Innlent

Kollvarpar framtíðarsýninni

Í opnu bréfi yfirdýralæknis til landbúnaðarráðherra segir að ákvörðun ráðherra um að staðsetja Landbúaðarstofnun á Selfossi kollvarpi framtíðarsýn embættisins. Embættið hafi stefnt að því að sameina þá starfsmenn sem gegna lykilhlutverki í stjórnsýslu og þjónustu á einum stað á höfuðborgarsvæðinu. Yfirdýralæknir kaupir ekki þau rök ráðherra að verið sé að færa þjónustuna nær þeim sem njóta hennar. Segir yfirdýralæknir að ákvörðunin sé á misskilningi byggð þar sem þeir sem þjónustuna nýta helst séu þeir sem eru í inn- og útflutningi á landbúnaðarvörum. Í bréfinu segir að í stað þess að gera eina öfluga stofnun á höfuðborgarsvæðinu stefni í mikla röskun og óhagræðingu fyrir stafsmenn, fjölskyldur þeirra og stofnunina.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×