Innlent

Eldur í fjölbýlishúsi í Kópavogi

Eldur kom upp í fjögurra hæða íbúðarblokk í Lómasölum í Kópavogi á tíunda tímanum í gærkvöld.  Eldurinn kom upp í íbúð á annarri hæð hússins og var allt tiltækt slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu kallað á vettvang. Vel gekk að slökkva eldinn og að sögn slökkviliðsins var enginn í íbúðinni þegar hann kviknaði, en í fyrstu var talið að svo væri. Töluverðar skemmdir urðu af völdum elds og reyks í íbúðinni en eldsupptök er enn ókunn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×