Palestínska þingið samþykkir myndun þjóðstjórnar 17. mars 2007 15:08 Ismail Haniyeh, forsætisráðherra Palestínu, og Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, takast í hendur á þingfundinum í dag. MYND/AP
Fulltrúar Hamas-samtakanna og Fata-hreyfingarinnar á palestínska þinginu í Gasaborg samþykktu í dag myndun nýrrar þjóðstjórnar á sjálfstjórnarsvæðum Palestínumanna en samkomulag um slíka stjórn náðist milli fylkinganna á fimmtudag. Atkvæðagreiðslan fór fram með handauppréttingu og samþykktu 87 þingmenn að styðja ríkisstjórnina. Alls eiga 132 menn sæti á þinginu en 41 þeirra situr í fangelsi í Ísrael, þar af 37 frá Hamas-samtökunum. Vonast er til að með nýrri ríkisstjórn verði bundinn endi á innbyrðis átök Palestínumanna sem kostað hafa hundruð manna lífið frá því að Hamas-samtökin sigruðu í þingkosningum í fyrra. Einnig er vonast til að Vesturveldin hætti að sniðganga heimastjórn Palestínumanna. Sameinuðu þjóðirnar og Evrópusambandið hafa gefið til kynna að viðhorf þeirra gætu mildast en viðhorf einstakra ríkja er þó mismunandi. Til að mynda hafa Ísraelar enga trú á nýrri þjóðstjórn og segjast ekki geta samið við hana.
Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Innlent Fleiri fréttir Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Sjá meira