Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Farþegum um Keflavíkurflugvöll fjölgaði um 11% á síðasta ári Farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgaði um 11% á síðasta ári. Það eru um 800 fleiri farþegar en árið 2004. Þá fjölgaði einnig farþegum sem minnilenda hér á landi á leið yfir Norður-Atlantshafið um 13%. Þessi fjölgun er í samræmi við farþegaspá sem breskt fyrirtæki gerði í upphafi ársins 2005. Sú spá gerir ráð fyrir að farþegafjöldi muni fara í 3,2 milljónir árið 2015. Flugstöðin verður stækkuð umtalsvert í nokkrum áföngum. Stækkunin er þegar hafin og gert er ráð fyrir að henni ljúki árið 2007. 10.1.2006 09:03
Yfir 230 látnir Yfir 230 manns eru látnir af völdum kuldakasts í Suður-Asíu að því er yfirvöld á Indlandi greindu frá í dag. Það er einkum heimilislaust fólk á Indlandi og í Bangladesh og Pakistan sem hefur dáið úr kuldunum, sem geisað hafa síðan í nóvember á Norður-Indlandi. Kuldabylgjan hefur náð til Nýju Delhí, höfuðborgar Indlands, en á sunnudaginn var kuldinn í borginni meiri en nokkru sinni í 70 ár. 10.1.2006 08:39
Saka stjórnendur um launasukk Flugmenn Icelandair hafa slitið samningaviðræðum við félagið um tilslakanir varðandi leiguflug félgagsins í útlöndum, vegna launasukks stjórnenda, eins og heimildarmaður úr röðum flugmanna orðaði það við NFS. 10.1.2006 08:08
Kvarta undan fjúkandi jólatrjám Vegfarendur í Reykjavík hafa væntanlega ekki farið varhluta af fjúkandi jólatrjám á götum borgarinnar að undanförnu. Töluvert hefur verið kvartað til lögreglu sem getur lítið gert í málinu enda er það ekki á hennar könnu. 10.1.2006 08:00
Kona dæmd fyrir rekstur vændishús í Danmörku Kona var í dag dæmd í árs fangelsi og 150 stunda samfélagsvinnu í Danmörku fyrir að hafa rekið vændishús í Rødovre í nágrenni Kaupmannahafnar. Talið er að konan hafi auðgast sem nemur 10 milljónum íslenskra króna, jafnvel mun meira, en ekki var hægt að sýna fram á hversu háar fjárhæður hún hafði raunverulega haft upp úr þessu ólöglega athæfi sínu. 10.1.2006 08:00
Talibanar hóta áframhaldandi árásum í Afganistan Leiðtogi Talibana í Afganistan, Mohammad Omar, sagði í gær að heilögu stríð gegn bandaríska hernámsliðinu í landinu yrði haldið áfram. Ásrásir myndu færast í aukana á nýju ári og ekki linna fyrr en Bandaríkjamenn væru farnir frá Írak. Omar, sem hefur farið huldu höfði síðan Talibana-stjórnin var hrakin frá völdum í lok árs 2001, sagði að Bandaríkjamenn væru höfuðóvinir Islam. 10.1.2006 07:45
Vill samkeppni um starfsfólk upp að vissu marki Oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi vill samkeppni milli sveitarfélaganna um starfsfólk upp að vissu marki til þess að binda enda á það sem hann kallar láglaunastefnu í gegnum samninga Launanefndar sveitarfélaganna. 10.1.2006 07:30
Myrti fyrrum samstarfsmenn sína og skaut svo sjálfan sig Tveir öryggisverðir féllu og einn særðist þegar fyrrum samstarfsmaður þeirra skaut þá á pósthúsi í miðborg Madridar, höfuðborgar Spánar í gær. Ekki hafa fengist upplýsingar um ástæðu morðanna en maðurinn, sem var 35 ára og var í veikindaleyfi, framdi sjálfsmorð eftir að hafa drepið mennina. Að sögn lögreglu er rannsókn hafin en talið er að hann hafi átt við andlega erfiðleika að etja. 10.1.2006 07:30
Sprengja á veitingastað í San Fransisco Sprengja fannst á einum veitingastað Starbucks kaffihúsakeðjunnar í San Fransisco í gær. Það var einn starfsmaður veitingastaðarins sem fann hana á baðherbergisgólfi staðarins. Var húsið því rýmt og sprengjusérfræðingar kallaðir til sem aftengdu sprengjuna. Ekki er vitað hver kom henni fyrir en að sögn lögreglunnar þar í borg hefði hún valdið miklu tjóni, hefði sprengjan sprungið. Engin viðvörun barst og er málið í rannsókn. 10.1.2006 07:30
Vilja sambærileg kjör og í Reykjavík Verkalýðsfélag Akraness hefur kallað eftir fundi með bæjarráði vegna þeirrar stöðu sem komin er upp í kjaramálum bæjarstarfsmanna eftir að Reykjavíkurborg samdi við sína starfsmenn. 10.1.2006 07:21
Máli skiptir að dómstólar taki afstöðu til ákæruatriða Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segir á heimasíðu sinni að með dómi Hæstaréttar í gær hafi Baugsmálið komist á brautina til efnislegrar meðferðar hjá dómstólunum, en það hljóti að skipta mestu að dómstólar taki afstöðu til ákæruatriða. 10.1.2006 07:15
Eldur í fjölbýlishúsi í Kópavogi Eldur kom upp í fjögurra hæða íbúðarblokk í Lómasölum í Kópavogi á tíunda tímanum í gærkvöld. Eldurinn kom upp í íbúð á annarri hæð hússins og var allt tiltækt slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu kallað á vettvang. Vel gekk að slökkva eldinn og að sögn slökkviliðsins var enginn í íbúðinni þegar hann kviknaði, en í fyrstu var talið að svo væri. 10.1.2006 07:13
Fíkniefnasali handtekinn í Garðinum Lögreglan í Keflavík handtók fíknifnasala í gærkvöldi og lagði hald á talsvert af fíkniefnum. Maðurinn var stöðvaður þegar hann var að aka um í Garðinum og fundust hundrað grömm af hassi og eitthvað af anfetamíni við leit í bílnum. Í framhaldi af henni var gerð húsleit heima hjá honum, en þar fanst ekkert. 10.1.2006 07:11
Fjöldaslátrun á fuglum fyrirhuguð í Istanbul Niðurstöður rannsókna á sýnum úr 12 sjúklingum í Istanbúl í Tyrklandi benda ekki til þess að þeir séu með fuglaflensusmit. Fjöldaslátrun á fuglum er fyrirhuguð í nokkrum úthverfum Istanbul, fjölmennustu borg landsins, þar sem fátækir íbúar, sem flutt hafa til borgarinnar fá sveitum landsins, búa. En þeir ala fugla sér til viðurværis. 10.1.2006 07:04
Sterling segir upp 50 starfsmönnum Sterling flugfélagið, sem er í eigu FL Group, hefur sagt upp 50 starfsmönnum sínum í Billund í Danmörku og verða þá aðeins 17 menn eftir í starfsstöð félagsins þar. Berlingske Tidende greinir frá þessu. Jótlandspósturinn greindi frá því í gær að Sterling ætlaði að flytja danska flugmenn búferlum til Noregs og Svíþjóðar til að vera sem næst áfangastöðum félagsins þar og hefur það mætt nokkurri andstöðu í röðum flugmanna. 10.1.2006 07:03
Læknar vonast til að Sharon vakni í dag Ariel Sharon forsætisráðherra Ísraels andar sjálfur og bregst við áreiti. Hann hreyfði bæði fót og handlegg þegar læknar könnuðu viðbrögð hans í gær. Sharon hefur verið haldið sofandi, en smám saman hefur verið dregið úr svefnlyfjaskammti hans og vonast læknar til að hann vakni í dag. Þeir segja hann þó enn vera þungt haldinn. 10.1.2006 07:02
Fuglaflensutilfellum fjölgar enn Fuglaflensutilfellum heldur áfram að fjölga í Tyrklandi og virðist fátt geta stöðvað för þessarar skaðræðisflensu vestur á bóginn. Þótt smithættan fari vaxandi telur Haraldur Briem sóttvarnalæknir ekki ástæðu til að vara við ferðum til landsins. 9.1.2006 23:45
Vilja útrýma hugmyndinni um brjálaða vísindamanninn Gera á út af við hugmyndina um brjálaða vísindamanninn og auka áhuga ungs fólks á raungreinanámi með nýju skemmti- og fræðasetri á sviði vísinda og tækni sem fyrirhugað er að setja á fót. Samningur um undirbúningsfélag fyrir verkefnið var undirritaður í dag. 9.1.2006 23:00
Geðsjúkur maður ógnaði fólki með hníf í Albertslundi í Danmörku Geðsjúkur maður, sem lögreglan í bænum Albertslund, skammt frá Kaupmannahöfn, skaut á sunnudag, lést í dag af sárum sínum. Maðurinn ógnaði fólki með hníf og á flótta sínum veitti hann sjálfum sér áverka. Lögregla skaut hann síðan í fæturna til að stöðva flóta hans. 9.1.2006 22:55
Dæmdur fyrir morð á ferðamönnum Dómari í Afríkuríkinu Úganda sakfelldi í dag uppreisnarmann fyrir morð á 8 ferðamönnum og einum innfæddum leiðsögumanni sem voru í hópi 30 ferðamanna sem voru að ferð um þjóðgarð í Úganda árið 1999. 9.1.2006 22:50
Sharon sýni lífsmark í fyrsta sinn í dag frá heilablóðfalli Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, sýndi lífsmark í dag, í fyrsta sinn frá því að hann fékk alvarlegt heilablóðfall á miðvikudaginn. Hann er enn tengdur við öndunarvél og læknar eru ekki tilbúnir að fullyrða að hann sé úr lífshættu. 9.1.2006 22:47
Björk sérvitrust Breska tímaritið, Homes and antiques, hefur valið íslensku söngkonuna Björku Guðmundsdóttur sérvitrustu dægurstjörnu heims. Um sex þúsund lesendur blaðsins tóku þátt í valinu og lagði Björk ekki ómerkari stjörnur en rokkarann Ozzy Osbourne og tískuhönnuðinn Vivienne Westwood. 9.1.2006 22:26
Vantar skýr markmið í heilbrigðismálum Skýr markmið og heilstæða stefnu í heilbrigðismálum vantar á Íslandi að mati Sigurbjargar Sigurðardóttur stjórnsýslufræðings. Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir var gestur Fréttavaktarinnar fyrir hádegi á NFS. Hún sagði stefnu stjórnvalda hafa einkennst af tilviljunum og óráðsíu og að ríkisstjórnin hafi farið offari með sameiningu sjúkrahúsanna í Reykjavík. 9.1.2006 22:26
Frumburðurinn 300 þúsundasti landsmaðurinn Íbúar Íslands urðu 300 þúsund í dag. Það var lítill drengur úr Reykjanesbæ sem sem rauf 300 þúsunda múrinn en hann var tekinn með keisaraskurði í morgun. Hann var fyrsta barn foreldra sinna. 9.1.2006 22:10
Gunnsteinn vill 2. sætið Gunnsteinn Sigurðsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi, sækist eftir 2. sæti í prófkjöri flokksins vegna komandi bæjarstjórnarkosninga. Gunnsteinn skipaði 3. sæti á framboðslista flokksins fyrir fjórum árum en leggur nú til atlögu við Ármann Kr. Ólason sem þá skipaði 2. sætið. 9.1.2006 22:04
Olmert líklegri til að semja um frið Ehud Olmert, starfandi forsætisráðherra Ísraels, er líklegri en Ariel Sharon til að semja um frið við Palestínumenn. Þetta segir palestínskur kennari sem hefur þekkt Olmert síðan hann var borgarstjóri í Jerúsalem. 9.1.2006 21:30
Eldsvoði í íbúðablokk í Kópavogi Eldur er í íbúð á 2 hæð í fjögurra hæða blokk í Lómasölum í Kópavogi. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins er á staðnum og vinnur að slökkvistarfi. 9.1.2006 21:17
Ólíklegt að Íslandsbanki sameinist öðrum Hugmyndir um að Íslandsbanki sameinist öðrum banka hafa verið lagðar á hilluna með sölu á fjórðungshlut Straums-Burðaráss í gær, að mati stjórnarformanns bankans. Hann telur að meiri friður skapist nú um eignarhald í bankanum. 9.1.2006 21:00
Álver á Norðurlandi fjórða í röðinni Álver á Norðurlandi stefnir í að verða númer fjögur í röð framkvæmda við frekari álversuppbyggingu hérlendis. Nýtt álver í Helguvík og meiri stækkun í Straumsvík og á Grundartanga verður líklega ofar á listanum en álver á Norðurlandi. 9.1.2006 20:35
Sharon sýnir lífsmark Ariel Sharon sýndi lífsmark í dag, í fyrsta sinn frá því að hann fékk alvarlegt heilablóðfall á miðvikudaginn. Hann er enn tengdur við öndunarvél og læknar eru ekki tilbúnir að fullyrða að hann sé úr lífshættu. Þórir Guðmundsson fréttamaður er í Jerúsalem. 9.1.2006 20:06
Þáttaskil í Baugsmálinu Staðfesting Hæstaréttar á að þeir átta ákæruliðir Baugsmálsins sem eftir standa séu tækir til efnislegrar meðferðar markar þáttaskil segir Björn Bjarnason dómsmálaráðherra. 9.1.2006 19:48
Unglingar mótmæltu stóriðjustefnu Ég vil nauðga náttúrunni, ég vil vinna í álveri, ég vil menga umhverfið! Þessi slagorð og fleiri glumdu af vörum ungmenna sem söfnuðust saman síðdegis í dag í móttöku iðnaðarráðuneytisins til að mótmæla stefnu stjórnvalda í virkjunarmálum. Ungmennunum var heitt í hamsi og atgangurinn slíkur að ráðuneytið óskaði eftir aðstoð lögreglu. 9.1.2006 19:45
Fazmofélagi kýldi Sveppa Ofbeldismaður, sem oft hefur verið kærður fyrir líkamlegt ofbeldi, kýldi Sverri Þór Sverrisson úr Strákunum í miðbæ Reykjavíkur um helgina. Á heimasíðunni tveir.is tekur hann á móti áskorunum eins og Strákarnir á Stöð 2. Þeir sem standa að síðunni eru úr fazmo-genginu svokallaða en á síðunni mæla þeir gegn ofbeldi. 9.1.2006 19:09
Ekki hægt að lækka laun forseta Allt bendir til þess að laun forseta Íslands hækki mest launa ráðamanna og æðstu embættismanna þjóðarinnar. Ástæðan er sú að stjórnarskráin heimilar ekki að laun forseta séu skert á kjörtímabili hans. 9.1.2006 19:05
Hostel vinsælust vestanhafs Hostel, kvikmynd Íslandsvinsins Elis Roths, fékk mesta aðsókn allra kvikmynda í Bandaríkjunum um helgina. Samtals greiddi fólk 20,1 milljón dollara, andvirði um 1.230 milljóna króna, í aðgangseyri. Myndin fékk því meiri aðsókn en stórmyndirnar The Chronicles of Narnia sem var í öðru sæti og King Kong sem var í þriðja sæti en báðar hafa þær tekið inn um og yfir 200 milljónir dollara í aðgangseyri. 9.1.2006 18:28
Vilja leggja Kjaradóm niður Ungir jafnaðarmenn vilja að Kjaradómur verði lagður niður og að laun stjórnmálamanna og annarra þeirra sem Kjaradómur hefur ákveðið breytist hér eftir í takt við almenna launavísitölu. 9.1.2006 18:17
Vilja hækka laun til samræmis við Reykavík Verkalýðsfélag Akraness hefur óskað eftir fundi með bæjarráði Akraness til að ræða launamun hjá starfsmönnum Akranessbæjar annars vegar starfsmönnum Reykjavíkurborgar hins vegar. Í bréfi Verkalýðsfélagsins til bæjaryfirvalda segir að munað geti þrettán til sextán prósentum á launum manna eftir því hvort þeir vinni sömu vinnu í Reykjavík eða á Akranesi. 9.1.2006 18:04
Bíll valt í Bakkaselsbrekku Bíll valt í Bakkaselsbrekku í Öxnadal fyrir nokkrum mínútum. Lögregla er á leið á vettvang til að kanna aðstæður en ekki er talið að slys hafi orðið á fólki. 9.1.2006 17:54
Átján ára sætir gæsluvarðhaldi Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur yfir sextán ára pilti sem var dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir að nema annan pilt á brott af vinnustað hans og neyða hann til að taka pening út úr hraðbanka til að greiða skuld við þá. 9.1.2006 17:33
Þrettándabrennurnar verða annað kvöld Engar þrettándabrennur eða skemmtanir verða haldnar á höfuðborgarsvæðinu í kvöld en annað kvöld verður ýmislegt um að vera. Þetta er samkvæmt ákvörðun ábyrgðarmanna brennanna, fulltrúa heilbrigðiseftirlitsins, Veðurstofu, Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins og löreglunnar. 9.1.2006 17:22
Lést í París Dakar rallinu Ástralskur mótorhjólakappi lét lífið í slysi í níundu akstursleið í París Dakar rallinu í dag. Andy Caldecott varð 23. keppandinn frá upphafi til að láta lífið í keppninni sem er nú haldin í 28. skipti. 9.1.2006 17:03
Víða hálka eða hálkublettir Hálka, él og skafrenningur gerir vart við sig á nokkrum stöðum í kringum landið en færð er best á Norðaustur- og Suðausturlandi. Hálka og skafrenningur er á Hellisheiði, í Þrengslum og á Sandskeiði samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. 9.1.2006 16:58
Arnþór hættur hjá ÖBÍ Arnþór Helgason hefur hætt störfum sem framkvæmdarstjóri Öryrkjabandalags Íslands. Engar skýringar hafa verið gefnar á uppsögn Arnþórs og hvorki hann né formaður Öryrkjabandalagins, Sigursteinn Másson vildu tjá sig um málið við fjölmiðla. 9.1.2006 16:46
Verð Actavis hækkaði um fimm prósent Hlutabréf í Actavis hafa hækkað um 5,06 prósent í dag en um miðjan dag var tilkynnt um rúmlega hundrað milljarða lántöku fyrirtækisins hjá sex erlendum bönkum. Alls hafa bréf í félaginu hækkað um 12,65 prósent frá áramótum. 9.1.2006 16:37
Mótmæltu í iðnaðarráðuneytinu Um fimmtán til tuttugu ungmenni tóku sér stöðu í iðnaðarráðuneytinu á fjórða tímanum til að mótmæla stóriðjustefnu stjórnvalda. Lögregla var kölluð til en þurfti ekki af hafa afskipti af unga fólkinu sem yfirgaf ráðuneytið þegar klukkan sló fjögur og dyrum þess var lokað. 9.1.2006 16:19