Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Búið að opna Siglufjarðarveg Búið er að opna Siglufjarðarveg og veginnn á milli Dalvíkur og Ólafsfjarðar en stórhríð og hálka er á Víkurskarði, óveður og ófært um Tjörnes til Vopnafjarðar um Melrakkasléttu og ófært er á Mývatnsöræfum. Á Austurlandi er ófært og óveður um Möðrudalsöræfi, Vopnafjarðarheiði og Fjarðarheiði, stórhríð og ófært er á Oddsskarði, ófært um Breiðdalsheiði og Öxi, hálka og snjóþekja á öðrum leiðum. 17.1.2006 11:41
Íranar handtaka írakska strandgæslumenn Írakar hafa farið fram á að nágrannar þeirra Íranar sleppi níu strandgæslumönnum sem teknir voru höndum eftir að þeir réðust um borð í skip á ánni Shatta al-Arab sem þeir grunuðu um að væri notað til að smygla olíu. 17.1.2006 11:30
Búið skipa fulltrúa í matarverðsnefnd Forsætisráðherra hefur skipað fulltrúa í nefnd sem fjalla á um helsty orsakaþætti hás matvælaverðs á Íslandi og gera tillögur sem miða að því að færa matvælaverð nær því sem gengur og gerist í helstu nágrannaríkjunum. 17.1.2006 11:15
Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar 80 ára í dag Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar fagnar í dag 80 ára afmæli sínu. Fram kemur á heimasíðu BSRB að stjórn og fulltrúaráð félagsins hafi ákveðið að minnast þessara merku tímamóta með ýmsum hætti. Viðamesta framtak félagsins í tilefni afmælisins verði að styðja við bakið á starfsemi í þágu barna og ungs fólks með fjárframlögum. 17.1.2006 11:00
Íranar aflétta banni af CNN Írönsk stjórnvöld hafa dregið til baka bann um að fréttamenn CNN starfi í landinu. Banninu var komið á í gær vegna þess að fréttastöðin þýddi rangt orð Mahmouds Ahmadinejads, forseta Írans, sem sagði Írana hafa rétt til þess að nýta sér kjarnorkutækni. CNN þýddi orð hans hins vegar svo að Íranar hefðu rétt á að nota kjarnorkuvopn. 17.1.2006 10:45
Allen tekinn af lífi í Kaliforníu Hæstiréttur Bandaríkjanna varð ekki við beiðni Clarence Ray Allen, fanga í San Quentin fangelsinu í Kaliforníu, um að hnekkja dauðadómi yfir honum og því var hann tekinn af lífi í morgun. Allen biðlaði til Hæstaréttar á þeirri forsendu að það teldist grimmilegt að taka af lífi aldraðan og lasburða mann, en Allen, sem var 76 ára, var blindur, í hjólastól og þjáðist af sykursýki. 17.1.2006 10:36
Ísraelsher skaut Hamas-liða til bana Ísraelskir hermenn skutu félaga í Hamas-samtökunum til bana í átökum í bænum Tulkarem á Vesturbakkanum í nótt. Ísraelsher segir manninn hafa komið út úr húsi í bænum og hafið skothríð á hermennina með tveimur vélbyssum en hermennirnir hafi svarað skothríðinni og drepið hann. 17.1.2006 10:30
Mikil ásókn í sjóstangveiði á Vestfjörðum Það stefnir í mikla ásókn í sjóstangveiði á Vestfjörðum næsta sumar hjá hinu nýstofnaða fyrirrtæki Fjord Fishing. Eftir því sem greint er frá á vef Bæjarins besta á Ísafirði hafa um 700 manns bókað sig í sjóstangveiðiferðir á vegum fyrirtækisins frá Súðavík og Tálknafirði og eru maí, júní og ágúst nú þegar uppbókaðir. 17.1.2006 10:15
Hlynur Hallsson kallaður inn á þing fyrir Steingrím Þingflokkur Vinstri - grænna kom saman í morgun í kjölfar fréttar um að formaður flokksins hefði slasast í gærkvöldi. Hlynur Hallsson hefur verið kallaður inn sem varamaður hans á þingi. 17.1.2006 10:01
Bachelet lofar jafnrétti í ríkisstjórn sinn Michelle Bachelet, nýkjörinn forseti Chile, hefur heitið því að skipa jafnmargar konur og karla í ríkisstjórn sína. Bachelet fór með sigur af hólmi í forsetakosningum á sunnudag en hún er þriðja konan í Suður-Ameríku til þess að verða kjörin forseti. 17.1.2006 10:00
Símasamband aftur komið á við Landhelgisgæsluna Símasamband er aftur komið á við Landhelgisgæsluna eftir að það var símasambandslaust seinni part dags í gær. Ástæða þessa var sú að símastrengur inn á aðalskrifstofur á Seljavegi 32 slitnaði við vegaframkvæmdir í Holtsgötu. Strax var hafist handa við viðgerð og tókst að koma á símasambandi kl. 5 í morgun. 17.1.2006 09:51
Drengur í Danmörku barinn til dauða Lögrelgan Brönshöj í Kaupmannahöfn hefur handtekið konu vegna gruns um að hún hafi barið átta ára son sinn til dauða í gærkvöld. Neyðarlínan í Danmörku fékk tilkynningu seint í gærkvöld um að barn ætti í erfiðleikum með andardrátt. 17.1.2006 09:45
Alþingi kemur aftur saman Alþingi kemur saman til fundar í dag eftir 38 daga fundahlé í kringum jól og áramót. Fyrsta málið sem verður tekið fyrir á þingfundi sem hefst klukkan hálftvö verður frumvarp um að draga til baka launahækkanir Kjaradóms og ákvarða mönnum þess í stað tveggja og hálfs prósents launahækkun frá og með næstu mánaðamótum. 17.1.2006 09:30
Á vélsleðum á götum Grindavíkur Lögreglunni í Keflavík bárust í gærkvöldi kvartanir um það að vélsleðaeigendur í Grindavík væru að þeysa þar um götur og stíga, sem er bannað. Þegar til kom reyndust sleðaför vera víða um bæinn og fimmtán ára unglingur reyndist vera í hópi sleðamanna, réttindalaus og á óskráðum sleða. 17.1.2006 09:15
Steingrímur slasaðist töluvert í veltu Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, liggur slasaður á gjörgæsludeild Landspítala - háskólasjúkrahúss. Hann er ekki í lífshættu en töluvert slasaður eftir að bíll sem hann ók valt í Bólstaðahlíðarbrekku ofan við Húnaver í gærkvöldi. 17.1.2006 09:09
Eldur í olíuflutningabíl á hraðbraut í New York Mikil mildi þykir að enginn hafi slasast þegar olíuflutningabíll með þúsundir lítra af olíu valt með þeim afleiðingum að það kviknaði í honum á hraðbraut í New York í gær. Bílstjórinn náði að koma sér í burtu áður en sprengingar hófust og lagði gríðarlegan reyk frá bílnum. 17.1.2006 09:00
Aldraður maður reynir að fá dauðadómi hnekkt Sjötíu og sex ára gamall Bandaríkjamaður, Clarence Ray Allen, sem taka á af lífi í Kaliforníu í dag hefur beðið hæstarétt að hnekkja dauðadómnum á þeirri forsendu að það teljist grimmileg að taka af lífi aldraðan og lasburða mann. Allen er blindur, næstum því heyrnarlaus og bundinn við hjólastól. 17.1.2006 08:45
Tveir hópar segjast hafa grandað herþyrlu Tveir herskáir hópar andspyrnumanna í Írak hafa lýst yfir ábyrgð á að hafa grandað bandarískri þyrlu sem fórst skammt norður af Bagdad í gær með þeim afleiðingum að tveir hermenn féllu. Er þetta þriðja bandaríska þyrlan sem ferst í Írak á tíu dögum. 17.1.2006 08:30
Flutningaskip til móts við dráttarbát Flutningaskipið, sem hefur verið á reki norðaustur af landinu síðan í fyrradag, siglir nú löturhægt til móts við dráttarbát, sem er á leið frá Noregi til að sækja skipið, en það var á leið til Grundartanga þegar aðalvélin bilaði. 17.1.2006 08:15
Tuttugu gefa kost á sér Tuttugu manns gefa kost á sér í prófkjör Sjálfstæðisflokksins á Akureyri fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor, en prófkjörið verður ellefta febrúar. 17.1.2006 08:00
Stórhríð á Norður- og Norðausturlandi Stórhríð geysar víða á Norður- og Norðausturlandi og ýmist er ekkert ferðaveður eða þá orðið ófært vegna snjóa. Siglufjarðarvegur er orðinn ófær, sömuleiðis á milli Dalvíkur og Ólafsfjarðar, stórhríð í Víkurskarði og sömuleiðis á Tjörnesi og ófært til Vopnafjarðar og um Melrakkasléttu. Þá er óveður á Mörðudalsöræfum og ófært um Breiðdalsheiði og Öxi. 17.1.2006 07:57
Hjálparflug til Pakistans liggur niðri Sameinuðu þjóðirnar hafa stöðvað hjálparflug til Pakistans vegna vonskuveðurs og hefur því engin hjálp borist eftirlifendum jarðskjálftans sem varð í október á síðast ári, síðan um helgina. Aðstæður þúsunda manna eru vægast sagt hörmulega eins og þessar myndir sýna og er matur og lyf af skornum skammti. 17.1.2006 07:45
Rússar vonast enn eftir samkomulagi við Írana Íranar hafa ekki endanlega hafnað boði Rússa um að auðga fyrir sig úran til kjarnorkuvinnslu og því er enn von um að hægt sé að ná samkomulagi við þá. Þetta sagði Vladimír Pútín Rússlandsforseti í gær og bætti við að málið þyrfti því ekki að fara fyrir öryggisráð Sameinuðu þjóðanna. Sendiherra Írans í Moskvu hrósaði í gærkvöld tillögu Rússa. 17.1.2006 07:30
Maður sóttur eftir veltu í Bólstaðarhlíðarbrekku Karlmaður, sem var einn í bíl sínum slasaðist alvarlega þegar bíllinn valt í Bólstaðahlíðarbrekku ofan við Húnaver seint í gærkvöldi og valt nokkarar veltur. Björgunarmenn þurftu að klippa flakið utan af manninum og var kallað á þyrlu Landhelgisgæslunnar. Hún braust norður í éljagangi og afar slæmu skygni og gat loks lent á Blönduósi, þangað sem maðurinn var fluttur. 17.1.2006 07:15
Átök í Strassborg milli lögreglu og hafnarverkamanna Að minnsta kosti tólf franskir lögreglumenn slösuðust, þar af einn alvarlega, þegar til átaka kom á milli lögreglumanna og hafnarverkamanna fyrir utan Evrópuþingið í Strassborg í gær. Þúsundir hafnaverkamanna söfnuðust saman til að mótmæla fyrirætlunum Evrópusambandsins um aukna samkeppni í hafnarþjónustu en verkamennirnir óttast að fyrirhugaðar breytingar muni kosta þá vinnuna. 17.1.2006 07:01
Snýst um starfsmat borgarinnar á stéttafélögum Kjarasamningar tveggja aðildafélaga Bandalags háskólamanna voru felldir í atkvæðagreiðslu í síðustu viku, Kjarafélags viðskiptafræðinga og hagfræðinga og Útgarðs. Samkvæmt heimildum NFS snýst málið um starfsmat sem Reykjavíkurborg hefur gert á nokkrum stéttafélögum og telja félagsmenn KVH og Útgarðs að þeir fái meira út út úr því að vera með starfsmat inni í sínum samningum heldur en ekki. 16.1.2006 22:52
Óholl fæða fer illa í lundina Óholl fæða fer illa í lundina á fólki. Ný bresk skýrsla bendir til að aukið þunglyndi og minnisleysi megi að nokkru rekja til breyttra matarvenja á síðustu áratugum. 16.1.2006 22:30
Framkvæmdastjóri Strætó bs. segir snjómokstur og saltdreifingu til fyrirmyndar Öryggismál vagnstjóra Strætó verið til umræðu eftir að vagnstjóri lést í umferðarslysi síðast liðinn föstudag. Tvö alvarleg umferðarslys hafa orðið á undanförnum 6 mánuðum þar sem strætisvagn og vörubifreið eiga í hlut og vekur það upp spurningar hvort öryggi vagnstjóra sé bágborið. 16.1.2006 22:27
Öryrkjabandalagið krefst svara um velferðakerfi framtíðarinnar Öryrkjabandalagið ætlar, ásamt fleirum, að krefja stjórnmálaflokkana um skýr svör fyrir sveitarstjórnar- og Alþingiskosningar um hvernig velferðarkerfið verði byggt upp á Íslandi. Formaður bandalagsins, Sigursteinn Másson, segir að breiðfylking verði mynduð og því fylgt eftir að staðið verði við gefin loforð. 16.1.2006 21:10
Tilraunir með snjóruðningsbíl sem dreifir saltpækli Vegagerðin er að gera tilraunir með öflugan snjóruðningsbíl sem auk þess dreifir saltpækli yfir göturnar. Pækillinn mengar mun minna en þurrsalt og sandur sem einnig er notaður. 16.1.2006 20:59
Mikill munur á launum starfsmanna borgarinnar og bæjarfélaga Munur á launum starfsmanna Reykjavíkurborgar og annarra sveitarfélaga getur verið mjög mikill og numið tugum þúsunda. Verkalýðs- og sjómannafélag Akraness hefur óskað eftir viðræðum við bæjaryfirvöld til þess að leiðrétta muninn. 16.1.2006 20:36
Vinnufriður til að smíða fjölmiðlalög Vinnufriður ætti að vera kominn á til að smíða fjölmiðlalög. Þingflokksformenn stjórnarandstöðuflokkanna ákváðu í morgun að fallast á málamiðlunartillögu menntamálaráðherra um hvernig staðið skuli að smíði nýs frumvarps. 16.1.2006 20:00
ESB vill neyðarfund í byrjun febrúar Evrópusambandið hefur farið þess á leit að alþjóða kjarnorkumálastofnunin haldi neyðarfund í byrjun febrúar vegna kjarnorkuþróunar Írana. Ef Bandaríkjamenn, Kínverjar og Rússar samþykkja fundinn eru yfirgnæfandi líkur á að málinu verði í kjölfarið skotið til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. 16.1.2006 19:42
Stórefla þarf vöxt og viðgang hátæknifyrirækja Stórefla þarf vöxt og viðgang íslenskra hátæknifyrirækja, ef það er yfir höfuð vilji stjórnvalda að þau starfi áfram hér á landi. Þetta kom fram á 400 manna fundi stjórnmálamanna, háskólanema og starfsfólks hátæknifyrirtækja sem haldinn var í Reykjavík í dag. 16.1.2006 19:15
Húðflúrsstofa með tengsl við Vítisengla opnar á Íslandi „House of pain", eða Hús sársaukans, er þekkt nafn á húðflúrstofum víða á Norðurlöndunum en þær eru reknar af hinum alræmdu vélhjólasamtökum Vítisenglunum, eða „Hell's Angels". Nú hefur verið opnuð enn ein stofan í þessari keðju og hún er hér á Íslandi. 16.1.2006 18:58
Skipið rekur enn stjórnlaust austur af Langanesi Rúmlega sjö þúsund tonna flutningaskip rekur enn stjórnlaust um tvö hundruð sjómílur austur af Langanesi en aðalvél skipsins bilaði í gær. Skipið, Wilson Tyne, er skráð á Möltu en gert út frá Noregi og var á leið til Grundartanga. 16.1.2006 18:44
Gallar í virðisaukaskattskerfinu Gallar eru í virðisaukaskattskerfinu hér á landi sem gerir að verkum að ríki og ríkisstofnanir hafa tilhneigingu til að byggja upp eigin starfsemi á sumum sviðum, t.a.m. sviði upplýsingatækni. Þetta segir Jón Steindór Valdimarsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. 16.1.2006 17:00
Fundað vegna kjarnorkuframleiðslu Bandarískir og evrópskir ráðamenn funduðu í London í dag með rússneskum og kínverskum samstarfsbræðrum sínum. Tilgangurinn var að reyna að finna lausn á ágreiningi um hvaða skref eigi að stíga vegna frétta um að Íranir hafi ákveðið að hefja starfsemi á ný í kjarnorkurannsóknarstöð sinni. 16.1.2006 16:53
Símar Landhelgisgæslunnar flestir sambandslausir Símar Landhelgisgæslunnar eru flestir sambandslausir þessa stundina eftir að símastrengur í Holtsgötu slitnaði en þar standa nú yfir vegaframkvæmdir. Viðgerð stendur yfir og er vonast til að hún gangi fljótt fyrir sig. Hægt er að ná í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar í símum: 511 3333, 569 4164 og 897 6383. 16.1.2006 16:45
Halldór átti fund með eigendum DV Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra átti fund með eigendum DV fyrir einhverju síðan þar sem hann tjáði þeim að ef hann væri eigandi að svona blaði þá myndi hann ekki sofa vært á næturnar, og vísaði þar í fréttaflutning blaðsins og framsetningu frétta. 16.1.2006 16:15
Munur á launum eftir sveitarfélögum Nokkur munur er á launum starfsmanna Reykjavíkurborgar og starfsmanna Akranesbæjar fyrir sambærileg störf. Starfsmenn sem vinna til dæmis við ræstingu hjá Reykjavíkurborg fá rúmlega 9% hærri laun en starfsmenn sem starfa við ræstingu á Akranesi. 16.1.2006 15:47
Markmið Alþingis hafa ekki gengið eftir Upphaflegar væntingar og markmið Alþingis með aðild Íslands að "Samningnum um líffræðilega fjölbreytni" hafa ekki gengið eftir. Þetta fullyrðir Ríkisendurskoðun í tilkynningu sem send var fjölmiðlum síðdegis. 16.1.2006 15:45
Málþing á Kjarvalsstöðum Málþing um list Kjarvals, stöðu hans og áhrif verður haldið á Kjarvalsstöðum næstkomandi laugardag og er það tvískipt. Fyrri hlutinn fjallar um áhrif Kjarvals á samtíma sinn en seinni hlutinn um rannsóknir sem Kristín Guðnadóttir hefur gert á ferli listamannsins. 16.1.2006 15:00
Bandarísk herþyrla sögð skotin niður Bandaríks herþyrla hrapaði til jarðar norður af Bagdad í morgun, en samkvæmt vitnum var henni grandað með flugskeyti. Tveir menn eru taldir hafa verið í þyrlunni en afdrif þeirra eru óljós. 16.1.2006 14:30
Samstarf í stað nefndar Ekkert verður af því að menntamálaráðherra skipi nýja nefnd til að semja lagafrumvarp um fjölmiðla. Stjórnarandstaðan neitaði að tilnefna fulltrúa í nefndina en samþykkti að tilnefna fulltrúa sem vinna með lögfræðingum sem menntamálaráðherra hefur fengið til að semja frumvarpið. 16.1.2006 14:06