Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Mótmæltu skráningu bjórfyrirtækis á markað Þúsundir manna söfnuðust saman fyrir framan Kauphöllina í Bangkok í Taílandi í dag til að mótmæla áætlunum um að setja stærsta framleiðanda bjórs og sterks áfengis í landinu á markað. Yfirstjórn Kauphallarinnar fundaði í dag um málið en mótmælendur reyndu að hafa áhrif á niðurstöðuna með því að láta vel í sér heyra og veifa fánum með slagorðum gegn áfengi. 16.1.2006 13:30
20 prósenta hækkun frá áramótum Hlutabréf í Íslandsbanka og FL Group hafa hækkað um tuttugu prósent á þeim sextán dögum sem eru liðnir frá áramótum. Verðmæti Íslandsbanka eins og sér fer nú nærri að vera sama og áætluð útgjöld ríkissjóðs í ár samkvæmt fjárlögum. 16.1.2006 13:06
Álverð aldrei hærra Landsvirkjun hagnast verulega um þessar mundir á því að álverð á heimsmarkaði hækkar ört, en raforkuverð til álveranna hækkar ef álverð hækkar á heimsmarkaði. 16.1.2006 12:45
Tvö innbrot í bíla Rólegt hefur verið hjá lögreglunni í Reykjavík í morgun og svo virðist sem fólk sé farið að venjast færðinni og fari varlegar en ella. Aðeins hefur verið tilkynnt um eitt umferðaróhapp og tvö innbrot í bíla í morgun. 16.1.2006 12:45
Stjórnlaust skip Rúmlega sjö þúsund tonna flutningaskip, skráð á Möltu, sem var á leið frá Norður-Noregi til Grundartanga, rekur stjórnlaust um 200 sjómílur norðaustur af Langanesi eftir að aðalvél skipsins bilaði þar í gær. 16.1.2006 12:30
Ráða ráðum sínum gegn Norðlingaölduveitu Stjórnarandstæðingar komu saman til fundar á tólfta tímanum til að ræða sameiginlegan málflutning gegn því að ráðist yrði í framkvæmdir við Norðlingaölduveitu. 16.1.2006 12:06
ENA stofnar þjónustunet Stofnað hefur verið þjónustunet sem leysa á úr ágreininingsefnum milli kaupanda og seljenda yfir landamæri innan Evrópu. Markmið þjónustunetsins er að auka traust neytenda á Evrópu sem einu markaðssvæði. Til að kynna starfsemi sína hefur ENA, Evrópska neytendaaðstoðin, útbúið bæklins sem nálgast má á heimasíðu þeirra. 16.1.2006 11:45
Vonar að tillagan verði samþykkt Ólafur F. Magnússon ber upp tillögu um verndun Þjórsárvera í borgarstjórn á morgun og binda F-lista menn miklar vonir við að hún verði samþykkt en það yrði þá í fyrsta skipti sem borgarstjórn leggst gegn áformum ríkisvaldsins og Landsvirkjunar í virkjanamálum. 16.1.2006 11:16
Fundað vegna mála leikskólakennara í dag og á miðvikudag Það ræðst á fundum samráðshóps um kjaramál leikskólakennara í dag eða á miðvikudag hvort hópurinn kemst að sameiginlegri niðurstöðu um tillögur að lausn í kjaramálum leikskólakennara. 16.1.2006 11:15
Nýskráðir bílar rúmum 52 prósentum fleiri í fyrra en árið 2004 Íslendingar að og Lettar bera höfuð og herðar yfir aðrar Evrópuþjóðir þegar miðað er við aukningu á nýskráðum bílum á milli ára. Nýskráningar jukust um ríflega 52 prósent hér á landi í fyrra miðað við árið 2004 en nýskráðum bílum á Evrópska efnahagssvæðinu öllu fækkaði hins vegar lítillega milli ára. 16.1.2006 10:48
Máli Bubba gegn 365-prentmiðlum frestað Fyrirtöku í meiðyrðamáli Bubba Morthens gegn 365-prentmiðlum sem átti að vera í dag var frestað þar sem lögmaður Bubba, Sigríður Rut Júlíusdóttir, er veik. Ný dagsetning á fyrirtöku málsins liggur ekki fyrir. 16.1.2006 10:45
Grunaðir um að berja heimilislausan mann til bana Tveir unglingspiltar í Fort Lauderdale í Flórída eru í haldi lögreglu grunaðir um að hafa barið þrjá heimilislausa menn aðfaranótt fimmtudagsins, en einn þeirra lést af sárum sínum. Myndir af því einni árásanna þar sem maður var barinn með hafnaboltakyflum náðust á eftirlitsmyndavél en tilkynnt var um tvær aðrar árásir á heimililislausa þessa nótt. 16.1.2006 10:15
Sheikh Jaber al-Ahmad al-Sabah látinn Sheikh Jaber al-Ahmad al-Sabah, Emírinn af Kúveit, er látinn 77 ára að aldri. Emírinn var þrettándi einræðisherrann úr fjölskylduveldinu sem ríkt hefur í Kúveit í 245 ár. Kúveitar er tíundi stærsti olíuframleiðandi heims og þar búa um það bil tvær komma tvær milljónir manna. Eftir fall Saddams Husseins fyrrum einræðisherra nágrannaríkisins Íraks, hefur krafan um lýðræði í Kúveit sífellt orðið meiri. 16.1.2006 10:15
Kasta sætindum fyrir svín Þeir kasta ekki perlum fyrir svín í Danmörku heldur sælgæti ef marka má fréttir í danska blaðinu Politiken. Þar segir að lítill hópur danskra svínabænda hafi tekið upp á því að gefa grísum sínum bæði hlaup, súkkulaði og lakkrís í bland við aðra hollari fæðu þar sem það er um helmingi ódýrara en korn. 16.1.2006 10:00
Ehud Olmert stýrir Kamida flokknum Ehud Olmert, starfandi forsætisráðherra Ísraels, var í dag valinn til að stýra Kamidaflokknum í veikindaforföllum Ariels Sharons forsætisráðherra. Kemur það í hlut Olmerts að leiða flokkinn í kosningabaráttunni sem framundan er en kosningar fara fram í Ísrael þann 28. mars næst komandi. 16.1.2006 10:00
Börðu þrjá heimilislausa menn Tveir unglingspiltar í Fort Lauderdale í Flórída eru í haldi lögreglu grunaðir um að hafa barið þrjá heimilislausa menn aðfaranótt fimmtudagsins, en einn þeirra lést af sárum sínum. Myndir náðust á eftirlitsmyndavél af einni árásanna. Þær hafa vakið mikinn óhug í Bandaríkjunum en drengirnir eiga yfir höfði sér morðákæru vegna málsins. 16.1.2006 09:45
Telur óraunhæft að refsa fyrir vændiskaup Jafnréttisráðherra Noregs, Karita Bekkemellem, telur óraunhæft að refsa þeim sem nýta sér vændisþjónustu. Hún vill beita forvörnum til þess að koma vinna bug á vændi og mansali í landinu. Frá þessu er greint í norska blaðinu Verdens Gang. 16.1.2006 09:30
Heimsmarkaðsverð á áli hækkar ört Álverð á heimsmarkaði hækkar nú ört og hefur þegar hækkað um rúm sex prósent frá áramótum, eða á hálfum mánuði. Síðustu sex mánuði nýliðins árs hækkaði það um rösk 30 próent og samkvæmt Reuters fréttastofunni er það nú komið upp í 2388 dollara tonnið, sem er hæsta heimsmarkaðsverð í 17 ár. Landsvirkjun hagnast væntanlega á þessu því raforkuverð til álveranna hér á landi tekur ákveðið mið af heimsmarkaðsverði á áli. 16.1.2006 09:15
Trúfélög fái að gefa samkynhneigða saman Siðmennt, félag siðrænna húmanista, hvetur allsherjarnefnd Alþingis til að breyta hjúskaparlögum þannig að skráð trúfélög fái að gefa saman samkynhneigða einstaklinga. Þannig geti trúfélög sem það vilja gefið saman samkynhneigð pör en önnur séu ekki skyldug til þess. 16.1.2006 09:15
Sirleaf tekur við sem forseti Líberíu Ellen Johnson-Sirleaf sver í dag embættiseið sem forseti Líberíu, en hún er fyrst afrískra kvenna til að gegna leiðtogahlutverki í landi sínu. Búist við fjölmörgum háttsettum gestum frá öðrum Afríkuríkjum og ríkjum víða um heim á embættistökuna í höfuðborginni Monróvíu en mikill viðbúnaður er vegna hennar. 16.1.2006 09:00
Talibanar hóta frekari árásum Talíbanar hóta frekari árásum á hermenn en kanadamaður og tveir Afganir féllu í sjálfsmorðstilræði í Suður-Afganistan í gær. Þá særðust 13 manns til viðbótar en alls hafa 25 sjálfsmorðssprengjuárásir verið gerðar í landinu á síðustu fjórum mánuðum. Kanadamaðurinn sem lést var starfsmaður endurreisnarsveitar alþjóðlegur friðargæslunnar í Afganistan. Alls hafa því níu Kanadamenn fallið í landinu frá árinu 2002. 16.1.2006 09:00
Mikið snjóað í Pakistan Mikið hefur snjóað í Pakistan yfir helgina og gert þeim tug þúsundum sem búa upp til fjalla enn erfiðara fyrir. Talið er að yfir þrjár milljónir manna séu heimilislausir eftir jarðskjálftann þar í landi sem varð í október á síðasta ári. Áframhaldandi snjókomu er spáð næstu daga og óttast yfirvöld að hundruð manna muni farast vegna mikilla vetrarkulda. Talið er að um 90 þúsund manns hafi farist í jarðskjálftanum og segja Sameinuðu þjóðirnar ekki ólíklegt að jafn margir ef ekki fleiri farist í kuldunum á næstu vikum og mánuðum. 16.1.2006 08:45
Ró á fasteignamarkaði Nær helmingi færri fasteignir seldust á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku en í meðalviku. Alls seldust 88 eignir en síðustu tólf vikur hafa að meðaltali selst 150 íbúðir á viku. 16.1.2006 08:30
Heimsmarkaðsverð á olíu mun hækka Heimsmarkaðsverð á olíu mum hækka ef Íranir verða beittir refsiaðgerðum vegna kjarnorkuáætlana þeirra. Þetta sagði efnahagsmálaráðherra landsins í gær og sagði jafnframt verðhækkanir verða töluvert hærri en ráðamenn á vesturlöndum geri sér grein fyrir. Þá sagði forseti Írans það algjörlega rangt að kjarnorkuáætlun þjóðarinnar miðaði að því að smíða vopn því Íranar hefðu ekkert við kjarnorkuvopn að gera. Ákveðið verður í þessari viku hvort deilunni verði vísað til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. 16.1.2006 08:30
Vilja komast að uppruna sólkerfisins Hylki könnunargeimfars sem skotið var á loft fyrir sjö árum lenti í eyðimörk í Utah í Bandaríkjunum í gær, hlaðið geimryki. Vísindamenn vonast til þess að komast að uppruna sólkerfisins með því að rannsaka rykið sem safnað var saman í hylkið. Könnunarflaugin fór um það bil 4,7 miljarða kílómetra á ferð sinni um geiminn en þetta er í fyrsta sinn síðan árið 1972 sem þeim tekst að safna saman föstu efni utan úr geimnum og senda það til jarðar. 16.1.2006 08:30
Ellen Johnson-Sirleaf sver í dag embætti forseta Ellen Johnson-Sirleaf sver í dag embættiseið sem forseti Líberíu, en hún er fyrst afrískra kvenna til að gegna leiðtogahlutverki í landi sínu. Búist við fjölmörgum háttsettum gestum frá öðrum Afríkuríkjum og ríkjum víða um heim á embættistökuna í höfuðborginni Monróvíu en mikill viðbúnaður er vegna hennar. Sirleaf hefur sagt það markmið sitt að endurvekja von í landinu, en innviðir samfélagsins í Líberíu eru molum eftir áralanga borgarastyrjöld. 16.1.2006 08:30
Finnar þurfa að kjósa aftur Aftur þarf að kjósa í forsetakosningunum í Finnlandi þar sem Tarja Halonen, forseti landsins, fékk ekki yfir helming atkvæða í kosningunum í gær eins og hún þurfti. En hún fékk aðeins 46 prósent atkvæða. Sauli Ninistö, fyrrverandi fjármálaráðherra Finnlands og frambjóðandi Hægriflokksins, hlaut 24% og Matti Vanhanen, forsætisráðherra og frambjóðandi Miðflokksins fékk 18,6%. Kosið verður því á milli þeirra Halonens og Ninistös eftir hálfan mánuð en þá þykir víst að Halonen sigri. 16.1.2006 08:15
Kona næsti forseti Chile Michelle Bachelet, fyrrum varnarmálaráðherra Chile var í gær kjörin forseti landsins, fyrst kvenna. Bachelet fékk rúmlega 53 prósent atkvæða á meðan mótframbjóðandi hennar, kaupsýslumaðurinn Sebastian Pinera fékk tæplega 47 prósent atkvæða. Þetta er í fjórða skiptið sem forsetakosningar fara fram í Chile frá því landið varð lýðveldi árið 1990 eftir 17 ára herforingjastjórn. Málefni frambjóðenda voru svipuð. Bæði hétu þau því að draga úr glæpum í landinu sem og að fjölga atvinnutækifærum en atvinnuleysi hefur farið vaxandi í Chile undanfarin ár. 16.1.2006 07:45
Mikill erill á slysadeild Íbúar Suðvestur hornsins virðast vera komnir úr allri þjálfun á skíðum og snjóbrettum því mikill erill var á slysadeild Landsspítalans í gær við að hlynna að skíða- og snjóbrettafólki sem lent hafði í slæmum byltum. Engin reyndist þó alvarlega slasaður og stúlkan, sem þyrla Landhelgilsgæslunnar sótti upp í Bláfjöll í gær, reynidst líka minna slösuð en óttast var í fyrstu. Sama á við um vélsleðamanninn, sem þyrlan sótti í sömu ferð upp í Landmannalaugar. 16.1.2006 07:45
Flughált á Hellisheiði og í Þrengslum Flughált er á Hellisheiði, snjóþekja og éljagangur er í Þrengslum og hálka á Suðurlandi en þar stendur mokstur yfir. Þá er hálka og snjóþekja á Norðurlandi, Norðausturlandi og Vesturlandi. Ófært er yfir Eyrarfjall, Hrafneyrar og Dynjandisheiði og á Austurlandi er ófært yfir Fjarðarheiði, Breiðdalsheiði og Öxi 16.1.2006 07:40
Nítjan manns hafa greinst með fuglaflensu í Tyrklandi Fimm ára drengur greindist með H5N1 afbrigði fuglaflensunnar í Tyrklandi um helgina. Er það nítjánda manneskjan þar í landi sem greinist með afbrigðið. Systir drengsins lést í gær en var ekki sögð með veiruna í sér. Hún hafði þó komist í snertingu við smitaða fugla líkt og bróðir hennar og segja sérfræðingar mjög líklegt að hún hafi verið ranglega greind. 16.1.2006 07:07
Ljóskerið til Massimo Santanicchia Massimo Santanicchia hlaut verðlaunin Ljóskerið í samkeppni sem Orkuveita Reykjavíkur, Ljóstæknifélag Íslands og Tímaritið Ljós standa að og hlaut hann 500 þúsund krónur til áframhaldandi þróunar á verkinu. Í öðru sæti urðu arkitektarnir Sigurður Einarsson og Jón Stefán Einarsson hjá Batteríinu ehf. ásamt Jóni Otta SIgurðssyni tæknifræðingi og fengu þeir 400 þúsund krónur til áframhaldandi þróunar á ljóskerinu. 16.1.2006 08:00
Stjórnlaust flutningaskip NA af Langanesi Rúmlega sjö þúsund tonna flutningaskip, skráð á Möltu, rekur stjórnlaust um 200 sjómílur norðaustur af Langanesi eftir að aðalvél skipsins bilaði í gær. Tólf manns eru í áhöfn og er þeim ekki talin hætta búin þótt bræla sé á svæðinu. Skipið, sem heitir Wilson Tyne, var á leið til Grundartanga. Útgerð þess ákvað í gær að fá norskan dráttarbát til að koma skipinu til hjálpar, frekar en að leita aðstoðar Landhelgisgæslunnar, og er stór dráttarbátur væntanelgur að skipinu á morgun 16.1.2006 07:10
Geimryk jafngamalt sólinni Hylki sem inniheldur geimryk jafngamalt sólinni lenti heilu og höldnu í eyðimörkinni í Utah í morgun. Vísindamenn vonast til að geimrykið gamla geti varpað ljósi á uppruna sólkerfisins. 15.1.2006 19:18
Dómkirkjuprestur tilbúinn að blessa sambönd samkynhneigðra Hjörtur Magni Jóhannsson Fríkirkjuprestur hefur sótt um leyfi til að gefa samkynhneigð pör saman á sama hátt og gagnkynhneigð. Hann segir það rangt hjá biskupi að hvergi í kristinni kirkju séu samkynhneigðir gefnir saman líkt og gagnkynhneigðir. Dómkirkjuprestur segist tilbúinn að blessa sambönd samkynhneigðra. 15.1.2006 19:15
Pólitískar ástæður réðu úrslitum þegar Reykjavíkurborg sleit viðræðum um sölu síns hlutar í Landsvirkjun Það voru pólitískar ástæður en ekki fjárhagslegar sem réðu úrslitum þegar Reykjavíkurborg ákvað að slíta viðræðum um sölu á hlut borgarinnar í Landsvirkjun. 15.1.2006 19:01
Vélsleðaslys í Halldórsdal við Kirkjufellsvatn. Vélsleðaslys varð í Halldórsdal við Kirkjufellsvatn skammt frá Landmannalaugum á fjórða tímanum í dag. 15.1.2006 18:51
Erfðabreytileiki sem eykur verulega líkur á sykursýki fundinn Vísindamenn Íslenskrar erfðagreiningar hafa fundið erfðabreytileika sem eykur verulega líkurnar á sykursýki. Þetta er í fyrsta sinn sem vísindamönnum tekst þetta. Eftir tvö ár ætti að vera hægt að beita þessari þekkingu í heilsugæslu til að greina hvort fólk sé í aukinni hættu á að fá sykursýki. 15.1.2006 18:47
Uppkaupsmenn byrjaðir að kaupa hesthús á Heimsenda. Undafarna mánuði hefur stjórn hestamannafélagsins Gusts barist fyrir tilverurétti sínum, en svokallaðir uppkaupsmenn hafa verið duglegir við að kaupa upp hesthús í Glaðheimum sem er félagssvæði þeirra. 15.1.2006 17:33
40 daga þjóðarsorg í Kúveit vegna andláts þjóðhöfðingja 40 daga þjóðarsorg hefur verið lýst yfir í Kúveit eftir að þjóðhöfðingi landsins, Jaber Al Ahmed Al Sabah fursti, lést í nótt, 77 ára að aldri. 15.1.2006 16:48
Vélsleðaslys við Kirkjufellsvatn Vélsleðaslys varð við Kirkjufellsvatn, sem er um 10 kílómetra norðan við Landmannalaugar, á fjórða tímanum í dag. 15.1.2006 16:02
Grunur um fuglaflensusmit í Istanbúl Tvö börn voru lögð inn á sjúkrahús í Istanbúl, stærstu borg Tyrklands, í dag en óttast er að þau séu smituð af fuglaflensu. Enn á eftir að skera úr um hvort um er að ræða veiru af H5N1-stofni. 15.1.2006 15:51
Féllu niður vök Tvær konur féllu niður vök á Rauðavatni um klukkan eitt í dag. Þær voru á ferð með gönguskíðahóp og voru um 30 til 40 metra frá landi þegar þær fóru niður vökina. Flytja þurfti aðra konuna á slysadeild vegna gruns um ofkælingu en hinni konunni varð ekki meint af. Slökkviliðið vill vara fólk við að ganga á ísnum þar sem hann er mjög ótraustur. 15.1.2006 14:22
Þingmaður fullviss um að Bandaríkjamenn hafi rekið leyniflug í Evrópu Dick Marty, svissneski þingmaðurinn sem stýrir rannsókn Evrópuráðsins á því hvort bandarísk stjórnvöld hafi rekið leynifangelsi í álfunni og stundað umfangsmikla fangaflutninga þeim tengdum, kveðst fullviss um að ásakanirnar eigi við rök að styðjast 15.1.2006 12:44
Palestínumenn í Austur-Jerúsalem fá að kjósa Palestínumenn sem búsettir eru í Austur-Jerúsalem, fá að greiða atkvæði í þingkosningunum 25. janúar. 15.1.2006 12:42