Fleiri fréttir

Vill hætta við framkvæmdur við Þjórsárver

Samfylkingin vill að hætt verði við öll áform um orkuframkvæmdir á Þjórsárverasvæðinu og vill að friðland Þjórsárvera verði stækkað verulega. Þetta kemur fram í yfirlýsingu þingflokks Samfylkingar sem telur áætlanir um framkvæmdir við Norðlingaöldu og víðar í nágrenni Þjórsárvera komnar í öngstræti.

Tóku 100 milljarða að láni

Actavis hefur tekið lán upp á rúmlega 100 milljarða króna. Sex erlendir bankar veita lánið sem er tekið í bandarískum dollurum og að upphæð 1,27 milljarðar í þeim gjaldmiðli.

Ráðist að innanríkisráðuneyti Írak

28 hafa látist í sprengjuárásum í Írak það sem af er degi. Tvær sjálfsmorðsárásir voru gerðar í landinu í morgun í innanríkisráðuneyti landsins, í öðru tilvikinu þótti öryggisvörðum maðurinn óvenju sver um sig miðjan og grunaði því að hann bæri sprengiefni. Þeir

Maltverjar hamingjusamastir í heimi

Möltubúar eru hamingjusamastir allra þjóða samkvæmt árlegri hamingjukönnun Erasmus-háskólans í Rotterdam í Hollandi. Íslendingar eru tiltölulega hamingjusamir eða 63% þjóðarinnar.

Cheney fluttur á sjúkrahús

Dick Cheney, varaforseti Bandaríkjanna, var fluttur með hraði á sjúkrahús í morgun vegna öndunarerfiðleika. Cheney er nú á George Washington-sjúkrahúsinu, en búist er við að hann fái að snúa heim síðar í dag, enda engin alvarleg hætta á ferðum.

Mikill verðmunur á nikótínlyfjum

Algengur verðmunur á nikótínlyfjum er 25-30 prósent. Þetta kemur fram í verðkönnun neytendasamtakanna. Mestur var munurinn 45% á munnsogstöflumfrá Nicotinell. Hæsta verð var lang oftast hjá Lyfjum og heilsu eða í 22 tilvikum. Lægsta verð var oftast í Skipholtsapóteki eða í 16 tilvikum og hjá Lyfjaveri í 14 tilvikum.

Enn lýst eftir árásarmanni

Lögreglan í Reykjavík lýsir eftir hugsanlegum vitnum að því þegar ráðist var á unga stúlku á Sogavegi á föstudagskvöld. Maðurinn var á rauðum, eða dökkrauðum fólksbíl, sem líkist Subarau Impresa, en gæti þó verið stærri bíll.

Níutíu kærðir fyrir smygl

Um níutíu kæruskýrslur voru gerðar hjá embætti sýslumannsins á Seyðisfirði um helgina, flestar vegna smygltilrauna. Óvenju mikil umferð var um Egilsstaðaflugvöll um helgina.

Andri Snær valinn á fyrirlestraröð í Columbiu-háskóla

Andri Snær Magnason rithöfundur hefur verið valinn einn af fimm fyrirlesurum til að ávarpa nemendur í Columbia-háskóla í Bandaríkjunum. Fyrirlestraröð vorannar er undir yfirskriftinni „Orð og gjörðir" en aðrir fyrirlesarar verða m.a. George Bizos, lögfræðingur Nelsons Mandela. Columbiu-háskóli er einn virtasti háskóli í heimi.

Skotið á friðargæsluliða í Darfúr

Friðargæsluliði var drepinn og tíu aðrir liggja sárir eftir skotárás í Darfúr-héraði í Súdan í gær. Friðargæsluliðunum, sem eru í Súdan á vegum Afríkusambandsins, var gert launsátur í þorpinu Girgira í vesturhluta Darfúr.

Bellafonte kallaði Bush hryðjuverkamann

Söngvarinn heimsfrægi Harry Bellafonte, kallaði George Bush, Bandaríkjaforseta hryðjuverkamann og lofaði forseta Venezuela, Hugo Chavez og vinstri stefnu hans í stjórnmálum á fundi þeirra Bellafontes og Chaves um helgina.

Stúlka lést eftir að marglytta stakk hana

Sjö ára gömul stúlka lést eftir að marglytta stakk hana við norðurströnd Ástralíu í gær. Töluverður fjöldi marglyttna lifir í sjónum við norðurströnd Ástralíu og endrum og sinnum stinga þær fólk en dauðsföll af þeim völdum eru afar fátíð.

Fuglaflensutilfellum fjölgar í Tyrklandi

Tólf manns hafa í dag verið lagðir inn á sjúkrahús í Tyrklandi smitaðir af fuglaflensu að því er talið er. Ljóst er að fuglaflensan er að breiða úr sér í Tyrklandi og hafa þrír greinst með veiruna í höfuðborg landsins Ankara og tveir til viðbótar í borginni Van í austurhluta landsins um helgina.

Glæpum fer fækkandi í Danmörku

Glæpum fer fækkandi í Danmörku ef marka má nýjar tölur þar um sem Jótlandspósturinn greinir frá á vefsíðu sinni. Tilkynningum til lögreglu fækkaði á þriðja ársfjórðungi nýliðins árs um rúmlega átta þúsund frá sama tímabili í fyrra, og voru þar með komnar niður í rúmlega hundrað og tíu þúsund.

Sterling vill flytja flugmenn nauðungarflutningum

Sterling-flugfélagið, sem er í eigu Íslendinga, vill flytja danska flugmenn nauðungarflutningum til annarra landa á Norðurlöndunum að sögn Jótlandspóstsins. Skýringin er sú að Sterling hefur nú starfsstöðvar í Osló, Stokkhólmi og Gautaborg og vill að hluti flugmannanna verði framvegis búsettur þar í sparnaðarskyni.

Nokkrir höfnuðu utan vegar á Hellisheiði

Nokkrir ökumenn misstu stjórn á bílum sínum sem höfnuðu utan vegar þegar óveður gerði á Hellisheiði í gærkvöldi. Enga í bílunum sakaði og heldur ekki í pallbíl sem valt þar út af veginum fyrr um kvöldið.

Fjórir reiðhjólamenn látast í Wales

Fjórir reiðhjólamenn létust þegar bíll keyrði á þá í bænum Abergale í Norður-Wales í gær. Slysið varð eftir að ökumaður fólksbifreiðar, sem kom úr gagnstæðri átt, missti stjórn á bifreið sinni sem fór á öfugan vegarhelming og ók á tólf manna hóp hjólreiðamanna með fyrrgreindum afleiðingum.

Verið er að hreinsa vegi á Vestfjörðum

Verið er að hreinsa vegi á sunnanverðum Vestfjörðum en flughált og snjóþekja er í Ísafjarðardjúpi. Þæfingur er á Steingrímsfjarðarheiði. Á Vesturlandi er hálka og hálkublettir og hálkublettir eru sömuleiðis á Norðurlandi. Greiðfært er um Norðaustur-, Austur- og Suðausturlandi. Þá eru hálkublettir á Hellisheiði og í Þrenglsum en aðrar leiðir á Suðurlandi eru greiðfærar.

Þrjú hundruð þúsundasti Íslendingurinn er fæddur

Þrjú hundruð þúsundasti Íslendingurinn er fæddur samkvæmt vefsíðu Hagstofunnar fyrir stundu. Ekki liggur fyrir hvar hann fæddist, eða neitt nánar, að svo stöddu. Þetta gerðist heldur fyrr en reiknað hafði verið með því spár bentu til þess að áfanganum yrði náð undir lok mánaðarins eða snemma í febrúar.

Þurfa að sýna fram á 300 vinnustundir á tveggja ára tímabili

Lagabreyting sem varðar fjárjagsaðstoð frá hinu opinbera í Danmörku mun taka gildi um 15 mánuðum fyrr en áður hafði verið ráðgert. Lögin gera ráð fyrir að einstaklingar sem ekki hafi unnið 300 vinnustundir yfir tveggja ára tímabil, munu missa fjárhagsaðstoð frá ríkinu. Lögin taka gildi 1. mars næstkomandi en 1. mars 2007 er sá dagur sem miðað er við að fólki þurfi að sýna fram á 300 vinnustundir ef það vill ekki missa fjárhagsaðstoð.

Sharon enn á milli heims og helju

Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, liggur enn á milli heims og helju. Læknar Sharons ætla að freista þess að vekja hann klukkan hálfníu að íslenskum tíma en þá fyrst verður hægt að meta skaðann sem Sharon hefur orðið fyrir vegna heilablóðfallsins sem hann fékk á miðvikudag.

Fékk hjartaáfall og lést

Tony Banks, sem gengdi embætti íþróttamálaráðherra í bresku ríkisstjórninni undir lok síðustu aldar, lést í dag af völdum hjartaáfalls sem hann fékk þar sem hann var staddur í fríi í Bandaríkjunum. Banks var mjög vinsæll stjórnmálamaður og mikill aðdáandi Chelsea.

Samfylkingin í Kópavogi fundar um leikskólamálin

Samfylkingin í Kópavogi boðar til opins fundar um leikskólamálin í Kópavogi annað kvöld. Á fundinum verður rætt um starfsmannamál, stöðu barna og foreldra og hvernig leysa megi vandann sem skapast hefur í leikskólamálum í sveitafélaginu.

Hringvegurinn gæti styttst um 13 kílómetra

Verið er að kanna möguleika á að leggja nýjan veg norðan Svínavatns í Austur-Húnavatnssýslu. Það er Leið ehf. félag um einkafjarmögnun vegamannvirkja sem fékk rannsóknarstofnun Háskólans á Akureyri til að gera skýrslu um fjárhagslega arðsemi tæplega 16 kílómetra langs vegakafla sem myndi stytta þjóðveginn um 13 kílómetra.

Fjöldabrúðkaup í Bólivíu

Hátt á 200 pör giftu sig í fjöldabrúðkaupi á íþróttaleikvangi í La Paz, höfuðborg Bólivíu í dag. Brúðhjónin voru á aldrinum 18 til 77 ára og nýttu þau sér þessa fríu þjónustu en mörg þeirra nýgiftu hjóna höfðu fram til þessa ekki haft efni á að gifta sig. Sum brúðhjónanna voru klædd í sitt fínasta púss í brúðarkjól og smóking en önnur pör kusu að klæðast hefðbundum fatnaði indíana.

Háir hælar fyrir hæstarétti

Heldur óvenjulegt mál er nú rekið fyrir hæstarétti Noregs en þar er deilt um hversu lengi hælar eigi að haldast undir kvennstígvélum. Kona ein frá Hamar í Noregi keypti sér stígvél sem kostuðu að andvirði 13. 000 íslenskra króna. Hún hafði ekki átt stógvélin lengi þegar hún varð fyrir því óláni að hælarnir brotnuðu undan þeim.

Breskir hundar of feitir

Eins og eigendur þeirra verða breskir hundar sífellt feitari og afleiðingin er alls kyns sjúkdómar sem fylgja offtitu. Líkt og of feitt mannfólk þjást æ fleiri hundar af hjartasjúkdómum, sykursýki og gigt sem er bein afleiðing offtitu. Könnun í Bretlandi leiddi í ljós að rúmlega þrjátíu prósent hunda voru of feitir en þrátt fyrir það eru þeir ekki settir í megrun af eigendum sínum frekar á lyf.

Enginn morgunmatur ávísun á offitu

Börn sem sleppa morgunmat eru mun líklegri til að verða of feit en þau sem nærast vel á morgnana. Þetta kemur fram í nýlegri ítalskri rannsókn sem framkvæmd var á stóru úrtaki barna á aldrinum sex til fjórtán ára. Þar kom fram að einn þriðji þeirra barna sem ekki borðuðu morgunmat átti við offituvandamál að stríða og tíu prósent voru í feitara lagi.

40 sekúndur milli lífs og dauða

Það munaði aðeins fjörtíu sekúndum að tvær flugvélar með yfir 350 manns innanborðs myndu skella saman á flugleið yfir Noregi í gær. Engin viðvörun barst flugmönnunum frá flugumferðarstjórninni í Røyken sem sér um flugsvæðið sem flugvélarnar áttu leið um. Það var ekki fyrr en þegar viðvörunarkerfið fór í gang að flugmennirnir áttuðu sig á aðsteðjandi hættu.

Nýr frystitogari til Eskifjarðar

Aðalsteinn Jónsson, eða Alli ríki fyrrverandi athafnamaður á Eskifirði, er á farinn úr plássinu þar sem ekki er rúm fyrir hann á elliheimilinu. Staðgengill hans, Aðalsteinn Jónsson SU 11, frystitogari í eigu Eskju, sem mun í framtíðinni gera út frá þorpinu, var hinsvegar vígður við hátíðlega athöfn í gær.

Hollendingar í Pakistan kvarta undan áfengisbanni

Hollenskar hersveitir sem vinna að björugnarstörfum í Pakistan kvarta undan áfengisbanni og segja björgunarmönnum mismunað eftir þjóðernum. Á sama síma og þeim sé meinað að drekka sitji spænskar og breskar herdeildir að sumbli við varðeldana. Þeir segja Spánverja keyra um með heilu hlössin af bjór og að Bretar hæðist að því að þeir séu allsgáðir alla daga.

Jarðskjálfti undan ströndum Grikklands

Jarðskjálfti varð neðanjarðar fyrir undan ströndum Grikklands í dag. Skjálftinn mældist 6,9 á richteskala en engin slys urðu á fólki og ekki er vitað um skemmdir af völdum skjálftans. Upptök skjálftans voru suðaustan við Peloponnese skaga en hans varð vart á Grikklandi og víða á Suður-Ítalíu. Það þykir hafa skipt miklu máli að upptök skjálftans voru neðansjávar en líklegt þykir að töluvert tjón hefði orðið af völdum jarðskjálftans ef hann hefði átt upptök sín í landi.

Fimm þúsund í Laugardalshöllinni í gærkvöldi

Rúmlega 5000 manns mættu til styrktar verndun íslenskrar náttúru í Laugardalshöllinni í gærkvöld enda ekki á hverjum degi sem Björk, Sigur Rós, Mugison, hinir bresku Damien Rice og Damon Albarn koma saman á Íslandi og telja í - allt í nafni náttúruverndar og gegn stóriðjuframkvæmdum og öðru raski á hálendinu.

Fuglaflensa greinist í mönnum í höfuðborg Tyrklands

Tvö tilfelli fuglaflensu greindust í mönnum í Ankara höfuðborg Tyrklands í dag. Einnig greindust tvö tilfelli í dauðum kjúklingum í tveimur þorpum í austurhluta landsins. Ekki er vitað hvort um hinn banvæna stofn H5N1 er að ræða eða hvort veiran hafi borist í menn. Þorpin eru bæði í einangrun.

Ný fuglaflensutilfelli í Tyrklandi

Tvö tilfelli fuglaflensu greindust í Ankara höfuðborg Tyrklands í dag. Einnig greindust tvö tilfelli í dauðum kjúklingum á tveimur þorpum í austurhluta landsins en ekki er vitað hvort um hinn banvæna stofn H5N1 er að ræða og hvort veiran hafi borist í menn. Þorpin eru bæði í einangrun.

Félagsmálaráðherra í leyfi næstu vikurnar

Árni Magnússon, félagsmálaráðherra, verður í leyfi frá störfum næstu vikur vegna veikinda eiginkonu sinnar. Áætlað er að ráðherrann taki aftur til starfa í byrjun febrúar. Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra, gegnir embætti félagsmálaráðherra í fjarveru Árna en Sæunn Stefánsdóttir varaþingmaður tekur sæti Árna á Alþingi.

Kuldakast í Nýju Delí á Indlandi

Morguninn í morgun var sá kaldasti í heil sjötíu ár í Nýju Delí, höfuðborg Indlands. Hitastigið fór alveg að frostmarki og hefur slíkt ekki gerst frá árinu 1935. Í morgun var jörðin sums staðar hvít, sem þykir miklum tíðindum sæta og eins var hél á rúðum og þökum bíla. Yfirvöld í Nýju Delí hafa ákveðið að loka leikskólum í þrjá daga vegna kuldanna.

Sharon haldið sofandi áfram

Ariel Sharon fór í enn eina sneiðmyndatökuna í morgun. Niðurstaðan liggur fyrir, en verður ekki tilkynnt fyrr en núna á næstu mínútunum. Sharon hefur verið haldið sofandi í tvo sólarhringa, en læknar hans ákveða í dag hvort hættandi sé á að vekja hann í kvöld.

Öflugur skjálfti í Aþenu

Öflugur jarðskjálfti upp á 6,7 á Richter skók Aþenu, höfuðborg Grikklands á tólfta tímanum. Enn hafa ekki borist fregnir af skemmdum eða slysum á fólki.

Sharon vakinn á morgun.

Nú rétt í þessu tilkynntu læknar Ariels Sharon að hann yrði vakinn á morgun ef allt gengi að áætlun. Honum hefur verið haldið sofandi síðan hann fékk alvarlegt heilablóðfall á miðvikudagskvöldið og ekki verður hægt að meta ástand leiðtogans fyrr en hann vaknar. Einn af skurðlæknum Sharons segir að líklega muni hann lifa af, en óvíst sé hvort hann muni nokkru sinni geta talað eða skilið annað fólk. Ehud Olmert, sem hefur tekið við starfi Sharons til bráðabirgða, hélt sinn fyrsta ríkisstjórnarfund í morgun. Þar sagðist hann ætla að stjórna málum eins og Sharon hefði viljað. Eitt af hans fyrstu verkum verður að ákveða hvort Palestínumenn í austurhluta Jerúsalem fái að kjósa í þingkosningunum í Palestínu í lok mánaðarins. Leyfi hann það ekki, gæti það sett kosningarnar í uppnám. Ísraelskir fjölmiðlar segja að helstu samstarfsmenn Sharons vilji að Olmert taki við forystu í Kadíma flokknum og leiði hann í kosningunum í Ísrael í lok mars. Shimon Peres, fyrrverandi forsætisráðherra og einn af aðalmönnunum á bakvið friðarferlið í Osló, sagðist í morgun styðja Olmert til forystu í Kadíma. Peres sem gekk í Kadíma fyrir nokkrum vikum vill ekki staðfesta að hann verði áfram í flokknum eftir brotthvarf Sharons. Verði hann áfram í stjórnmálum verður það líklega í Kadíma, því Peres útilokaði í morgun að hann myndi aftur ganga í verkamannaflokkinn. Innanbúðarmenn í Kadíma segja að Peres sé einn af fimm mönnum sem flokksmenn vilji í ráðherraembætti eftir kosningarnar.

Búið að moka vegi víða á Vestfjörðum

Búið er að moka Kleifarheiði, Hálfdán og Gemlufallsheiði á Vestfjörðum. Verið er að moka Klettsháls, Steingrímsfjarðarheiði og Ísafjarðardjúp, þó ekki Eyrarfjall. Það eru hálkublettir á Ströndum og í Húnavatnssýslum og eins á Lágheiði, Öxnadalsheiði og í Víkurskarði en þar fyrir austan er greiðfært um Norðausturland og Austurland.

Sjá næstu 50 fréttir