Fleiri fréttir Erdogan vill boða til kosninga Forsætisráðherra Tyrklands hefur farið þess á leit við þing landsins að boðað verði til kosninga fyrr en áætlað er. Hann vill einnig breyta stjórnarskrá Tyrklands þannig að forseti verði valinn af almenningi með beinni kosningu en ekki af þingi. 2.5.2007 12:39 Bush beitti neitunarvaldi gegn þinginu Bush Bandaríkjaforseti beitti í nótt neitunarvaldi gegn frumvarpi Bandaríkjaþings sem hefði bundið aukafjárveitingu til stríðsreksturs Bandaríkjamanna í Írak og Afganistan við brottför hermanna frá Írak. Forsetinn sagði það mikil mistök að dagsetja brotthvarf hermanna, það yrði vatn á myllu andspyrnumanna í Írak. 2.5.2007 12:34 Mikið af þorski við Þorlákshöfn Netabáturinn Hvanney frá Hornafirði er búinn að fá yfir 300 tonn af stórum þorski á aðeins sex dögum rétt utan við höfnina i Þorlákshöfn. Það þykir afburða góður afli. Til samanburðar jafngildir þessi afli fullfermi tveggja til þriggja meðal stórra ísfisktogara. 2.5.2007 12:27 Áhyggjur af hlutdrægni spyrla RUV Margrét Sverrisdóttir frambjóðandi Íslandshreyfingarinnar til Alþingis hefur áhyggjur af því sem hún kallar einsleitan hóp spyrla á Ríkissjónvarpinu. Hún segir þá flesta eiga sér fortíð í samtökum hægrimanna sem tengjast Sjálfstæðisflokknum. 2.5.2007 12:20 Dregið úr reykingum um helming síðustu 12 ár Hlutfall nemenda í 10. bekk sem reykja daglega hér á landi hefur lækkað um nær helming á 12 árum. Þá hefur dregið verulega úr drykkju þeirra á sama tímabili. Þetta eru niðurstöður úr nýrri ESPAD rannsókn sem kynntar voru í dag. 2.5.2007 12:02 Viðskiptamöguleikar við Sameinuðu þjóðirnar Viðskiptamöguleikar íslenskra fyrirtækja við Sameinuðu þjóðirnar er efni fræðslufundar á vegum Útflutningsráðs og viðskiptaþjónustu utanríkisráðuneytisins. Fundurinn verður haldinn í fyrramálið á Hótel sögu. Niels Ramm sérfræðingur í upplýsingaöflun á vegum Sameinuðu þjóðanna er einn fyrirlesara. 2.5.2007 11:58 Fagna kosningum í Tyrklandi Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins fagnaði í dag tillögu stjórnarflokksins í Tyrklandi um að boða til kosninga til þess að létta á spennu í þjóðfélaginu. Mikil spenna hefur myndast á milli stjórnarliða, sem eru margir múslimar og þeirra sem eru í stjórnarandstöðu og vilja skilja á milli trúar og ríkis. 2.5.2007 11:55 Dómur verður kveðinn upp í Baugsmálinu á morgun Dómur verður kveðinn upp í Baugsmálinu klukkan tólf á morgun. Þá kemur í ljós hvort sakborningarnir þrír, þeir Jón Ásgeir Jóhannesson, Tryggvi Jónsson og Jón Gerald Sullenberger, verða sakfelldir fyrir einhvern þeirra nítján ákæruliða sem nú eru teknir fyrir. 2.5.2007 11:55 Kviknakin og drukkin undir stýri Þýskur bensínafgreiðslumaður hringdi á lögreglu eftir að nakin kona keyrði upp að bensíndælu og bað hann um að fyll´ann. Konan hafði keyrt að dælunni með miklum látum. Hún lá á flautunni og blikkaði ljósunum til að ná athygli Jan Matthausen bensínafgreiðslumanns frá Chemnitz. 2.5.2007 11:29 Bjarni sakar Sigurjón um ósannindi Bjarni Benediktsson, formaður allsherjarnefndar Alþingis, sakar Sigurjón Þórðarson, þingmann Frjálslynda flokksins, um að fara með ósannindi. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Bjarni sendi frá sér í morgun. Hann segir ummæli Sigurjóns um að hann hafi neitað að afhenda gögn vegna umsóknar um ríkisborgararétt hreinan uppspuna. Sigurjón vísar þessu á bug. Von er gögnum vegna þeirra erinda sem allsherjarnefnd hefur afgreitt á kjörtímabilinu síðar í dag. 2.5.2007 11:26 Búrka-stríð í Danmörku Danski þjóðarflokkurinn er æfur yfir því að opinbert fé skuli notað til þess að borga dagmömmu sem klæðist búrka. Búrka er klæðnaður múslimakvenna, sem hylur þær frá toppi til táar, og einnig andlitið. Talsmaður þjóðarflokksins segir það engu máli skipta að fjölskyldan sem réði dagmömmuna er islamstrúar. 2.5.2007 11:23 Gunnlaugur skipaður aðstoðaryfirlögregluþjónn Gunnlaugur K. Jónsson hefur verið skipaður aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Frá áramótum hefur hann verið annar tveggja starfsmanna innri endurskoðunar embættisins. Gunnlaugur hóf störf hjá lögreglunni í Reykjavík árið 1977. Hann útskrifaðist úr Lögregluskólanum árið 1979 og starfaði í almennri deild og umferðardeild. 2.5.2007 11:06 Þrír 13 ára gripnir við innbrot Þrír 13 ára piltar voru staðnir að verki við að gera tilraun til innbrots í áhaldageymslu Hitaveitu Suðurnesja í Reykjanesbæ í gærkvöldi. Lögreglunni barst tilkynning um málið rétt fyrir klukkan tíu og fór þegar á staðinn. Drengirnir voru færðir á lögreglustöðina við Hringbraut. Foreldrar piltanna sóttu þá þangað eftir yfirheyrslu. 2.5.2007 10:58 Evrópusambandið sendir nefnd til Moskvu Evrópusambandið ætlar sér að senda sendinefnd til Moskvu til þess að ræða ástandið í málefnum Eistlands og Rússlands. Mikil mótmæli hafa verið fyrir utan eistneska sendiráðið í Moskvu undanfarna daga vegna minnismerkis sem Eistar ætla sér færa. 2.5.2007 10:51 Alþjóðastríðsglæpadómstólinn ákærir vegna Darfúr-héraðs Alþjóðastríðsglæpadómstóllinn í Haag hefur gefið út handtökuskipanir á hendur tveimur mönnum sem sakaðir hafa verið um stríðsglæpi í Darfúr-héraði Súdan. Mennirnir tveir eru Ahmed Haroun, fyrrum innanríkisráðherra Súdan þegar átökin stóðu sem hæst, og herforingi vígamanna, Ali Muhammad Ali Abd-al-Rahman, einnig þekktur sem Ali Kushayb. Súdanir hafa þegar neitað að láta mennina tvo af hendi. 2.5.2007 10:39 Óvenjumikið af sílamávi við tjörnina Óvenjumikið er af sílamávi við tjörnina um þessar mundir. Þetta segir meindýraeyðir í samtali við fréttastofu Vísis. Hann segir hundruðir sílamáva á tjörninni. Það sé meira en verið hefur. Flestir borgarbúar vilja að borgin stemmi stigu við ágangi sílamáva á útivistarsvæðum. 2.5.2007 10:24 Sendum Harry eyrnalausan heim til ömmu 2.5.2007 10:22
Sjá næstu 50 fréttir
Erdogan vill boða til kosninga Forsætisráðherra Tyrklands hefur farið þess á leit við þing landsins að boðað verði til kosninga fyrr en áætlað er. Hann vill einnig breyta stjórnarskrá Tyrklands þannig að forseti verði valinn af almenningi með beinni kosningu en ekki af þingi. 2.5.2007 12:39
Bush beitti neitunarvaldi gegn þinginu Bush Bandaríkjaforseti beitti í nótt neitunarvaldi gegn frumvarpi Bandaríkjaþings sem hefði bundið aukafjárveitingu til stríðsreksturs Bandaríkjamanna í Írak og Afganistan við brottför hermanna frá Írak. Forsetinn sagði það mikil mistök að dagsetja brotthvarf hermanna, það yrði vatn á myllu andspyrnumanna í Írak. 2.5.2007 12:34
Mikið af þorski við Þorlákshöfn Netabáturinn Hvanney frá Hornafirði er búinn að fá yfir 300 tonn af stórum þorski á aðeins sex dögum rétt utan við höfnina i Þorlákshöfn. Það þykir afburða góður afli. Til samanburðar jafngildir þessi afli fullfermi tveggja til þriggja meðal stórra ísfisktogara. 2.5.2007 12:27
Áhyggjur af hlutdrægni spyrla RUV Margrét Sverrisdóttir frambjóðandi Íslandshreyfingarinnar til Alþingis hefur áhyggjur af því sem hún kallar einsleitan hóp spyrla á Ríkissjónvarpinu. Hún segir þá flesta eiga sér fortíð í samtökum hægrimanna sem tengjast Sjálfstæðisflokknum. 2.5.2007 12:20
Dregið úr reykingum um helming síðustu 12 ár Hlutfall nemenda í 10. bekk sem reykja daglega hér á landi hefur lækkað um nær helming á 12 árum. Þá hefur dregið verulega úr drykkju þeirra á sama tímabili. Þetta eru niðurstöður úr nýrri ESPAD rannsókn sem kynntar voru í dag. 2.5.2007 12:02
Viðskiptamöguleikar við Sameinuðu þjóðirnar Viðskiptamöguleikar íslenskra fyrirtækja við Sameinuðu þjóðirnar er efni fræðslufundar á vegum Útflutningsráðs og viðskiptaþjónustu utanríkisráðuneytisins. Fundurinn verður haldinn í fyrramálið á Hótel sögu. Niels Ramm sérfræðingur í upplýsingaöflun á vegum Sameinuðu þjóðanna er einn fyrirlesara. 2.5.2007 11:58
Fagna kosningum í Tyrklandi Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins fagnaði í dag tillögu stjórnarflokksins í Tyrklandi um að boða til kosninga til þess að létta á spennu í þjóðfélaginu. Mikil spenna hefur myndast á milli stjórnarliða, sem eru margir múslimar og þeirra sem eru í stjórnarandstöðu og vilja skilja á milli trúar og ríkis. 2.5.2007 11:55
Dómur verður kveðinn upp í Baugsmálinu á morgun Dómur verður kveðinn upp í Baugsmálinu klukkan tólf á morgun. Þá kemur í ljós hvort sakborningarnir þrír, þeir Jón Ásgeir Jóhannesson, Tryggvi Jónsson og Jón Gerald Sullenberger, verða sakfelldir fyrir einhvern þeirra nítján ákæruliða sem nú eru teknir fyrir. 2.5.2007 11:55
Kviknakin og drukkin undir stýri Þýskur bensínafgreiðslumaður hringdi á lögreglu eftir að nakin kona keyrði upp að bensíndælu og bað hann um að fyll´ann. Konan hafði keyrt að dælunni með miklum látum. Hún lá á flautunni og blikkaði ljósunum til að ná athygli Jan Matthausen bensínafgreiðslumanns frá Chemnitz. 2.5.2007 11:29
Bjarni sakar Sigurjón um ósannindi Bjarni Benediktsson, formaður allsherjarnefndar Alþingis, sakar Sigurjón Þórðarson, þingmann Frjálslynda flokksins, um að fara með ósannindi. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Bjarni sendi frá sér í morgun. Hann segir ummæli Sigurjóns um að hann hafi neitað að afhenda gögn vegna umsóknar um ríkisborgararétt hreinan uppspuna. Sigurjón vísar þessu á bug. Von er gögnum vegna þeirra erinda sem allsherjarnefnd hefur afgreitt á kjörtímabilinu síðar í dag. 2.5.2007 11:26
Búrka-stríð í Danmörku Danski þjóðarflokkurinn er æfur yfir því að opinbert fé skuli notað til þess að borga dagmömmu sem klæðist búrka. Búrka er klæðnaður múslimakvenna, sem hylur þær frá toppi til táar, og einnig andlitið. Talsmaður þjóðarflokksins segir það engu máli skipta að fjölskyldan sem réði dagmömmuna er islamstrúar. 2.5.2007 11:23
Gunnlaugur skipaður aðstoðaryfirlögregluþjónn Gunnlaugur K. Jónsson hefur verið skipaður aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Frá áramótum hefur hann verið annar tveggja starfsmanna innri endurskoðunar embættisins. Gunnlaugur hóf störf hjá lögreglunni í Reykjavík árið 1977. Hann útskrifaðist úr Lögregluskólanum árið 1979 og starfaði í almennri deild og umferðardeild. 2.5.2007 11:06
Þrír 13 ára gripnir við innbrot Þrír 13 ára piltar voru staðnir að verki við að gera tilraun til innbrots í áhaldageymslu Hitaveitu Suðurnesja í Reykjanesbæ í gærkvöldi. Lögreglunni barst tilkynning um málið rétt fyrir klukkan tíu og fór þegar á staðinn. Drengirnir voru færðir á lögreglustöðina við Hringbraut. Foreldrar piltanna sóttu þá þangað eftir yfirheyrslu. 2.5.2007 10:58
Evrópusambandið sendir nefnd til Moskvu Evrópusambandið ætlar sér að senda sendinefnd til Moskvu til þess að ræða ástandið í málefnum Eistlands og Rússlands. Mikil mótmæli hafa verið fyrir utan eistneska sendiráðið í Moskvu undanfarna daga vegna minnismerkis sem Eistar ætla sér færa. 2.5.2007 10:51
Alþjóðastríðsglæpadómstólinn ákærir vegna Darfúr-héraðs Alþjóðastríðsglæpadómstóllinn í Haag hefur gefið út handtökuskipanir á hendur tveimur mönnum sem sakaðir hafa verið um stríðsglæpi í Darfúr-héraði Súdan. Mennirnir tveir eru Ahmed Haroun, fyrrum innanríkisráðherra Súdan þegar átökin stóðu sem hæst, og herforingi vígamanna, Ali Muhammad Ali Abd-al-Rahman, einnig þekktur sem Ali Kushayb. Súdanir hafa þegar neitað að láta mennina tvo af hendi. 2.5.2007 10:39
Óvenjumikið af sílamávi við tjörnina Óvenjumikið er af sílamávi við tjörnina um þessar mundir. Þetta segir meindýraeyðir í samtali við fréttastofu Vísis. Hann segir hundruðir sílamáva á tjörninni. Það sé meira en verið hefur. Flestir borgarbúar vilja að borgin stemmi stigu við ágangi sílamáva á útivistarsvæðum. 2.5.2007 10:24
Breyttur útivistartími barna og unglinga Útivistartími barna og unglinga tók breytingum í gær og framvegis mega 12 ára börn og yngri ekki vera úti lengur en til klukkan tíu á kvöldin. Unglingar á aldrinum 13 til 16 ára mega vera úti til klukkan tólf á miðnætti 2.5.2007 10:20
Flugfreyjur vilja ræða þjónustubreytingar við stjórn Icelandair Flugfreyjufélag Íslands hefur óskað eftir viðræðum við stjórn Icelandair eftir félagið ákvað að fækka flugfreyjum um borð í vélum á leið til Bandaríkjanna úr fimm í fjórar. Formaður Flugfreyjufélagsins segir viðbúið að draga muni úr óskilgreindri þjónustu um borð. Upplýsingafulltrúi Icelandair segir að farþegar muni ekki finna fyrir breytingunum. 2.5.2007 10:07
Erdogan fullvissar Evrópuþjóðir um að lýðræði verði virt í Tyrklandi Tayyip Erdogan, forsætisráðherra Tyrklands, fullvissaði aðildarþjóðir Evrópusambandsins í kvöld að ástandið í Tyrklandi myndi róast í kjölfar þess að stjórnlagadómstól úrskurðaði að skipan nýs forseta væri ógild. Mikil ólga hefur verið Tyrklandi og blossuðu upp óeirðir í Istanbúl í dag. 1.5.2007 20:41
Le Pen hvetur stuðningsmenn sína til að sniðganga forsetakosningarnar Jean-Marie Le Pen, leiðtogi Þjóðfylkingarinnar flokks franskra hægri öfgamanna, hvatti flokksmenn sína í dag til sniðganga seinni umferð frönsku forsetakosninganna. Le Pen hafnaði í fjórða sæti í fyrri umferðinni með 3,8 milljónir atkvæða. 1.5.2007 20:16
Styttri kjarasamningar vegna óvissu og ójafnvægis í efnhagslífinu Þensla og ójafnvægi í efnhagslífinu mun væntanlega valda því að samið verði til færri ára í komandi kjarasamningum en hingað til hefur þekkst. Þetta kom fram í máli Sigurðar Bessasonar, formanns Eflingar stéttarfélags, í hádegisviðtali á Stöð 2 í dag. Hann segir skuldir heimilanna hafa margfaldast á undanförnum árum vegna rangra ákvarðanna stjórnvalda. Rúmlegur þriðjungur félagsmanna í Eflingu stéttarfélags í dag er af erlendu bergi brotinn og hefur þeim fjölgað gríðarlega frá aldamótum. 1.5.2007 19:54
Hugsanlega boðað til kosninga Svo gæti farið að boðað yrði til þingkosninga í Tyrklandi á næstu dögum, en stjórnlagadómstóll þar í landi úrskurðaði í dag að atkvæðagreiðsla þingsins um skipan nýs forseta væri ógild. Loftið í Tyrklandi er lævi blandið vegna málsins og óeirðir blossuðu upp í Istanbúl í dag. 1.5.2007 19:15
Algengt að um 200 starfsmenn leiti til heilsugæslu Kárahnjúka Trúnaðarmaður verkalýðsfélaga á Kárahnjúkum segir ekki óalgengt að um tvö hundruð starfsmenn leiti til heilsugæslu í hverjum mánuði vegna allskyns kvilla. Hann segir fjölda þeirra sem veikjast ekki hafa aukist sérstaklega á milli mánuða. 1.5.2007 19:11
Vonast til að auglýsing eftir staðgöngumóður verði til hagsbóta Konan sem auglýsti eftir staðgöngumóður, segist gera það í kjölfar læknamistaka. Hún vonast til að umræðan um hennar mál leiði til lagabreytinga, öðrum til hagsbóta. 1.5.2007 19:09
Treystum velferðina og útrýmum fátækt , kjörorð dagsins Treystum velferðina og útrýmum fátækt voru kjörorð dagsins í tilefni af fyrsta maí. Forseti ASÍ segir ólíðandi að fimm þúsund börn séu undir fátækramörkum hér á landi og segir nauðsynlegt að leiðrétta kjör eldri borgara. Fjölmargir tóku þátt í kröfugöngu í tilefni dagsins. 1.5.2007 19:06
Tíu ár frá sigri Verkamannaflokksins Líklegt er að Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, tilkynni um brotthvarf sitt úr stjórnmálum í næstu viku. Tíu ár eru í dag frá því Blair tók við embætti eftir stórsigur Verkamannaflokksins á Íhaldsmönnum. 1.5.2007 19:00
Tillögur til að bregðast við loftlagsbreytingum Ban Ki-moon, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, útnefndi í dag þrjá fulltrúar til að koma með tillögur til að bregðast við loftlagsbreytingum. Meðal þeirra sem Ki-moon útnefndi er Gro Harlem Brundtland, fyrrum forsætisráðherra Noregs. 1.5.2007 18:46
Hjólhýsi losnaði frá bíl í miðjum akstri Hjólhýsi skemmdist illa þegar það losnaði frá bíl í miðjum akstri á Vesturlandsvegi við Kjalarnes í dag. Engan sakaði í óhappinu. 1.5.2007 18:04
Meintur fjöldamorðingi lýsir yfir sakleysi sínu fyrir rétti Réttarhöld yfir bretanum Steve Wright, sem ákærður er fyrir að hafa myrt fimm vændiskonur í desember á síðasta ári hefjast í janúar á næst ári. Steve lýsti sig saklausan af morðunum fyrir undirrétti í borginni Ipswich í dag. 1.5.2007 17:42
Vinnuslys við Kárahnjúka Karlmaður slasaðist við Kárahnjúka í nótt þegar vörubifreið sem hann var að vinna á valt. Maðurinn var fluttur á sjúkrahúsið á Neskaupstað. 1.5.2007 15:48
Hátíðahöldin gengið vel fyrir sig Mörg þúsund manns tóku þátt í fyrsta maí göngunni í Reykjavík og hefur þátttakan ekki verið meiri í mörg ár að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Allt hefur gengið slysalaust fyrir sig og samkvæmt áætlun. 1.5.2007 15:24
Standa þarf vörð um velferðina Samfélög sem hafa velferðarhugsjón verkalýðshreyfingarinnar að leiðarljósi eru þau samfélög sem farnast best. Þetta kom fram í ávarpi Grétars Þorsteinssonar, forseta Alþýðusambands Íslands, á útifundi á Ingólfstorgi í dag í tilefni af baráttudegi verkalýðsins. Hann krefst þess að nafn Íslands verði tekið af lista þeirra þjóða sem studdu innrásina í Írak. 1.5.2007 15:06
Frelsið er ekki bara fyrir hina fjáðu Mikilvægt er að tryggja jafnvægi og verjast ásókn gróðaaflanna sem hugsa ekki lengra en fram að næsta tíkalli. Þetta kom fram í ræðu Ögmundar Jónassonar, formanns Bandalags starfsmanna ríkis og bæjar, á fyrsta maí hátíðarhöldunum á Akureyri í dag. Hann segir hlutverk verkalýðssamtaka sjaldan meira en nú. 1.5.2007 14:30
Heilbrigðiskerfið að brenna til kaldra kola Grunnstoðir heilbrigðiskerfisins eru að brenna til kaldra kola og ekki verður lengur við neitt ráðið. Þetta kom fram í ræðu Kristínar Á. Guðmundsdóttur, formanns Sjúkraliðafélags Íslands, á fyrsta maí hátíðahöldunum á Ingólfstorgi í Reykjavík í dag. Hún sagði heilbrigðiskerfið vera í molum. 1.5.2007 14:12
Vísa ummælum formanns Geðlæknafélagsins á bug Ummæli formanns Geðlæknafélags Íslands um að framlög ríkisins til geðfatlaðra hafi brunnið upp í verðbólgunni eru fjarri lagi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félagsmálaráðuneytinu. Þar segir ennfremur að rangar upplýsingar séu ekki til þess fallnar að greiða götu átaks í þágu geðfatlaðra. 1.5.2007 13:19
Blóðbankinn í nýtt húsnæði Blóðbankinn er að flytja starfsemi sína að Snorrabraut 60, byrjað verður að taka á móti blóðgjöfum í nýjum húsakynnu mánudaginn 7. maí. 1.5.2007 13:03
10 ár frá valdatöku Blairs Áratugur er í dag frá því að Tony Blair tók við embætti forsætisráðherra í Bretlandi. Hann er þaulsætnasti leiðtogi Verkamannaflokksins breska en á þó langt í land með að slá met þess forsætisráðherra Breta sem lengst hefur setið í Downing-stræti 10. 1.5.2007 13:00
Sinueldar valda astmaveikum óþægindum Sýslumaðurinn á Akureyri telur að banna eigi bændum að brenna sinu. Astmaveikir urðu fyrir miklum óþægindum vegna reykjarkófs í Eyjafjarðarsveit um helgina. 1.5.2007 12:49
Baráttudegi verkalýðsins fagnað Fyrsta maí kröfuganga fer frá hlemmi í dag og leika Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur fyrir gönguna. Safnast verður saman við Hlemm klukkan eitt en gangan leggur af stað klukkan hálf tvö. 1.5.2007 12:45
Brestir komnir í ríkisstjórnarsamstarfið Brestir eru þegar komnir í ríkisstjórn Ísresl eftir að skýrsla rannsóknarnefndar um stríðsreksturinn gegn Hizbollah-liðum í Líbanon í fyrra var birt í gær. Nefndin gagnrýnir Ehud Olmert, forsætisráðherra, og Amir Peretz, varnarmálaráðherra, harðlega og segir þá hafa farið út í stríð að illa ígrunduðu máli og án skýrra markmiða. Olmert ætlar ekki að víkja og einn aðstoðarráðherra sagði af sér í morgun vegna þess. 1.5.2007 12:30
Kastró lét ekki sjá sig Fidel Kastró, leiðtogi Kúbu, var fjarverandi þegar haldið var upp á baráttudag verkalýðsins í höfuðborg landsins, Havana, í dag. Kastró hefur verið fjarri opinberu sviðsljósi allt frá því að hann fór í uppskurð vegna veikinda fyrir níu mánuðum. 1.5.2007 12:24
Lokað fyrir innlagnir á Egilsstöðum Lokað verður fyrir innlagnir á Sjúkrahúsið á Egilsstöðum yfir sumartímann vegna manneklu. Ekki hefur tekist að manna stöður og vantar 18 stöðugildi til að halda uppi eðlilegri starfsemi. 1.5.2007 12:24
Aðrennslisgöngum lokað aftur vegna mengunar Aðrennslisgöng Kárahnjúka voru opnuð í gærkvöld eftir að þeim var lokað vegna slæmrar mengunar í síðustu viku. Loka þurfti göngunum aftur þar sem mengunin fór upp að viðmiðunarmörkum í gær. Leggja þurfti niður störf á tuttugu metra kafla í göngunum. 1.5.2007 12:20
Margir mótmælendur handteknir í Istanbúl Tyrkneska lögreglan hefur handtekið mörg hundruð mótmælendur eftir að til átaka kom í miðborg Istanbúl í morgun. Vinstrimenn höfuð komið þar saman til að minnast blóðbaðs í borginni þann fyrsta maí fyrir þrjátíu árum. 1.5.2007 12:10
Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Erlent