Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sprengjuhótun í Kaupmannahöfn Lögreglan í Kaupmannahöfn girti í gær af svæðið í kringum kaffihúsið Café Rust á Nørrebro eftir nafnlaust símtal þar sem varað var við að sprengja myndi springa á kaffihúsinu klukkan tíu um kvöldið. Eftir ítarlega leit í húsinu þar sem ekkert grunsamlegt fannst var opnað aftur rétt um miðnætti. Ekki er vitað um hver ber ábyrgð á viðvöruninni en það var dönskumælandi maður sem hringdi inn. 2.4.2006 14:37
Ár frá andláti Jóhannesar Páls páfa annars Kaþólikkar um allan heim minnsta þess í dag að ár er liðið frá andláti Jóhannesar Páls páfa annars. Pílagrímar hvaðanæva úr heiminum liggja á bæn við grafhvelfingu hans og búa sig undir bænahald á Péturstorginu í Róm í dag og í kvöld. 2.4.2006 13:30
Elstu skógar Austur-Asíu að hverfa Ef haldið verður áfram að höggva niður tré í Austur-Asíu á þeim hraða sem nú er gert, verða elstu skógar á svæðinu horfnir innan áratugar. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Grænfriðunga. 2.4.2006 13:15
Tælendingar kjósa sér þing Tælendingar gengu að kjörborðinu í morgun og kusu sér þing. Forsætisráðherra landsins boðaði óvænt til kosninga fyrir nokkrum vikum og vildi með þeim reyna að þagga niður í andstæðingum sínum sem hafa krafist afsagnar hans. 2.4.2006 13:00
Matarslagur í Fífunni Í dag verður slegist um hver gerir besta matinn, besta kaffið og hver framreiðir bestu ostrurnar. Íslandsmeistaramót kaffibarþjóna, álfukeppni matreiðslumeistara, ostrukeppni matreiðslumanna og matreiðslukeppni barna er meðal þess sem fram fer á síðasta degi hinnar lystaukandi matarhátíðar Matur 2006 sem fram fer í Fífunni í Kópavogi. 2.4.2006 13:00
Fleiri tilfelli fuglaflensu staðfest í Danmörku Yfirvöld í Danmörku hafa skilgreint 3 km varnarsvæði á Lálandi og í Fåborg á Fjóni þar sem hræ fugla sem voru sýktir af fuglaflensuveiru fundust. Rannsókn á sýnum hefur leitt í ljós að fuglarnir voru sýktir af H5 veiru en ekki liggur fyrir hvort um hið hættulega H5N1 afbrigði er að ræða. 2.4.2006 12:45
Vinnuslys á Hellisheiði Um sjötíu kílóa járnstykki féll og klemmdi hönd á manni við borun í Hellisheiðarvirkjun í nótt. Maðurinn slasaðist talsvert á hönd en vinnufélagar hans gátu losað hann og flutt hann undir læknis hendur. Ekki er vitað um tildrög slyssins en málið er í rannsókn. 2.4.2006 12:30
Rice og Straw til Íraks Condoleeza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir það stefnu bandarískra stjórnvalda að semja um lausn á kjarnorkudeilunni við Írana. Hún segir stöðu mála í Íran aðra en þegar ákveðið var að ráðast inn í Írak. 2.4.2006 12:30
Svarti kassinn fundinn Búið er að finna lík þeirra nítján sem fórust þegar flugvél þeirra skall utan í fjallshlíð rétt fyrir utan Ríó í Brasilíu í fyrrakvöld. Einnig er búið að finna svarta kassann úr vélinni sem var af gerðinni LET 410 og framleidd í Tékklandi. Sautján farþegar voru í vélinni auk tveggja manna áhafnar þegar hún hrapaði. Nokkuð rigndi á því svæði þar sem slysið varð og nokkur þoka. Björgunarsveitir komu að flaki vélarinnar tæpum tíu klukkustundum eftir slysið en erfiðlega mun hafa gengið að ryðja leið í gegnum þétt skóglendi. 2.4.2006 12:00
Allmargir féllu fyrir aprílgabbi NFS Allmargir forvitnir Reykvíkingar óku fram hjá Austurvelli í gærkvöld í von um að sjá þar hundruð nakinna fyrirsæta liggjandi í ljósmyndatöku hjá Spenser Tunic fyrir plötuumslag Stuðmanna. Ekki bar mikið á nektinni enda á ferðinni aprílgabb NFS. 2.4.2006 11:45
Íslendingar byggja óperuhús í Danmörku Íslenskir auðmenn ætla að láta byggja nýtt óperuhús í Kaupmannahöfn. Þannig hljómaði aprílgabb danska dagblaðsins Berlinske Tidende. Blaðið sagði frá því að íslenski fjárfestingasjóðurinn Saga Fairytales Holding, en þó ekki Group, ætlaði að láta reisa óperhúsið gegnt Óperushúsinu í Hólminum sem nýlega var opnað. 2.4.2006 11:30
Börðu mann með kúbeini Þrír menn veittust að þeim fjórða fyrir utan skemmtistaðinn Hvíta húsið á Selfossi í nótt. Grunur leikur á að þeir hafi notað kúbein til að ganga í skrokk á manninum. Að sögn sjónarvotta var engin augljós ástæða fyrir barsmíðunum. Fórnarlambið fékk að snúa til síns heima eftir heimsókn á sjúkrahúsið á Selfossi en árásarmennirnir dúsa í fangageymslum lögreglu. Að auki var maður færður í fangageymslur lögreglunnar á Selfossi vegna heimiliserja. 2.4.2006 11:15
Þarf að varna því að eldar blossi upp aftur Tekist hefur að ráða niðurlögum eldanna á Mýrum. Enn er þó vel fylgst með svæðinu þar sem víða er glóð í skurðbökkum. Það var rétt fyrir miðnætti í gærkvöld sem loks tókst að slökkva síðustu eldanna á Mýrum. Slökkvilið frá Reykjavík, Akranesi, Borgarfirði og Borgarnesi barðist allan daginn við elda sem gusu upp aftur síðdegis en talið hafði verið að búið væri að ráða niðurlögum eldanna. 2.4.2006 10:46
Þingkosningar á Tælandi Tælendingar ganga að kjörborðinu í dag og kjósa sér þing. Thaksin Shinawatra, forsætisráðherra, boðaði óvænt til kosninga fyrir nokkrum vikum en almenningur í landinu hefur gagnrýnt hann harðlega og sakað hann um spillingu og að hafa misbeitt valdi sínu. 2.4.2006 10:15
Óttast ókyrrð í íslensku fjármálalífi Breskir fjárfestar óttast að ókyrrð í íslensku fjármálalífi leiði til þess að íslenskir fjárfestar selji eigur sínar í Bretlandi. Hlutabréf í félögum þar sem íslendingar hafa fjárfest hafa lækkað í verði vegna þessa ótta á umliðnum dögum. Frá þessu er ítarlega greint í blaðinu Sunday Times í dag. 2.4.2006 10:00
Íslendingar í aprílútrás: Reisa óperhús í Danmörku Sagt var frá í Berlingske Tidende í gær að íslenskur fjárfestingasjóður hygðist reisa óperuhús í Kaupmannahöfn, rétt hjá danska óperuhúsinu. 2.4.2006 05:00
Um 20.000 manns á Matur 2006 Meistarakokkar og vöskustu uppvaskarar landsins voru meðal þeirra sem sýndu færni sína í Fífunni í dag. Sýningarnar Matur 2006 og ferðatorg 2006 eru nú í fyrsta skipti haldnar samhliða. 1.4.2006 19:41
Eldfimt ástand á Gasa-ströndinni Heimastjórn Palestínumanna, undir forystu Hamas-liða, hvetur herskáa Palestínumenn til að láta af árásum á liðsmenn Fatah-hreyfingar Abbas forseta. Ástandið á Gasa-ströndinni hefur verið eldfimt frá því leiðtogi herskárra Palestínumanna féll í árás Ísraela í gær. 1.4.2006 19:15
Félag járniðnaðarmanna og Vélstjórafélag Íslands sameinuð Félag járniðnaðarmanna og Vélstjórafélag Íslands voru sameinuð í gær. Formaður Vélstjórafélagsins segir þetta gert því félagsmenn séu í mörgum tilvikum með sama bakgrunn og starfi á sömu vinnustöðum. 1.4.2006 19:06
Atlantsolía hækkar líka Eina olíufélagið sem ekki hafði hækkað bensínverð fyrir helgi, Atlantsolía, fylgdi í fótspor hinna félaganna í dag og hækkaði verðið. Bensínlíterinn af níutíu og fimm oktana bensíni kostar nú tæpar hundrað og átján krónur hjá Atlantsolíu. Hann er á um hundrað og nítján krónur í sjálfsafgreiðslu hjá á bensínstöðvum Esso, Shell og Olís á höfuðborgarsvæðinu. 1.4.2006 19:02
Rice segir mistök hafa verið gerð í Írak Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir ýmis mistök hafa verið gerð í tengslum við innrásina í Írak og eftirmála hennar en í grunninn hafi verið rétt að koma Saddam Hússein, fyrrverandi forseta, frá völdum. Ráðherrann er staddur í heimsókn á Bretlandi, þar sem mótmælendur hafa fylgt henni eftir við hvert fótmál. 1.4.2006 18:45
Slökkviliðið er enn að á Mýrum Þegar talið var að tekist hefði að ná tökum á sinueldinum á Mýrum, tók hann sig upp á nýjan leik. Um eitt hundrað ferkílómetrar af móum og mýrum hafa orðið eldinum að bráð, í þessum langstærsta sinueldi í sögu Íslands. Tugir björgunarmanna voru sótsvartir og sveittir í allan gærdag og alla nótt að berjast við eldhafið á Mýrum en klukkan átta í morgun var talið að tekist hefði að ráða niðurlögum þess. 1.4.2006 18:36
Íranar gera tilraunir með ný flugskeyti Íransher gerði í gær tilraunir með nýja gerð af flugskeytum sem talið er að hægt verði að skjóta á skotmörk í Ísrael og herstöðvar Bandaríkjamanna við Persaflóann. Fregnir þess efnis valda nú Bandaríkjamönnum áhyggjum í ljósi kjarnorkudeilunnar við Írana sem enn er í hnút. 1.4.2006 18:00
Fólk flutt nauðugt af flóðasvæðum Björgunarsveitarmenn og íbúar í bænum Wildberg í Þýskalandi búa sig undir það versta, en vatnshæð í ánni Saxelfur hefur aukist töluvert síðustu klukkustundirnar. Svo gæti farið að 19 fjölskyldu í Dresden verði fluttar nauðungar frá heimilum sínum í dag sökum flóðahættu. 1.4.2006 17:54
Sinueldarnir farnir að loga aftur Sinueldarnir á Mýrum sem talið var að búið væri að slökkva hafa tekið sig upp á ný. Að sögn slökkviliðsins á svæðinu hefur slökkviliðið í Reykjavík, Akranesi og Borgarfirði verið kallað út á ný og þyrla Þyrluleigunnar er í viðbragðsstöðu. Ekki er vitað hve mikill eldurinn er að svo stöddu en hann er töluverður og þar sem bætt hefur í vind af Norð-austan er erfitt að eiga við eldinn 1.4.2006 16:17
Nýtt lággjalda símafyrirtæki Fyrsta lággjalda símafyrirtækið á Íslandi hefur tekið til starfa. Símafyrirtækið Sko ætlar sér að bjóða einfaldari verðskrá og lægra verð í farsímaþjónustu. 1.4.2006 16:11
Ákvörðun Frakklandsforseta fordæmd Verkalýðsfélög og stúdentar fordæma þá ákvörðun Chiracs Frakklandsforseta að staðfesta umdeilda vinnulöggjöf sem mótmælt hefur verið víða um Frakkland síðustu vikur. Forystumenn verkalýðshreyfingarinnar ætla áfram að stefna á allsherjarverkfall í landinu í næstu viku. 1.4.2006 13:20
Slökkvistarfi næstum lokið Tekist hefur að hemja eldhafið sem breiddist yfir hátt í hundrað ferkílómetra svæði á Mýrunum í fyrradag. Slökkvistarfi á Mýrum er nú að mestu lokið og fóru síðustu slökkviliðsmennirnir af svæðinu klukkan átta í morgun. Þó logar enn við Stóra-Kálfafell en á mjög afmörkuðu svæði og er það vaktað af bóndanum þar. Að sögn slökkviliðsins í Borgarnesi gerðu haugsugur bænda útslagið í baráttunni ivð eldana en þeir stóðu íströngu í gær og nótt og dreifðu hlandfori og mykju á eldinn. 1.4.2006 12:34
Sex teknir fyrir hraðakstur Sex ökumenn voru teknir fyrir of hraðann akstur í Hafnarfirði í nótt og var sá sem greiðast ók á 140 kílómetra hraða á Hafnarfjarðarvegi en þar er hámarkshraðinn 80 kílómetrar á klukkustund. 1.4.2006 11:00
Fyrsti geimfari Brasilíu kominn í Alþjóðlegu geimstöðina Fyrsti geimfari Brasilíu gekk um borð í Alþjóðlegu geimstöðina í nótt þegar Sojus geimhylki hans lagði að stöðinni hlaðið birgðum og búnaði. Tveir dagar eru síðan hylkinu var skotið á loft. 1.4.2006 10:45
Eldflaugaárásir í Gasa-borg Ísrelsher gerði í morgun eldflaugaárás á knattspyrnuvöll í Gasa-borg. Eldflaugum var einnig skotið á garð í miðri borginni. Ekki liggur fyrir hvort einhverjir hafi fallið í árásunum. 1.4.2006 10:30
Skipstjórinn yfirheyrður Lögreglan í Bahrain yfirheyrir nú skipstjóra snekkju sem fór á hliðina í fyrrakvöld með þeim afleiðingum að fimmtíu og sjö manns drukknðu. Tveggja er enn saknað. Saksóknari í Bahrain segir skipstjórann ekki hafa nauðsynleg leyfi og því sé hann í haldi. 1.4.2006 10:15
Reyndi að stela byggingarefni Lögreglan í Reykjavík hafði hendur í hári manns í nótt sem var að hlaða byggingarefnum í kerru sem hann hugðist hafa á brott með sér. Talið er að maðurinn hafi ætlað að reyna að koma efninu í verð enda ekki vitað til þess að hann standi í stórframkvæmdum á heimili sínu. 1.4.2006 10:15
Eldar í rénun Bálið á Mýrum er heldur í rénun að sögn Lögreglunnar í Borgarnesi. Þrátt fyrir að talsverður eldur logi en á svæðinu eru slökkviliðsmenn vongóðir um að það takist að halda eldi frá mannvirkjum og byggðum bólum. 1.4.2006 10:00
MA borgar tæpar 2 milljónir Lára Stefánsdóttir, varaþingmaður Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi og fulltrúi flokksins í útvarpsráði, segir RÚV mismuna þátttakendum í Gettu betur eftir búsetu. 1.4.2006 07:00