Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hlaut slæm útlimabrot en er ekki í lífshættu Unga konan sem slasaðist í árekstri fólksbíls og pallbíls á Þrengslavegi í hádeginu í dag hlaut slæm útlimabrot en er ekki í lífshættu. Að sögn vakthafandi læknis á slysadeild Landspítalans hefur konan verið í aðgerð í dag og reiknað er með að hún verði á gjörgæsludeild í nótt. 17.3.2007 17:52
Norðmenn í hópi fyrstu þjóða til að viðurkenna þjóðstjórn Norðmenn eru í hópi fyrstu þjóða sem viðurkenna nýja þjóðsstjórn Palestínu, en hún var svarin í embætti í dag eftir að palestínska þingið hafði lagt blessun sína yfir hana. Norsk stjórnvöld hyggjast taka upp full stjórnmála- og efnahagsleg tengsl við Palestínumenn á ný og hvetja þá til að hafna ofbeldi og viðurkenna tilverurétt Ísraelsríkis. 17.3.2007 17:38
Mótmæli vegna fjögurra ára afmælis Íraksstríðsins Mótmæli hafa farið fram víða í dag í tilefni þess að fjögur ár eru um þessar mundir frá því að Bandaríkjamenn réðust ásamt bandamönnum sínum inn í Írak og steyptu Saddam Hussein, forseta landsins, af stóli. 17.3.2007 17:25
Mikill áhugi fyrir námskeiði um vatnsaflsvirkjanir Á þriðja tug erlendra nemenda mun dvelja hér á landi næstu vikuna í tengslum við námskeið um vatnsaflsvirkjanir. Námskeiðið er haldið á vegum samtakanna BEST sem eru evrópsk samtök háskólanema í tæknigreinum. 17.3.2007 16:54
Sígarettureykur hefur mismunandi áhrif á kynþætti Reykingar gætu valdið öðruvísi skaða á blökkumönnum en hvítum, niðurstöður bandarískrar rannsóknar benda til þess. Rannsóknin sem birt er í læknatímaritinu Chest tók til 220 barna með astma sem anda þurftu að sér sígarettureyk. Meira en helmingur barnanna voru blökkumenn. Rannsakendur mældu magn kótínín, sem er efni sem líkamin breytir nikótíni í. 17.3.2007 16:46
Fyrningarfrestur afnuminn í grófustu brotum gegn börnum Fyrningarfrestur í alvarlegustu kynferðisbrotum gegn börnum verður afnuminn og brot byrja ekki að fyrnast fyrr en fólk nær 18 ára aldri í stað 14 samkvæmt nýjum breytingartillögum allsherjarnefndar Alþingis á ákvæðum í kynferðisbrotakafla hegningarlaganna. 17.3.2007 16:43
Þrír stungnir til bana í Manchester og nágrenni Þrír voru stungnir til bana í Manchester og nágrenni í Englandi í nótt eftir því sem lögregla í borginni greindi frá. Sjö manns á aldrinum 17-25 ára voru handteknir í tengslum við árás í úthverfi borgarinnar en fórnarlamb þeirra lést á spítala snemma í morgun. 17.3.2007 16:05
Samið um að þingi ljúki um kvöldmatarleytið Samkomulag hefur náðst um að ljúka þingi í dag um kvöldmatarleytið en þingfundur hefur staðið frá því klukkan hálftíu í morgun. 17.3.2007 15:56
Fjöldi umferðaróhappa í borginni í dag 21 umferðaróhapp hefur verið tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu frá því klukkan sjö í morgun og til klukkan þrjú sem er óvenjumikið á þessum tíma að sögn lögreglu. Hún segir að óhöppin megi flest rekja til aðstæðna í borginni en hálka hefur verið víða og virðist það hafa komið ökumönnum í opna skjöldu. 17.3.2007 15:35
Palestínska þingið samþykkir myndun þjóðstjórnar Fulltrúar Hamas-samtakanna og Fata-hreyfingarinnar á palestínska þinginu í Gasaborg samþykktu í dag myndun nýrrar þjóðstjórnar á sjálfstjórnarsvæðum Palestínumanna en samkomulag um slíka stjórn náðist milli fylkinganna á fimmtudag. 17.3.2007 15:08
Krefjast þess að Johnston verði sleppt Palestínskir blaðamenn komu saman fyrir utan þingshúsið í Gasaborg í dag til þess að krefjast þess að fréttamanni BBC, Alan Johnston, yrði sleppt en talið er að vopnaðir byssumenn hafi rænt honum í borginni á mánudag. Síðan þá hefur ekkert spurst til hans. 17.3.2007 14:56
350 sagðir veikir eftir klórgasárásir í Írak Átta eru sagði látnir og yfir 350 veikir eftir að þrír sjálfsmorðsárásarmenn á stórum bílum fullum af klóri sprengdu bílana í loft upp í Anbar-héraði í Írak í gær. Frá þessu greindi Bandaríkjaher í dag. 17.3.2007 14:42
Svíþjóð þarf nýja ríkisstjórn, segir Sahlin Svíar þurfa ekki nýjar eða gamlar hófsemishugmyndir heldur nýja ríkisstjórn, sagði Mona Sahlin, sem í dag var kosin formaður sænska Jafnaðarmannaflokksins á landsfundi í Stokkhólmi. 17.3.2007 14:25
Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti slasaða konu Kona slasaðist alvarlega í árekstri fólksbíls og pallbíls við gömlu gatnamót Suðurlandsvegar og Þrengslavegar í hádeginu í dag. Að sögn lögreglunnar á Selfossi þurfti að kalla til tækjabíl slökkviliðsins til að losa stúlkuna úr flakinu en hún var svo flutt á slysadeild Landspítalans með þyrlu Landhelgisgæslunnar. 17.3.2007 14:13
Klórgasárásir í Fallujah kosta átta lífið Átta eru sagði látnir og yfir 85 særðir eftir að tveir sjálfsmorðsárásarmenn á tankbílum fullum af klóri sprengdu bílana í loft upp í borginni Fallujah, vestur af Bagdad, í dag. 17.3.2007 13:59
Inflúensan fyrr á ferðinni í ár en í fyrra Inflúensan í ár virðist nú vera í rénun en hún var nokkuð fyrr á ferðinni í ár en í fyrra eftir því sem fram kemur í Farsóttarfréttum Landlæknisembættisins. Samkvæmt tölum sem komnar eru frá Læknavaktinni var hámark inflúensunnar í sjöttu viku ársins en í fyrra var hámarkið í elleftu viku. 17.3.2007 13:41
Ísraelar segjast ekki munu semja við nýja þjóðstjórn Palestínumanna Palestínska þingið kom saman til fundar í morgun til að greiða atkvæði um nýja þjóðstjórn Fatah og Hamas. Búist er við að skipan í embætti verði samþykkt. Ísraelar segja nýja stjórn styðja hryðjuverkamenn og við hana verði ekki samið. 17.3.2007 13:34
Umferðarslys í Þrengslunum Umferðarslys varð í Þrengslunum nú í hádeginu og eru slökkvilið og lögregla á vettvangi. Þær upplýsingar fengust hjá lögreglu að ein stúlka væri föst í bifreið en með meðvitund og verið væri að bjarga henni úr bíl sínum 17.3.2007 13:09
Tjón ekki talið mikið í vatnselg við Hlemm Vatn flæddi inn í hús að Laugavegi 105 í morgun þar sem Möguleikhúsið og Náttúrufræðistofnun Íslands er til húsa. Vatnslögn í nágrenni við húsið sprakk og stíflaði öll niðuföll. Slökkvilið hefur verið að störfum í allan morgun við að dæla vatninu út. Tjónið er þó ekki talið mikið. 17.3.2007 13:02
Kaupmannahafnarlögreglan viðurkennir mistök Danska lögreglan notaði lífshættuleg og öflug táragashylki gegn mótmælendum við Ungdómshúsið á Norðurbrú í Kaupmannahöfn fyrr í þessum mánuði. Kaupmannahafnarlögreglan hefur viðurkennt mistök sín. 17.3.2007 12:52
Samþykkja að salta nokkur mikilvæg mál Stjórnarmeirihlutinn á Alþingi hefur fallist á að salta nokkur mikilvæg þingmál í von um að sátt takist um að ljúka þingstörfum í dag. Meðal þeirra eru langtímaáætlun í samgöngumálum, frumvarp iðnaðarráðherra um nýtingu auðlinda og frumvarp um sameiningu RARIK og Orkubús Vestfjarða og Landsvirkjunar. Vinstri grænir neita þó að gangast undir sátt fyrr en vegalög hafa einnig verið slegin af. 17.3.2007 12:38
Byrjað verði á 2+1 vegum út frá borginni Umferðarráð fagnar fyrirætlunum samgönguyfirvalda um aðskilnað akstursstefna á fjölförnustu þjóðvegum í nágrenni Reykjavíkur og telur heppilegast að byrja á því að breikka vegina til Selfoss og Borgarness með 2+1 lausn en þannig að hægt verði að breikka í 2+2 síðar. 17.3.2007 11:50
Mona Sahlin kosin formaður sænskra jafnaðarmanna í dag Mona Sahlin verður valinn formaður Jafnaðarmannaflokksins í Svíþjóð á aukaflokksþingi í dag, fyrst kvenna í 118 ára sögu flokksins. Meðal heiðursgesta á þinginu er Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar. 17.3.2007 11:45
Enn fundað á alþingi Þingfundur stendur enn yfir á Alþingi og hefur Mörður Árnason verið í ræðustól undanfarin einn og hálfan klukkutíma. Nú standa yfir umræður vegna frumvarps um losun gróðurhúsalofttegunda. Enn er talsverður fjöldi frumvarpa eftir á dagskrá þingsins og búist er við því að þingfundur standi eitthvað fram yfir miðnætti. 16.3.2007 23:41
Ætlar að knýja þingið til aðgerða Al Gore hefur safnað fleiri en 300.000 undirskriftum sem hann ætlar sér að færa bandaríska þinginu í von um að það berjist gegn þeim loftslagsbreytingum sem gróðurhúsaáhrif eru talin valda. 16.3.2007 23:36
Þjóðstjórn tekur við völdum á morgun Nýja þjóðstjórnin í Palestínu mun taka við völdum klukkan níu í fyrramálið að íslenskum tíma. Hún var mynduð eftir að friðarsamkomulag náðist á milli Hamas og Fatah hreyfinganna á sáttafundi sem konungur Sádi-Arabíu stóð fyrir. Ísraelar hafa þvertekið fyrir að starfa með stjórninni og Bandaríkjamenn bíða ávarps Mahmouds Abbas, forseta Palestínu, á morgun en það mun útskýra hverjar stefnur og gildi hinnar nýju stjórnar verða. 16.3.2007 23:21
Kuldakast gengur yfir Bandaríkin Mikið vetrarveður er nú í norðausturhluta Bandaríkjanna og hafa margir ferðamenn þurft að staldra við um stund. Fjölmörg flugfélög aflýstu ferðum sínum til og frá New York, Fíladelfíu og Boston. Skólum í og við New York hefur einnig verið lokað vegna veðurs. 16.3.2007 23:11
Þrír lögreglumenn ákærðir vegna skotárásar Þrír lögreglumenn í New York verða ákærðir fyrir að hafa skotið 50 skotum að þremur óvopnuðum blökkumönnum og drepið einn þeirra aðeins nokkrum klukkutímum áður en hann átti að gifta sig. Skorárásin átti sér stað 25. nóvember á síðasta ári. Gríðarleg reiði braust út á meðal svertingja í New York eftir að atvikið átti sér stað. 16.3.2007 22:59
Segir stjórnvöld hafa lekið nafni sínu til fjölmiðla Valerie Plame, fyrrum útsendari bandarísku leyniþjónustunnar CIA, fullyrti í dag að bandarísk stjórnvöld hefðu vísvitandi afhjúpað hana til þess að ná sér niður á eiginmanni hennar en hann hafði gagnrýnt stjórnvöld harkalega fyrir stríðsreksturinn í Írak. 16.3.2007 22:36
Hermönnum í Írak hugsanlega fjölgað Æðsti yfirmaður bandaríska hersins í Írak, David Petraeus, hefur lagt fram beiðni um að fleiri hermenn verði sendir til Íraks. Dagblaðið Boston Globe fullyrðir þetta á fréttavef sínum í dag og segir háttsetta menn innan varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna heimildarmenn sína. 16.3.2007 22:26
Forseti Írans fær að ávarpa öryggisráðið Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti í dag beiðni Mahmouds Ahmadinejads, forseta Írans, um að fá að verja kjarnorkuáætlun þjóðar sinnar áður en atkvæðagreiðsla um refsiaðgerðir gegn Íran fer fram í ráðinu. Enn hefur ekki verið ákveðið hvenær atkvæðagreiðslan fer fram. 16.3.2007 22:03
HR ræður tvo nýja deildarforseta Háskólinn í Reykjavík hefur ráðið tvo nýja deildarforseta til skólans, og munu þeir stýra annars vegar tölvunarfræðideild og hins vegar tækni- og verkfræðideild. Þeir eru dr. Ari Kristinn Jónsson, doktor frá Stanford og stjórnandi hjá bandarísku geimferðastofnuninni (NASA) og dr. Gunnar Guðni Tómasson, doktor frá MIT og aðstoðarframkvæmdastjóri VST. 16.3.2007 21:36
Bílvelta í Svínahrauni Bílvelta varð í Svínahrauni í kvöld í námunda við Litlu Kaffistofuna. Einn var fluttur á sjúkrahús en hann var ekki talinn alvarlega slasaður. Þá keyrði bíll útaf í námunda við Þorlákshöfn í kvöld en engin slys urðu á fólki. Þó þurfti að flytja bílinn á brott með kranabíl. 16.3.2007 21:34
Mikill viðbúnaður í Nígeríu Stjórnvöld í Nígeríu sögðu í dag að lögreglu- og hermenn í landinu væru í viðbragðsstöðu þar sem varaforseta landsins hefur verið meinað að bjóða sig fram í forsetakosningunum en þær fara fram þann 21. apríl næstkomandi. 16.3.2007 20:52
Kínverjar samþykkja lög sem vernda einkaeignarrétt Kínverska þingið samþykkti í dag lög sem eiga að vernda einkaeignarrétt landsmanna. Þetta er í fyrsta sinn sem að lög eru sett sem að vernda einkaeignarréttinn. Alls eru um 14 ár síðan kínverski kommúnistaflokkurinn fór fyrst að huga að slíkri löggjöf. 16.3.2007 20:29
Mugabe hótar að reka erlenda erindreka úr landi Robert Mugabe, forseti Zimbabwe, hefur hótað því að reka úr landi alla vestræna erindreka en hann sakar þá um að styðja stjórnarandstöðuna í landinu. Hann sagði þá þurfa að „hegða sér almennilega“ ellegar eiga á hættu að vera reknir úr landi. 16.3.2007 20:15
Kenna stjórnarandstöðunni um Formenn stjórnarflokkanna kenna stjórnarandstöðunni um að draga þurfti auðlindafrumvarpið til baka. Forsætisráðherra segir einu sneypuförina vera för formanns Samfylkingarinnar. Stjórnarandstaðan brást ókvæða við ummælum formannananna. 16.3.2007 19:56
Byggðastofnun vantar fjármuni Byggðastofnun vantar meiri peninga til að geta sinnt hlutverki sínu, segir stjórnarformaður hennar. Opinber þjónusta vegur þungt þegar hagvöxtur landshluta er skoðaður. 16.3.2007 19:42
Siglingastofnun talar við skipstjórann á Kársnesi Nefnd á vegum Siglingastofnunar hitti í dag skipstjórann á Kársnesi sem fékk á sig brotsjó við Reykjanes í fyrrakvöld með þeim afleiðingum að fimm gámar sópuðust fyrir borð. Nefndin metur meðal annars hvort færa eigi siglingaleiðina fyrir Reykjanes utar og fjær landi. 16.3.2007 19:37
Hæstiréttur staðfesti frávísun Hæstiréttur staðfesti frávísun Héraðsdóms Reykavíkur í máli olíuforstjóranna þriggja í dag. Saksóknari segir niðurstöðu dómsins vera áfellisdóm yfir samkeppnislögunum og að ekki verði endurákært í málinu. 16.3.2007 19:36
Allar tennur ónýtar í barni Ný rannsókn sýnir að tannheilsu barna hefur hrakað á síðustu tíu árum og eru tannskemmdir nú tvöfalt fleiri í íslenskum börnum en sænskum. Börn lágtekjufólks eru með tvöfalt fleiri skemmdir en börn hátekjufólks. Tannlæknir þurfti í morgun að byrja á að draga allar átján tennurnar úr tæplega sex ára gömlu barni. 16.3.2007 19:33
Dansa sig inn í heimsmetabækurnar Það var merkileg sjón sem mætti vegfarendum í bænum Tirgoviste í Rúmeníu á dögunum. 2.600 manns að dansa í takt við hressilegt lag. Það var útvarpsstöð í bænum sem efndi til dansins til þess að slá heimsmet í fjölda dansara á einum stað að hrista líkama sína í takt. 16.3.2007 19:30
Óttast að olía bærist í vatnsból Óttast var að olía bærist í vatnsból Reykvíkinga þegar flutningabíll valt nærri vatnsbólum höfuðborgarinnar í dag. Um 400 lítrar af hrá- og smurolíu láku úr bílnum. 16.3.2007 19:11
Frosið vatn á Mars Evrópskir vísindamenn hafa fundið heilmikið jökulsvæði á suðurpóli Mars. Ef það bráðnaði er talið að vatn myndi þekja stóran hluta plánetunnar. Það er geimfar á braut um Mars sem hefur tekið myndir af ísbreiðunum. Það eru vísindamenn á vegum Evrópusku geimferðastofnunarinnar sem kynntu niðurstöðurnar og birtu í dag. Rannsóknin var gerð með tækni frá Bandarísku geimferðastofnuninni, NASA, og ítölskum aðilum. 16.3.2007 19:10
Ísland næði pólitískri fótfestu á ný með Evrópusambandsaðild Aðild að Evrópusambandinu getur tryggt Íslandi á ný þá pólitísku fótfestu sem það hafði áður í NATO- og Norðurlandasamstarfi. Þetta segir Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra, sem telur að sérstakan rökstuðning þurfi fyrir því að stíga ekki skrefið að Evrópusambandsaðild til fulls. Hann segir fátt benda til þess að krónan geti verið undirstaða varanlegs stöðugleika. 16.3.2007 18:47