Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Framtíðin skýrist hjá starfsfólki Starfsmannafundur hjá fiskvinnslufyrirtækinu Suðurnesjum, þar sem skýrt verður frá framtíð fyrirtækisins og starfsfólks þess, hófst klukkan eitt. Fundurinn er aðeins fyrir starfsfólk og hefur fyrirtækinu verið lokað til klukkan þrjú vegna fundarins. 20.7.2005 00:01
Vel heppnuð mótmæli Mótmælendur við Kárahnjúka telja mótmælaaðgerðir í gær vel heppnaðar. Þeir segjast ekki skilja ummæli talsmanns Impregilo um mótmælin og eru ekki par sáttir við það fyrirtæki. 20.7.2005 00:01
Bretum að kenna segja múslímar Hryðjuverkaárásirnar á Lundúnir eru bresku stjórninni og almenningi í Bretlandi að kenna. Þetta segja forsvarsmenn róttækra múslíma á Bretlandi. 20.7.2005 00:01
Öllum starfsmönnum sagt upp Fiskvinnslufyrirtækinu Suðurnesjum hefur verið lokað og var öllum 45 starfsmönnum þess sagt upp nú fyrir stundu. Á fundi með starfsmönnum í dag sögðust stjórnendur ætla að hjálpa starfsmönnum að finna nýja vinnu og munu þeir hitta starfsmenn í fyrramálið. 20.7.2005 00:01
Breskir hermenn ákærðir Ellefu breskir hermenn hafa verið ákærðir fyrir manndráp og misþyrmingar á föngum í Írak. 20.7.2005 00:01
Flóðin á Indlandi taka sinn toll Í það minnsta 239 manns hafa drukknað í flóðum á Indlandi síðustu dægrin. Rigningartíminn stendur nú sem hæst í landinu. 20.7.2005 00:01
Sprengja í Kasmír Að minnsta kosti sex fórust í sprengjutilræði í Srinagar, sumarhöfuðborg Jammu-Kasmír héraðs, og 20 meiddust. 20.7.2005 00:01
Meintur forsprakki handtekinn Pakistanska lögreglan hefur mann í haldi sem hún segir hafa átt beinan þátt í sprengjutilræðunum í Lundúnum 7. júlí. 20.7.2005 00:01
Súnníar hættir í nefndinni Súnníar hafa dregið sig úr stjórnarskrárnefnd Íraks eftir að Mijbil Issa félagi þeirra var myrtur í fyrradag. Þá var gerð sjálfsmorðsárás í Bagdad sem tíu manns dóu í. 20.7.2005 00:01
Óperan fagnar hugmynd Gunnars Stjórn Íslensku óperunnar fagnar hugmynd Gunnars I. Birgissonar, bæjarstjóra og alþingismanns, um byggingu sérhannaðs óperuhúss fyrir Íslensku óperuna á Borgarholtinu í Kópavogi. 20.7.2005 00:01
Forskot kristilegra minnkar Kristilegu flokkarnir í Þýskalandi halda miklu forskoti á stjórnarflokkana, jafnaðarmenn og græningja, í nýjustu skoðanakönnuninni sem niðurstöður voru birtar úr á miðvikudag. Kosið verður til þings í Þýskalandi í september. 20.7.2005 00:01
Bush velur íhaldsmann í Hæstarétt George W. Bush Bandaríkjaforseti útnefndi á þriðjudag John G. Roberts í embætti hæstaréttardómara, en þetta er í fyrsta sinn í áratug sem nýr maður er skipaður í Hæstarétt Bandaríkjanna. Repúblikanar fögnuðu valinu á Roberts en demókratar eru lítt hrifnir, enda hefur Roberts skapað sér orðstír fyrir að vera mjög íhaldssamur. 20.7.2005 00:01
50 ára trúarstríð framundan Hryðjuverk um alla veröld er eins og kjarnorkusprengja sem hrint hefur verið af stað, segir faðir eins þeirra sem frömdu hryðjuverkin í Bandaríkjunum 11. september árið 2001. Um leið fullyrti hann að frekari árásir myndu fylgja í kjölfarið og sagði árásirnar á Lundúnir, New York og Madrid aðeins vera upphafið að hálfrar aldar löngu trúarstríði. 20.7.2005 00:01
Þrír látast úr fuglaflensu Yfirvöld í Indónesíu staðfestu í morgun að þrír Indónesar hefðu látist úr fuglaflensu. Rannsókn á líkum mannanna þriggja í Hong Kong staðfesti dánarorsökina. Þetta eru fyrstu Indónesarnir sem látast úr fuglaflensu. 20.7.2005 00:01
Kollvarpar framtíðarsýninni Í opnu bréfi yfirdýralæknis til landbúnaðarráðherra segir að ákvörðun ráðherra um að staðsetja Landbúaðarstofnun á Selfossi kollvarpi framtíðarsýn embættisins. Embættið hafi stefnt að því að sameina þá starfsmenn sem gegna lykilhlutverki í stjórnsýslu og þjónustu á einum stað á höfuðborgarsvæðinu. 20.7.2005 00:01
Grímulausar áfengisauglýsingar "Ég skil ekki hvað fólki gengur til með því að setja áfengisauglýsingar á bloggsíður barna eins og gert er á blogcentral.is," segir Árni Guðmundsson æskulýðs- og tómstundarfulltrúi í Hafnarfirði. 20.7.2005 00:01
Ellefu hringtorg í Vallarhverfi Sennilega geta fá hverfi á landinu státað af jafn mörgum hringtorgum og Vallahverfið í Hafnarfirði en í og við hverfið eru ein ellefu hringtorg. Dýrleif Ólafsdóttir sem býr á Blómvöllum segist þurfa að fara um sex hringtorg þegar hún aki börnum sínum á æfingavöllinn sem þó er stutt frá. 20.7.2005 00:01
Rjúpnaveiði hefst á ný Rjúpnaveiðar hefjast aftur í haust en Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra tilkynnti ákvörðun sína þess lútandi í gær. Enn liggur ekki fyrir hversu margar verður heimilt að veiða en reglugerð um veiðarnar lítur dagsins ljós í lok næsta mánaðar eða byrjun september. 20.7.2005 00:01
Öllum verði tryggð skólavist Stjórn Heimdallar hefur skorað á fjármála- og menntamálaráðherra að tryggja öllu ungu fólki á Íslandi skólavist. Heimdallur vísar til þess að á hátíðarstundum sé talað um unga fólkið sem framtíðarauð þjóðarinnar og að talað sé um þekkingarþjóðfélag. 20.7.2005 00:01
Tilboð upp á rúmar 700 milljónir Viðræður eru hafnar milli Reykjavíkurborgar og Íslenska gámafélagsins um kaup þess síðarnefnda á Vélamiðstöð Reykjavíkur en gámafélagið var hæstbjóðandi í nýafstöðu útboði. 20.7.2005 00:01
Skorar á Árna að hlekkja sig Mótmælendur sem halda til við Kárahnjúka hafa vakið athygli á málstað sínum með ýmsum hætti og þótti sitt hverjum þegar nokkrir þeirra hlekkjuðu sig við vinnuvélar. Birgitta Jónsdóttir er ein af talsmönnum mótmælendanna við Kárahnjúka. 20.7.2005 00:01
Eftirlit á innra svæðinu Dóms- og kirkjumálaráðuneytið vekur athygli á því að Frakkar og Ítalir hafa ákveðið að taka upp landamæraeftirlit á innri landamærum aðildarríkja Schengen-samningsins. Ferðamenn sem og aðrir geta því vænst þess að þurfa að sæta vegabréfaeftirliti við komu og brottför frá Frakklandi og Ítalíu. 20.7.2005 00:01
Mótmælendur skotnir af lögreglu Að minnsta kosti ellefu mótmælendur voru drepnir í átökum lögreglu og mótmælenda í Jemen í dag. Verið var að mótmæla hækkun bensínverðs í landinu sem tvöfaldaðist í verði nýverið í kjölfar aðgerða ríkisstjórnar Jemens í efnahagsmálum. 20.7.2005 00:01
Jón forstjóri Landbúnaðarstofnunar Landbúnaðarráðherra hefur ákveðið að skipa Jón Gíslason í starf forstjóra Landbúnaðarstofnunar til fimm ára, frá og með 1. ágúst næstkomandi. Jón starfaði sem forstöðumaður Hollustuverndar ríkisins í sjö ár. Frá árinu 2000 hefur hann starfað hjá eftirlitsstofnun EFTA í Brussel. 20.7.2005 00:01
Heimdallur vill alla í skóla Stjórn Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, sendi í gær frá sér ályktun þar sem félagið skoraði á samflokksmenn sína, Geir H. Haarde fjármálaráðherra og Þorgerði Katríni Gunnarsdóttir menntamálaráðherra að tryggja það að allt ungt fólk á Íslandi fengi skólavist. 20.7.2005 00:01
Forstjóri Landbúnaðarstofnunar Guðni Ágústsson hefur skipað Jón Gíslason forstjóra Landbúnaðarstofnunar til fimm ára frá 1. ágúst næstkomandi. Alls sóttu 23 um starfið. Jón er næringarlífeðlisfræðingur og hefur síðustu ár starfað hjá Eftirlitsstofnun EFTA í Brussel. 20.7.2005 00:01
Dýralæknar ósáttir við Selfoss Allir starfsmenn embættis yfirdýralæknis eru andvígir því að ný Landbúnaðarstofnun verði staðsett á Selfossi. Landbúnaðarstofnun er ný stofnun sem heyrir undir Landbúnaðarráðuneytið og mun taka til starfa í ársbyrjun 2006. 20.7.2005 00:01
Stjórnmálasamband við Djíbútí Fastafulltrúar Íslands og Djíbútí hjá Sameinuðu þjóðunum, sendiherrarnir Hjálmar W. Hannesson og Robel Olhaye, undirrituðu yfirlýsingu um stofnun stjórnmálasambands ríkjanna í New York í gær. 20.7.2005 00:01
Kennarar í Landakoti ósáttir "Umbjóðendur mínir segjast hafa fengið loforð um það á fundi 13. júní síðastliðinn að leitað yrði allra leiða til að finna skólastjóra sem allir gætu sætt sig við," segir Einar Hugi Bjarnason, lögmaður hóps ósáttra kennara í Landakotsskóla. 20.7.2005 00:01
Átak í Kópavogi Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti í fyrradag tillögu sem kom frá Samfylkingunni um átak til að auka notkun fólks á aldrinum tólf til átján ára á strætó. Á átakið að hefjast í lok ágúst og standa í í það minnsta einn mánuð. Meðal annars á að bjóða fólki á þessum aldri sérstök kjör. 20.7.2005 00:01
Stanslausar yfirheyrslur í 10 tíma Örnu Ösp Magnúsardóttur var haldið ósofinni í stanslausum yfirheyrslum í tíu klukkutíma hjá lögreglunni í Ísrael á sunnudaginn, borin þeim sökum að hylma yfir með hryðjuverkamönnum. Hún vill að utanríkisráðuneytið beiti sér í málinu. 20.7.2005 00:01
Meiri áhætta Íbúðalánasjóðs <font face="Helv"></font> Félagsmálanefnd Alþingis kemur saman fyrir hádegi í dag til að fjalla um lánasamninga Íbúðalánasjóðs við sparisjóði og banka. Álitamál hafa risið um lögmæti lánveitinganna og hvort þau samrýmist markmiðum sjóðsins. 20.7.2005 00:01
Aukið landamæraeftirlit í Evrópu Bæði Frakkar og Ítalir hafa í kjölfar hryðjuverkaárásanna í Lundúnum á dögunum ákveðið að taka upp landamæraeftirlit á innri landamærum Schengen-svæðisins. Ferðamenn og aðrir geta því búist við því að þurfa að sæta vegabréfaeftirliti við komu og brottför frá þessum löndum 20.7.2005 00:01
Atvinnuþátttaka Íslendinga eykst Konur sækja í sig veðrið á vinnumarkaðnum sem sést af því að litlu fleiri konur eru nú atvinnulausar en karlar, en voru nær tvöfalt fleiri í fyrra. Atvinnuþátttaka Íslendinga er sú langmesta á Vesturlöndum og ef til vill í heiminum. Hún er núna 83,5 prósent eða u.þ.b. einu prósentustigi meiri en á sama tíma í fyrra. 20.7.2005 00:01
Enginn byggir á öryggissvæðinu Samgönguráðherra segir ljóst að enginn byggi á öryggissvæði Reykjavíkurflugvallar. Fyrirhugað byggingasvæði Háskólans í Reykjavík nær inn fyrir öryggisgirðingar Reykjavíkurflugvallar og upp að flughlaði björgunarþyrlna Landhelgisgæslunnar. Ekkert samráð var haft við flugmálayfirvöld um byggingaráformin. 20.7.2005 00:01
Fá tæpar 300 krónur á tímann Verkalýðsfélag Akraness leggur í dag fram kæru á hendur Sputnikbátum vegna starfa fimm Pólverja sem formaður félagsins segir að fái tæpar 300 krónur í laun á tímann. Ágreiningur er um hvort mennirnir stundi hefðbundna launavinnu eða starfi samkvæmt samningi um þjónustuviðskipti. 20.7.2005 00:01
Á bátum í skólann Miklar rigningar sem fylgt hafa í kjölfar fellibylsins Dennis á karabíska hafinu hafa orðið til þess að grunnskólabörn í Seaview skólanum á Jamaika hafa þurft að fara á bátum í skólann síðustu daga. 20.7.2005 00:01
120 rafiðnarmenn til landsins Eitt hundrað og tuttugu rafiðnaðarmenn frá Slóveníu og Króatíu eru væntanlegir til landsins til að reisa nýja línu frá Sultartanga inn í Hvalfjörð vegna stækkunar Norðuráls. Þetta eru rafiðnaðarmenn sem sjá um að reisa möstrin og strekkja út línurnar og járniðnaðarmenn sem sjá um samsetningar á möstrunum. 20.7.2005 00:01
Íslenskir jeppar í friðargæslu Íslenskir fjallajeppar verða notaðir við friðargæslu í Afganistan. Bandaríkjamenn vilja að íslenskir friðargæsluliðar og kollegar þeirra taki við störfum í Suður-Afganistan þar sem talíbanar eru skæðir og drepi menn, þurfi þess. 20.7.2005 00:01
Enginn mótmælenda kærður Enginn þeirra sem mótmæltu við Kárahnjúka í gær verða kærðir vegna málsins. Talsmaður Landsvirkjunar segir þó að frekari mótmæli af þessu tagi verði ekki liðin. 20.7.2005 00:01
Ósátt við starfsmatið Félagar í Starfsmannafélagi Kópavogs felldu kjarasamning við bæinn með 55 prósentum atkvæða í kosningu þar sem 160 af 766 félagsmönnum greiddu atkvæði. 20.7.2005 00:01
Hungurverkfall á Guantanamo Um 180 afganskir fangar í Guantanamo eru komnir í hungurverkfall til að mótmæla illri meðferð í fangelsinu og knýja á um lausn sína segja tveir fangar sem var sleppt í gær. 20.7.2005 00:01
Sigmundur Ernir í stað Páls Páll Magnússon segist ósammála grundvallarstefnu fjölmiðlafyrirtækisins 365 og hefur látið af störfum hjá félaginu. Hann ætlar að sækja um stöðu útvarpsstjóra í dag. Sigmundur Ernir Rúnarsson hefur verið ráðinn fréttastjóri Stöðvar 2. 20.7.2005 00:01
Ógnað í yfirheyrslum "Ég var óörugg um mína stöðu enda fékk ég aldrei upplýsingar um hvað gerðist næst," segir Arna Ösp Magnúsardóttir, tvítugur Palestínufari. Arna er komin til Lundúna eftir handtöku ísraelskra yfirvalda á flugvellinum í Tel Aviv í Ísrael á mánudag. 20.7.2005 00:01
Freista þess að komast til Nablus "Það er óvíst að við komumst til Nablus vegna ástandsins sem hér ríkir," segir Margrét Scheving Thorsteinsson, ein sex íslenskra ungmenna sem stödd eru í Palestínu. Vaxandi spennu hefur gætt í samskiptum Ísraela og Palestínumanna. 20.7.2005 00:01