Innlent

Vel heppnuð mótmæli

Mótmælendur við Kárahnjúka telja mótmælaaðgerðir í gær vel heppnaðar. Þeir segjast ekki skilja ummæli talsmanns Impregilo um mótmælin og eru ekki par sáttir við það fyrirtæki. Þrír lögreglumenn eru á vakt á Kárahnjúkum sem stendur og verða alla vega svo margir eitthvað fram eftir degi. Lögreglumennirnir voru ellefu talsins um tíma í gær þegar mótmælin stóðu sem hæst og mótmælendur hlekkjuðu sig meðal annars við vinnuvélar. Þrettán voru handteknir, allir útlendingar, en þeir búa í tjaldbúðunum á staðnum. Ólafur Páll Sigurðsson, einn þeirra sem sjá um tjaldbúðirnar, segir að mótmælum verði haldið áfram þó hann sjái ekki um að skipulegga þau. Honum fannst mótmælin í gær ganga ágætlega. Markmiðinu, að stöðva vinnu þó ekki væri nema tímabundið, hafi verið náð en vinnan á þeim stað vinnusvæðisins sem mótmælendurnir beittu sér stöðvaðist í þrjá tíma. Aðspurður um sáttina á milli mótmælenda og Impregilo sem talsmaður fyrirtækisins hefur talað um segist Ólafur Páll ekki vita hvaðan sú hugmynd komi. „Það er nú dálítið hlægilegt að heyra það að hann haldi að við höfum einhverja samúð með hans málstað. Við höfum enga samúð með þeim sem eru að eyðileggja landið,“ segir Ólafur. Hann segir alla velkomna til að mótmæla með þeim sem fyrir eru á staðnum, hver með sínu nefi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×