Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Icelandair Cargo tekur fjórðu fraktvélina í notkun Icelandair Cargo, dótturfélag Icelandair Group, fékk fjórðu Boeing 757-200 fraktvél félagsins til landsins um helgina. Flugvélin er leigð til sex ára en henni var breytt úr farþegarflugvél í Bandaríkjunum. 3.4.2006 14:03
Börn þvinguð til herþjónustu í Nepal Mannréttindasamtökin Human Rights Watch eða Mannréttindavaktin sakar uppreisnarmenn maóista, sem berjast fyrir sósíalísku ríki í Nepal, um að ræna börnum og þvinga þau til herþjónustu. 3.4.2006 14:00
Forsætisráðherra í opinbera heimsókn til Færeyja Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra heldur til Færeyja næstkomandi miðvikudag í opinbera heimsókn í boði þarlendra yfirvalda. Forsætisráðherra fer fyrir fjölmennri viðskiptanefnd til Færeyja og er mikill áhugi er sagður vera fyrir ferðinni hjá forsvarsmönnum íslensks atvinnulífs. 3.4.2006 13:52
Mikið um umferðarlagabrot Frá hádegi á föstudaginn til mánudagsmorguns hafði lögreglan í umdæmi Álftaness, Garðabæ og Hafnarfirði afskipti af 48 ökumönnum vegna brota á umferðarlögum. Þar af voru 29 ökumenn kærðir fyrir hraðakstur og fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um ölvun við akstur. Þá voru fimm umferðaróhöpp tilkynnt um heldina en þau voru öll slysalaus. 3.4.2006 13:34
Kærum vegna ölvunar á almannafæri fjölgar á Selfossi Kærum vegna ölvunnar á almannafæri hefur fjölgað upp á síðkastið hjá Lögreglunni á Selfossi. Þá hefur kærum þar sem menn ólhlýðnast fyrirmælum lögreglu einnig fjölgað en eitt slíkt mál kom upp á Selfossi aðfaranótt sunnudags þar sem maður hafði í frammi ósæmilega hegðun og sló til lögreglumanns. 3.4.2006 13:24
Stefnir í setuverkfall í vikunni Ekkert hefur þokast í kjarabaráttu ófaglærðs starfsfólks á dvalarheimilum aldraðra. Það stefnir því allt í tveggja sólarhringa setuverkfall síðar í vikunni. 3.4.2006 13:08
Bæjarstjórn Borgarbyggðar þakkar góða framgöngu í slökkvistarfi Bæjarstjórn Borgarbyggðar þakkar öllum þeim sem komu að slökkvistarfi á Mýrum fyrir ósérhlífni og ómetanlega framgöngu. Í fréttatilkynningu frá Bæjarstjórn Borgarbyggðar segir að með öflugri framgöngu og góðu samstarfi slökkviliða, lögreglu, ýmissa aðila sem buðu fram aðstoð sína og ekki síst íbúa í héraðinu tókst að ráða niðurlögum eldsins. 3.4.2006 12:45
Fjórtán létu lífið í hvirfilbyljum Að minnsta kosti fjórtán hafa látist í hvirfilbyljum í Bandaríkjunum í gær og í dag. Óttast er að fleiri kunni að finnast látnir. 3.4.2006 12:29
Hundruðir yfirgefa heimili sín Hundruð manna hafa þurft að yfirgefa heimili sín eftir að stífla gaf sig í bænum Duernkrut í Austurríki. En stíflan er í ánni March sem er við landamæri Austurríkis og Slóvakíu. Stíflan gaf sig í nótt eftir mikla vatnavexti. Vatn umlykur um helming bæjarins Duernkurt en fjöldi manna vinnur að björgunarstarfi. 3.4.2006 12:27
Hvetja Íraka til að mynda starfhæfa ríkisstjórn Condolezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og Jack Straw, utanríkisráðherra Bretlands, hvöttu Íraka til þess að mynda starfhæfa ríkisstjórn sem fyrst en þau eru nú stödd í Írak. Andstaða gegn Íraksstríðinu magnast í Bandaríkjunum. 3.4.2006 12:21
Frumvarp Valgerðar varla afgreitt úr nefnd Afar ólíklegt er að frumvarp iðnaðarráðherra um Nýsköpunarmiðstöð Íslands verði afgreitt úr iðnaðarnefnd Alþingis, segir þingmaður Sjálfstæðisflokks. Allir sjálfstæðismennirnir í nefndinni gera athugasemdir við frumvarpið. 3.4.2006 12:19
Mál dómara gegn ríkinu þingfest í vikunni Mál Guðjóns St. Marteinssonar héraðsdómara við Héraðsdóm Reykjavíkur gegn íslenska ríkinu verður þingfest síðar í vikunni. Guðjón ákvað að höfða mál þegar úrskurður Kjaradóms um laun stjórnmála- og embættismanna var numinn úr gildi með lögum. 3.4.2006 12:15
Icelandic Group kaupir allt hlutafé í Saltur A/S Icelandic Group hefur keypt allt hlutafé í Saltur A/S í Danmörku, sem á allt hlutafé í Jeka Fish A/S í Danmörku. Jeka Fish gekk nýlega frá kaupum á félaginu Atlantic Cod A/S. Kaupverðið er greitt með nýju hlutafé í Icelandic Group að nafnverði 135 milljónir króna. 3.4.2006 11:47
Eldur á BUGL Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út vegna elds á Barna- og unglingageðdeild Landspítalans við Dalbraut um klukkan hálf ellefu í morgun. Kveikt hafði verið í handþurrkum á baðherbergi í kjallara hússins. Fjórir reykkafarar fóru inn í húsið og gekk þeim greiðlega að slökkva eldinn. 3.4.2006 10:55
Sven Dam skipaður forstjóri Media Scandinavia Sven Dam var skipaður forstjóri og varastjórnarformaður 365 Media Scandinavia A/S í gær. Félagið er í eigu Dagsbrúnar hf. Dam mun bera ábyrgð á uppbyggingu fjölmiðlastarfsemi 365 Media Scandinavia A/S í Danmörku samhliða því að kanna ný viðskiptatækifæri á sviði fjölmiðlunar á Norðurlöndunum. 3.4.2006 10:32
Þriðjungs hækkun milli ára Verð íbúðarhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu hækkaði hækkaði tvöfalt meira á hvern fermetra milli áranna 2004 og 2005 en það gerði á Norðurlandi eystra þar sem hækkunin var minnst. 3.4.2006 10:11
Forseta Litháen afhent trúnaðarbréf Hannes Heimisson, sendiherra, afhenti þann 23. mars Valdas Adamkus, forseta Litháen, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands gagnvart Litháen, með aðsetri í Helsinki. 3.4.2006 09:58
Rúmlega árslaun í hærri vaxtagreiðslur Vaxtahækkanir Íbúðalánasjóðs að undanförnu hafa í för með sér að lántakendur þurfa að greiða rúmlega einum árslaunum meira í vexti á lánstímanum en fyrir fáeinum mánuðum síðan, segir Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins. 3.4.2006 09:45
Íbúar í Reykjanesbæ greiða lægstu fasteignaskattana Tekjur af fasteignasköttum á hvern íbúa eru lægstar í Reykjanesbæ samkvæmt útreikningum ASÍ. Greint er frá þessu á heimasíðu Reykjanesbæjar. Samanburður ASÍ nær til átta stærstu sveitafélaga landsins og borin voru saman árin 2003 til 2006. 3.4.2006 09:30
Tuttugu manns fórust í sprengingu í Kína Að minnsta kosti tuttugu létu lífið og níu er saknað eftir að sprenging varð í sprengiefnaverksmiðju í Kína. Tugir björgunarsveitarmanna reyna nú að ná til þeirra sem enn eru inni í rústum hússins. Verksmiðjan er í borginni Zhaoyuan í austurhluta Kína. 3.4.2006 09:30
Nefnd sex ráðuneyta um Vatnsmýri Forsætisráðherra hefur skipað nefnd til að samræma hugmyndir um framtíðarstaðsetningu háskóla- og rannsóknastofnana ríkisins á Vatnsmýrarsvæði. Meðal stofnana sem gætu fengið aðstöðu í Vatnsmýrinni eru Matvælarannsóknir og rannsóknahluti Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands. 3.4.2006 09:02
Banaslys við Kárahnjúka Banaslys varð við Kárahnjúka á áttunda tímanum í gærkvöldi þegar grafa valt. Samkvæmt fyrstu upplýsingum var maðurinn íslenskur og starfsmaður Suðurverks. Slysið varð við Desjárstíflu en þetta er þriðja banaslysið við virkjunarframkvæmdirnar. Ekki liggur fyrir með hvaða hætti slysið varð. 3.4.2006 08:45
Um 30.000 manns á sýningunni Matur 2006 Talið er að um 30.000 manns hafi lagt leið sína á sýninguna Matur 2006 í Fífunni um helgina. Fjölmörg fyritæki kynntu þar þjónustu sína auk þess sem þar voru haldnar hinar ýmsu keppnir. 3.4.2006 08:30
Sprunga í framrúðu Breiðþotu af gerðinni Boeing 767 frá flugfélaginu Max Jeat, á leið frá London til New York, var lent á Keflavíkurflugvelli í gærdag eftir að sprunga myndaðist í ytra byrði einnar framrúðu vélarinnar þegar hún var stödd skammt frá landinu. Flugmennirnir lækkuðu þegar flugið og lentu heilu og höldnu. Ekki var talið hættuástand um borð og var því ekki gripið til sérstakra ráðstafana á vellinum. Vél frá sama félagi sótti farþegana til Keflavíkur í gærkvöldi, en gert verður biluðu vélina hér. 3.4.2006 08:15
Jóhannesar Páls páfa minnst Tugir þúsunda manna söfnuðust saman við Vatíkanið í Róm í gærkvöldi til að minnast þess að ár er liðið frá því Jóhannes Páll páfi annar féll frá. Fólkið kveikti á kertum og bað fyrir páfa. 3.4.2006 08:15
Sinueldar á Stokkseyri Sinueldur gaus upp vestan við Stokkseyri um tvöleitið í nótt og var slökkviliðið á Selfossi þegar hvatt á vettavng. Ráðist var gegn eldinum af mikilli einurð til þess að hann næði ekki útbreiðslu, enda hafa sunnlendingar verið kvíðnir síðustu dagana um að eins gæti farið á Suðurlandi og í Borgarflirði. Slökkvistarfið gekk vel og bíða sunnlendingar nú átekta eftir að úrkoma fari að falla síðdegis í dag 3.4.2006 08:00
Stangveiði fer vel af stað Stangveiðin fór vel af stað austur í Skaftafellssýslum um helgina þótt ísrek væri víða í ám og lækjum og að veiðimenn þyrftu sumstaðar að brjóta ís til að kom færum sínum í vatn. Tungulækur tók mjög vel við sér og gaf vel á annað hundrað fiska um helgina. 3.4.2006 07:49
Erfitt gæti reynst að mynda ríkisstjórn í Taílandi Erfitt gæti reynst að mynda starfhæfa ríkisstjórn í Taílandi en þingkosningar fóru fram í landinu í gær. Stjórnarandstaðan í landinu og fylgismenn hennar skiluðu auðu í kosningunum til að leggja áherslu á óánægju sína. 3.4.2006 07:45
Grunur leikur á íkveikju Eldur var kveiktur í rusli við hlið iðnaðar- og verslunarhúss við Fossaleyni uppúr klukkan eitt í nótt en slökkvilið náði að slökkva hann áður en hann næði að læsa sig í húsið. Nokkrum minútum síðar var tilkynnt um eld í stigagangi fjölbýlishúss þar skammt frá og gekk greiðlega að slökkva hann. Grunur leikur á að þar hafi eldfimur vökvi verið notaður til að glæða eldinn. 3.4.2006 07:34
Eins hreyfils véll rann út af flugbrautinni Lítilli eins hreyfils flugvél hlekktist á í lendingu á Reykjavíkurflugvelli um klukkan tíu í gærkvöldi með þeim afleilðingujm að húnn rann út af flugbrautinni og lenti þar á rafmagnskassa. Flugmanninn sakaði ekki en bæða flugvélin og rafmagnskassin eru skemmd. Ekki liggur fyrir hvers vegna flugmaðurinn missti sjtórn á vélinni. 3.4.2006 07:33
Engin slys á fólki Fjögurra sæta flugvél af gerðinni Cherokee nauðlenti á túni við bæinn Víði við Þingvallaveg í Mosfellsdal um klukkan 20:20 í kvöld. Þrír farþegar voru í flugvélinni en engan sakaði. 2.4.2006 21:14
Pandabirnir fá nýtt heimili Þrír árs gamlir pandabirnir voru fluttir í ný heimkynni í gær. Birnirnir hafa hingað til dvalið í sérstakri miðstöð en eru nú fluttir í dýragarð í Sjanghæ. 2.4.2006 21:00
Plönturækt í geimnum? Er hægt að rækta grænmeti og plöntur í geimnum? Þessari spurningu reynir nú hópur vísindamanna í Þrándheimi í Noregi að svara. 2.4.2006 20:30
25 þúsund óbreyttir borgarar hafa hrakist frá heimilum sínum Rósturinn í Írak hefur áhrif á fleiri en beina þátttakendur í stríðinu. Að minnsta kosti 25 þúsund óbreyttir borgarar hafa hrakist frá heimilum sínum í deilum þjóðernishópa undanfarnar vikur. 2.4.2006 20:00
Benedikt páfi minnist hugrekkis forvera síns Benedikt páfi minntist Jóhannesar Páls annars, forvera síns, sem hugrakks manns og verðugs leiðtoga kaþólsku kirkjunnar þegar hann ávarpaði tugþúsundir manna á Péturstorginu í dag, en eitt ár er liðið í dag frá andláti Jóhannesar. Benedikt sagði Jóhannes hafa verið Guðs mann allt fram í andlátið. 2.4.2006 19:15
17 mánaða barn myrt Tveir menn og ein kona eru nú í haldi ítölsku lögreglunnar, grunuð um að hafa rænt 17 mánaða gömlu sveinbarni af heimili þess í síðasta mánuði. Lík barnsins fannst við árbakka á Norður-Ítalíu í gær. 2.4.2006 19:15
Svæðið á Mýrum vaktað í nótt Enn logar í glóð í gróðri á Mýrum og munu menn standa vaktina næstu daga til að koma í veg fyrir að eldur brjótist út að nýju. Eyðileggingin sem blasir nú við á Mýrum er gríðarleg eftir þennan stærsta sinubruna Íslandssögunnar. Slökkviliðsmenn segja mildi að eldurinn hafi ekki borist í byggð í Borgarfirði og þakka það jarðýtu að sú varð ekki raunin. 2.4.2006 19:00
Stefnt að því að semja við Írana Stefna bandarískra stjórnvalda er að semja um lausn á kjarnorkudeilunni við Írana en Bandaríkjaforseti hefur þó ekki útilokað aðrar leiðir. Þetta segir Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Hún segir stöðu mála í deilunni við Írana allt aðra en þegar ákveðið var að ráðst inn Írak. 2.4.2006 18:45
Ferjan var ekki skemmtiferðaskip Ferja sem fór á hliðina undan strönd Bahrain á fimmtudagskvöldið, með þeim afleiðingum að 58 manns drukknuðu, mátti ekki flytja farþegar um lengri veg. 2.4.2006 18:30
Snurða hlaupin á þráðinn Talið er að snurða hafi þegar hlaupið á þráðinn í óformlegum stjórnarmyndunarviðræðum Kadima-flokksins og Verkamannaflokksins í Ísrael. Formlega viðræður hefjast ekki fyrr en í lok vikunnar þegar forseti landsins hefur ákveðið hvaða flokkur fær umboð til stjórnarmyndunar. 2.4.2006 18:15
Komið í veg fyrir sjálfsvígsárás Svo virðist sem ísraelska lögreglan hafið komið í veg fyrir sjálfsvígssprengjuárás í bænum Beit Shean í norðurhluta landsins í dag. Lögregla stöðvaði bílferð tveggja manna og handtók þá eftir að upplýsingar bárust um að árásarmenn með sprengjubelti um sig miðja væru á leið til borgarinnar. 2.4.2006 18:04
Fremstu listamenn heiðra H.C.Andersen á Kjarvalsstöðum Ævintýraskáldið danska, HC Andersen, heimspekingurinn Kirkegaard og þrír af fremstu konseptlistamönnum samtímans, leiddu saman hesta sína á Kjarvalstöðum í dag við opnun sýningarinnar "HC Andersen Lífheimur." Eitt verkanna er risastórt teppi sem þekur nær allan vestursal Kjarvalsstaða og á að enduróma hugarheim skáldsins fræga. 2.4.2006 18:00
Bílvelta undir Akrafjalli Bíll valt á Akrafjallsvegi við Kjalardal rétt fyrir sex í kvöld. Fernt var í bílnum og voru öll flutt á slysadeild en talið er að þau hafi ekki slasast alvarlega. Ekki er vitað um tildrög slyssins en málið er í rannsókn. 2.4.2006 18:00
Elsti Íslendingur allra tíma látinn Sá Íslendingur sem lengst hefur lifað fyrr og síðar, Guðfinna Einarsdóttir, lést í gær 109 ára að aldri. Guðfinna Einarsdóttir fæddist 2. febrúar 1897 í Ásgarði í Dalasýslu en ólst upp á Leysingsstöðum í Hvammssveit. Hún fluttist til Reykjavíkur 1970. Hún lést í gær þann 1.apríl. 2.4.2006 17:45
Búið að opna á Kjalarnesinu Búið er að opna Vesturlandsveg aftur en honum var lokað vegna reykjarkófs af sinueldi í tæpa tvo tíma. Verið er að slökkva í síðustu logunum en áfram verður vakað yfir glóðunum til öryggis. Ekki urðu skemmdir á mannvirkjum í eldinum. Tvísýnt var um bæinn Esjuberg um tíma en slökkviliði tókst að verja bæinn. 2.4.2006 17:15