Ísraelar segjast ekki munu semja við nýja þjóðstjórn Palestínumanna 17. mars 2007 13:34 Ismail Haniyeh, forsætisráðherra Palestínu, hlýðir á Mahmoud Abbas, forseta Palestínumanna, á þinginu á Gasa í dag. MYND/AP
Palestínska þingið kom saman til fundar í morgun til að greiða atkvæði um nýja þjóðstjórn Fatah og Hamas. Búist er við að skipan í embætti verði samþykkt. Ísraelar segja nýja stjórn styðja hryðjuverkamenn og við hana verði ekki samið. Það var á fimmtudaginn sem leiðtogar Fatah og Hamas komust að samkomulagi um skipan ráðherra í þjóðstjórninni. Samið var um að óháðir fulltrúar sætu í iðnaðar-, fjármála- og utanríkisráðuneytinu. Helst var deilt um hver ætti að verða innanríkisráðherra en loks tókst að semja um það. Vonast er til að með nýrri ríkisstjórn verði bundinn endir á innbyrðis átök Palestínumanna og þar með muni vesturveldinn hætt að sniðganga heimastjórnina. Sameinuðu þjóðirnar og Evrópusambandið hafa gefið til kynna að viðhorf þeirra gætu mildast. Viðhorf einstakra ríkja er þó mismunandi. Ekki er víst að Frakkar og Rússar breyti afstöðu sinni og hefji samstarf við nýja stjórn. Bretar segjast aðeins ætla að vera í samskiptum við ráðherra sem teljist ekki Hamas-liðar. Ísraelar hafa enga trú á nýrri þjóðstjórn. Hún afneyti ekki hryðjuverkamönnum og viðurkenni ekki tilvist Ísraelsríkis, því sé ekki hægt að semja við hana. Ísraelar ætla þó áfram að halda sambandi við Mahmoud Abbas, forseta Palestínumanna.
Mest lesið Spyr hvort skoða þurfi mögulega árekstra eiginmanns ráðherra og fráfarandi forstjóra Innlent Sigríður Björk og Jón Karl til Bessastaða Innlent Vísar gagnrýni á bug og gefur lítið fyrir rök lækna Innlent „Svo fær maður svona helvíti á fyrsta opnunardegi“ Innlent Aftur brotist inn í Húrra Reykjavík Innlent „Áratuga afturför“ og frost í greininni Innlent Segist hafa rætt tvisvar við prinsinn í gini ljónsins Innlent „Mitt mat að þetta sé ekki peninganna virði“ Innlent Einn læknir sinnir þremur stjórnunarstöðum Innlent Milljónir farið í sáttagreiðslur í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Huldumaður gaf gullstangir til að laga vatnslagnir borgarinnar Spenna eykst á einum helgasta stað gyðinga og múslima Áfram húsleit á fyrra heimili Andrews „Mjög, mjög sorglegt“ Bandaríkjastjórn opnar síðu þar sem Evrópubúar geta séð lokað efni Andrew látinn laus Norðmenn koma af fjöllum og taka fyrir ummæli Trump Nýjar forsetaflugvélar fá Trump-litina „Besti vinur“ Epsteins ætlaði að leysa frá skjóðunni 2016 Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Viðbúnaðurinn ekki verið eins mikill frá innrásinni í Írak Andrew handtekinn á heimili sínu Rétta yfir fjórtán ára gömlum leigumorðingja Tjáningarfrelsistal tæknirisa „hreinn þvættingur“ „Grunlaus“ Wexner segist hafa verið gabbaður af Epstein Skíðahópur fórst í snjóflóði í Kalíforníu Fyrrverandi forseti Suður-Kóreu í lífstíðarfangelsi Umdeilt Friðarráð fundar í Washington í dag Tengiltvinnbílar þrefalt eyðslufrekari en framleiðendur segja Verjast fregna af viðræðum dagsins „Stjórinn“ að fá nóg og líkur á árásum Kennir Selenskí um misheppnaða gagnsókn Þrýsta á Alþjóðaorkumálastofunina að hætta við orkuskipti Reyna aftur á morgun Ákærður fyrir að skilja kærustuna eftir á fjallinu Yfir þúsund grunaðir barnaníðingar handteknir í hverjum mánuði Segir Trump setja ósanngjarnan þrýsting á Úkraínu Viðræður gengu ágætlega en ekkert fast í hendi Friðrik leggur land undir fót til að stappa stálinu í Grænlendinga Lindsay Graham hafi hellt sér yfir Frederiksen og sagt Trump geta tekið Grænland Sjá meira