Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Réttarhöldin í uppnámi Réttarhöldin yfir Zacharias Moussaoui eru í uppnámi eftir að í ljós kom að einn lögmanna stjórnvalda hafði samband við nokkur lykilvitni í málinu. 14.3.2006 16:16
Palestínumenn reiðir Bretum og Bandaríkjamönnum Vesturlandabúar hafa verið skotmörk ævareiðra Palestínumanna á Gasaströndinni og Vesturbakkanum í dag vegna umsátursástand við fangelsi í Jeríkó. Ísraelsher gerði áhlaup á það í morgun og var ætlunin að taka höndum Ahmed Saadat, einn helsta leiðtoga herskrárra Palestínumanna. Palestínumenn kenna Bretum og Bandaríkjamönnum um. 14.3.2006 16:15
Veik álft við Lækinn í Hafnarfirði Veik álft var aflífuð í dag, en hún sást veikburða við Lækinn í Hafnarfirði, að sögn Gunnars Ö. Guðmundssonar héraðsdýralæknis í Gullbringu og Kjósarumdæmis er ekki talin ástæða til að grípa til aðgerða útaf þessu. Fuglar deyja af eðlilegum örsökum á hverju ári og þetta er eitt af þeim tilvikum. 14.3.2006 15:54
65 milljónir til Vestfjarða Húsafriðunarnefnd hefur úthlutað styrkjum fyrir árið 2006 og fara rúmar 65 milljónir króna til Vestfjarða. Í frétt á fréttavefnum Bæjarins besta kemur fram að tíu kirkjur á Vestfjörðum fái styrk en hæsta styrkinn, fjórar milljónir króna, fær Þingeyrarkirkja við Dýrafjörð. 14.3.2006 15:37
Liggur enn á gjörgæslu eftir vinnuslys í Garðabæ Maður sem féll af húsþaki við vinnu sína í Garðabæ í lok febrúar liggur enn þungt haldinn á gjörgæsludeild Landsspítala - háskólasjúkrahúss og er honum haldið sofandi í öndunarvél. Maðurinn hlaut mikla áverka á brjóstholi við fallið sem voru um fimm metrar. Líða hans er eftir atvikum góð, að sögn vakthafandi læknis. 14.3.2006 15:30
Leggur til að upplýsingar um líffæragjöf komi fram á ökuskírteini Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur lagt fram á Alþingi þingsályktunartillögu um að upplýsingar um líffæragjafir komi fram í ökuskírteinum einstaklinga. Hann leggur til að farin verði sú leið að notast við upplýsingar á ökuskírteinum líkt og gert sé í Bandaríkjunum, en látnir ökumenn koma oft til greina sem líffæragjafar. 14.3.2006 15:29
Sparisjóður Vestfjarða fagnar 110 ára afmæli Sparisjóður Vestfjarða fagnar 110 ára afmæli í dag. Sparisjóðurinn var stofnaður árið 1896 og hét þá Sparisjóður Vestur Ísafjarðarsýslu en nafninu var síðar breytt í Sparisjóð Þingeyrarhrepps. 14.3.2006 15:21
Leiðir til hærri vaxta og verri þjónustu Breyting Íbúðalánasjóðs í heildsölubanka fyrir viðskiptabankana getur leitt til þess að vextir íbúðalána hækka og þjónusta við lántakendur minnkar, segir Jóhanna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar. 14.3.2006 15:12
Með fimm hundruð kíló af ufsaflökum í bílnum. Tollverðir í Noregi stöðvuðu nýlega ferðamann sem var með fimm hundruð kíló af ufsaflökum í bílnum. Á fréttavefnum interseafood.com segir að ferðamenn í Noregi stundi gjarnan stangveiðar við strendur landsins. Í seinni tíð séu þeir orðnir faglegir og tómstundagamanið farið að líkjast iðnaði. 14.3.2006 14:42
Gunnar Einarsson bæjarstjóraefni sjálfstæðismanna í Garðabæ Gunnar Einarsson verður bæjarstjóraefni sjálfstæðismanna í Garðabæ við bæjarstjórnarkosningarnar í vor. Ítilkynningu frá Sjálfstæðisflokknum í Garðabæ segir að Gunnar sé starfandi bæjarstjóri í Garðabæ en hann tók við embættinu fyrir tæpu ári þegar Ásdís Halla Bragadóttir lét af störfum. 14.3.2006 14:09
Glitnismótið í hraðskák hefst á morgun Á morgun hefst Glitnismótið í hraðskák í Ráðhúsinu í Reykjavík. Meðal þátttakenda á mótinu eru Judit Polgar og Vishy Anand og er mótið er haldið í minningu um Harald Blöndal sem hefði orðið sextugur á þessu ári. Bakhjarl mótsins er Glitnir en undiriritun samnings þess efnis fór fram í húsnæði Gltinis í morgun 14.3.2006 14:00
Hlutur Fons í Plastprenti í sölumeðferð Tæplega 62% hlutur Fons Eignarhaldsfélags í Plastprenti er nú í sölumeðferð hjá MP Fjárfestingarbanka hf. Fons eignarhaldsfélag, sem er í eigu þeirra Pálma Haraldssonar og Jóhannesar Kristinssonar, er alþjóðlegt fjárfestingafélag sem sérhæfir sig í fjárfestingum í fyrirtækjum með mikla framtíðarmöguleika til vaxtar og hagræðingar. 14.3.2006 13:55
Enn einn kvöldfundurinn um vatnalög Umræður um vatnalagafrumvarp ríkisstjórnarinnar halda áfram á Alþingi í dag, eftir enn einn kvöldfundinn í gær, þar sem aðeins örfáir þingmenn komust í ræðustól. Ekki er útlit fyrir að umræðu um málið ljúki á næstunni. Við upphaf umræðunnar í gærkvöldi gagnrýndi stjórnarandstaðan fundarstörf forseta og krafðist þess að skipulagi væri komið á þingstörf svo þingmenn gætu skipulagt tíma sinn í samræmi við það. 14.3.2006 13:52
Bandaríkjaforseti aldrei óvinsælli Bandaríkjaforseti hefur aldrei verið jafn óvinsæll og nú og fjölgar þeim stöðugt sem krefjast þess að bandaríski herinn verði kvaddur heim frá Írak hið fyrsta. Bush segir ástandið í Írak sífellt fara batnandi og biður landa sína um að sýna stillingu. 14.3.2006 13:46
Hagnaður French Connection minni Útlit er fyrir að hagnaður tískufatafyrirtækisins French Connection á síðasta ári sé aðeins um helmingur af hagnaði ársins á undan eða um 15,7 milljónir punda. Stjórnarformaður French Connection, Stephen Marks er stærsti hluthafinn í félaginu með 42% hlut en Baugur á um 14% hlut í keðjunni, að því er fram kemur á fréttavef The Times. Mikil verðlækkun var á bréfum í French Connection í Kauphöllinni í London í morgun og lækkuðu bréfin um 3,5% á fyrsta klukkutímanum. 14.3.2006 13:44
Forsætisráðherrann óvinsæll Forsætisráðherra Taílands, Thaksin Shinawatra, sagði í dag að hann myndi lýsa yfir neyðarástandi í landinu ef mótmælendur andvígir stjórninni grípi til ofbeldis. 14.3.2006 13:42
Lennard Meri látinn Lennart Meri, fyrrverandi forseti Eistlands er látinn. Hann var 76 ára. Meri hafði háð langa baráttu við erfið veikindi að sögn talsmanns forsetaskrifstofunnar í Eistlandi. 14.3.2006 13:39
Vilja fá að kryfja líkið Rússnesk stjórnvöld hafa farið fram á það við Alþjóðastríðsglæpadómstólinn í Haag að rússneskir læknar fái að kryfja lík Slobodans Milosevic, fyrrverandi forseta Júgóslavíu. Utanríkisráðherra Rússa, segist einfaldlega ekki trúa þeim niðurstöðum krufningar að Milosevic hafi látist úr hjartaáfalli. 14.3.2006 13:36
Kanna þarf áhrif á fuglalíf vegna efnistöku úr Ingólfsfjalli Kanna þarf betur hvaða áhrif efnistaka úr Ingólfsfjalli hafi á fuglalíf, könnun á þessum þætti er á engan hátt fullnægjandi, segir í svari stjórnar Landverndar um frummatsskýrslu sem Fossvélar sendu frá sér í janúar um efnistöku úr fjallinu. 14.3.2006 13:18
Áhrif áliðnaðarins á alþjóðlegar skuldbindingar Íslands Náttúruverndarsamtök Íslands hafa aflað sér lögfræðiálits um hverjar skuldbindingar Íslands séu gagnvart Kyoto-bókuninni og Rammasamningi Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar. Lögfræðiálitið var unnið af Dr Roda Verheyen hjá lögmannsstofu Gunther, Heidel, Wollenteit og Hack í Hamburg. 14.3.2006 12:03
Krónan og úrvalsvísitalan tóku við sér í morgun Bæði krónan og úrvalsvísitalan tóku við sér í morgun og hækkuðu á ný eftir að markaðsvirði þriggja stóru bankanna hér á landi hafði rýrnað um tæpa tvö hundruð milljarða króna á þremur vikum. 14.3.2006 11:30
Alvarlega slösuð eftir bílslys á Sæbraut Líðan konunnar sem slasaðist í bílslysi á Sæbraut í gærmorgun er stöðug en hún slasaðist mjög alvarlega, er hún enn á gjörgæsludeild Landsspítala Háskólasjúkrahúss. 14.3.2006 10:38
Hannes Hlífar Stefánsson efstur Íslendinga Alþjólega Reykjavíkurskákmótinu lýkur í dag en efstir fyrir síðustu umferð með sex og hálfan vinning eru norski undradrengurinn Magnus Carlsen, Armeninn Gabriel Sargissian og Indverjinn Pentala Harikrishna. 14.3.2006 09:48
Ók of hratt með kerru í eftirdragi Ökumaður, sem lögreglan í Vík í Mýrdal tók nýverið fyrir að aka á hundrað tuttugu og þriggja kílómetra hraða, eða rösklega 40 kílómetrum yfir leyfilegum hámarkshraða, reyndist líka vera með kerru í eftirdragi. Kerrur eru afar mismunandi vel búnar, en hvað sem þær eru vel úr garði gerðar vill lögreglan benda fólki á að þær eru ekki ætlaðar til hraðaksturs. 14.3.2006 09:45
Tveggja mánaða skilorðsbundinn dómur Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt rúmlega tvítugan mann í tveggja mánaða skiloðrsbundið fangelsi og til að greiða rúmlega hundrað þúsund krónur í skaðabætur fyrir líkamárás á skemmtistaðnum Nelly's í nóvember 2004 en meintur vitorðsmaður hans í málinu var sýknaður. 14.3.2006 09:45
Afli íslenskra fiskiskipa dregst saman Afli íslenskra fiskiskipa hefur dregist saman um tæplega fjörutíu prósent á yfirstandandi fiskveiðiári miðað við síðasta ár. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Fiskistofu í tilefni þess að í lok febrúar var fiskveiðiárið hálfnað. 14.3.2006 09:39
Íbúar Reykjavíkur borga ljósleiðaravæðingu á Seltjarnarnesi Lagning ljósleiðara í mörgum hverfum Reykjavíkur hefur setið á hakanum á sama tíma og borgarbúar eru látnir standa undir kostnaði við ljósleiðaravæðingu í öðrum sveitarfélögum. 14.3.2006 09:34
Öryggisráðið ræðir stöðu Írans Fulltrúar þeirra ríkja í Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna sem hafa þar neitunarvald, Kína, Frakklands, Rússlands, Bandaríkjanna og Bretlands, hittust í gær til að ræða stöðu Írans. Engin niðustaða fékkst í málinu en á meðan Bandaríkjamenn og Bretar vilja beita refsiaðgerðum sem fyrst, segja Rússar þá aðferð skila engum árangri. 14.3.2006 09:30
Krefjast afsagnar forsætisráðherra Um 20 þúsund manns söfnuðust saman nærri bústað forsætisráðherra Taílands í Bangkok í gær og krafðist fólkið afsagnar Thaksin Shinawatra, forsætisráðherra landsins. Búist er við að mótmælin haldi áfram í dag. Ásaka mótmælendurnir Thaksin um spillingu og að taka ekki rétt á uppreisn múslíma í Suður-Taílandi. Einnig að hefta málfrelsi fjölmiðla og að stunda fyrirgreiðslupólitík. 14.3.2006 09:15
Eldur í mjölgeymi Eldur kviknaði í mjölgeymi við fiskimjölsverksmiðjuna í Helguvík á níunda tímanum í gærkvöldi og var slökkvilið kallað á vettvang. Eldurinn náði ekki útbreiðslu og gekk greiðlega að slökkva hann. Ekki liggur fyrir hversu mikið tjón hlaust af honum en talið er að eldsupptök megi rekja til ofhitnunar á mjöli. 14.3.2006 09:00
Enn deilt hart um dauða Milosevic Slobodan Milosevic, fyrrverandi forseti Júgóslavíu, verður grafinn í Belgrad án viðhafnar. Stjórnmálaskýrendur telja að allt að ein miljón manna verði við útförina. Dómstóll í Belgrad dró í gær til baka handtökutilskipunina á Miru Markovitch, ekkju Milosevic en Mira hefur dvalist í Rússlandi undanfarin ár ásamt syni sínum. Þau hafa verið eftirlýst í Serbíu, sökuð um að misnota vald sitt á valdatíma Milosevic. 14.3.2006 08:45
Eitt stærsta fíkniefnamál á Litla Hrauni Lögreglan á Selfossi rannsakar nú eitt stærsta fíkniefnamál, sem upp hefur komið í fangelsinu á Litla Hrauni. Við leit á fanga, sem hafði fengið dags leyfi um helgina, fundust hundrað grömm af hassi og nokkrir tugir gramma af amfetamíni þegar hann kom aftur í fangelsið. Hann var strax settur í einangrunarvist og verið er að rannsaka hvort hann hafi átt vitorðsmenn innan veggja fangelsisins. 14.3.2006 08:45
Féll af snjóbretti og missti meðvitund Ungur drengur missti meðvitund þegar hann féll af snjóbretti í Bláfjöllum í gærkvöld. Þegar var kallað á sjúkrabíl, en þegar hann og lögregla komu á vettvang hafði drengurinn rankað við sér. Engu að síður var hann fluttur á Slysadeild til rannsóknar og reyndist hann óbrotinn. 14.3.2006 08:30
Tíu látist í skýstrokkum Að minnsta kosti tíu manns hafa farist af völdum skýstrokka í miðvesturríkjum Bandaríkjanna undanfarna tvo sólarhringa. Mest varð tjónið í Missouri-ríki þar sem fjórir létust. Skólar voru víða lokaðir í gær vegna skýstrokka og hvassviðris þar á meðal í Suður-Dakóta, Wisconsin og Minnesota, auk Missouri. 14.3.2006 08:30
Óvinsældir Bush aldrei meiri George Bush, forseti Bandaríkjanna, fullyrðir að þótt ástandið í Írak sé spennuþrungið, sé lítil sem engin hætta á borgarastyrjöld. Hvatti forsetinn landa sína til að vera þolinmóða. Sprengjutilræði í mosku sjía í Írak þann 22. febrúar leiddi til þess að hátt í þúsund manns hafa fallið í hefndaraðgerðum. 14.3.2006 08:15
Borgarbúar borga fyrir lagningu ljósleiðara á Seltjarnarnesi Lagning ljósleiðara í mörgum hverfum Reykjavíkur hefur setið á hakanum á sama tíma og borgarbúar eru látnir standa undir kostnaði við ljósleiðaravæðingu í öðrum sveitarfélögum. Þessu heldur Félag sjálfstæðismanna í Vestur- og miðbæ fram og vandar borgaryfirvöldum ekki kveðjurnar. 14.3.2006 08:00
Þurfti að beita táragasi Óeirðalögregla í París þurfti að beita táragasi til að dreifa fjölda námsmanna sem efndi til mótmæla gegn nýjum lögum um störf fyrir ungt fólk í gær. Lögin fjalla um starfssamninga fólks undir 26 ára aldri með ákvæðum um möguleika á uppsögn án útskýringa innan tveggja ára. Þeim er ætlað að hvetja vinnuveitendur til að ráða ungt fólk án þess að þeir þurfi að óttast að sitja uppi með starfsmenn sem ekki standa sig. 14.3.2006 08:00
Markaðsvirði rýrnað um 200 milljarða Markaðsvirði þriggja stóru bankanna hér á landi hefur rýrnað um tæpa tvö hundruð milljarða króna á þremur vikum eftir að Fitch Ratings gaf út skýrslu sína um íslenskt efnahagslíf. Þá vekur Morgan Stanley athygli á mikilli hlutabréfaeign bankanna og að íslensku bréfin hafi hækkað um 60 til 75 prósent á einu ári. Ef sú hækkun íslensku bréfanna gengi verulega til baka, eða um 50 prósent, myndi eign bankanna í þeim rýrna um samtals 48 milljarða króna. 14.3.2006 07:49
Atvinnuleysi 1,6% í febrúar Atvinnuleysi á landinu mældist 1,6% í síðasta mánuði en var 2,8% á sama tíma í fyrra. Þetta kemur fram í tölum sem Vinnumálastofnun birti á vefsíðu sinni í dag. Í ár voru skráðir hátt í 47 þúsund atvinnuleysisdagar á öllu landinu í febrúar sem jafngildir því að rúmlega 2300 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá. 13.3.2006 23:15
Lík af ungabörnum fundust á heimili í Þýskalandi Þrjú illa farin lík af ungabörnum fundust á heimili 36 ára þýskrar konu í gær. Nokkur ár virðast liðin síðan börnin voru myrt. 13.3.2006 23:00
Þrír látnir úr fuglaflensu í Azerbædjan Þrjú dauðsföll af völdum fuglaflensu voru staðfest í Azerbædjan í kvöld. Fuglaflensa hefur ekki áður greinst í fólki í landinu. 13.3.2006 22:45
Markviss áróður gegn stjórnvöldum í Íran Bandaríkjastjórn hyggst hefja markvissan áróður gegn stjórnvöldum í Íran. George Bush, Bandaríkjaforseti, sakaði Írana í dag um að eiga stóran þátt í ófremdarástandinu í Írak. 13.3.2006 22:18
Utanríkisráðherra í opinbera heimsókn til Danmerkur Tveggja daga opinber heimsókn Geirs H. Haarde utanríkisráðherra og Ingu jónu Þórðardóttur, eiginkonu hans, til Danmerkur, hófst í dag. Heimsóknin hófst með fundi milli utanríkisráðherrans og danska varnarmáraráðherrans, Søren Gade. 13.3.2006 22:15
Milosevic hugsanlega jarðsettur í Serbíu Boris Tadic, forseti Serbíu, útilokar ekki að Slobondan Milosevic verði jarðaður í Serbíu. Fyrr í dag sagði Tadic það fullkomlega óviðeigandi að Milosevic yrði borinn til grafar þar. 13.3.2006 22:14
Engin niðurstaða á fundi Forseti Alþingis átti í kvöld fund með þingflokksformönnum til að reyna að leita leiða til að leysa þann hnút sem umræður um vatnalög iðnaðarráðherra eru komnar í á Alþingi. Ekkert samkomulag náðist. Kvöldfundi um málið var því framhaldið og alls óvíst hvenær annarri umræðu um málið lýkur. 13.3.2006 22:04