Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hlutverk Íbúðalánasjóðs endurskoðað Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra hefur beðið um að endurskoðun á hlutverki Íbúðalánasjóðs verði hraðað en horft er til þess að breyta honum í heildsölubanka. Halldór fól nýjum félagsmálaráðherra að fylgja málinu eftir þegar breytingar urðu á ríkisstjórninni. 13.3.2006 19:45
Heilbrigðisráðherra tók ekki af skarið Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðisráðherra tók ekki af skarið í umræðum á Alþingi í dag og lofaði fjármögnun til hágæsluherbergis á Barnaspítalanum. Þess í stað benti hún á að spítalinn hefði ekki haft þetta á forgangslista. Þingumræðurnar voru sprottnar af umfjöllun Kompáss í í gærkvöld, en þar sögðu foreldrar frá átakanlegri reynslu af því þegar barn þeirra dó í höndunum á þeim, á langri leið frá Barnaspítalanum til gjörgæslu. 13.3.2006 19:30
Húsvíkingar margt reynt í atvinnumálum Pappírsverksmiðja, parketvinnsla, krókódílaeldi, tílapíaeldi, glúkósaverksmiðja, pólýolverksmiðja. Allt eru þetta dæmi um tilraunir til atvinnuuppbyggingar á Húsavík. Bæjarstjórinn á Húsavík segir það lýsa hroka og fordómum þegar því sé haldið fram að þar hafi menn bara beðið eftir álveri. Þvert á móti hafi menn í áratugi leitað að tækifærum. 13.3.2006 19:21
Hlutabréf féllu - krónan lækkaði Hlutabréf í Kauphöll Íslands féllu um nærri fjögur prósent í dag. Þetta er mesta lækkun sem orðið hefur á einum degi hérlendis í eitt og hálft ár. Krónan lækkaði um tvö prósent og hefur hún ekki verið veikari frá því haustið 2004. Erlend fjármálafyrirtæki hafa sent ýmist neikvæðar eða jákvæðar umsagnir um íslensku bankana í dag og um helgina. 13.3.2006 19:13
Ekki í hættu Íslenska bankakerfið er fjarri því að vera í einhverri hættu vegna gagnrýni erlendra fjölmiðla, segir fjármálaráðherra. Danska fjárfestingafélagið Nykredit beindi því umbúðalaust til fjárfesta sinna í dag að losa sig við skuldabréf í íslensku bönkunum. 13.3.2006 19:05
Rússar draga krufninguna í efa Eiturefnafræðingur segist hafa fundið lyf í líkama Slobodans Milosevic, fyrrverandi forseta Júgóslavíu, sem hafi óbeint valdið hjartaáfallinu sem dró hann til dauða á laugardagsmorgun. Rússnesk stjórnvöld efast um hlutleysi þeirra sem skera úr um dánarorsök forsetans fyrrverandi. 13.3.2006 19:00
Framsókn sameinist Samfylkingu Framsóknarflokkurinn á að skoða af fullri alvöru nánari samvinnu, eða jafnvel sameiningu við Samfylkinguna, segir Framsóknarþingmaðurinn Kristinn H. Gunnarsson. Flokkurinn virðist, að hans mati, hafa misst forystuhlutverk sitt í íslenskum stjórnmálum. 13.3.2006 19:00
Kona handtekin vegna morðsins á Hariri Líbönsk kona sem grunuð er um aðild að morðinu á Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons, var handtekin í Sao Paulo í Brasilíu í gær. Brasilíska lögreglan greindi frá þessu í dag. 13.3.2006 18:15
Harður árekstur við Hvalfjarðargöngin Fólksbifreið lenti í hörðum árekstri við vörubíl með tengivagn á gatnamótum Akrafjallsvegar og Innnesvegar á fimmta tímanum. Þrír voru í fólksbifreiðinni, allt unglingar. Nota þurfti klippur til að ná ökumanni hennar, 17 ára pilti, út úr bílnum og var hann fluttur mikið slasaður til aðhlynningar í Reykjavík. 13.3.2006 18:13
Hjálparstarf kirkjunnar vill að ríkið endurgreiði 2 milljónir Fulltrúaráð Hjálparstarfs kirkjunnar fer fram á að ríkið endurgreiði tvær milljónir króna sem innheimtar voru í virðisaukaskatt af söfnun til neyðaraðstoðar í Pakistan. Söfnunin fór fram með sölu á geisladisknum Hjálpum þeim. 13.3.2006 18:00
Milosevic verði ekki borinn til grafar í Belgrad Boris Tadic, forseti Serbíu, hefur alfarið hafnað því að Slobodan Milosevic, fyrrverandi forseti Júgóslavíu, verði borinn til grafar í Belgrad, höfuðborg Serbíu. 13.3.2006 17:45
Ekki óskað eftir framsali Taylors Stjórnvöld í Líberíu sögðu í dag ekkert til í þeim fréttum að þau hafi formlega farið þess á leit við yfirvöld í Nígeríu að Charles Taylor, fyrrverandi forseti Líberíu, verði framseldur. Taylor er eftirlýstur fyrir stríðsglæpi. 13.3.2006 17:30
Langhlaup en ekki spretthlaup Úrvalsvísitalan lækkaði um rétt tæp 4% í dag og gengi nokkurra stórra fyrirtækja lækkaði um meira en 5%. Ingólfur Bender, forstöðumaður greiningardeildar Glitnis, segir þrátt fyrir þetta enga ástæðu til að óttast hrun á markaðnum. 13.3.2006 17:30
Hvött til að tryggja fjármagn fyrir hágæsluherbergi Siv Friðleifsdóttir, nýr heilbrigðisráðherra, var hvött til þess á þingi í dag til að tryggja fjármagn til að reka hágæsluherbergi á Barnaspítalanum. Ráðherra tók ekki af skarið en sagði málið í skoðun og benti jafnframt á að stjórn spítalans hefði ekki haft slíkt herbergi á forgangslista fyrir þetta fjárlagaár. 13.3.2006 17:30
Eignir lífeyrissjóða 1220 milljarðar Eignir lífeyrissjóðanna námu 1220 milljörðum íslenskra króna í lok janúar og jukust um 54 milljarða í mánuðinum. 13.3.2006 17:15
Krefjast afsagnar forsætisráðherra Tælands Búist er við að allt að 100 þúsund mótmælendur safnist saman við skrifstofu Thaskin Shinawatra, forsætisráðherra Tælands á morgun til að krefjast afsagnar hans. Almenningur í Tælandi hefur staðið fyrir friðsömum fjöldamótmælum undanfarin mánuð í eftir að fjölskylda forsætisráðherrans seldi fyrirtæki sitt til fjárfestingarfyrirtækis í eigu stjórnvalda í Singapore. Fjölskylda forsætisráðherrans hagnaðist um tvo milljarða bandaríkjadal af sölunni en greiddi enga skatta til tælenska ríkisins. 13.3.2006 17:00
Engar breytingar fyrr en í október Engar breytingar verða á viðskiptum lággjaldaflugfélagsins Sterling, sem er í eigu FL Group, og ferðaskrifstofunnar Star Tours þar til í október að því er fram kemur í tilkynningu frá Sterling. Sterling hefur séð um farþegaflutninga fyrir Star Tours sem nú snýr sér að SAS. 13.3.2006 16:45
Fyrirlestri mótmælt Nokkrir stúdentar við Háskóla Íslands stóð fyrir mótmælum í og við Odda í hádeginu þar sem fram fór fyrirlestur bandaríska fræðimannsins og stjórnmálaráðgjafans Michael Rubin. Mótmælendurnir andæfðu þætti hans í stefnumótun bandarískra stjórnvalda vegna innrásarinnar í Írak. 13.3.2006 16:30
Rússar treysta ekki krufningarniðurstöðum Rússnesk yfirvöld segjast ekki treysta niðurstöðu krufningar á líki Slobodans Milosevic, fyrrverandi forseta Júgóslavíu, sem framvkæmd var í Hollandi og sýnir að hann hafi látist úr hjartaáfalli. Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, staðfesti í dag að handskrifað bréf hefði borist rússneskum yfirvöldum frá Milosevic. 13.3.2006 16:15
Úrvalsvísitalan niður fyrir 6000 stig Úrvalsvísitalan hefur lækkað um rétt tæp 4% frá opnun markaðar í morgun. Hún er nú komin niður fyrir 6000 stig. Gengi hlutabréfa í Kauphöllinni hefur lækkað töluvert í dag og hefur lækkunin verið einna mest hjá fjármálastofnunum. 13.3.2006 15:30
Hinir efnameiri geti ekki greitt fyrir forgang Bæði Samfylkingin og Vinstri - grænir leggjast gegn þeim hugmyndum að hinum efnameiri verði heimilað að greiða fyrir það að komast framar á biðlista í heilbrigðiskerfinu, en hvatt er til umræðu um það í nýrri skýrslu á vegum nefndar heilbrigðisráðherra. Fulltrúi Samfylkingarinnar í nefndinni segir markmiðið að kalla eftir skýrum svörum stjórnmálaflokkanna í þessum efnum. 13.3.2006 15:28
Áframhaldandi átök um vatnalögin Bullandi ágreiningur er enn milli stjórnar og stjórnarandstöðu vegna vatnalaganna en fundi iðnaðarnefndar vegna málsins er lokið. Fulltrúi Samfylkingarinnar í nefndinni segir ríkisstjórnina vilja æða fram með málið til að lögfesta víðtækari eignarnámsheimildir sem hún þurfi vegna hinna miklu vatnsflutninga í tengslum við Kárahnúkavirkjun. 13.3.2006 15:20
Mikið að gera hjá lögreglunni í Hafnarfirði Lögreglan á Álftanesi, í Garðabæ og Hafnarfirði hafði í nógu að snúast um helgina. Nokkuð bar á ölvun og þurfti lögreglan að hafa afskipti af þónokkrum vegna þessa. Áföstudagskvöld var lögreglan kölluð til að heimili í Garðabæ vegna hávaða og þegar hún hugðist hafa afskipti af stúlku einni sem var mikið ölvuð veittust að henni tveir menn. 13.3.2006 14:15
Sækir um skráningu á bólefni gegn leghálskrabba Lyfjafyrirtækið GlaxoSmithKline hefur sótt um skráningu á bóluefni til Evrópsku Lyfjastofnunarinnar fyrir bóluefni sem fyrirtækið hefur þróað gegn leghálskrabbameini. Bóluefnið sem nefnist Cervarix hefur í klíniskum rannsóknum sýnt fram á 100% vörn gegn viðvarandi sýkingu af völdum HPV-veiru sem veldur um 70% tilfella leghálskrabbameins í heiminum. 13.3.2006 14:15
Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn samþykkja Mikill meirihluti slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna samþykkti kjarasamning félagsins við Launanefnd sveitarfélaganna. Tæp 78% þeirra sem greiddu atkvæði sögðu já en tæp 21% sögðu nei. Kjörsókn var góð og greiddu eða um 91%. 13.3.2006 13:57
Fá greitt frá klámiðnaðinum Tölvuþrjótar fá greitt frá fyrirtækjum í klámiðnaði til að koma af stað svokölluðum pop-up gluggum hjá tölvunotendum um allan heim. Í grein sem birtist í Washington Post segir að þrjótarnir eru með leitarvélar sem eru starfandi allan sólarhringinn og finna óvarðar vélar sem ekki hafa veiruvarnarforrit og koma fyrir hugbúnaði sem gefur þeim fulla stjórn á viðkomandi tölvum. Þegar notandinn opnar vafra þá opnast sjálfkrafa ótal klámsíður svo kallaðir pop-up gluggar, með þessu eykst umferð á klámsíður og fyrir þetta borgar klámiðnaðurinn tölvuþrjótum stórfé. 13.3.2006 13:45
Ökumaðurinn ekki í lífshættu Mjög alvarlegt umferðarslys varð á Sæbraut, laust fyrir hádegi og var Sæbrautinni lokað um tíma. Áreksturinn varð milli rútu og fólksbifreiðar á gatnamótum Súðavogar og Sæbrautar. Rútan var á leið vestur eftir Sæbrautinni þegar henni var að því er virðist ekið inn í hlið fólksbifreiðarinnar sem var að koma frá Súðavogi. Aðstæður á vettvangi benda til þess að þetta hafi verið mjög alvarlegt slys, og hefur lögreglan staðfest að svo sé. 13.3.2006 13:02
Ekki útilokað að Milosevic hafi verið byrlað eitur Ekki er útilokað að Slobodan Milosevic, fyrrverandi forseta Júgóslavíu, hafi verið byrlað eitur en Milosevic lést úr hjartaáfalli samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum krufningar. Krufningin var gerð af hollenskum réttarlæknum að tveimur serbneskum réttarlæknum viðstöddum. Saksóknarar segja að eiturefnafræðileg rannsókn verði samt sem áður gerð þótt dánarorsökin liggi fyrir. Þrálátur orðrómur er á kreiki um að hann hafi stytt sér aldur, jafnvel að eitrað hafi verið fyrir honum. 13.3.2006 12:45
Fleiri ökuníðingar á Akureyri nú en í fyrra Hátt í þrjátíu ökumenn voru sektaðir fyrir of hraðan akstur á Akureyri í gærdag, sem er langt yfir meðallagi, og frá mánaðamótum er búið að svipta fimm ökumenn réttindum vegna ofsaaksturs. Frá áramótum er Akureyrarlögreglan búin að sekta 350 ökumenn fyrir hraðakstur, sem er hátt í sex sinnum fleiri en á sama tíma í fyrra. Þá sektaði Blönduósslögreglan 85 ökumenn um helgina, sem er líka vel yfir meðallagi. 13.3.2006 12:45
Viðurkenndi að hafa fyrirskipað aftökur Einn af samstarfsmönnum Saddams Hussein viðurkenndi í morgun fyrir rétti að hann hefði gefið út fyrirskipun um aftöku 148 manna. Awad Hamed al-Bandar var áður yfirmaður byltingardómstólsins í Írak og er ásamt hinum sjö verjendunum kærður fyrir að bera ábyrgð á drápunum í sjítabænum Dujail árið 1982. Verði áttmenningarnir fundnir sekir, gætu þeir átt yfir höfði sér dauðadóm. 13.3.2006 12:30
Mótmæli stúdenta í og við Odda Hópur stúdenta við Háskóla Íslands stendur nú fyrir mótmælum í og við Odda, en þar hefst eftir nokkrar mínútur fyrirlestur bandaríska fræðimannsins og stjórnmálaráðgjafans Michael Rubin. Eftir því sem næst verður komist vilja mótmælendurnir andæfa þætti hans í stefnumótun bandarískra stjórnvalda vegna innrásarinnar í Írak. 13.3.2006 12:15
Þrír Litháar í gæsluvarðhaldi Lithái var handtekin á Keflavíkurflugvelli fyrir um hálfum mánuði síðan og úrskurðaður í gæsluvarðhald, en hann tengist amfetamínframleiðslu hér á landi. Tveir landar hans sitja einnig í gæsluvarðhaldi. 13.3.2006 12:08
Nýtt vaktakerfi vagnstjóra í skoðun hjá BSRB Nýtt vaktakerfi vagnstjóra Strætó er í skoðun hjá Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar og BSRB en kynningarfundum á því lauk fyrir helgi. Ásgeir Eiríksson framkvæmdastjóri Strætó kynnti vagnstjórum hitt nýja vaktarkerfi á fjórum fundum í síðustu viku. 13.3.2006 12:05
Auðveldar stuðning við nýsköpun og hátækni Auðveldara verður fyrir lífeyrissjóði að styðja við nýsköpun og hátækni, samkvæmt frumvarpi sem fjármálaráðherra kynnti í dag. Þá fá slík fyrirtæki auknar skattaívilnanir til að auðvelda rannsóknar -og þróunarstarf. Í fyrsta lagi verður reglugerð breytt þannig að fyrirtæki í þróunarstarfi geta verið með svokallaða fyrirfram skráningu í virðisaukaskattskerfnu í 12 ár í stað 6. Þá ætlar ráðherra að leggja fram frumvarp um að svokallað leiðréttingar tímabil vegna fasteigna lengist úr 10 árum í 20. 13.3.2006 12:01
Alvarlegt umferðarslys á Sæbrautinni Mjög alvarlegt umferðarslys varð á Sæbraut, laust fyrir hádegi, og er hún nú lokuð frá Kleppsmýrarvegi og Miklubraut. Bráðasveitir lögreglu og slökkviliðs eru nú á Sæbrautinni vegna slyssins. Áreksturinn varð milli rútu og fólksbifreiðar og virðist sem rútan hafi ekið inn í hlið fólksbifreiðarinnar. Aðstæður á vettvangi benda til þess að þetta hafi verið mjög alvarlegt slys, og hefur lögreglan staðfest að svo sé. Ökumennirnir voru einir í farartækjum sínum. 13.3.2006 11:59
Iðnaðarnefnd fundar vegna vatnalaga Iðnaðarnefnd Alþingis kemur saman nú klukkan ellefu þar sem ræða hin umdeildu vatnalög. Önnur umræða um málið hófst á þingi fyrir viku en deilur um hvort kveða eigi skýrt um eignarhald á vatni urðu til þess að stjórnarandstaðan greip til málþófs. 13.3.2006 10:45
Áfram réttað yfir Saddam Hussein Réttarhöldin yfir Saddam Hussein, fyrrverandi forseta Íraks, og sjö samstarfsmönnum hans, hófust að nýju í Bagdad í morgun. Verið er að taka skýrslur af sakborningunum, sem ákærðir hafa verið fyrir glæpi gegn mannkyninu með því að skipuleggja fjöldamorð á shitamúslinum. 13.3.2006 10:30
Sterling missir stærsta viðskiptavin sinn Lágjaldaflugfélagið Sterling, sem er í eigu FL Group, hefur misst stærsta viðskiptavin sinn yfir til SAS. Þetta á við um farþegaflutninga fyrir Star Tour næstu tvö ferðatímabil og snýst um flutning á umþaðbil 200 þúsund manns. Það jafngildir að þrjár flugvélar með tilheyrandi áhöfnum séu í stanslausum flutningumn fyrir Star Tour. Sölustjóri ferðaskrifstofunnar segir þetta stærsta samning í sögu dönsku ferðarþjónustunnar, en talsmaður Sterling segir að félagið hafi ekki getað teygt sig lengra í tilboði sínu, en gert var. 13.3.2006 10:15
Mannskæðir skýstrókar fara um Bandaríkjunum Tveir létust þegar bíll sem þeir voru í lenti í skýstrók í Missouri í Bandaríkjunum. Bíllinn þeyttist upp á gastank með fyrrgreindum afleiðingum. Skýstrókar hafa eyðilagt um tuttugu heimili á um þrjátíu kílómetra leið frá Missouri að Illinois og hafa nokkrir særst í ósköpunum að sögn lögregluyfirvalda á staðnum. 13.3.2006 10:00
Rauð viðvörunarljós blikka á Íslandi Rauð viðvörunarljós eru farin að blikka á Íslandi, segir í fyrirsögn norska blaðsins Dagens Næringsliv um helgina. Þar er meðal annars vitnað í nýlega greiningu Fitch Rating, sem leiddi til lækkunar á gengi og verðbréfum í síðustu viku. Blaðamenn blaðsins, sem voru hér við efnisöflun, segja að Ísledingar hafi með gríðarlegri lántöku, náð að kaupa nokkur eftirsóknarverð fyrirtækið í Evrópu. 13.3.2006 09:09
Sex látast í miklum eldum Sex hafa látist í miklum eldum í Texas og hafa sex til viðbótar slasast. Tveir hinna látnu voru að reyna að flýja heimili sín þegar þeir létust. Eldarnir ná yfir meira en 120 þúsund hektara lands og hefur erfilega gengið að ráða niðurlögum þeirra. Flugvélar og þyrlur hafa ekki getað tekið þátt í slökkvistarfinu vegna vinda en vindhraðinn hefur farið upp í 89 kílómetra á klukkustund í mestu hviðunum. 13.3.2006 09:00
Styðja forseta Kólombíu Samkvæmt fyrstu tölum virðist sem að flokkar sem styðja forseta Kólumbíu, Alvaro Uribe, ætli að vinna sannfærandi sigur í þingkosningunum þar í landi. Búið er að telja tvo þriðju hluta atkvæða. Kólumbíumenn gengu í kosninga í gær og það gekk nokkuð greiðlega fyrir sig eftir að hótanir uppreisnarmanna um ofbeldisverk urðu að engu. 13.3.2006 08:45
Drottning í heimsókn í Ástralíu Elísabet Englandsdrottning er nú í heimsókn í Ástralíu ásamt eiginmanni sínum, hertoganum af Edinborg. Drottningunni var tekið fagnandi en það var forsætisráðherra landsins, John Howard, sem tók á móti þeim hjónum ásamt konu sinni auk fleiri fyrirmenna Ástralíu. Drottningin setur Samveldisleikana í Melbourne á miðvikudag. Þaðan heldur drottningin ásamt eiginmanni sínum til Singapúr. 13.3.2006 08:30
Æfa sig fyrir Afganistan í Noregi Yfir þrjú þúsund breskir friðargæsluliðar undirbúa nú för sína til Afganistan með stífum heræfingum í Noregi. Yfirmaður í breska hernum, Jim Booney, sagði í samtali við fréttastofuna Sky í gær, að ekkert væri eins erfitt og að lifa af og berjast í kulda, og því væri norður Noregur góður staður til að æfa sig á. En æfingarnar eru ansi strembnar og svo sannarlega ekki fyrir alla. NATO vill auka og styrkja friðargæslustarfsemina í Afganistan og verða því yfir sex þúsund hermenn, aðallega frá Bretlandi, Kanada og Hollandi sendir til Afganistan fyrir nóvemberlok. 13.3.2006 08:15
Yfir sjö tonn af kokaíni fundust í Kolombíu Lögreglan í Kólumbíu lagði hald á yfir sjö tonn af kókaíni í borginni Barrankía, norður af Bogota höfuðborg landsins í gær. Um er að ræða efni að andvirði tíu milljarða íslenskra króna og hafa tveir menn verið handteknir vegna málsins. Lang stærsti hluti kókaíns í heiminum er framleiddur í Kólumbíu og fer yfir níutíu prósent þess í sölu í Bandaríkjunum. Verði mennirnir fundnir sekir, gætu þeir átt yfir höfði sér dauðadóm. 13.3.2006 08:00