi leit að dóttur sinni. Þegar hann var nýkominn var veskinu hans rænt, sem varð til þess að hann mætti of seint á fundina. 20.6.2007 12:38
Formúlubíll í Smáralind Formúluökumaðurinn Nico Rosberg kemur til Íslands þann 26.júní og mun spyrna Williams keppnisbíl sínum á bílaplaninu við Smáralind. 20.6.2007 12:20
Eiturlyfjasalar á Landspítalanum Sjúkrahússyfirvöld hafa engin tök á að stöðva eiturlyfjasölu inni á Landspítala háskólasjúkrahúsi, að mati lækningaforstjóra spítalans. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú lát konu á þrítugsaldri á Landspítalanum í fyrrinótt. 20.6.2007 12:06
Landhelgisbrjótur á Ísafjarðardjúpi Landhelgisgæslan stóð skipstjóra á tíu tonna línubát að ólöglegum veiðum við mynni Ísafjarðardjúps á lokuðu hafsvæði um hádegið í gær. Afar sjaldgæft er að menn brjóti lokanir Hafrannsóknarstofnunar með þessum hætti. 20.6.2007 12:02
Oddvitar Árborgar ósáttir við Miðbæjarfélagið Oddvitar meirihlutans í bæjarstjórn Árborgar eru ósátt við auglýsingu Miðbæjarfélagsins vegna fundar sem félagið stendur að um skipulag á Selfossi. Í auglýsingunni eru oddvitarnir kynntir til leiks sem frummælendur á fundinum. Þeir hafi hins vegar aldrei verið beðnir um að mæta á fundinn og gera því alvarlegar athugasemdir við fyrirkomulag og boðun fundarins og ætla ekki að mæta. 20.6.2007 12:01
Bæjarstjórinn kominn út úr skápnum Talsmaður Sólar í Straumi segir bæjarstjórann í Hafnarfirði kominn út úr skápnum með stuðningi sínum við að álverið í Straumsvík geti mögulega stækkað t.d. með byggingu á landfyllingu. Hann segir kosningarnar í vetur ekki hafa snúist um skipulag lóðar álversins, heldur öll þau áhrif sem stækkað álver hefði á fjölmörgum sviðum. 20.6.2007 12:00
Velferðarsvið segist vinna markvisst að málefnum aldraðra Velferðarsvið Reykjavíkurborgar hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem lýst er, að fregnum af því að ekki hafi verið brugðist við hjálparbeiðni vegna aldraðra hjóna fyrr en sex dögum eftir að beiðnin var upphaflega lögð fram, sé tekið alvarlega. Velferðarsvið leggi metnað sinn í að veita öldruðum jafnt og öðrum borgarbúum góða þjónustu. 20.6.2007 11:51
Kornabarn finnst skammt frá heimili barnshafandi konu sem er saknað Nýfætt stúlkubarn fannst á tröppum við hús í aðeins 70 km fjarlægð frá heimili barnshafandi konu sem hefur verið saknað síðan síðastliðinn miðvikudag í Ohio. Læknar staðfesta að barnið hafi fæðst innan við 24 tímum áður en það fannst og hafði naflastrengurinn ekki verið fjarlægður. 20.6.2007 11:41
ESA leitar að sjálfboðaliðum í sýndargeimferð Evrópska geimferðastofnunin er að leita að sjálfboðaliðum til þess að taka þátt í sýndarferð til Mars. Í tilrauninni munu sex manns eyða 17 mánuðum lokuð inni í stórum einangrunarklefa. 20.6.2007 11:35
Ákærðar fyrir manndráp Tveimur hjúkrunarfræðingum, á Minningarsjúkrahúsinu í New Orleans hefur verið boðið friðhelgi gegn því að vitna fyrir sérstökum kviðdómi. Konurnar voru taldar bera ábyrgð á láti fjögurra sjúklinga sem voru lagðir inn eftir fellibylinn Katrínu, 20.6.2007 11:34
Norrænir ráðherrar leggja á ráðin um varnir gegn kynferðisglæpamönnum á Netinu Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra hitti norræna kollega sína í Koli í Finnlandi í dag. Málefni tengd vernd barna og efni refsireglna í því skyni voru helsta umræðuefnið á fundinum. Sérstaklega var rætt um leiðir til að hindra, að netið sé notað til að lokka börn til kynferðislegs sambands og hvernig unnt sé að bregðast við hættum af þessum toga með refsireglum. 20.6.2007 11:17
Aftur dæmdur í lífstíðarfangelsi James Kopp, 52 ára bandaríkjamaður hefur verið dæmdur í annað lífstíðarangelsi. Kopp var upprunalega dæmdur fyrir að myrða fóstureyðingalæknirinn Barnett Sepian með skytturiffli árið 1998. Nú hefur alríkisdómstóll dæmt hann aftur í lífstíðarfangelsi, fyrir sama glæp en á öðrum forsendum. 20.6.2007 10:52
Alvarlega slasaður eftir vélhjólaslys í Vestmannaeyjum Ökumaður vélhjóls liggur alvarlega slasaður á gjörgæsludeild eftir að hann féll af hjóli sínu á Höfðavegi í Vestmannaeyjum laust fyrir miðnætti. Að sögn lögreglunnar í Vestmannaeyjum var maðurinn, sem er á þrítugsaldri, aftastur hópi vélhjólamanna sem voru á leið frá Stórhöfða. 20.6.2007 10:43
Stjórnvöld setja stéttarfélögum úrslitakost Yfirvöld í Suður-Afríku hafa sett opinberum starfsmönnum úrslitakost en þeir eru nú í verkfalli sem hefur enst í þrjár vikur. Stéttarfélög hafa til klukkan fjögur í dag að íslenskum tíma til þess að taka tilboði stjórnvalda. Tilboðið hljómar upp á 7,5 prósent launahækkun og hækkun á húsnæðisbótum. 20.6.2007 10:39
Bolvíkingar vilja skoða olíuhreinsunarstöðvar Bæjarráð Bolungarvíkur lýsti í gær yfir vonbrigðum með vinnubrögð við skipulagningu kynnisferðar til olíuhreinsunarstöðva í Hollandi og Þýskalandi. 20.6.2007 10:32
Fjármálastjóri Hvíta hússins segir af sér Rob Portman, fjármálastjóri Hvíta hússins, hefur sagt af sér og hefur Bush Bandaríkjaforseti skipað Jim Nussle, fyrrum þingmann Iowa, í hans stað. 19.6.2007 22:08
Þjóðarátak gegn vændi Þjóðarátak þarf gegn vændi og mansali á Íslandi, bæði af hálfu stjórnvalda og almennings. Þetta er skoðun Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur, þingmanns og borgarfulltrúa, sem raunar lét af því embætti í dag. 19.6.2007 20:06
Nýtt fjögurra stjörnu hótel í miðborg Reykjavíkur Nýtt fjögurra stjörnu hótel mun rísa í Lækjargötu í miðborg Reykjavíkur þar sem Iðnaðarbankinn var áður til húsa. Samningur um byggingu hótelsins var undirritaður á þaki hússins í dag. 19.6.2007 19:48
Ráðherra íhugar lög um kynjakvóta Konur reikna með að konur sætti sig við lægri laun en karlar og konur bjóða körlum hærri laun en konum. Þetta er meðal þess sem viðamikil rannsókn á launamun kynjanna leiðir í ljós. 19.6.2007 19:43
Ráðstefna um ábyrga fiskveiðistjórnun Sendiráð Íslands í London stóð í samvinnu við Landssamband íslenskra útvegsmanna fyrir ráðstefnu um ábyrga fiskveiðistjórnun. Ráðstefnan fór fram í byrjun júní. Markmið hennar var að kynna íslenska fiskveiðistjórnunarkerfið og ástand fiskistofna við Íslandsstrendur fyrir breskum innflytjendum og seljendum íslenskra sjávarafurða. 19.6.2007 19:29
Jarðgöng undir Óshlíð boðin út Vegagerðin hefur hafið útboðsferli Óshlíðarganga en stefnt er að því að umferð verði hleypt á þau eftir þrjú ár. 19.6.2007 19:16