Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fuglaflensa greinist í Kólumbíu Yfirvöld í Kólumbíu hafa staðfest fuglaflensutilfelli í landinu en segja þó að engin alvarleg hætta sé á ferðum. Fuglaflensa fannst á þremur alifuglabæjum í vesturhluta landsins og hafa viðeigandi ráðstafanir verið gerðar til að koma í veg fyrir útbreiðslu veirunnar, að sögn talsmanns ríkisstjórnarinnar. 11.10.2005 00:01
Vara við afnámi synjunarvalds Þjóðarhreyfingin varar við því að við yfirstandandi enduskoðun stjórnarskrár verði hróflað við 26. grein núgildandi stjórnarskrár sem kveður á um að forseti geti hafnað lagafrumvarpi og lagt undir atkvæði þjóðarinnar. Í yfirlýsingu frá þjóðarhreyfingunni segir að ef þessi valdheimild verði tekin af forsetaembættinu þá gæti hann allt eins verið þingkjörinn. 11.10.2005 00:01
18 lögreglumenn drepnir í Helmand Átján afganskir lögreglumenn létust og fjórir særðust í fyrirsát uppreisnarmanna í Helmand-héraði í suðurhluta Afganistans í gærkvöld. Ekki hafa borist fregnir af því hvaða hópur uppreisnarmanna stóð að tilræðinu en haft er eftir talsmanni innanríkisráðuneytis Afganistans að til bardaga hafi komið milli lögreglu og uppreisnarmanna í kjölfarið. Engar fregnir hafa borist af mannfalli í þeim átökum. 11.10.2005 00:01
Þjófnuðum fækkar í Hafnarfirði Þjófnuðum og eignaspjöllum hefur farið fækkandi í umdæmi lögreglunnar í Hafnarfirði á árunum 2000-2004. Samkvæmt tölfræðilegri úrvinnslu lögreglunnar á ýmsum afbrotum í umdæminu má sjá að eignaspjöllum fækkaði um 35 prósent frá árinu 2002 og þjófnuðum fækkaði um 45 prósent. 11.10.2005 00:01
Segist ekki hafa verið drukkinn Hinn 64 ára gamli Robert Davis, sem í fyrradag var barinn var af lögreglunni í New Orleans, sagði í samtali við fjölmiðla í gær, að hann hafi ekki drukkið í 25 ár og hafi því ekki verið ölvaður eins og lögreglan heldur fram. Þá segir lögreglan hann hafa streist á móti þegar hann var settur í handjárn en myndband sem náðist af atburðinum sýnir þó annað. 11.10.2005 00:01
Handteknir fyrir að smygla fólki Breska lögreglan hefur handtekið tíu menn sem eru grunaðir um að hafa rekið gríðarstórt og vel skipulagt smygl á tugþúsundum Tyrkja, fyrst og fremst Kúrdum, til Bretlands. Mennirnir voru fluttir til Bretlands með flutningabílum og í flugi. Mennirnir í glæpagenginu eru sjálfir Kúrdar en þeir höfðu fengið hæli í Bretlandi. 11.10.2005 00:01
Búist við dauðadómi Í dag hófust á Balí réttarhöld yfir níu Áströlum sem ákærðir eru fyrir stórfengleg á heróíni. Afbrot þeirra eru litin alvarlegum augum og magnið sem haldlagt var í apríl síðastliðnum, rúm átta kíló, þykir svo mikið að jafnvel er búist við dauðadómi. 11.10.2005 00:01
Olsen snýr aftur til jarðar Rússneska geimfarið Soyuz lenti í morgun á sléttum Kasakstans með ameríska milljónamæringin Gregory Olsen innanborðs og tvo rússneska áhafnarmeðlimi. Geimfarið lagði af stað 1. október og lenti tveimur dögum síðar á rússnesku geimstöðinni þar sem geimfararnir hafa dvalið síðan. 11.10.2005 00:01
Hjólreiðar auki líkur á geturleysi Karlmenn sem stunda miklar hjólreiðar geta átt getuleysi á hættu allt upp í þrjá mánuði og jafnvel lengur. Þetta hafa nokkrar rannsóknir sýnt. Þegar karlmenn hjóla minnkar blóðflæði til kynfæranna um allt að 80 prósent. Taugarnar virka þá ekki eins og þær eiga að gera, tilfinningin í kynfærunum minnkar og getuleysi getur komið upp. 11.10.2005 00:01
Dani í hópi uppreisnarmanna í Írak Að minnsta kosti einn danskur ríkisborgari af arabískum uppruna tekur þátt í uppreisninni í Írak. Þetta hefur arabíska dagblaðið <em>Asharq Alawsat</em> eftir innanríkisráðherra Íraks. Ráðherrann segir uppreisnarmenn í landinu koma frá ýmsum löndum, þar á meðal Bandaríkjunum, Bretlandi, Frakklandi og Ítalíu auk Danmerkur. 11.10.2005 00:01
Léstust þegar ekið var á hús Fjórar eldri konur létust þegar bifreið sem þær voru farþegar í hafnaði inni í húsi í Wisconsin í Bandarískjunum um helgina. Svo virðist sem bílstjóri bifreiðarinnar hafi ekki virt stöðvunarskyldu, tekist á loft og hafnað inni í húsinu. Ekki er vitað hvað olli slysinu en enginn vitni urðu að því. Bílstjórinn, sem er 89 ára, slasaðist alvarlega en íbúar í húsinu sluppu þó allir ómeiddir. 11.10.2005 00:01
Vaxandi reiði í garð yfirvalda Vaxandi reiði gætir hjá eftirlifendum á hamfarasvæðunum í Asíu vegna seinagangs yfirvalda eftir jarðskjálfta upp á 7,6 á Richter sem skók svæðið á laugardag. Óöld ríkir á sumum stöðum þar sem ræningjar hafa látið til sín taka, þar á meðal í Muzaffarabad í Pakistanshluta Kasmírhéraðs sem varð mjög illa úti í skjálftanum, en talið er að allt að ellefu þúsund manns hafi látist þar. 11.10.2005 00:01
Hálka og éljagangur á Norðurlandi Hálkublettir og éljagangur eru á Holtavörðuheiði og Bröttubrekku. Hálka og éljagangur er víða á norðan verðum Vestfjörðum. Mokstur er hafin á Hrafnseyrarheiði, Dynjandisheiði og á Eyrarfjalli í Djúpi. Hálka og éljagangur er Þverárfjalli, í Langadal, á Öxnadalsheiði og Víkurskarði. Hálka og éljagangur er á Norðurlandi. 11.10.2005 00:01
Handtaka á Balí vegna árásar Lögreglan í Indónesíu handtók í dag mann sem grunaður er um aðild að sprengjuárásunum á Balí fyrr í þessum mánuði. Handtakan fór fram á Austur-Jövu og lögregluyfirvöld á staðnum segja sterkar vísbendingar benda til þess að hann hafi tekið þátt í sprengjuárásunum án þess að rökstyðja það nánar. 11.10.2005 00:01
Þúsund fundir á Akranesi Þúsundasti fundur bæjarstjórnar Akraness verður í dag klukkan fimm og verður hann með hátíðarbrag þar sem stefnt er að því að samþykkja þrjár tillögur. 11.10.2005 00:01
Geti ekki borið ábyrgð á Birni Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, telur að framsóknarmenn geti ekki borið ábyrgð á Birni Bjarnasyni dómsmálaráðherra. Forsaga málsins sé sú að Björn Bjarnason hafi gefið saksóknaraembættinu þá línu á bloggsíðu sinni í dag að halda áfram með Baugsmálið þó að aðeins standi eftir átta af 40 ákæruliðum í Baugsmálinu. „Framsóknarflokkurinn á ekki að líða mönnum að gera svona,“ sagði Kristinn í Íslandi í bítið í morgun. 11.10.2005 00:01
Mannskæðar árásir í Írak í morgun Sjálfsmorðssprengjuárás kostaði ekki færri en 25 lífið í Bagdad í morgun. Björgunarlið gat ekki farið á staðinn þar sem stórhætta þótti á frekari árásum á sama stað. Þrjátíu fórust í annarri bílsprengjuárás, í bænum Tal Afar, skammt frá landamærunum við Sýrland. 11.10.2005 00:01
Ósætti vegna bókmenntaverðlauna Einn af nefndarmönnum í sænsku Nóbelnefndinni sem veitir bókmenntaverðlaunin hefur sagt af sér í mótmælaskyni. Knut Ahnlund er ósáttur við að austurríski rithöfundurinn Elfriede Jelinek skyldi hljóta verðlaunin í fyrra, en Ahnlund segir í grein í Sænska dagblaðinu í dag að verk Jelinek séu gersneydd allri listrænni uppbyggingu og að það hafi valdið óbætanlegum skaða á orðstýr bókmenntaverðlauna Nóbels um ókomna framtíð að hún skyldi hljóta verðlaunin. 11.10.2005 00:01
Stefna ráðherra vegna Íraksstríðs 24 Danir hafa stefnt Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, sem fulltrúa ríkisins fyrir að hafa brotið stjórnarskrána með aðild Danmerkur að innrásinni í Írak fyrir um tveimur og hálfu ári. 11.10.2005 00:01
Framsals ekki verið krafist Albaninn sem grunaður er um morð í Grikklandi og var handtekinn hér á meðan hann beið eftir að umsókn um hælisvist hans yrði tekin til umsagnar situr enn í gæsluvarðhaldi. Hann mun að öllum líkindum sitja út gæsluvarðhaldið sem lýkur um miðjan nóvember, því samkvæmt upplýsingum frá Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu hefur engin framsalskrafa borist til embættisins. 11.10.2005 00:01
Greiðsla fyrir fréttalestur óljós Laun útvarpsstjóra eru ákvörðuð af Kjaranefnd samkvæmt núgildandi lögum. Páll Magnússon útvarpsstjóri má því ekki þiggja sérstaka greiðslu fyrir fréttalestur í sjónvarpinu. Hægt er að senda erindi til Kjaranefndar og fá hana til að kveða upp úrskurð um það hvort greiða eigi útvarpsstjóra sérstaklega fyrir lesturinn eða ekki. 11.10.2005 00:01
Vandræði Merkel strax hafin Angela Merkel er ekki einu sinni orðin kanslari - formlega séð - en vandræðin eru strax byrjuð. Verðandi samstarfsflokkurinn, jafnaðarmannaflokkurinn, grefur undir henni og systurflokkurinn í Bæjaralandi, undir leiðsögn Edmunds Stoiber, gerir slíkt hið sama. 11.10.2005 00:01
Þverrandi von um fólk á lífi Vonin um að finna einhvern á lífi á hamfarasvæðinu í Suður-Asíu fer þverrandi. Hjálpargögn berast nú hraðar en verið hefur en marga skortir þó enn alla hjálp. Það var fyrst í gær sem hjálpargögn tóku að berast í einhverju magni til Islamaban og nú hafa helstu vegir á hamfarasvæðinu verið ruddir og því von til að hægt verði að flytja gögnin þangað sem þeirra er þörf hratt. 11.10.2005 00:01
Söfnun hafin Íslenskar hjálparstofnanir standa fyrir söfnunum til aðstoðar fórnarlömbum hamfaranna í Suður-Asíu og raunar víðar. Hjálparstofnun kirkjunnar er með símasöfnun. Hægt er að hringja í síma 907-2002 og þá dregst sjálfkrafa framlag af símreikningi. 11.10.2005 00:01
Bera ekki ábyrgð á ráðherra Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, segir að flokkurinn geti ekki borið ábyrgð á dómsmálaráðherra, sem tjái sig með þeim hætti sem Björn Bjarnason gerir á heimasíðu sinni um niðurstöður Hæstaréttar í Baugsmálinu. En þar segir Björn að réttarkerfið hafi ekki sagt sitt síðasta orð í málinu. 11.10.2005 00:01
Bóluefnismál skýrast í nóv-des Kostnaður við fyrirhugaða verksmiðju vegna framleiðslu á bóluefni við fuglaflensunni liggur ekki fyrir. Samkvæmt upplýsingum frá heilbrigðisráðuneytinu er ekki ljóst hvar framleiðslan mun fara fram en skoðað verður hvort mögulegt sé að framleiða bóluefnið hér á landi. Þetta skýrist nánar í nóvember og desember. 11.10.2005 00:01
Verðstríð á flugverði til Alicante Tuttugu og tvö þúsund Íslendinga þarf til að fylla vélar Heimsferða og Iceland Express til Alicante næsta sumar. Heimsferðir hafa tvöfaldað sætafjölda sinn úr 3500 sætum í 7000 og Iceland Express býður 15 þúsund sæti í því verðstríði sem nú er hafið á þessari flugleið. 11.10.2005 00:01
26. grein stjórnarskrár standi Þjóðarhreyfingin varar eindregið við því að hróflað verði við valdastöðu forseta Íslands. Verði það gert þá gæti hann allt eins verið þingkjörinn að þeirra mati. 11.10.2005 00:01
Gjaldeyristekjur nær þær sömu Gjaldeyristekjur af ferðaþjónustu eru nær þær sömu fyrstu sex mánuði ársins og í fyrra. Tekjur af hverjum gesti hafa þó aukist sé miðað við sama tíma í fyrra. En tekjur vegna neyslu í landinu lækka um 2,2 prósent á hvern gest en tekjur vegna ferðalaga þeirra innanlands hækka nokkuð og því er á heildina litið auknar tekjur af hverjum gesti. 11.10.2005 00:01
Breytingar á eignarhaldi hjá Marel Umtalsverðar breytingar hafa orðið á eignarhaldi Marel á síðustu vikum. Eignarhlutur Burðaráss hf., sem hefur verið leiðandi hluthafi, hefur flust yfir til Landsbanka Íslands hf. Á sama tíma hefur Eyrir fjárfestingafélag ehf. aukið sinn hlut verulega og á nú tæplega þrjátíu prósent í félaginu. 11.10.2005 00:01
Albani enn í gæsluvarðhaldi Albaninn sem grunaður er um morð í Grikklandi og var handtekinn hér á meðan hann beið eftir að umsókn um hælisvist hans yrði tekin til umsagnar situr enn í gæsluvarðhaldi. Hann mun að öllum líkindum sitja út gæsluvarðhaldið sem lýkur um miðjan nóvember. Samkvæmt upplýsingum frá dóms- og kirkjumálaráðuneytinu hefur engin framsalskrafa borist til embættisins. 11.10.2005 00:01
Fiskur kemur í veg fyrir minnistap Fiskmeti kemur í veg fyrir heilarýrnun, minnistap og önnur öldrunareinkenni sem fylgja hækkandi aldri að því er nýleg bandarísk rannsókn sýnir. Í niðurstöðum þeirrar rannsóknar kemur fram að að borði fólk fisk einu sinni í viku minnkar minnistap einstaklinga um 10-13 %. 11.10.2005 00:01
Ný tilskipun um neytendalán Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur gefið út nýja tillögu að tilskipun um neytendalán. Evrópusamtök neytenda telja meðal annars að með nýju tillögunni séu ekki settar strangar reglur um ýmis atriði eins og yfirdráttarlán og kreditkort þrátt fyrir að þörf sé á reglum á þessum sviðum. 11.10.2005 00:01
Afsláttarkort sjúklinga send heim Ætlunin er að koma á næsta ári á sjálfvirku kerfi, þannig að þeir sem eiga rétt á afsláttarkorti vegna læknisþjónustu, fái afsláttarkortin sjálfkrafa send heim.<font face="Arial"></font> 11.10.2005 00:01
Eimskip rekur Herjólf næstu 5 árin Eimskip og Vegagerðin undirrituðu í dag samkomulag um rekstur Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs næstu fimm árin. Eimskip mun taka yfir rekstur Herjólfs um næstu áramót og er fyrsta ferðin áætluð 2. janúar. 11.10.2005 00:01
Jón Axel fékk 3 mánuði Jón Axel Ólafsson, fyrrverandi fjölmiðlamaður, var dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir brot á skatta- og hegningarlögum þegar hann sat sem stjórnarformaður Íslenska fjölmiðlafélagsins ehf. Honum var einnig gert að greiða 14,3 milljónir króna í sekt sem Jón Axel á að greiða innan fjögurra vikna, ella sæta sex mánaða fangelsi. 11.10.2005 00:01
Umræður um fjáraukalög Magnús Stefánsson, þingmaður Framsóknarflokks í norðvestur kjördæmi og formaður fjárlaganefndar, lagði áherslur á að auka aðhald í ríkisrekstri í fyrstu umræðum um fjáraukalög sem fram fóru á Alþingi í dag. 11.10.2005 00:01
Lögreglan fór inn á sautján staði Lögregla fór inn á sautján staði á Íslandi og í Bretlandi í rannsókn sinni á falþjóðlegu peningaþvætti, sem meðal annars tengist íslenskum aðilum. 11.10.2005 00:01
Múgæsingur á Seltjarnarnesi Fréttaflutningur af viðveru Steingríms Njálssonar á Seltjarnarnesi hefur valið nokkrum usla í bænum, en Steingrímur er margdæmdur fyrir kynferðisbrot gegn börnum. Í síðustu viku gerðu unglingar meðal annars aðsúg að húsi þar sem Steingrímur átti að hafa verið. 11.10.2005 00:01
Byrja með eða án Slippstöðvarmanna Hafist verður handa við stálfóðringu fallganga Kárahnjúkavirkjunar í Valþjófsstaðarfjalli í vikunni með eða án þátttöku starfsmanna Slippstöðvarinnar, segir Sigurður Arnalds, upplýsingafulltrúi virkjunarinnar. 11.10.2005 00:01
Tekur ábyrgð á dómsmálaráðherra Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segist fyllilega taka ábyrgð á dómsmálaráðherra þrátt fyrir ummæli hans á heimasíðu um að réttarkerfið hefði ekki sagt sitt síðasta orð í Baugsmálinu. Þetta kom fram á fundi sem forsætisráðherra hélt með blaðamönnum efti hádegið í dag. 11.10.2005 00:01
Lögbannsmál þingfest Mál Jónínu Benediktsdóttur á hendur Fréttablaðinu og Kára Jónassyni ritstjóra þess var þingfest í Héraðsdómi Reykjvíkur í gærmorgun. Krafist er staðfestingar á lögbanni sem sett var á birtingu einkagagna Jónínu og upptöku á gögnum hjá blaðinu, auk bóta og refsingar. 11.10.2005 00:01
Fékk milljónasekt og skilorð Jón Axel Ólafsson, fyrrum fjölmiðlamaður var dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær fyrir brot á skatta- og hegningarlögum árin 1998 og 1999. 11.10.2005 00:01
Tekin full í fimmta sinn Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt konu á fertugsaldri í tveggja mánaða fangelsi fyrir að hafa ekið bifreið ölvuð og án ökuréttinda í mars síðastliðnum. Þetta er í fimmta sinn sem konan er tekin fyrir ölvunarakstur síðan árið 2001. 11.10.2005 00:01
Sýna til styrktar MND félaginu Borgarleikhúsið hefur ákveðið að gefa ágóða einnar sýningar af Sölku Völku til MND-félagsins, en það er félag fólks með hreyfitaugahrörnun. 11.10.2005 00:01