Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hafa áhyggjur af aukinni miðstýringu í Rússlandi Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði í dag að Bandaríkin hefðu áhyggjur af aukinni miðstýringu í Rússlandi. Rice fer í opinbera heimsókn til Moskvu í næstu viku. 10.5.2007 21:16
Forseti Tyrklands verður kosinn í þjóðaratkvæðagreiðslu Tyrkneska þingið samþykkti í dag breytingar á stjórnarskrá landsins í þá átt að forsetinn verði kosinn í þjóðaratkvæðagreiðslu. Hingað til hefur þingið kosið forsetann. 10.5.2007 20:57
Fiskistofa rannsakar játningar um svindl Fiskistofustjóri mun rannsaka mál fyrrverandi útgerðarmanns sem játaði í gær á netinu stórfellt kvótasvindl. Maðurinn hélt því fram að sambærilegt svindl hefði verið stundað um allt land. Landssamband útgerðarmanna telur ótækt að stimpla alla útgerðarmenn sem glæpamenn. 10.5.2007 19:41
Fyrrverandi ríkisskattstjóri gefur ríkisstjórn falleinkunn Indriði H Þorláksson, fyrrverandi ríkisskattsstjóri segir óumdeilt að skattar einstaklinga hafa hækkað á síðustu tveimur áratugum og skattbyrði aukist. Hann segir að boðaðar skattalækkanir á síðustu árum hafi ekki skilað sér og varar við gylliboðum um frekari lækkanir í kosningabaráttunni. 10.5.2007 19:34
Fulltrúar Yahoo funduðu með forsætisráðherra Fimm manna sendinefnd á vegum netfyrirtækisins Yahoo er stödd hér á landi til að kanna möguleika á því að fyrirtækið setji upp netþjónabú á Íslandi. Þeir áttu fund með forsætisráðherra í morgun. 10.5.2007 19:32
Slegist á sinfóníutónleikum Gestir á sinfóníuhljómleikum í tónleikahöllinni í Boston í Bandaríkjunum í gær fengu meira fyrir peninginn þegar til handalögmála kom milli tveggja áhorfenda. 10.5.2007 19:30
Eiríkur rokkaði í Helsinki Eiríkur Hauksson og föruneyti luku rétt í þessu við flutning á framlagi Íslendinga til Eurovision þetta árið, „Valentine Lost“ við góðar undirtektir. Norskir áhorfendur tóku vel undir með Eiríki enda hefur hann búið í Noregi í fjölda ára. Atkvæðagreiðsla verður síðar í kvöld. Eiríkur hefur sjálfur sagt að hann telji að það séu helmingslíkur á því að við komumst í lokakeppnina. Keppnin er haldin í Helsinki í Finnlandi þetta árið. 10.5.2007 19:29
Dómur yfir Jónasi sá þyngsti sinnar tegundar Hæstiréttur Íslands dæmdi í dag Jónas Garðarsson, fyrrverandi formann Sjómannafélags Reykjavíkur, í þriggja ára fangelsi fyrir manndráp af gáleysi. Dómurinn er sá þyngsti sinnar tegundar. 10.5.2007 19:16
410 ökumenn teknir á Hringbraut á einum sólarhring 410 ökumenn eiga nú sekt yfir höfði sér fyrir að virða ekki 60 km leyfilegan hámarkshraða á Hringbraut í Reykjavík í gær og í dag eða á einum sólarhring. Brot þeirra náðust á löggæslumyndavél en hinir brotlegu óku að jafnaði á tæplega 75 km hraða. 10.5.2007 19:02
Heimild til hönnunar verknámshúss fengin Á fundi skólanefndar Fjölbrautaskóla Suðurlands sem haldinn var 9. maí var lögð fram heimild Menntamálaráðuneytisins um að hafist verði handa við hönnun viðbyggingar við verknámshúsið Hamar. Viðbygging við verknámshúsið hefur verið lengi í undirbúningi enda ljóst að með henni verður hægt að efla og bæta enn frekar verk- og starfsnám við Fjölbrautaskólann. 10.5.2007 18:55
Tony Blair hættir í júní Tony Blair, forsætsiráðherra Bretlands, tilkynnti í dag að hann ætlaði að hætta sem leiðtogi Verkamannaflokksins. Hann mun afhenda Elísabetu Englandsdrottningu afsögn sína úr embætti forsætisráðherra í lok næsta mánaðar. Afsögnin kemur ekki á óvart því fyrir síðustu kosningar tilkynni Blair að þær yrðu hans síðustu og í september á síðasta ári kvaðst hann svo myndu segja af sér innan árs eftir mikinn þrýsting frá samflokksmönnum sínum. Slæm útkoma Verkamannaflokksins í sveitarstjórnarkosningunum í síðustu viku hafði sitt að segja um að Blair ákvað að taka af skarið nú. Það var viðeigandi hjá forsætisráðherranum að greina frá ákvörðuninni á fundi með fylgismönnum í kjördæmi sínu Sedgefield í morgun. Þar tilkynnti Blair að hann ætlaði að víkja sem formaður og þá yrði Verkamannaflokkurinn að verlja nýjan leiðtoga. Hann ætlaði svo að afhenda Elísabetu Englandsdrottningu afsögn sína úr embætti forsætisráðherra 27. júní næstkomandi. Blair sagði að sér þætti það nægilega langur tími að vera forsætisráðherra í 10 ár og þjóðinni þætti það án efa líka. Blair sagði það stundum eina leið til að forðast höfga valdsins að láta það frá sér. Blair sagði að nú yrði margt rætt og ritað um valdatíð sína en það væri almennings að meta árangurinn. Hann ræddi ýmsar umdeildar ákvarðanir í stjórnartíð sinni, meðal annars stuðning við innrásina í Írak. Þegar tekið sé við stjórnartaumum sagði hann oft þörf á að taka erfiðar ákvarðanir. Hann sagðist þó sverja að hann hefði gert það sem hann taldi rétt. Það gæti reynst rangt, það sé þjóðarinnar að meta. En eitt yrðu kjósendur að trúa umfram annað, hann hafi gert það sem hann taldi rétt fyrir þjóðina. Blair fæddist Edinborg í Skotlandi 6. maí 1953 og varð því 54 ára á sunnudaginn. Hann lauk lögfræðiprófi frá St. John´s í Oxford. Hann var kosinn á þing árið 1983 og eftir það varð frami hans innan flokksins skjótur og varð hann fljótt áberandi talsmaður í ýmsum málum. Í kosningunum 1992, þegar Neil Kinnock var formaður, var Blair þegar byrjaður að skipuleggja andlistbreytingu Verkamannaflokksins sem síðar varð. Árið 1994 féll þáverandi leiðtogi flokksins, John Smith, skyndilega frá, og stóð valið um næsta leiðtoga milli Blairs og Gordons Brown. Sagan segir að Blair og Brown hafi samið um að Blair tæki við embættinu en Brown yrði síðan leiðtogi einhverju síðar. Þeir hafa þó báðir þráfadlega neitað þessum orðrómi. Saman leiddu þeir síðan flokkinn til stórsigurs í þingkosningum fyrir tíu árum. Ekki var það síst að þakka að þeim Blair og Brown tókst að sannfæra breska kjósendur um að Verkamannflokkinum væri treystandi í efnahagsmálum, en það hafi þótt vafamál að mati margra kjósenda í fyrri kosningum. Tony Blair eru þaulsætnasti leiðtogi Verkamannaflokksins og eini leiðtogi hans sem hefur leitt flokkinn til sigurs í þrennum kosningum. Blair hefur bæðið verið gagnrýndur og honum þakkað fyrir að færa Verkamannaflokkinn að miðju breskra stjórnmála. Í ræðu sinni í dag hvatti Blair kjósendur til að líta um öxl aftur til annars maí 1997 og bera saman hag sinn þá og nú. Hann sagði aðeins einni ríkisstjórn frá árinu 1945 hafa tekist að skapa fleiri störf, fækka atvinnulausum jafn markvisst, auka heilbrigðisþjónustu og bæta menntun jafn mikið og draga úr glæpum. Auk þess hafi verið hagvöxtur á hverjum ársfjórðungi. Þessu geti ríkisstjórnin sem sitji nú státað sér af. Stjórnmálaskýrendur segja arfleifð Blairs þá að hann hafi gert Verkamannaflokkinn trúverðugan í augum kjósenda og leitt hann til sigurs í þrennum kosningum. Nær samfellt hagvaxtarskeið hafi verið í Bretlandi síðan 1997, talsvert meiri en í hinum gömlu ESB-ríkjunum. Einnig verði samkomlag á Norður-Írlandi hluti arfleifðar hans og innránsin í Írak og afleiðingar hennar. John Prescott, aðstoðarforsætisráðherra tilkynnti líka um afsögn sína. Nú fer í gang leitin af arftaka Blairs. Einsýnt þykir að Gordon Brown, fjármálaráðherra, verði valinn. Hann á þó við ramman reip að draga því kannanir benda til að David Cameron, nýr leiðtogi Íhaldsmanna, sé mun vinsælli. 10.5.2007 18:30
Stöðvaður með smygl á leið frá Grundartanga Lögreglan á Akranesi rannsakar nú smyglmál en hún stöðvaði um hádegisbilið í dag bifreið sem var að koma frá Grundartangahöfn. Eftir því sem segir á vef Skessuhorns reyndust sex kassar af bjór í bílnum, 21 karton af sígarettum og 5 lítrar af sterku áfengi sem lögregla lagði hald á. 10.5.2007 17:08
Landspítala óheimilt að segja Salmann upp Hæstiréttur sneri í dag dómi Héraðsdómur Reykjavíkur í máli Salmanns Tamimi, formanns Félags múslíma á Ísland, á hendur Landspítalanum vegna uppsagnar í starfi á upplýsingatæknisviði spítalans. Komst dómurinn að því að spítalanum hefði verið óheimilt að segja honum upp á þeim grundvelli sem gert var. 10.5.2007 17:00
Portúgal: Meiriháttar upplýsingar í rannsókn tilkynntar Sýnt verður beint frá blaðamannafundi Lögreglunnar í Portúgal klukkan 17.30 að íslenskum tíma á visir.is. Búist er við að upplýst verði um meiriháttar umskipti í rannsókn lögreglunnar á hvarfi Madeleine McCann. Stúlkan var numin á brott af hótelherbergi sínu fyrir viku og hefur leit staðið yfir síðan. Fundurinn fer fyrst fram á portúgölsku og síðan ensku. 10.5.2007 16:44
Vilja stofna Flugminjasafn Íslands Full ástæða er til að halda utan um flugsögu Íslands meðal annars með því að koma á fót Flugminjasafni Íslands að mati Flugminjanefndar menntamálaráðherra. Nefndin skilaði frá sér tillögum í dag. 10.5.2007 16:44
Sögurlegur fundur Ísraela og Araba Ísraelskur utanríkisráðherra átti í dag fund með arabiskum ráðherrum sem hafa umboð frá Arababandalaginu. Það er í fyrsta skipti síðan slíkt gerist frá stofnun Ísraelsríkis árið 1948. Utanríkisráðherrar Egyptalands og Jórdaníu funduðu í Kaíró í dag með Tzipi Livni, utanríkisráðherra Ísraels. 10.5.2007 16:42
Munnmök gætu verið krabbameinsvaldandi Bandarískir vísindamenn staðhæfa að vírus sem smitast getur með munnmökum geti orsakað ákveðna tegund krabbameins í hálsi. Rannsakendur við John Hopkins Háskólann segja að HPV vírusinn sé jafnvel stærri áhættuþáttur en neysla tóbaks og áfengis. 10.5.2007 16:32
Litháar dæmdir í sjö ára fangelsi fyrir stórfellt smygl Tveir Litháar, Sarunas Budvytis og Virunas Kavalciukas, voru í Hæstarétti í dag dæmdir í sjö ára fangelsi fyrir að reyna að smygla nærri tólf kílóum af amfetamíni til landsins. 10.5.2007 16:20
Spurningamerki við Gordon Brown Þrátt fyrir að Gordon Brown hafi verið fjármálaráðherra í tíu ár, er hann óskrifað blað sem forsætisráðherra segir í leiðara Sunday Times í London. Fjölmiðlar ytra eru flestir á sömu skoðun og telja að næstu vikur muni leiða í ljós hvaða stefnu Gordon muni taka í málefnum Bretlands, sérstaklega vegna tengsla við Bandaríkin, en afstaða hans hefur verið afar óljós í gegnum fjármálaráðherra tíð hans. 10.5.2007 16:14
Hæstiréttur staðfesti dóm héraðsdóms yfir Jónasi Hæstiréttur staðfesti í dag þriggja ára fangelsisdóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir Jónasi Garðarssyni, fyrrverandi formanni Sjómannafélags Reykjavíkur, fyrir manndráp af gáleysi. 10.5.2007 16:03
Vinna gegn vaxandi manneklu meðal sjúkraliða Endurskoða þarf starfs- og ábyrgðarsvið sjúkraliða og menntun eigi að vera mögulegt að vinna gegn vaxandi manneklu í stéttinni. Þetta var niðurstaða fyrsta fundar starfsnefndar sem leita á leiða til að fjölga sjúkraliðum og hjúkrunarfræðingum. Yfirhjúkrunarfræðingur hjá Landlæknisembættinu segir einnig nauðsynlegt að endurskoða launamál þessara stétta. 10.5.2007 16:02
Fangi vinnur virt fréttamannaverðlaun Alan Johnston fréttaritari BBC sem rænt var á Gasaströnd í marsmánuði hefur unnið fréttamannaverðlaun á hinni virtu London Press Club hátíð. Verðlaunin fær hann fyrir fréttaflutning af Gasa svæðinu en hann þykir hafa varpað ljósi á hvernig ástandið hefur áhrif á venjulega Palestínumenn. Ekki hefur spurst til Alans síðan honum var rænt 12. mars síðastliðinn. 10.5.2007 15:44
Danskar ástir Tuttugu og sex ára gamall Dani var dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir að lauma sér undir sængina hjá kærustu besta vinar síns og eiga við hana mök. Án þess að hún uppgötvaði að það var ekki kærastinn sem hún var að gamna sér með. 10.5.2007 15:40
Máli vegna ólöglegra hreindýraveiða vísað frá dómi Héraðsdómur Austurlands vísaði í dag frá dómi ákæru á hendur tveimur karlmönnum sem var gert að hafa fellt tvö hreindýr án tilskilinna veiði - og skotvopnaleyfa. Mönnunum var einnig gert að hafa í blekkingarskyni notað merki hreindýraráðs með ólögmætum hætti. 10.5.2007 15:39
Eiríkur kominn í heiminn í Húsdýragarðinum Sauðburður er hafinn í Húsdýragarðinum í Reykjavík. Það var ærin Botna sem fyrst bar þar á bæ þetta árið en það var um hádegisbil í dag. Botna, sem er svartbotnótt, bar tveimur lömbum, hrúti og gimbur og eru þau því lambadrottning og lambakóngur, en svo eru fyrstu lömbin jafnan kölluð. 10.5.2007 15:31
Enga víbratora hér Fjarstýrðir víbratorar hafa verið bannaðir á Kýpur. Breska fyrirtækið Anne Summers framleiðir þessi og önnur hjálpartæki ástarlífsins. Fyrirtækið hefur beðið kýpverska viðskiptavini sína afsökunar á því að þeir fá ekki að njóta þessarar tækninýjungar. 10.5.2007 14:38
Fimmtán listamenn fá styrk frá Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar Alls fá fimmtán íslenskir listamenn styrk frá Kynningarmiðstöð íslenskra myndlistar í ár en styrkjunum var úhlutað í dag. Styrkjunum er fyrst og fremst ætlað að hjálpa listamönnunum vegna verkefna erlendis. 10.5.2007 14:30
Versta lagið fer í úrslit Eurovision Eiríkur Hauksson stígur á svið í Helsinki í kvöld og flytur framlag Íslands Valentine Lost í undankeppni Eurovision. „Í fyrsta sinn er ég með lag sem mig langar virkilega að kynna fyrir Evrópu," segir hann. "Þegar ég fór í Gleðibankann var ég bara ráðinn í starfið." Íslenska lagið er best, en að mati Eiríks fer versta lagið, framlag Úkraínu, beint í úrslit . 10.5.2007 14:20
Börn í Írak deyja eins og flugur Engar hömlur eru á barnadauða í Írak. Eitt af hverjum átta börnum sem þar fæðast lifir ekki til fimm ára aldurs. Barnadauði í landinu hefur aukist um 150 prósent síðan árið 1990. Það er langtum meiri aukning en í nokkru öðru landi. Níu af hverjum tíu börnum sem deyja fyrir fimm ára aldur fæðast í 60 fátækustu löndum heimsins. 10.5.2007 14:17
Danir elska stóra bróður Níu af hverjum tíu Dönum eru hlynntir nýjum lögum sem heimila yfirvöldum að fjölga eftirlitsmyndavélum á göngugötum og torgum. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem gerð var þar í landi. Meirihluti er fyrir þessum lögum á danska þinginu og er búist við að þau verði samþykkt áður en þingið fer í sumarfrí. 10.5.2007 13:52
Ríkið minnkar skattbyrði hátekjufólks á kostnað láglaunafólks Tekjuskattur láglaunafólks hefur aukist á síðastliðnum tólf árum um 5 prósent en lækkað um allt 15 prósent á hjá hálaunafólki. Þetta kemur fram í grein Indriða H. Þorlákssonar, hagfræðings. Hann segir aukna skattbyrði láglaunafólks hafa leitt til lækkunar á ráðstöfunartekjum sama hóps um allt að 20 prósent. 10.5.2007 13:51
Fjölmennt á fundi um uppbyggingu eftir bruna Fjölmenni mætti í Listasafni Íslands í gær þar sem ræddar voru hugmyndir um uppbyggingu á horni Austurstrætis og Lækjargötu. Borgarstjóri lagði áherslu á að götumyndin fyrir brunann yrði varðveitt. Yfirskrift fundarins var hvernig bætum við brunann. 10.5.2007 13:00
Tveir karlar og kona grunuð um aðild að hvarfi Madeleine Portúgalska lögreglan hefur þrjár manneskjur grunaðar um að vera valdar að hvarfi Madeleine McCann í Portúgal fyrir viku síðan. Samkvæmt fréttastofu Sky er lögreglan að kanna aðild tveggja manna og konu, sem sáust með telpu sem svipar til Madeleine, að málinu. 10.5.2007 12:58
Netsamband víða óviðunandi í dreifbýli Aðgangur að netsambandi enn víða óviðunandi í dreifbýli. Ferðaþjónustubóndi í Þingeyjarsýslu segir ástandið eins og að búa í torfkofa en Síminn segir unnið að aukinni þjónustu. 10.5.2007 12:45
Íslendingar kjósa að flytja til Danmerkur Alls hafa 7.300 fleiri Íslendingar flutt frá landinu en til þess á síðustu tuttugu árum samkvæmt samantekt fjármálaráðuneytisins á búferlaflutningum íslenskra ríkisborgara. Á sama tíma hafa rúmlega 20 þúsund fleiri útlendingar flutt til landsins en frá því. Brottfluttir Íslendingar kjósa helst að búa í Danmörku. 10.5.2007 12:44
Ríkisstjórnin heldur naumlega velli samkvæmt könnun Capacent Samfylkingin og Vinstri græn bæta við sig fylgi samkvæmt nýrri könnun Capacent Gallup fyrir Morgunblaðið og Ríkisútvarpið. Fylgi Framsóknarflokksins minnkar hins vegar og sömuleiðis Íslandshreyfingarinnar. Ríkisstjórnin heldur naumlega velli samkvæmt könnuninni. 10.5.2007 12:39
Hafna beiðni Guðmundar um að stofna lögbýli í frístundabyggð Hreppsnefnd Grímsnes- og Grafningshrepps hafnaði í síðust viku beiðni Guðmundar í Byrginu um að fá að stofna lögbýli á lóðum sínum í hreppnum. Svæðið er nú frístundabyggð og samanstendur af sex frístundahúsalóðum. 10.5.2007 12:30
Yahoo kannar möguleika á netþjónabúi á Íslandi Netfyrirtækið Yahoo kannar möguleika á því að reisa netþjónabú á Íslandi. Fulltrúar fyrirtækisins eru staddir hér á landi og funduðu í morgun með Geir H. Haarde, forsætisráðherra, og Guðlaugi Þór Þórðarsyni, stjórnarformanni Orkuveitunnar. 10.5.2007 12:11
Kaffibandalagið gæti myndað ríkisstjórn Kaffibandalagið gæti myndað næstu ríkisstjórn ef marka má könnun Stöðvar tvö sem birt var í gær. Samkvæmt henni er ríkisstjórnin fallin. 10.5.2007 12:00
Landgræðslufélag Biskupstungna fékk hæsta styrkinn úr Pokasjóði Landgræðslufélag Biskupstungna fékk hæsta styrkinn úr Pokasjóði verslunarinnar en úthlutað var úr sjóðnum í dag. Nemur styrkurinn 7,5 milljón krónum og fer í verkefni í tengslum við gróðurræktun á Haukadalsheiði. Alls var úthlutað rúmlega 100 milljónum úr Pokasjóði til 122 verkefna. 10.5.2007 12:00
Á 153 km hraða á Gullinbrú Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í gærkvöldi karlmann á tvítugsaldri fyrir ofsaakstur á Gullinbrú í Grafarvogi. Bíll hans mældist á 153 kílómetra hraða en þar hámarkshraði 60 kílómetrar. Maðurinn var færður á lögreglustöð til yfirheyrslu og sviptur ökuréttindum. 10.5.2007 11:51
Allir nema sjálfstæðismenn vilja Norðlingaölduveitu úr sögunni Allir stjórnmálaflokkarnir nema Sjálfstæðisflokkurinn hafa lýst yfir stuðningi við stækkun friðlands Þjórsárvera þannig að Norðlingaölduveita verði þar með úr sögunni. Þetta segja Náttúruverndarsamtök Íslands í tilkynningu fyrir fjölmiðla. 10.5.2007 11:49
Dýrt að kjósa í Júróvisjón Langsamlega dýrast er að kjósa í símakosningu Eurovision söngvakeppninnar á Íslandi og munar 44 krónum á Íslandi og næstdýrasta landinu, sem er Pólland. Íslendingar þurfa að greiða 99,9 krónur fyrir símtalið, en Danir verða hins vegar aðeins rukkaðir um þrjár krónur. 10.5.2007 11:11
Norah Jones til Íslands í haust Norah Jones heldur tónleika í Laugardalshöll 2. september nk. Um þessar mundir stendur Norah í ströngu við að fylgja eftir þriðju breiðskífu sinni, Not too late, sem kom út sl. janúar. Það er FL Group sem gerir tónleika Noruh Jones mögulega og stendur fyrir tónleikunum í samvinnu við Hr. Örlyg, segir í tilkynningu frá tónleikahöldurunum. 10.5.2007 11:06
Jón Baldvin Hannibalsson tilbúinn að taka við ráðherraembætti Jón Baldvin Hannibalsson segist gefa kost á sér sem ráðherra í ríkisstjórn verði til hans leitað. Þetta kom fram í máli Jóns á fundi Samfylkingarinnar á Akureyri í gær. 10.5.2007 11:06