Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Slökkviliðið kallað út Slökkviðliðið á höfuðborgarsvæðinu hefur verið kallað út vegna hugsanlegs elds í Laugateig. Reyk lagði frá kjallaraíbúð en nánari upplýsingar liggja ekki fyrir að svo stöddu. 11.10.2005 00:01
Fundar með aðilum vinnumarkaðar Ríkisstjórnin hyggst funda með forsvarsmönnum Alþýðusambandsins og aðila vinnumarkaðar um stöðu kjarasamninga. Fulltrúar ASÍ fagna aðkomu ríkisstjórnar að málinu en eru ekki sammála þeim orðum Halldórs í stefnuræðu að kjarasamningar væru ekki í hættu vegna efnahagsstjórnunar ríkisstjórnarinnar. 11.10.2005 00:01
Verið að reykræsta Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu er nú að reykræsta í kjallaraíbúð við Laugateig. Talið var að eldur hafi kviknað í íbúðinni út frá eldavél en síðar kom í ljós að aðeins hafi soðið upp úr potti. 11.10.2005 00:01
Lifnar yfir Slippnum Í morgun lifnaði yfir athafnarsvæði Slippsins á Akureyri, þegar fjörtíu og fimm af eitthundrað starfsmönnum Slippstöðvarinnar mættu til starfa hjá nýjum vinnuveitanda. Nýstofnað félag, Slippurinn Akureyri, hefur leigt allan þann búnað sem Slippstöðin hafði yfir að ráða. 11.10.2005 00:01
Bílvelta nærri Hvolsvelli Bílvelta varð nærri Hvolsvelli um fjögurleytið í dag þegar ökumaður jeppa missti stjórn á bifreið sinni. Að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli sluppu bæði ökumaður og farþegi ómeiddir. 11.10.2005 00:01
Sprengt í aðdraganda stjórnarskrár Um þrjátíu fórust í sprengjuárásum í Írak í dag, aðeins fjórum dögum fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um nýja stjórnarskrá þar. Stjórnarskráin átti að marka nýtt upphaf fyrir Írak, en gæti haft þveröfug áhrif. 11.10.2005 00:01
Breytt hlutverk Íbúðalánasjóðs Stefnt skal að því að Íbúðalánasjóður hafi það meginhlutverk í framtíðinni að tryggja bönkum og sparisjóðum fjármögnun íbúðalána með lægstu mögulegum vöxtum, en starfi ekki á almennum útlánamarkaði. Þetta er meðal þess sem kemur fram í drögum að ályktun um húsnæðismál sem tekin verður fyrir á landsfundi Sjálfstæðisflokks nú um helgina. 11.10.2005 00:01
Um sex milljónir vantar Í fjárlagafrumvarpi sem nú liggur fyrir Alþingi er ekki gert ráð fyrir að endurgreiðslur á virðisaukaskatti vegna kaupa sveitarfélaga á slökkvibifreiðum og búnaði slökkviliða hækki frá fyrra ári. Er lagt til að þær muni nema 30 milljónum króna. 11.10.2005 00:01
Barnabætur óháðar tekjum Í drögum að ályktun Sjálfstæðisflokks um fjölskyldumál, sem lögð verður fyrir landsfund flokksins nú um helgina, er hvatt til þess að lagaumhverfi verði með þeim hætti að það -hvetji- fremur en letji fólk til að búa saman í fjölskyldum. 11.10.2005 00:01
Saddam hefur kosningarétt Rósturnar í Írak stigmagnast eftir því sem nær dregur þjóðaratkvæðagreiðslunni um stjórnarskrárdrög landsins en hátt í fimmtíu manns létust í hryðjuverkaárásum í gær. Íraskir embættismenn hafa greint frá því að Saddam Hussein geti neytt atkvæðisréttar síns á laugardaginn. 11.10.2005 00:01
Verður umbunað „Ríkið segist ekki þvinga sveitarfélög til sameiningar, en þeim sem hlýða er umbunað," segir Gústaf Jökull Ólafsson, oddviti í Reykhólahreppi. Hann telur ólíklegt að íbúar Reykhólahrepps muni snúast hugur og samþykkja sameiningu sveitarfélaga með Dalabyggð og Saurbæjarhreppi. 11.10.2005 00:01
Forsætisráðherranum stefnt Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, hefur verið stefnt sem fulltrúa ríkisins fyrir að hafa brotið stjórnarskrána með aðild Danmerkur að innrásinni í Írak fyrir um tveimur og hálfu ári. 11.10.2005 00:01
The Times segir dóminn áfall Þar sem Jón Ásgeir Jóhannesson hefur lýst því yfir að hann haldi sér til hlés í fjárfestingum á meðan málaferli gegn honum standa yfir er ákvörðun Hæstaréttar Íslands í fyrradag áfall. Þetta segir Lundúnablaðið Times í umfjöllun sinni. 11.10.2005 00:01
Haglél tefur hjálparstarfið Neyðaraðstoð til bágstaddra á jarðskjálftasvæðunum í Kasmír berst nú víðs vegar að en óveður hamlaði hins vegar hjálparstarfi í gær. Rúmlega fjörutíu þúsund manns eru taldir látnir. 11.10.2005 00:01
Óvissa á atvinnumarkaði Launþegar munu í síðasta lagi vita þann 10. desember hvort kjarasamningum verði sagt upp. „Það liggur alveg fyrir að forsendan um 2,5 prósent verðbólgu hefur ekki gengið eftir, og það þýðir að verið er að skoða varnaglann um endurskoðun sem sleginn var í kjarasamningunum,“ segir Stefán Úlfarsson, hagfræðingur hjá Alþýðusambandi Íslands. 11.10.2005 00:01
Umferðin hættuleg börnum Slæm umgengni verktaka við Gvendargeisla, auk skorts á gangbrautum yfir götuna, setur börn sem ganga í Sæmundarsel í hættu. „Það vantar gangbrautir yfir Gvendargeisla og sums staðar sturta verktakar drasli frá sér og skilja eftir ruðninga sem fara alveg upp á þar sem gangbrautirnar eiga að vera. Þetta neyðir börnin til þess að ganga út á götu,“ segir Eygló Friðriksdóttir, aðstoðarskólastjóri í Sæmundarseli, en Sæmundarsel er útibú frá Ingunnarskóla. 11.10.2005 00:01
Hryllilegt ástand í Pakistan Engin von þykir til þess að nokkur finnist á lífi á hamfarasvæðunum í Suður-Asíu. Þegar björgunarmenn og hjálpargögn tóku loksins að berast þangað fór að rigna, og nú er það vatnsflaumur sem hamlar björgunarstarfinu. 11.10.2005 00:01
Ekki ástæða til afsagna Ríkislögreglustjóri telur ekki ástæðu til að yfirmenn hjá embættinu segi af sér vegna Baugsmálsins, en segist þó hafa íhugað það. Þeir átta ákæruliðir sem eftir standa eftir dóm Hæstaréttar snúast um efnahagsreikninga og tollsvik sem nema rúmlega tveimur milljónum króna. 11.10.2005 00:01
Forsetakjör í Líberíu Fyrsti lýðræðislega kjörni forseti Afríkulýðveldisins Líberíu eftir fjórtán ára borgarastyrjöld var kjörinn í dag. Niðurstaðan liggur ekki fyrir en knattspyrnuhetjan George Weah er meðal þeirra sem þykja líklegir. 11.10.2005 00:01
Engar skipanir í Baugsmálinu Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segir réttarkerfið ekki hafa sagt sitt síðasta í Baugsmálinu, þrátt fyrir að aðeins átta af fjörutíu upphaflegu ákæratriðunum standi eftir. Ráðherra telur best fyrir alla sem að málinu koma að það verði tekið til efnismeðferðar fyrir dómstólum. 11.10.2005 00:01
Halldór tekur fulla ábyrgð á Birni Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segist taka fulla ábyrgð á dómsmálaráðherra þrátt fyrir ummæli hans um réttarkerfið og Baugsmálið. Hann segir dóminn í gær harðorðan áfellisdóm yfir lögreglu og ákæruvaldinu og fagnar því að málið sé komið á borð ríkissaksóknara. 11.10.2005 00:01
Sakaði Björn um blaður og brottför Björn Bjarnason dómsmálaráðherra var sakaður um að segja ákæruvaldinu fyrir verkum með skrifum á heimasíðu sinni á Alþingi í dag. Steingrímur J Sigfússon, formaður Vinstri-grænna sagði, ráðherrann blaðra á heimasíðunni en flýja síðan til útlanda. 11.10.2005 00:01
Árangurslaus húsleit á Goldfinger Tólf lögreglumenn gerðu húsleit á súludansstaðnum Goldfinger í Kópavogi síðastliðið föstudagskvöld. Flest reyndist vera í lagi en grunur leikur þó á að einkadans sé dansaður í lokuðu rými. Friðrik Smári Björgvinsson, yfirlögregluþjónn í Kópavogi, segir að um hefðbundið eftirlit hafi verið að ræða. Heimildir fréttastofu herma að grunur hafi verið um að mönnum hafi verið byrlað ólyfjan þannig að þeir misstu minnið og vissu ekki fyrr en mjög háir kreditkortareikningar kæmu inn um lúguna. 11.10.2005 00:01
Hnuplað fyrir milljarða Búðarþjófar leggja oft mikið á sig við iðju sína og beita ótrúlegustu aðferðum. Íslendingar stálu úr verslunum á síðasta ári fyrir einn komma átta milljarða króna. Spenna, gróðafíkn eða fátækt býr gjarnan að baki búðahnuplinu. 11.10.2005 00:01
Flóttamenn til landsins Tíu flóttamenn, konur og börn komu til Íslands í dag frá Kólumbíu. Þetta er þriðji hópurinn sem kemur til landsins á þessu ári. </font /> 11.10.2005 00:01
Lánum og fjárdrætti blandað saman Ég tek að sjálfsögðu ábyrgð á dómsmálaráðherra í minni ríkisstjórn," sagði Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra í gær um þau ummæli Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra á vefsíðu sinni að réttarkerfið hefði ekki sagt sitt síðasta orð í Baugsmálinu. 11.10.2005 00:01
Dómsmálaráðherra taki ábyrgð "Það er algerlega óviðeigandi og óþolandi að yfirmenn - það er framkvæmdavaldið - hafi afskipti með þessum hætti af málefnum sem eru fyrir dómstólum," sagði Gestur Jónsson verjandi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar í Baugsmálinu þegar Fréttablaðið bar undir hann þau ummæli dómsmálaráðherra. > 11.10.2005 00:01
Tveir boltar í Öxaránni „Öxaráin er full af stórurriða þessa dagana. Hann er þarna í bullandi hrygningu og inn á milli eru risastórir hængar eins og þessi á myndinni. Þeir eru að slást um ástaratlot og hilli glæsilegra hrygna,“ segir Össur Skarphéðinsson, alþingismaður og líffræðingur. 11.10.2005 00:01
Hannes fékk lögfræðiálit „Ráðuneytið vinnur ekki lögfræðilegar álitsgerðir fyrir einstaklinga,“ segir Stefán Eiríksson, skrifstofustjóri í dómsmálaráðuneytinu. Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor fékk þó ráðgjöf í ráðuneytinu varðandi meiðyrðamál sem Jón Ólafsson kaupsýslumaður höfðaði gegn honum. 11.10.2005 00:01
Maður með þúsundir mynda „Þetta hlýtur að vera lang umfangsmesta mál sinnar tegundar hér á landi,“ segir Hörður Jóhannesson, yfirlögregluþjónn í Reykjavík um rannsókn á máli manns sem hafði barnaklám undir höndum. „Rannsókninni var að ljúka í síðustu viku. 11.10.2005 00:01
Blanda saman fjárdrætti og lánum „Þessi dómur hæstaréttar er mjög harðorður og hlýtur að vekja ýmsar spurningar,“ segir Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra. „Mér þykir það sérkennilegt þegar ég les það að menn blandi saman fjárdrætti og ólöglegum lánum. Í mínum huga er himinn og haf milli þarna á milli,“ segir Halldór. 11.10.2005 00:01
Dýrt að halda uppi réttarríki Jón H. B. Snorrason, saksóknari ríkislögreglustjóra, segir að Björn Bjarnason dómsmálaráðherra hafi að sínu leyti rétt fyrir sér þegar hann segi á vefsíðu sinni að réttarkerfið hafi ekki sagt sitt síðasta orð. „Máli sem tekið er til rannsóknar getur aðeins lokið með tvennum hætti. Annars vegar með bréfi þar sem greint er frá því að ekki þyki tilefni til þess að gefa út ákæru. Hins vegar með útgáfu ákæru sem dómstólar fjalla þá um. 11.10.2005 00:01
Aðeins til einkanota „Gagnagrunnur símaskrárinnar á netinu er eingöngu til einkanota,“ segir Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Já. Fyrirtækið sér um rekstur á símaskra.is ásamt 118 og tengdri þjónustu. 11.10.2005 00:01
Gagnrýna lífstíðardóma ungmenna Að minnsta kosti 2.225 ungmenni, sem brutu af sér á barns- eða unglingsaldri, afplána nú lífstíðarfangelsisdóma í bandarískum fangelsum, án möguleika á skilorði. Í öðrum löndum heims sitja samtals tólf ungmenni inni sem afplána svo þunga dóma. 11.10.2005 00:01
Kanslaravald Merkel skert Angela Merkel mun þurfa að sætta sig við hömlur á valdi sínu sem kanslari í samsteypustjórn kristilegra demókrata og jafnaðarmanna. Þetta sögðu forystumenn úr báðum flokkum í gær, daginn eftir að kunngjört var að Merkel yrði kanslari í slíkri samsteypustjórn ef samningar um málefnasamning. 11.10.2005 00:01
Réttað í Haag í Vukovar-máli Réttarhald hófst í gær fyrir Stríðsglæpadómstól Sameinuðu þjóðanna í Haag í máli þriggja fyrrverandi foringja úr júgóslavneska hernum, sem ákærðir eru fyrir vísvitandi fjöldamorð á að minnsta kosti 264 flóttamönnum, sjúklingum og starfsfólki á sjúkrahúsi í bænum Vukovar í Króatíu árið 1991. 11.10.2005 00:01
Schröder ekki í nýrri ríkisstjórn Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, gaf í skyn í dag að hann yrði ekki hluti af nýrri ríkisstjórn landsins. Í gær var greint frá því að Angela Merkel, formaður kristilegra demókrata, yrði næsti kanslari Þýskalands. 11.10.2005 00:01
Kaupsamningum um fasteignir fækkar Kaupsamingum um fasteignir hefur fækkað frá öðrum ársfjórðungi. Á þriðja ársfjórðungi 2005 var í kringum tvö þúsund og fjögur hundruð kaupsamningum um fasteignir þinglýst við embætti sýslumanna á höfuðborgarsvæðinu. 11.10.2005 00:01
Íbúar hafna víða sameiningu „Niðurstaðan kemur á óvart, ekki síst í ljósi margítrekaðra samþykkta sveitarstjórnarmanna um vilja til sameiningar. Hún hlýtur að vera sveitarstjórnarmönnum veruleg vonbrigði,“ sagði Árni Magnússon félagsmálaráðherra um niðurstöður sameiningarkosninga sveitarfélaga sem fram fóru í gær. 9.10.2005 00:01
Minni sveitarfélög sögðu nei Íbúar stærri sveitarfélaga virðast láta sig litlu skipta sameiningu við þau smærri, en samþykktu hana gjarnan. Á sama tíma flykktust víða íbúar smærri staða á kjörstað til að hafna sameiningu. 9.10.2005 00:01
Verkfalli aflýst á Skaganum Skrifað var undir nýjan kjarasamning Starfsmannafélags Akraness í gærkvöld. Þar með var frestað verkfalli sem annars átti að hefjast á miðnætti í kvöld. Gísli Gíslason, bæjarstjóri á Akranesi, segir að yfir daginn hafi menn velt á milli sín tilboðum, en fagnaði því að lending skuli hafa náðst. 9.10.2005 00:01
Vilja öðruvísi skattalækkanir Hætta á við áform um skattalækkanir og huga að því hvort taka beri upp evru sem gjaldmiðil. Þetta sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar. á opnum fundi í Reykjavík í gær. 9.10.2005 00:01
Eldur hjá KFC Töluvert tjón varð á veitingastaðnum Kentucky Fried Chicken í Faxafeni í nótt þegar eldur kom upp við djúpsteikingapott í eldhúsi og var allt tiltækt slökkvilið sent á vettvang. 9.10.2005 00:01
Erill hjá lögreglu Maður var handtekinn þegar hann reyndi að brjótast inn í einbýlishús í Mosfellsbæ í morgun. Lögreglunni barst tilkynning um innbrotið og var maðurinn handtekinn á staðnum. 9.10.2005 00:01
Hátt í tuttugu þúsund létust Nú er talið að hátt í tuttugu þúsund manns hafi týnt lífi í gríðarsterkum jarðskjálfta sem reið yfir norðurhluta Pakistans, Afganistans og Indlands í gærmorgun. Skjálftinn var 7,6 á Richter og hefur sterkari skjálfti ekki mælst á þessu svæði í meira en öld. 9.10.2005 00:01